Alþýðublaðið - 24.05.1952, Page 8
Mannfjöldi fagnaði dönsku leikur-
unum á fiugvellinum í fyrradag
-------------------------♦---------
Frumsýning á Holbergsieiknum í kvöld
-------------------------*---------
LEÍKFLOKKURINN frá konunglega leikhúsinu í Kaup-
mannahöfn kom til Reykjavíkur með sænskri skymasterflugvél
kiukkan rúmlega 4 á fimmtudaginn. Mikill mannfjöldi hafði
safnazt saman á flugvellinum til þess að fagna leikurunum, eu
Guðlaugur Rósinkranz þjóðleikhússtjóri og Vilhjálmur Þ.
Gíslason formaður þjóðleikhúsráðs tóku á móti gestunum ásamt
inokkrum leikurum þjóðleikhússins.
Poul Reumert sagSi í viðtali
við Alþýðublaðið, að ferðalagjð
hefði geng'ið að óskura, að eng-
inn. þátttakendanna annar en-
hann sjálfur hefði áður komið
til íslands, og allir hefðu þeir
mikla löngun til þess að kynn-
ast landi og þjóð sem bezt á
þessum stutta tíma, sem þeir
dvelja hér.
Ejnar Kristjánsson óperu-
söngvari kom einnig með sömu
fiugvél og leikflokkurinn, en
hanh syngur eitt aðálhlutvérk-
ið í óperettunni Leðurblakan,
eins og áður hefur verið sagt
frá.
Loks kom með flugvélinni
sendinefnd MÍR, sem fór til
Rússlands á dögunum, og virt-
ist Sigurður Guðnason, formað-
ur Dagsbrúnar, vera feginn því
að vera kominn heirn. |
Eftir að danski leikflokkur-
inn kom, bauð Þjóðleikhúsið
deikurunum til kvöldverðar i
þjóðleikhúskjallaranum, og í
mor'gun borðuðu þeir hádegis-
verð í boðí leikara Þjóðleik- j
hússins, en síðdegis sátu þsir j
boð' menntamálaráðherra. Að
öðrú leyti eyddu leikararnir
deginum í gær við æfingar, en
i kvöld verður frumsýningin á
„Det lykkelig'e Skibbrud“ kl. 8.
Á: morgun fara ieikararnir til
Þingvalla í boði Þjóðleikhúss-
ins, en önnur sýning verður
annað kvöld.
Nokkrir af leikurunum að
stíga út úr flugvélinni á
Reykjavíkurflugvelli. í miðj-
um stiganum sést Pou.i Reu-
mert og aftast Holger Gabri-
elsen leikstjóri.
ann
ínn ulan á þin
Evrópuráðsins
Ohagsiætl veður á
MENNIRNIR, sem eru að
fara að kanna slysstaðinn á
Eyjafjallajökli, fóru í fyrra
dag með ýtuna upp að jökli
lijá Syðstu-Mörk, en veður
var þá svo óhagstætt, að ekki
þótti rétt að leggja á jökulinn.
Ekki var vitað, hvort þeir
hefðu hugsað til ferðar í gær,
en veðurskilyrði voru þá enn
slæm.
Leiðsögumaður þeirra Banda
ríkjamanna er Páll Arason
bifreiðarstjóri, en Svavar Júlí
usson stjórnar ýtunni.
STEFAN JÓH. STEFÁNS-
SON tók sér far u.tan með flug
vél frá Keflavíkurflugvelli á
fimmtudagsnóttina. Var för
hans heitjið til Strassborgar,
þar sem hann mun, fyrir ís-
lands hönd, sitja þing Evrópu
ráðsins, sem nú er að hefjast
þar.
Vormól 1. flokks
í knatlspyrnu
1. flokksmótið hélt áfram
s. 1. mánudag með leik milli
Vals og Þróttar, og lauk leikn
um með jafnteflí, 0:0. Strax á
eftir léku KR og Víkingur og
(sigraði KR, 1:0. í dag kl. 2
heldur mótið áfram á íþrótta-
■ vellinum, þá keppa Fram og
I Þróttur og KR og Valur.
fjý gerð af sorpflufningsbílum
fekin i nofkun í bænum
NÝR sorpfiutningshíll af sérstakri gerð verður tekinn í
iiolkun í dag. Bíll þessi, sem smíðaður er í Svíþjóð, er af nýj-
ustu gerð og*þannig útbúinn, að útilokað er að sorp fari niður
eða fjúki burt þegar hann er fermdur. Sérstakar sorptunnur
hafa verið smíðaðar með tilliti til hins sérstaka útbúnaðar á
þesstim bíl. Sorpíunnurnar, 2000 að tölu, eru með áföstu loki,
fiem opnast af sjálfu sér þegar þeim er lyff með vindu á bílinn.
Jón Sigurðsson borgarlæknir
skýrði frétíamönnum frá því í
gær, að þessi aðferð við sorp-
hreinsun mvndi stuðla að mikl-
um þrifnaðarauka í bænum. Á
bílnum verður einnig tankur
með sótthreinsandi efni, sem
sprautað er á og í sorptunnurn-
ar ti lað eyða sýklum, er þár
kunna að leynast.
