Alþýðublaðið - 24.05.1952, Blaðsíða 4
jAB-Atþýðublaðið 24. maí 1952
1 Heimsókn dönsku leikaranna.
DANSKI LEIKFLOKK-
URINN kom hingað til
Reykjavíkur í fyrradag og
frumsýnir „Det lykkelige
skibbrud'* á leiksviði þjóð-
leikhússins í kvöld; en sýn-
ingar hans á þessu.m kunna
gamanleik Holbergs verða alls
fimm. Er hér um stórmerka
leikheimsókn að ræða, þar eð
, meðal gestanna eru víðkunn-
| ir listamenn eins og Poul
; Reumert, Johannes Meyer,
Maria Garland, Ellen Gott-
! scha’lck, Lily Broberg og Poul
1 Reichhardt. Reykvíkingum
| gefst því kostur á að sjá það
1 bezta, sem dönsk leiklist hef
| ur upp á að bjóða í dag, þegar
i þeir horfa á ,,Det lykkelige
; skibbrud“ í túlkun gestanna
I fiá konunglega leikhúsinu í
| Kaupmannahöfn.
: ,,Det lykkelige skibbru.d“
í mun naumast í tölu beztu
: leikrita Holbergs. Það er
; skemmtilegur gamanleikur,
. en ekki stórbrotið listaverk.
Hins vegar er það nátengt
sögu danskrar leiklistar og
■ margir beztu, leikarar Dan-
í merkur hvað frægastir fyrir
leik sinn í þvi. Auk þess lýsir
leikritið á ógleymanlegan
hátt hinni dönsku fyndni í
túlkun Holbergs, en henni á
það vinsældir sínar umfram
allt að þakka. ,,Det lykkelige
• skibbrud“ gegnir hliðstæðu
hlutverki í danskri leiksögu
og „Skugga-Sveinn" hér á
landi. En þó að listrænt gildi
þess sé ekki mikið, mun túlk
un leikaranna lyfta því í
æðra veldi fyrir sjónum leik
hússgestanna. Þar verður val
inn maður í hverju hlutverki,
en sér í lagi mun þó leikur
Poul Reumerts þykja tíðind
um sæta. Hann leikux hér
eitt af þeim hlutverkum, sem
hafa fært honum mesta
frægð og viðurkenningu, og
mun enn á ný veita vinwm
. sínum í Reykjavík gleðistund
ir, sem aldrei gleymast, og
eru þeir þó góðu vanir frá
hans hálfu.
Konunglega Ieikhúsið í
Kau.pmannahöfn sýnir okk-
ur Íslendingum mikinn vin-
arvott með heimsókn gest-
anna ,er leika „Det lykkelige
skibbrud“. Og víst er það vel
farið, að þeir skuli sýna leik-
rit eftir Ludvig Holberg. Sá
gamli og góði háðfugl hefur
margan íslendinginn glatt á
liðnum árum. Og oft hafa
leikrit hans verið leikin hér
á landi við erfiðar aðstæður
og af vanefnum frá listrænu
sjónarmiði. Þó hafa sumir
leikarar okkar náð miklum
árangri í túlkun leikrita
hans. Samt hefur ekkert leik
rit Holbergs verið sýnt hér á
landi við þvílíka aðstöðu, og
af slíkri listrænni hæfni sem
„Det lykkelige skibbrud“ nú.
Það er sýnt á sviði þjóðleik-
hússins, sem er stolt íslenzku
þjóðarinnar, og af úrvalsleik
urum þeirrar þjóðar, sem Hol
berg starfaði meðal. Það er
leiklistarviðburður, sem verð
ur Reykvíkingum ríkur í
minni.
