Tíminn - 27.06.1964, Blaðsíða 15
VÍÐAVANGUR —
Þannig hefuF stjórnarand-
staðan og samtök launþega á-
orkað því að knýja stjótrnina
til undanhalds í hverju málinu
af öðru. Stjórnin hefur valið
sér það hlutskjpti að hanga _ í
stólunum en falla frá mörgum
veigamestu atriðunum í stefnu
sinni. Því hefur máttuir sam-
takanna áorkað. Áreiðanlega
veitir ekki af, að þau samtök
verði enn á verði og veiti ríkis
stjóminni það aðhald, sem
reynslan hsfur sýnt að nauð-
rynSegt er. Hvar væru má'lefni
launþega í dag og hvernig væri
hagur þeirra, ef stefna Sjáif-
stæðisflokkslins og Alþýðuflokks
ins hefði fengið að ráða, eins
oig hú.tn var birt þjóðinni haust
ið 1959?
Framsóknarflokkuriinn má santi
arlega fagna þessari nliðurlæg-
ingu viðreisnarinnar. Hann hef
ur verið foirustuflokkur stjórn
aran-dstöðunnar og flutt árlega
tillögur á Alþingi um vaxta-
Jækkun, hækkun íbúðarlána,
verðtryggingu kaupgjalds og
önnur þau málefni, sem stjóirn
ín nú neyðist til að semja um
við fulltrúa verkalýðsfélaganna
enda þótt hún hafi barizt á
móti þessum málum frá fyrsta
degi. Þannig getur flokkur í
stjórnarandstöðu unnið mikil-
vægt stjóirnmálastarf með já-
kvæðum málefnaflutningi
Góð mál sigra ætíð að lokum.
(Magni, Akranesi).
iYNDIR I GEGNUA/TLIFIÐ _
■ Framhaiö a) 9 siðu
— Ef ég hef tíma til. Ef ekki
núna, þá bara einhvern tíma
seinna. Einhvern tíma ætla ég
að hafa tíma til að ferðast og
sjá ballett og allt hitt.
Og þar með var matartím-
inn búinn. KH.
SKOZKIR BÆNDUR
Framhald af 1. siðu. "V ....
til sölu svo og mest af kornrækt
inni.
— Búféð er mjög ræktað, og á
sumum búunum eru algjörlega
hreinræktaðir stofnar, aðallega
svarthöfðafé og Sevjotfé. Slík
ræktun hefur aldrei sézt hér á
landi. Sama máli gegnir um naut
gripastofnana, svo sem Aberbeen
Angus, stutthyrninga, hálendinga
og m.fl. Bændurnir blanda síðan
þessum stofnum saman og fá þá
geysibráðþroska gripi, sem sendir
eru til slátrunar. Skotar eru með
þeim fremstu í heiminum í slíkri
kynbótarækt, og er alveg stór-
kostlegt að sjá suma gripina. T.d.
er algengt, að holdanaut séu um
800 kg. á þyngd Tel ég, að það
sé ástæðan fyrir okkur að ná þess
um þrautræktuðu stofnum inn í
landið, það sem hér ættu að vera
góðar aðstæður fyrir slíkan bú-
rekstur.“
— Hvernig eru kjör bænda í
Skotlandi?
— Kjör bænda þar í landi eru
betri en kjör launþega í iðnaðar
borgunum, jafnvel smábændur
hafa það betra en venjulegir laun
þegar. Um helmingur bændanna
eru leiguliðar, en óverulegur mis
munur er á kjörum þeirra og sjálfs
eignarbændanna, nema hvað sjálfs
eignarbændur geta selt jarðir sín
ar mjög auðveldlega á geypiverði
— í einu héraðinu hafði verð bú-
jarða tífaldazt á tíu árum. En
bændur fá lán til jarðakaupa, og
þá fyrir allan kostnaðinn: jörð,
bústofn, vélar o.fl. Þessi lán eru
til 15-30 ára eftir aldri bóndans,
og fær ungur bóndi lengri láns-
tíma. Bankastjóri einn sagði mér,
að velmetinn bóndi væri bezti við-
skiptavinur bankanna. Þeir gætu
fengið þar 1000 punda lán, 122,
000 ísl. kr., án nokkurrar trygging
ar, og víxla til skamms tíma fá
þeir eftir þörfum. Þó er það skil
yrði sett að þeir færi búreikninga
og skýrslu, sem sýni, hvaða bú-
grein gefi meztan arð, enda fer
það vaxandi, að bændur hafi eina
aðalbúgrein.“
— Hvernig er afstaða ríkisvalds
ins til bænda?