Fyrst um sinn verður þessi
nýi bíll notaður í suðvesturbæn
um, en í ráði er að bærinn
kaupi sams konar bíla, er hinir
eldri sorpflutningsbílar gangi
úr sér. Alls munu nú vera 7 eða
8 sorpflutningsbílar í bænum.
Sorptunnurnar verða í eig i
bæjarins, en húseigendur verða
látnir greiða ákveðið gjald af
þeim árlega.
Þá hefur fraið fram endurbót
á húsakynnum sorphreinsunaí-
manna bæjarins á bak við
Laugavegs apótek.
Æ Bl iHEiiElHÍ js HHH A
ALÞÝSUB LASIÐ
Svört skrif
ÞAÐ VANTAR EKKI, að fag-
urlega hafi verið skrifað und-
anfarið um nauðsyn þess, ,,að
halda forsetaembættinu utan
við pólitískar deilu,r“. Það
hefur verið sagt, að forsetinn
ætti að vera „sameiningar-
tákn þjóðarinnar", að hann
þyrfti að hafa ,,traust“ henn-
ar og því að kunna ,;að þræða
hlufeysisvegi þjóðhöfðingj-
ans”. Þannig hafa blöðin
skrifað. En á hitt hefur miklu
sjaldnar verið minnzt, hvað
útheimtist af blöðunum sjálf-
um til þess, að þetta allt megi
takast.
EN ÞAÐ RAUNALEGA er nú
komið í ljós, að sum þau blöð,
sem mest hafa skrifað um
nauðsyn hlutleysis og trausts
og sameiningar í sambandi
við forsetann, eru ekki ná-
lægt því eins kröfuhörð við
sjálf sig nú, þegar að því er
komið, að þjóðin verði að
velja sér forseta með öll þessi
sjónarmið fyrir augum. Til
dæmis birti Tíminn svokall-
aðan „svartleiðara“ um eitt
forsetaefnið á fimmtudaginn,
sem vissulega miðar lítið að
því að skapa margnefnt traust
og sameiningu uffl hinn kom-
andi forseta lýðveldisins.
ÞESSI „SVARTLEIÐARI“
Tímans var í sannleika svart-
ur. Þar var ráðizt á eitt for-
setaefnið með þeim alkunna
rógi, sem setur svo oft
ómennnigarsvip á íslenzk
stjórnmál, en þó kastar þá
fyrst tólfunum, þegar hann er
hafður í frammi við forseta-
kjör. Þarna var til dæmis
skrifað um „valdabrask'1
manns, sem væri líklegur til
„að komast í forsetaembættið
með baktjaldamakki og leyni
samningum“, urn „klókan
flokksmann“, sem ætti að
„ná forsetaembættinu á sitt
vald“ og breyta Bessastöðum
„úr þjóðhöfðingjasetri í póli-
tíska kafbátastöð"!
ÞAÐ ER VÍST með slíkum og
þvílíkum skrifum, sem Tím-
inn ætlar sér „að halda for-
setaembættinu utan við póli-
tískar deilur“ og tryggja
„traust“ og „sameiningu"
þjóðarinnar um þann mann,
sem í það velst! En þjóðin
sjálf er áreiðanlega á öðru
máli um það, hvernig skrifa
eigi um forsetaefnin og for-
setakjörið. Og hún mun sanna
Tímanum það á sínum tíma,
að það borgar sig ekki fyrir
neinn, að skrifa af slíku sið-
leysi um forsetakjörið og gert
var í „svartleiðara“ hans á
fimmtudaginn.
Barnaspítali verður reistur í sam-
bandi við stækkun Landspítalans
r
Fullfrúi Islands í rá
Norður-Allantshaís
bandalagsins
ÞANN 10. maí síðastliðinn
skipuðu handhafar forsetavalds
ins Gunnlaug Pétursson, sendi-
ráðunaut, til þess að taka sæti
sem fastur fulltrúi íslands í ráði
Norður-Atlantshafsbandalagsins,
með aðsetri í París.
Hringkonor leggja fram til hans barna*
spíta!as]óð sinn, 2,1 millj. króna. •.,}
-----------*---------------------------- ’i
TELJA MÁ, að fengið sé í aðalatriðum samkomulag milli
kvenfélagsins Hringsins og ríkisstjórnarinnar um barnaspítalap
sem talað er um að reisa við landsspítalann, þegar hann verðin?
stækkaður. Og hefur kvenfélagið Hringurinn ákveðið aó leggjá
barnaspítalasjóð sinn að mörkum við ríkið í þessu skyni.
------------------------------• Frá þessu er skýrt í fréttatiG
kynningu, er blaðinu hefur bor
izt frá Hringnum.
Hringkonur haia um 10 ára
skeið safnað ósleitilega fé til
byggingar barnaspítala með!