Samskipti íslendinga við
konunglega leikhúsið í Kaup
mannahöfn hafa verið mikil
og góð á liðnum árum. Marg
ir beztu leikarar okkar hafa
numið þar og starfað. íslend
ingar hafa u,m langan aldur
notið gleðistunda innan
veggja þess. Konunglega leik
húsið í Kaupmannahöfn hef
ur beinlínis og óbeinlínis ver
ið skóli íslenzkar leiklist-
ar og íslenzkrar leikmenning
ar um áratugi. Við stöndum
í mikilli þakkarskuld við
þessa gömlu og virðulegu
menningarstofnun. Það er
því vel farið, að leikflokkur
þaðan skuli hafa orðið fyrst-
ur til að heimsækja þjóðleik
húsið hér til gestaleiks. ís-
lendingar óska og vona, að
samskipti þjóðleikhússins hér
og konu.ngiega leikhússins í
Kaupmannahöfn verði mikil
og góð í framtíðinni, efli sam
starf og skilning þessara
tveggja grannþjóða, leggi
grundvö'll að því að gera
menningarlega samvinnu
þeirra trausta og farsæla og
sýni og sanni, að frændsemi
og vinátta Dana og íslend-
inga hefur síður en svo beð-
ið nokkurn hnekki við hin
pólitísku sambandsslit þeirra.
Veri dönsku leikgestirnir
velkomnir hingað til lands og
megi heimsókn þeirra verða
bæði þeim og okku.r til ó-
gleymanlegrar ánægju.
TILKYNNING
frá Síldarverksmlðjum ríkisins.
Útgerðarmenn og útgerðarfélög, sem óska að leggja
bræðslusíldarafla skipa sinna upp hjá oss á komandi
síldarvertíð, eru vinsamlegast beðnir að tilkynna það
aðalskrifstofu vorri á Siglufirði eigi síðar en 5. júní
næstkomandi. — Samningsbundnir viðskiptamenn ganga
fyrir öðrum um móttöku síldar.
SÍLDARVERKSMIÐJUR RÍKISINS.
Aðalsafnaðarfundur í Nessókn
verður haldinn sunnudaginn 25. maí 1952
eftir messu í kapellu Háskólans.
(Messað kl. 14.) Sóknarnefndin.
AB — Alþýðublaðið. tJtgefandl: AlþýSuflokkurinn. Ritstjórl: Stefán Pjetursson.
Auglýsingastjóri: Emma Möller. — Ritstjómarsúnaí: 4901 og 4902. — Auglýsinga-
Bíini: 4906. — AfgreiSslusími: 4900. — AlþýSuprentsraiSjan, Hverrisgötu 8—10.
AB 4
Fer hann til Helsin&sfors? cambridges-
” itúdeninn H.\V.
Leader, sem sést hér á myndinni, er meistari í hástökki á Ir-
landi. Hann er sjálfur sex fet og tveir þumlungar á hæð og er
á r>yndinni að æfingum í White City Stadíon í London. Ekki
er látið uppi, hve hátt hann hafi stokkið við þetta tækifæri;
en hins vegar fullyrt, að það gefi góðar vonir um, að hann
fari til Heisingfors í sumar til þess að keppa í hástökki þar.
þjóðabaráff an
DAG EFTIR DAG, nótt eftir
nótt er háður leynilegur bar-
dagj við landamæriíi og í hundr
uðum hafna gegn eiturlyfja-
smyglurum. Því strangara sem
eftirlit yfirvaldanna veröur,
því bragðvísari reynast smygl-
ararnir. Eins og stendur sýnir
hið hækkandi verð eiturlyíja á
svartamarkaðnum, að lögregl-
an hefur undirtökin.. Eríiðara
er að útvega vöruna og hún
verður sjaldséðari, ekki er hægt
að anna eftirspurninni — og
verðið hækkar. Á bjnum ill-
ræmda svartamarkaði í Kairó
var eitt kílógramm af hreins-
uðu ópíum sslt í fyrra á 1148
bandaríska dollara. Nú er gang
verðið orðið 1262 dollarar. í
fyrra gerðu yfirvöidin upptæk
13.00 kg. af eiturlyfjum í 39
löndum.
í ÚLFALDAMÖGUM.