— Ríkið styður skozkan land-
búnað mjög mikið. Það greiðir
Vz af öllum stofnkostnaði við bygg
ingar, ræktun og framræslu, Vz
af girðingarkostnaði, Vi af áburði
og margt fleira. í hálendinu greið
ir ríkið Vz af öllum byggingar-
kostnaði Auk þess greiðir ríkið
beinan styrk á hverja holdakú, um
1500 krónur, á hvern kálf 1160 kr.
og um 300 kr. á hverja vetrar-
fóðraða á.
Ríkið ábyrgist einnig lágmarks
verð fyrir ýmsar landbúnaðarvör
ur, m.a. ull og hvem grip, sem
kemuF -4- markaði®
naut og lömb. Þeir, sem sélja á
hærra verði, njóta þess gróða sjálf
ir, og er skozka kerfið því full-
komnara en hér gerist. Ríkið greið
ír enga beina styrki til mjólkur
framleiðslunnar, en ábyrgist á-
kveðið lágmarksverð. Lágmarks-
verð það sem ríkið ábyrgist á
korni, er hærra en markaðsverðið,
og er þá sama, hvort bændurnir
selja kornið eða nota það sjálfir
til fóðurs “
— Hvað annað vakti sérstaka
athygli þína?
— M. a. tryggingakerfið þar
í landi. Þeir hafa lífeyriskerfi fyr-
ir alla landsmenn og miklu víð
tækari sjúkrasamlagstryggingar en
hér tíðkast. Bændaefni hafa mjög
_ — - -- ■— - ■ - ,
BYGGINGARFÉLAG VERKAMANNA
í REYKJAVÍK
TIL SÖLU
3 herbergja íbúð í 4. byggingarflokki. Þeir félags-
menn, sem neyta vilja forkaupsréttar, sendi um-
sóknir fyrir kl. 12 á hádegi þann 30. þ.m. á skrif-
stofu félagsins í Stórholti 16
Stjórnin.
] góða aðstöðu til menntunar og'
] fer um helmingur þeirra í bænda,
skóla, enda. ber búskapurinn þess'
merki, að flestir bændanna eru!
vel menntaðir. Einnig er, athyglis
vert, hversu litlu þeir þurfa að
kosta til bygginga." ]
— Svo að bændaförin hefur ver
ið mjög lærdómsrík?
— Já, við höfum lært mikið
og séð ýmislegt, sem við getum!
notað við okkar aðstæður. Við1
urðum mjög varir við, að ríkis-
valdið lítur á bændur sem eina
þýðingarmestu stétt landsins og
styður hana eftir því. Allt fólkið
sem við hittum, var mjög elsku
legt í okkar garð, einkum þó þeir
bændur, sem komu hingað í bænda
för fyrir nokkrum árum. Skipu-
lagning ferðarinnar var með af-
brigðum góð, fararstjórn Ólafs E.
Stefánssonar með miklum ágæt-
um og ferðafélagarnir hver öðrum
betri, svo að ferðin var í alla staði
mjög vel heppnuð,, — sagði Gunn
ar að lokum.
SÝNINGU LÝKUR
Málverkasýningu Félags ísl.
myndlistarmanna í Listasafni rík
isins lýkur á sunnudagskvöldið 28.
þ. m. Mikil áðsókn hefur verið á
sýningunni.
fiskimálarAðstefnan
(Framhald at 2 síðui
ur um ferskfisksölu í Noregi, og
snæddur var hádegisverður í boði
samtaka fiskframleiðenda og fisk
útflytjenda að Hótel Borg. Eftir
hádegi flutti Jakob Jakobsson
fiskifræðingur fyrirlestur um
tækniþróunina í síldveiðum ís-
lendinga.
í dag fóru þátttakendur í ferða
lag um Suðurlandsundirlendið,
skoðuðu Geysi, Gullfoss og Þing-
velli, en ráðstefnunni átti að ljúka
á Þingvöllum í kvöld.
TRABAKT ’64
Höfum nokkra nýja Trabant
bíla til afgreiðslu strax.
