Alþýðublaðið - 29.05.1952, Side 8
Arbók Jryggingastofnunar ríkisins
fyrir árin 1943 - 1646 komin út
----------------
ÁRBÓK Tryggingastofnunar ríkisins fyrir árin 1943—1946
cr komin út. Lr hún mildð rit, tænar 200 blaðsíður að stærð
0g hefur að geyrna geysimikinn fróðíeik um rekstur og liag
stofnunarinnar, svo og þeirra sióða, sem undir hana heyra; enn
fremur um heilbrigðismál, slysfarir og fleira.
Árbók tryggingastofnunar-
innar kom fyrst út á.fimm ára
afmæli stofnunarinnar, árið
1941, og náði þá yfir árin 1936
—1939. Sérstakar árbækur
komu síðan út fyrir árin 1940,
1941 og 1942, en þá varð hlé á,
og nú er þráðurinn tekinn upp
að nýju. Þessi nýja árbók c-r í
sáma formi og liinar fyrri. Hún
nær til ársins 1945, en það ár
urðu miklar brýetingar á trygg
ingalöggjöíinni, þar sem hin
nýju lög um almannatryggingar
g'eng í gildi 1. janúar 1947. í
árbókinni má sjá þau áhrif, sem
i.ieimsstyrjöldin hafði í för með
,sér fyrir tryggingastarfsemina
jneð því að bera saman síðari
ár við árið 1938, eri það ár er
tékið með í árbókinni til sam-
atiburðar. Gért er ráð. fyrlr .að
niæsta árbók nái yfir árin 1947
—r-1950, ög að þar verði gerð
grein fyrir löggjöftnni um al-
tAannátryggingar og þróun þess
ára mála á því flmabiií.
Árbókinni ér skipt í þrjá að ■
alkafla. Fyrsti kafli fjallar um
rekstur tryggingastofnunarinn-
ar, en hann . skiptist í eftirfar-
andi undirkaíla: Sameiginlegur
rekstur, Slysatryggingadeild,
Sjúkratryggingadeild, EUítrygg
ingadeild Oellilaun og örorku-
bætur og Lífeyrissjóður ís-
lands), sérstakir iífeyrissjóðir
(Lífeyrissjóður embættismanna,
sem nú heitir Lífeyrissjóður
starfsmanna ríkisins, Lífeyris-
sjóður barnakennai’a, Lífeyris-
sjóður ljósmæðra og Lífeyris-
sjóður hjúkrunarkvenna). Ann
ar kafli fjallar um orsakir ör-
orku á íslandi. Er þetta mikil
og fróðleg ritgerð, en hana hef-
Ur Jóhann Sæmundsson prófess
or ritað. í þriðja og síðasta kafl
anum eru fylgiskjöl, listar yfir
lög um alþýðutryggingar og lög
í nánu sambandi við þau, og
loks reikningar Tryggingastofn
uhar ríkisins árin 1943 til 1946.
.í bókinni er, mikill fjöldi
skýrslna, töflur og línurit. Er
þetta hin fróðlegasta bók. Bók-
ina samdi Sölvi Blöndal hag-
fræðingur í samráði við for-
st'jóra og starfsmenn Trygginga
stofnunarinnar, hvern á sínu
sviði.
Sérleyfishaíar vilja
fá samgöngumið-
stöð í Reykjavík.
AÐALFUNDUR Félags sér-
leyfishafa var haldinn þriðju-
j daginn 27. maí s.l. í Breiðfirð-
jingabúð.
Fráfarandi stjórn gaf skýrslu
úm störf félagsins á árinu.
Var mikill áhugi meðal fé-
lagsmanna um að koma á stofn
I sameiginlegri samgóngumiðstöð
í Reykjavík fyrir alla sérleyfis-
hafa á landinu.
Samþykkti fundurinn ein-
róma að fela stjórninni að koma
afgreiðslunúðstöðinni á stað
j sem allra íyrst.
Stjórn félágsins - var. endux-
j kosin óg' tveimur ihöhnum bætt
i í stjórnina.
Stjórnina skipa r.ú: form.
I Sig: E. Steindórsson, Reykja-
! vík, ritari: Guðmundur Böðv-
' arsson, Selfossi, gjaldkeri:
Bjarni Guðmundsson, Túni, og
; meðstjórnendur þeir Guðbrand
i-ur Jörundsson, Reykjavík, og
Magnús Kristjánsson, Hvolsvöll
um.
Varamenn: Lúðvík Jóhann-
esson, Reykjavík, og Guðmairn
Hannesson, Reykjavík.
Nemendur tónlistar-
ikólans haida hljóm
leika í Trípólí
NEMENDUR Tónlistarskól-
ans halda hljómleika í Trí-
pólíbíói í kvöld og annað kvöld,
og hefjast þeir kl. 7 báða dag-
ana.
