Alþýðublaðið - 25.05.1952, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 25.05.1952, Blaðsíða 8
lanskur verkalýður gsfölu sína meS Jón Sigurðsson og Borgþór Sigíússon, sem áíu þing danska sambandsins, komnir heim framleiðslumála JÓN SIGURÐSSON og Borgþór Sigfússon, er sátu nýaí- staSið þing danska alþýSusambandsins sem boðnir fulltrúar Alþýðusambands íslands, eru nú komnir beim. Kvað Jon 1 viðtal við blaðið, að þar eins og hér teldu verkalýðssamtökin ’það ekki nægja, að verkamenn hefðu samningsrétt til að ákveða tímakaup sitt, e£ þeir gætu ekkert keypt fyrir það eða fengþi ekkl vinnu. Þess vegna gætu verkalýðssamtökin ekki venð af- skiptalaus um stjórn verzlunar-, skatta- ojí efnahagsmála yfirleitt. Þeir Borgþór og Jón fóru til Danmerkur u.m fyrri helgi. Var þing sambandsins sett kl. 10 f. h. á fimmtudag og var síitið fyrir hádegi á laugardag ihh var. Sátu það rúmlega 1000 fulltrúar verkalýðssam- taþanna og.56 gestir. Af full- trúahópnurn voru, aðeins 10—- 12 kommúnistar. Gestirnir sem bæði voru innlendir og er lendir, fluttu ávörp á þing- inu, og flutti Jón kveðjur og árnaðaróskir frá Alþýðusam- hándi íslands. — Á þinginu var gerð aðeins ein samþykkt utfi stefnumál samtakanna. Eiier Jensen, forseti danska A-Iþýðusambandsins, flutti á þinginu ýtarlega skýrslu u,m starfsemi samtakanna á liðnu kjörtímábili, þremur síðustu árum, og rakti enn fremur helztu verkefni þeirra næstu ár. Um framtíðarverkefnin, sagði Eiler Jensen m. a., að J:áu væru að tryggja verkalýð inn gegn nýjum árásum á kjör in, og hljóti verkamönnum og cilum launþegum að vera það Ijóst, að í þeirri baráttu geti J/eir ekki treyst nema einum stjórnmálaflokki, þ. e. Alþýðu flokknum. Sagði hann, að verkalýðurinn yrði að kapp- kosta að vinna Alþýðuflokkn um stóraukið fylgi og helzt af ollu hreinan meirihluta á þíjngi eins og er í Noregi og S'/þjóð. — Kosningar gætu orðið hvenær sem er. Jón Sigurðsson sagði, er btaðið átti tal við hann í gær, að mikils áhuga hefði gætt ALÞY9UBLA9IB Elsa Sigfúss ein þeirra, sem kemur fram á listamannakvöldi norræna fé- lagsins í þjóðleikhússkjallar- anum í kvöld. Listamannakvöld Norræna félagsins hefst klukkan 22 LISTAMANNAKVOLD Nor ! ræna félagsins er í þjóðleik- hússkjallaranum í kvöld og hefst kl. 22. Á listamannakvöldinu mun Holger Gabrielsen leikstjóri frá konunglega leikhúsinu í meðal fulltrúanna um að vinna ' Kaupmannahöfn lesa upp, en Alþýðuflokknum fylgi. Þing-1 hann er mjög þekktur og íru hefði ekki verið fyrr lokið snjall upplesari, eins og kunn eri þeir fóru heim til að starfa ugt €r. Er þetta eina tækifær- að undirbúningi næstu kosn- J ið til að njóta listar hans hér. inga, sem virðast vera á næstu.því að hann leikur ekki með grösum. Kvað hann það vera | danska leikflokknum, þótt alveg augljóst, að dönsku verkalýðssamtökin gerðu sér r.ú grein fyrir því betur en nökkru sinni, að vai'anlegar Iyarabætur yrðu, aldrei tryggð ar, nema jafnaðarmannastjórn væri við völd í landinu. Þeir Borgþór og Jón dvöld- ust í Kaupmannahöfn þar til á þriðjudagsmorgun, að þeir íóru af stað með Gulifaxa til Prestvíkur, en er flugvélin var nýlögð af stað þaðan til Reykjavíkur, kom fram bilun í einum hreyfiinum, og var snúið við til Prestvíkur. Komu þeir svo heim á föstudagsmorg uninn. Þeir róma mjög allar viðtökur danska alþýðusam- bandsins. Veðrið í dag: Breytileg átt og skúrir í dág. hann stjórni leiknum. Aðrir listamenn, sem