Aðferðirnar breytast þegar
lögreglan fer að kyunast hátt-
um smyglaranna. Egypzka eitur
lyfja-lögreglan hafði nýlega mik
ið fyrir því að koma upp röntg
en-tækjum við allar landamæra
stöðvar, þar sem lílfaldalestir
fara um frá Líbýu og Arabíu.
Lögreglan hafði komizt að því,
að miklu magni af eiturlyfjum
í hylkjum var smylgað inn í
landið á þann hátt, að úlfald-
grnir voru látnir gleypa hiykin
áður en komið var að landamær
unum. Röntgentækin sýndu
málmhylkin í maga úlfaldanna
og þegar í stað varð að slátra
skepnunum til að afla sannana.
Þetta kostaði allmarga smyglar
ana þungár refsingar og einn
góðan veðurdag sýndu röntgen
tækin ekki lengur nein málm-
hykli.
Nokkur tími leið þar til lög
reglunni varð ljóst, áð smyglar-
arnir höfðu skipt um aðferð.
Þeir héldu áfram að smygla eit-
urlyfjum í maga úlfaldanna —
en nú voru hylkin gerð úr
gúmmí og plasti. Þessi efni sjást
ekki við röntgengskoðun og nú
verður að finna nýja aðferð til
að koma upp um smyglið.
Eiturlyfjanefnd S.Þ. fylgist
vel með þ’róun þassarra mála
og skýrslur hennar eru tíðum
mjög fróðlegar. í þeim er m. a.
greint frá því hvernig smyglar-
arnir reyndu að fela eiturlyf
undir fjög'urra feta þykkum ís
í fiskibát, undir fóðrinu í tösk-
um, í málningardósum, inni í
bassafiðlu eða í þurrmjólkur-
dufti. Einn smyglari var tekinn
þegar slöngurnar í bílhjólun-
um voru athugaðar. Annar
reyndi að fela vöruna í loftinu á
járnbrautarklefa. En mest af
smyglvarningi þessum er geymt
í eldhúsum, vélarrúmum og
undir lestahlerum skipanna.
STÓRSMYÆL Á HAFINU.
Bandarikin hafa svo miklar
áhyggjur út af smygli eiturlyfja
meðal sjómanna, aö í Washing-
ton hefur verið lagt til, að gerð
ur verði sérstakur svartur listi
yfir álla sjómenn, sem einu
sinni hafa verið staðnir að því
að smylga eiturlyfjum. Þetta
hefur þó ekki omizt í fram-
kvæmd, en áhyggjur Bandaríkja
manna eru auðskildar þegar
þess er gætt, að árið 1951 fund
ust eiturlyf á 224 skipum í al-
þjóðasiglingum og er það helm-
ingi meira en árið áður. 91 þess
arra skipa var amerískt og 44
voru ensk.
Til eru smylgarar, sem ekki
hafa tíma til að bíða eftir tæki
færi til að smygla sjóleiðis. Þeir
nota flugvélarnar. í skýrslu,
sem skrifstofur S. Þ. hafa ný-
lega kunngert varðandi smygl
■eiturlyfja í fyrra, er getið um
' smygltilraunir með flugvélum
margra flugfélaga, þeirra á með
al nokkurra heimsþekktra fé-
laga, en þær tilraunir hafa þó
mistekizt.
MIÐSTÖÐ VIÐ KYRRAHAFID.
Miðstöð fyrir sölu og smyl
eiturlyfja er í Asíu. Um þessar
mundir eru sviðskiptin einna
mest í portugölsku iiýlendunni
Macao við strendur Kína. Þaðan
eru eiturlyfin flutt á djúnkum
og vélbátum til Honkong, sem
er eina fullkomna höfnin við
Kínastrendur, sem hægt er að
sigla frjálst til og frá Banda-
ríkjunum. í Hongkong er smygl
varningnu dreift milli skipa,
sem sigla til hafna um allan
heim, til Ástralíu, Bandaríkj-
anna, Burma, Indónesíu, J,apan,
Kanada og Suður-AmeVíku.
Hvarvetna eru kaupendur •—
glaíaðar sálir, sem haf-a orðið
þessum löst að bráð og vilja
greiða hvað sem vera skal fyrir
eina ópíumpípu eða sprautu af
morfíni.