Efnisskrá tónleikanna er að
vanda mjög fjölbreytt, og ættu
bæjarbúar að nota tækifærið
til að kynna sér list hinna ungu
hljóðfæraleikara.
verziamr i
a ars
lok 1951 - en 1018 árið áður
í ÁRSLOK 1951 voru starfandi samtals 1046 verzlanir í
Beykjavík, þar af 206 heildverzlanir og umboðsverzlanir og 817
smásöluverzlanir, og hefur þeim fjölgað um 28 frá árinu á lind-
an. Árið 1950 voru heildverzlanirnar 201 og smásöluverzlanirn-
ar 817 eða samtals 1018 og í árslok 1949 töldust verzlatnir i
Rfcykjavík 976, þar af 197 heildsölu og umhoðsverzlanir og 779
smásöluverzlanir.
* Á þessu sézt að verzlunum
hefur stöðugt farið íjölgandi ár
Spéir Islendingum
góðum árangri
FRANK SAVIGNE, kennari
í frjálsum íþróttum við George
town háskóla í Washington, D.
C., sem þjálfaði írjálsíþrótta-
menn hér á íslandi á síðast-
liðnu ári, hefur látið það álit í
ljós, að íslendingar muni verða
framarlega í frjálsíþróttakeppn
innj á Olympíuleikunum í Hels
ingsfors í sumar.
Sevigne hefur mikið álit á
frá ái'i síðustu þrjú árin.
Samkvæmt nýútkomnum hag
tíðindum skiptast smásöluverzl
anirnar í bænum þannig í lok
ársins 1951:
Matvörur 181, vegnaðarvörur
167, skófatnaður -Í7), bækur og
pappír 43, skartgripir o. fl. 56,
járnvörur og byggingarvörur
22, raftækj og bifreiðavörur 33
og ýmsar vörur 165, fiskbúðir
59, og brauða og mjólkurbúðir
93.
Erni Clausen og álítur að hann
verði einn af þrem fyrstu í tug-
þrautarkeppninni.
Vestur-BerlíÉ,
SAMNINGARNIR um aðild
Vestur-Þýzkalands að sameig
inlegum vörnum Vestur-Ev-
rópu breyta 1 engu stöðu
Vestur-Berlínar. Hún verður
eftir sem áður harnámssvæði
Vesturveldanna eins og Aust
ur-Berlín er hernámssvæði
Rússa. En skipting borgar-
innar í milli hernámsríkj-
anna var ákveðin í Potsdam-
sáttmálanum í ófriðarlok og
það með. að Vesturveldin
s’kyldu hafa opna leið til
Vestur-Berlínar og frá, fyrir
setulið sitt; á veginum frá
Helmstedt. svo og á þremur:
leiðum í lofti, því að Berlín
er öll, sem kunnugt er, um-
kringd af hernámssvæði
Rússa á Austur-Þýzkalandi.
SAMNINGARNIR í Bonn og
París veita Rússum því engan
rétt til frekari íhlutunar í
Vestur-Berlín en áður; og ef
þeir reyna að þröngva kosti
hennar á einn eða annan hátt
vegna varnarbandalagsins
milli Vestur-Þýzkalands og
Vesturveldanna, eða leggja
tálmanir í veg fyrir sam-
göngur Vesturveldanna við
borgina, gera þeir sig seka
um ^amningsrof, sem enginn
getur sagt fyrir hvaða afleið
ingar kann að hafa. En í því
sambandi má benda á, að hið
nýja varnarbandalag Vestur-
Þýzkalands og Vesturveld-
anna er meðal annars skuld-
bundið til þess að ábyrgjast
Öryggi Vestur-Berlínar.
ÞA£) ER ÞVÍ vissulega hættu-
legur leikur, ef Rússar ætla
sér, í sambandi við hina nýju
samninga, að beita einhverju
ofbeldi við Vestur-Berlín eða
rjúfa samband hennar við
Vestur-Þýzkaland og Vestur-
veldin, eins þó nokkrar horf-
ur eru á, eftir síðustu fregn-
um að dæma. Þeir hafa ekki
aðeins slitið allt símasam-
band Austur-Berlínar við
Vestur-Berlín, heldur allt
símasamband Berlínar yfir-
leitt við Vestur-Þýzkaland.
Og þar að auki hafa þeir
stöðvað alla umferð fyrir her-
lögreglu Vesturveldanna á
veginum milli Helmstedt og
Vestur-Berlínar. Kannski
verða slíkar „æfingar“ þeirra
ekki annað en augnabliks nál
arstungur. En vérði þeim
haldið áfram, fer varla hjá
því, að til alvarlegra viðburða
dragi út af Vestur-Berlín.
Fiugvélar F.í. fluttu
2439 farþega í
apríl.
FLUGVÉLAR Flugfélags ís-
lands fluttu 2493 farþega í apr*-
ílmánuði, og er það 124% hækk
un miðað við sama tíma í xyrra.
Innanlands ferðuðust 2218 far-
þegar, en 275 á milli landa.