koma fram á listamannakvöldinu eru Elsa Sigfúss og Einar Kristjánsson, en það er nú orð ið langt síðan bæjarbúar hafa heyrt þau syngja hér, sérstak lega EIsu, sem ekki hefur sungið hér um nokkura ára skeið. Að lokum verður stiginn dans. Ný iónsmíö eftir Hailgrím Helgason KOMIN er út ný tónsmíð efdr Hailgrím Helgason, Eóm- anza fyrir fiðlu og píanó. Höfundurinn tileinkar tón- smíð þessa Hallgrími Níelssyni á Grímsstöðum. Lagið er prent að í Vnarborg, en útgefandi þess er Gígjan í Reykjavík. ísafjörður MORGUNBLAÐIÐ skýrir frá því í gær. sjáHsagt sam- kvæmt upplýsingum Sigu.rð- ar frá Vigur, að 23 fullorðnir og 2 börn hafi sótt fund Al- þýðuflokksins á ísafirði á uppstigningardag. Segir það, að „þessi fundarsókn“ sé ,,tal in véra mjög táknræn fyrir afstoðu almennings á ísafirði tij kratanna um þessar mund ir‘‘. Auðvitað á maður svo von á því hvað úr hverju, að Morgunbiaðið flytji ianga og snjalla grein u,m „þjóð.arein inguna“ á ísafirði með Kjari an Jóhannsson í miðjum hringnum! ÞESSI STÓRSÓKN íhaldsins á ísafirði í dálkum Morgun- blaðsins fyrir kosningar er . svo sem ekkert . nýtt fyrir- / bæri. Það hefur leikið sér að því að kolfella frambjóðend ur Alþýðuflokksins þar fyrir sérhverjar kosningar. En að kosningum loknum hafa það hins vegar hingað til verið frambjóðendur íhaldsins, sem legið hafa eftir í valnum. Al- þýðuflokkurinn getur því lát ið sér flog Morgunblaðsins í léttu rúmi liggja. Hann veit af reynslunni, að það er því hræddara sem það geipar meira KJARTAN JÓHANNSSON er efalaust ágætur maðu.r og góður læknir. Hann leit ijóm andi vel út dagana, sem hann sat steinþegjandi á alþingi. En hann er óskrifað blað í stjórnmálum og .mun ekki hafa haft mikil afskipti af at- vinnumálum, þegar það er undan skilið, að hann ætlaði að gera út á sel ásamt Sig- urði frá Vigur! íhaldið hefur tvisvar sinnum reynt að fá hann kosinn á þing á ísafirði, og Kjartan fallið jafnoft. Það er svo sem ekkert undar legt. Það hafa honum meiri bógar íhaldsins, svo sem Sig- urður Kristjánsson, Torfí Hjartarson og Bjarni Bene- diktsson, fallið á ísafirði. En þeir hafa allir og Kjartan líka sigrað glæsilega í dálkum Morgunblaðsins fyrir kosn- ingar! MÁLSTAÐUR iHALDSINS var vissulega ekki björgu- legur, þegar Torfi Hjartar- son og Bjarni Benediktsson féllu á Isafirði. Þeir voru, líka látnir gjalda hans, þó að Torfi sé merkur og mikilhæf ur maður og Bjarni væri þá þegar orðinn atkvæðamikill stjórnmálaforingi. Samt hef- ur málstaður íhaldsins aldrei verið óbjörgulegri en nú. Og hann mu,n áreiðanlega kosta Kjartan Jóhannsson þriðju byltuna, þó að hann sé geð- þekkur maður og góður lækn ir. Slikir eiginlegar hafa ver ið og eru réttilega aukaatriði í fari manna, sem vilja kom ast á þing á ísfirði undii fána íhaldsins. Héimsfrægur ílalskur óperu* söngvari heldur konsert hér Leonida Bellon er fyrsti ítaíski óperu*? söngvarinn, sem syngur hér í Reykjavík ----------4--------- SÁ EINSTÆÐI tónlistarviðburður verður í dag, að heims- frægur ítalsukr tenór, Leonida Bellon óperusöngvari, syngur I Bamla Bíó. Er þetta í fyrsta sinn sem ítalskur óperusöngvari syngur opinbeflega í Keykjavík. Bellon hefur hlotið mikinn frama í óperunni og er mjög vel þekktur. Hann liefur verið fastráðinn hjá Scala óperunni í Milano í fimm ár samfleytt, en cr nú ráðinn við konunglegu óperuna í Rómaborg. Héðan fer hann til óperunnar Carlo í Napoli. Bellon hefur auk þess sungiS