TRABANT fólksbifreið
kostar kr. 67.900,00
TRABANT station
kostar kr. 78,400,00.
Kynnið yður skilmála vora
LAUGAVE6I 90-92
FLUGSÝN SÍMI 18823
Ms. Esja
Frá og með 29. júní verður
tekið á móti farpöntunum í all-
ar hringferðir í sumar.
Pantaða farmiða þarf að
sækja með hálfsmánaðar fyrir-
vara.
Farjniðar í ferðina 7. júlí
verða seldir mánudaginn 29.
júní.
Ms. Herðubreið
fer vestur um land í hringferð
2. júlí. Vörumóttaka á mánu-
dag til Kópaskers, Þórs'hafnar,
Bakkafjarðar, Vopnafjarðar,
Borgarfjarðar, Stöðvarfjarðar,
Breiðdalsvíkur, Djúpavogs og
Hornafjarðar.
Farseðlar seldir á miðvikudag.
BÍLADEKK
ísoðin, notuð:
900x18“, 900x16“,
1050x13“ 825x20“,
750x20“. 700x17“,
670x15“, 650x16“,
600x16“.
Fæst hjá Kristjáni Júlí-
ussyni. Hrísateig 13(
sími 22724.
HUNAVATNSSYSLA
Aðalskoðun bifreiða, bifhjóla og reiðhjóla með hjálp-
arvél verður sem hér segir:
Laugarbakka þriðjudaginn 7. júlí
miðvikudaginn 8. —
' » fimmtudagirm 9. —
Blönduósi föstudaginn 10. —
~~)> laugardaginn 11. —
mánudaginn 13. —
þriðjudaginn 14. —
Höfðakaupstað miðvikudaginn 15. —
ið verður allan daginn frá kl. 9—12 og 13—17,
nema þriðjudaginn 7. júlí, þá byrjar skoðun kl. 13.
Eigendum og umráðamönnum bifreiða ber að færa
bifreiðar sínar til skoðunar á hinum auglýsta tíma. Við
skoðun skulu ökumenn leggja fram fullgild ökuskír-
teini.
Til þess að bifreið fái skoðun verður að sýna skilríki
fyrir því, að bifreiðaskattur og vátryggingagjald öku-
manns fyrir árið 1964, sé greitt og lögboðin vátrygging
fyrir hverja bifreið sé í gildi, enn fremur að greitt hafi
verið af viðtækjum bifreiða. Þá verða eigendur að gæta
þess, að númer bifreiða séu í lagi. Vanræki einhver að
færa bifreið sína til skoðunar á réttum tíma, verður
hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðarlögum og
vegalögum. Mega bifreiðaeigendur búast við að óskoð-
aðar bifreiðar verði stöðvaðar og númer tekin af þeim
án frekari fyrirvara.
Sérstök. athyglúeigenda reiðhjóla með hjálparvél, er
vakin á því að þeim ber að færa hjól sín til skoðunar.
Verði það ekki gert, verða þau tekin úr umferð, án
frekari fyrirvara.
Vegna breyttra laga verða allir, án undantekningar,
að greiða bifreiðaskatt fyrir árið 1964, að fullu. Ef um
endurgreiðslu skattsins verður að ræða, verður hann
endurgreiddur síðar.
Skrifstofu Húnavatnssýslu, 23. júní 1964.
JÓN tSBERG
Tilboð óskast
1 verzlunar- og veitingabifreið með kaffitækjum,
íssölutækjum, frystikistum, pylsuafgreiðslutæki,
vatnskerfi fyrir kalt og heitt vatn og hillur fyrir
söluvarning.
Bifreiðin er hentug til afgreiðslu á útiveitinga-
stöðum og sem sölubifreið almennt.
Bifreiðin verður sýnd frá 25.—30. þ.m. í Skúla-
túni 4, og verða tilboðin opnuð á skrifstofu vorri
1. júlí kl. 11 árdegis.
Sölunefnd varnarliðseigna.
Hjartanlegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og vináttu við ant
lát og jarðarför
Jóhönnu Bjarnadóttur,
Þórsgötu 14.
Sérstaklega viljum við þakka læknum og hjúkrunarkonum Lant
spítalans fyrir frábær^ hjúkrun í veikindum hennar.
Guð blessi ykkur öll.
Jónas Jónsson, börn, tengdabörn og barnaböri
T I M I N N, laugardagur 27. iúní 1964. —
15