ýmissi fjáröflunarslarfsemi, og;
er barnaspítalasjóðurmn nú orS
inn rúmlega 2,1 milijón króna.
Kom hvorttveggja til orða, a§
barnaspítali yrði reistur í sam.
bandi við Landspítalann og foæjj
arsjúkrahúsið fyrirhugaða. —.
Einnig' ræddu konurnar utns
það, hvort möguleikar væru ái
að fá keypt hentuga húseignj,
þar sem koma inætti fyrir;
bráðabirgðaspítala fyrir börn,
þar til fullkomnum barnaspít-
ala yrði komið upp. Það kom
þó brátt í ijós, að á því vcris
þótti að fara þá leið.
Þar sem það er íyrir löngtj
augljóst orðið, að brýn þörf er
fyrir stækkun Landspítalans,,
sneri stjórn Hringsins sér í
fyrra enn til ríkisstjórnarinnar
pg hreyfði því, hvort það gæti
ekki flýtt fyrir stækkun Land-
spítalans, ef Hringurinn ’egði
fram barnaspítalasjóð sinn tiE
hennar gegn því að þar yrðt
komið upp barnaspítaladeild.
Eftir nokkrar viðræður við
heilbrigðismálaráðherra síðast-
liðinn vetur tjáði stjórn Hrings«
ins honum með bréfi dags. 27.
febrúar þ. á„ að Hringurinn
væri reiðubúinn til iþess að
leggja fram fé barnaspítalasjóðs
til byggingar barnaspítala við
Landspítalann eftir nánara sairn
komulagi. Þessu svaraði heil-
brigðismálaráðherra með bréfij
dags. 5. þ. m., þar sem skýrt var
frá því, að ráðuneytð hefði á.
samt landlækni og Jóhanni Sæ~
mundssyni yfirlækni athugaffi
Jivernig barnaspítala yrði bezt
fyrirkomið í sambandi viffi
Landsspítalann og komizt affi
þeirri niðurstöðu, að það yrði
sem liður í fyrirhugaðri stækk-
un spítalans.
Á aðalfundi Hring'sins, sem
haldinn var 20. þ. m., var sam-
þykkt í einu hljóði. að fallast á
þá tilhögun, sem ræðir um I
bréfi heilbrigðismálaráðherra.
Bifreiðin hangandi í kranan-
um við bryggjubrúnina. Þarna
tók kranabifreiðin frá Eim-
skipafélaginu við og lyfti henni
upp á bryggjuna. Ljósm, P. T.
Slysið í fyrrakvöld..
Framhald af 1. síðu.
ið fyrst út af og bifreiðin u.m
leið numið við þykkt tré í
bryggjubrúninni og rifið úr
því flís. Dýpið mun hafa verið
um 5 metrar, er slysið varð,
en bifreiðin var um 12—15
metra frá horninu.
Friðgeir átti vanda til að fá
aðsvif, að sögn kunnu.gra.
Hann var maður tæplega 33
ára gamall og lætur eftir sig
konu og fjögur ung börn.
Hann var hvers manns hug-
ljúfi og ágætlega greindur.
Veðrið í dag:
Sunnan og suðvestan kaldi
stinningskaidi. Rigning.
Hver hlýtur 10 þúsund kréna
verðlaun í Gufunesi á morgun!
------♦—:---
Höttur, Léttir og Gnýfari keppa um
hæstu verðíaun, er hér hafa veri'ð veitt
Á KAPPREIÐUNUM í Gufunesi á morgun verða veitt hæst»i
verðlaún, sem um getur í sögu kappreiða á Islandi. Þorgeit’
Jónsspn bóndi í Gufuncsi, sem efnt hefur til kappreiðanna„'
veitlr 10 000,00 kr. verðlaun fyrir þann hest, er fyrstur verður
í stökki á 800 metrum.
Tilkynnt hefur vtrið að að-
eins þrír hestar muni keppa á
þessari vegalengd. Þeir eru:
Höttur Ólafs Haraldssonar, Gný
fari Þorgeirs í Gufunesi og Létt
ir Jóns Svelnssonar. Einnig
verður keppt í stökki á 400 og
500 metrum og verða verðlaun
veitt fyrir beztu hestana á þess-
um vegalengdum. Þá verða
einnig veitt verðlaun fyrú gæð-
inga.
Þorgeir í Gufunesi hefur
jafnan veitthærrikappreiðaverð
laun en nokkur annar eintak-
xingur eða félagssamtök. A
landsmótinu á Þingvöllum 1950)
voru hæstu verðlauain 2500 kr.
og þótti mikið, en árið áður
hafði Þorgeir veitt 5000 króna
verðlaun. 10 000 króna verð-
launin eru því það almests.
sem kemur til verðlauna fyrir
einn hest, og er því mikil eftir-
vænting meðal manna hver
verður hlutskarpastur, Höttur..
Léttir eða Gnýfari.
Kappreiðarnar hefjast kl. 3
síðdegis, en' ferðir verða frá
ferðaskrifstofunni kl. 1.30.