Eiturlyfjasmyglararnir staxfa
ekki alls staðar með leynd. Við
Framh. á 7. síðu.
DR. MEÐ JOHANNES
HOLM við Blóðvatnsstofnun rík
isins í Kaupmannahöfn flutti ný
lega lokaskýrslu til stjqrnar
UNICEF, Barnahjálparsjóðs S.
Þ., um hina miklu baráttu, sem
sjóðurinn hefur háð gegn berkla
veikinni undir stjórn Dr. Holm
og með þátttöku frá Norðurlönd
unum. Berklaskoðun þessi' hef-
ur verið gerð í 21 landi. Al-
þjóðabaráttan gegn berklum
hófst árið 1948 og lauk í júlí
mánuði í fyrra. Á þessum tíma
voru 30 milljón börn berklaskoð
uð og 14 milljón börn, * sem
skoðuð voru, bóiusett með
Calmette-bóluefni. Ef einnig er
reiknað með starfi, sem Rauði
krossinn á Norðurlöndum -hafði
áður unnið, hafa alls 37 milljón
ir barna verið berklaprófuð og
16 milljónir barna bólusett.
UNICEF lagði fram 3,2‘ mill
.jónir dollara til þessa starfs og
norrænu samtökin lögðu fram
hálfa milljón dollara og mann
afla og útbúnað allan. í ræðu
sinni lagði Dr. Dolm áherziu á,
hversu mikilvægt væri að AI-
þjóðaheilbrigðismálastofnunin
hefði nú komið upp berklahæli
í Kaupmannahöfn og yrði hluí-
verk þess að kynna sér áhrif
BCG-bóluefnisins til langframa.
Þetta bóluefni hefur verið notað
í starfi sjóðsins og þegar ér ó-
hætt að slá því föstu, sagði Dr.
Holm, „að BCG er gott vopn í
baráttunni gegn berklaveik-
inni“ Dr. Holm gerði það að til
lögu sinni, að haft yrði eftir-
lit með öllum börnum, sem skoð
uð hafa verið og bólusett, en
einungis á þann hátt væri ör-
uggt að starf sjóðsins næði full
um tilgangi sínum.
Fimm heimsfrægir
húsameistarar
byggja stórhýsi yfir
FIMM HEIMSKUNNIR HUSA
MEISTARAR halda fund í Par
ís um þessar mundir til þess að
kynna sér fyrstu uppdrætti að
fyrirhuguðu húsi undir aðal-
stöðvar UNESCO, uppeldis- og
menningarstofnun sameinuðu
þjóðanna. Jaime Torres Bodet,
forstjóri UNESCO, hefur sjálf-
‘ur valið þessa húsameistara og
beðið þá að taka að sér að Ieggja
fram gagnrýni og tillögur til
endurbóta á fyrstu uppdráttum
að húsinu. Þessir fimm hnsa
meistarar eru Loucio Costa frá
Brazilíu, Walter Gropius frá
Bandaríkjunum, Le Corbusier
frá Frakklandi, Sven Markeli-
us frá Svíþjóð og Ernesto Rog
ers frá Ítalíu.
Verkefni þessarra þekktu
manna verður að kyrrna sér teikn
ingar og uppdrætti, sem gerðir
.hafa verið af franska húsameist
aranum Eugene Beaudouin í
samráði við Eero Saarinen frá
Bandaríkjunum og Howard
Robertson frá Englandi.
Aðalstöðvar UNESCO eiga að
vera við Place Fontenoy bak
við Ecole Militaire í París.
Franska ríkið hefur gefið lóð-
ina undir bygginguna.
Vormót 2. flofck?
2. flokksmótið hélt áfram s.
1. miðvikudag, og kepptui þá
KR og Víkingur og varð jafn-
tefli, 1:0. Strax á eftir léku
Valur og Fram, og varð einn-
ig jafntefli, 0:0.
3. og 4. flokksmótið hefst
nú um helgina.