í Metropolitan óperunni í New York, í Chicago, Mexico og í stærstu borgum Suður-Ameríku. Hann hefur auk þess sungið í óperum í París og víðar í Evrópu. I . Eins og sjá má af söngferli Bellons er hér um heimsfræg an söngvara að ræða og er þetta einstakt tækifæri fyrir Reykvíkinga að heyra og sjá einn af fremstu, söngvurum úr landi óperunnar, Ítaiíu. Bellon er 46 ára gamall, fæddur í héraðinu . Vicenza nærri Feneyjum. Söngferill hans hófst er honum voru veitt Verdi verðlaunin, er hann stundaði nám við söngskóla í Milano. Sðan hefuf hann óslit ið sungið aðalhlutverk í óper- um og haldið sjálfstæða kon- serta. í Rómabdrgaróperunni söng hann hlutverk Faust. Á söngskránni í dag eru m. a. Romance úr Celeste Aida, aríur. úr óperunni Boheme, Andrea úr Chevier, Mattinete eftir Cavallo, ariur úr Giocon de og fleira. Beilon kom með Gullfaxa í fyrradag og hafði þá för hans seinkað um hálfan þriðja sól- arhring og getur hann því ekki dvalið hér eins lengi og áætlað var í fyrstu. Óvíst er hversu marga konserta hann heldur hér. Hann kom til Is- lands fyrir tilstilli Jóns St. Anórssonar, sem fyri.r skömmu var á Ítalíu og réð hann hing- að í stutta söngför. Tífo reiðubúinn í Balkanbandalag ÞAÐ VAR TILKYNNT í An- kara fyrir skömmu, að forsæt- isráðherra Grikkja, Plastiras liershöfðingi hefði látið svo um mælt við tyrkneska blaða- menn í Aþenu, að Júgóslavía væri reiðubúin áð gangast fyr- ir stofnun Balkanbandalags ásamt Tyrklandi. Plastiras kvaðst vera þeirr- ar skoðunar, að ekki myndi líða á löngu, unz önnur grann- lönd, svo sem Búlgaría og Rú- menía, gerðust aðilar að bandalagi þessu. Hann sagði, að kommúnistar væru í mikl- um minnihluta í Búlgaríu. Leonida Bellon. Opuuð sýning hér á myndum af Bruss- elsýningunni MYNDIRNAR, sem voru 4 hinni frægu Brusselsýningu, eru nú komnar heim, og verð ur í dag opnuð sýning í List- vinasalnum á nokkrum af þeim verkum, sem þar voru, það er að segja þeim mynd- um, sem eru í einkaeign lista mannamia, en þær myndir, sem eru í eign safna eða ein- staklinga, verða ekki á sýning unni hér. Flestar af myndunu.m hafa ekki verið sýndar hér áður, en eins og kunnugt er vakti sýn- ingin mjög mikia athygli i Brussel, og hlaut lofsamlega dóma. Þeir, sem eiga verk á sýn- ingunni í Listvinasalnu.m, eru þessi: Snorri Arinbjarnar, Nína Tryggvadóttir, Gerður Helga- dóttir, Þorvaldur Skúlason, Kristján Davíðsson, Sverrir Haraldsson, Jóhannes Jóhann esson, Valtýr Pétursson, Kjart an Guðjónssson og Ásmundur Sveinsson. Málverkin á sýningunni eru til sölu, en aðgangur að sýn- ingunni verður ókeypis. Faruk kalífi af Kairó! ÞAÐ ER NÚ komið upp úr kaíinu, að Faruk Egypta- landskonungur sé komiim aí’ spámaiminum Múhammeff í móffurætt, en uppgötvun þessi hefur veriff gerff af fé lagsskap múhammeðstrúar- manna í Kairó. Þeir, sem að félagsskap þessum standa, halda því fram, að spámaður inn hafí veriff stofnandi hans. Leifftogi félagsskaparins, Múliammeff Biblawy, hefur gengiff á fund Faruks og gert houum grein fyrir þessari sögulegu ættfærslu. Móffur- ætt konungsins hefur verið rakin til Sayed Abdullah el Hussein, en móðir hans var Fatma, dóttir Múhammeffs.. Móffir Faruks konungs var dóttir Ismail Sabri Pasha, sem taldist til gamaílar tyrkneskrar ættar. Ef þessi uppruni Faruks verffur viðurkenndur af öðr um Arabaríkjum, á hann kröfurétt á að taka upp titil- inn kalífi.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.