Vöruflutningar i mánuðinum
námu samtals 63 660 kg. All-
mikil aukning hefur átt sér stað
í þessum flutningurn, sérstak-
lega í millilandaflugi, eða um
70% sé gerður samanburður á
apríl í fyrra. Þá voru flutt
8074 kg. af pósti, þar af 6491
kg. á innaniandsflugleiðum og
1583 kg, á milli lanáa.
Merkur tónlistarvföburður:
Kammersveilin frá Hamborg
kemur með Gulifossi 5. júní
-------♦-------
Heldur eina opinbera hljómleika, en
sameinast síðan symfóníuhljómsveit-
inrjj á tveimur hljómleikum.
-------«■------
KAMMERSVEIT Philharmonihljómsveitarinnar í Ham-
borg er væntanleg hingað með Gullfoss 5. júní næstkomandi.
Mun hljómsveitin halda þrenna hljómleika fyrir styrktarfélaga
TónlistarfélagsinS i Reykjavík og Hafnarfirði og loks eina op-
inbera liljómleika, cn að því loknu sameinast hún Symfóníu-
•bljómsveitinni og heldur tvo konserta í þjóðleikliúsinu, og verð
ur sú hljómsveit skipuð 70 manns, en í kammersveitinni eru
25 menn. Má þetta óefað teljast mesti tónlistarviðburður, sem
hér hefur noklxru sinni gerzt.
Forystumenn Tónlistarfé-
lagsins skýrðu blaðamönnum
fxá komu, kammerhljómsveit-
arinar í gær; en hún kemur
hingað á vegum Tónlistarfé-
lagsins. Stjórnandi kammer-
hljómsveitarinnar verður Ernst
Schönfelder, en sólóistar verða
Fritz Köhnsen, Kurt Heine-
mann, Heinz Hardt og Heinz
Nellesen, en Olav Kielland
stjórnar hinum sameinuðu
hljómsveitum, symfóníuhljóm-
sveitinni óg kammersveitinni;
Þetta er í annað sinn, sem
erlend hljómsveit kemur hing-
að í heimsókn; en árið 1926
kom Hamþorgarhljómsveitin
hingað, en i henni voru 40
menn. Fararstjóri Þjóðverj-
anna er Hans Brinekmann, en
hann er eirii maðurinn úr
.hópum, sem kom hingað 1926,
| og leikur hann enn með hljóm-
j sveitinni.
J Hljómsveitin leggur af stað
frá Hamborg 30. maí og fer
með Gullfossi frá Kaupmanna-
Fyrirleslur í USA um
Kristmann Guð-
mundsson
DR. RICHARD BECK, pró-
fessor í Norðurlandamálum og
bókmenntum við ríkisháskól-
ann í Norður-Dakota og ræðis-
maðu,r íslands þar í ríkinu, var
einn af ræðumönnum á árs-
fundi fræðafélagsins The So-
ciety for the Advancment of
Scandinavian Study, sem hald-
inn var í Luther College De-
corah, lowa, föstudaginn 2. og
laugardaginn 3. maí s. 1.
Dr. Beck, sem er fyrrverandi
forseti félagsins, flutti á árs-
fundinum síðdegis á föstudag-
inn erindi um Krstmann Guð-
mundsson rithöfund í tilefni
af nýlega afstöðnu fimmtugs-
afmæli hans; en þá um kvöld-
ið flutti hann einnig í hátíðar-
veizlunni í sambandi við fund-
inn raeðu um frelsishugsjón
norrænna manna. Háskóla-
kennarar í norrænum fræðum
víðs vegar að úr Bandaríkjun-
um tóku þátt í rundinum og
fluttu erindi. Á laugardags-
kvöldið hélt dr. Beck fyrirlest-
ur um „ísland nútíðarinnar“ á
fundi „Symra‘‘-félagsins í De-
corah, sem er gamalt og góð-
kunnugt menningarfélag þar í
borg.
Veðrið í dag:
Norðan kaldi. Lcttskýjað.
liöfn 31. maí. Hefur farar-
stjórinn og hljómsveitarstjór-
inn boðið skipstjóranum á
Gullfossi að leika fyrír farþeg-
ana á leiðinni heim, og fá þeir
þannig ókeypis hljómleika um
leið og þeir ferðasl
Hér er um að ræða hálfopin-
bera heimsókn kammerhljóm-
sveitarinnar, og hefur stjórn-
andinn, Ernst Schönfelder.
sem er sonur formanns borg-
arráðs Hamborgar, fengið áð-
stoð föður síns og borgarstjóm-
ar Hamborgar til þess að gera
Iþessa ferð framkvæmanlega:
en áður hafði sveitin tekizt á
hendur að fara í heimsókn ,til
Englands á Édinborgarhátíðina
síðar í sumar, þar sem kammer
sveitin ásamt söngkröftum frá
Hamborgaróperunni verða að-
alþáttur hátíðahaldanna;. en
þar verða m. a. u.ppfærðar 5
óperur.
Eins og áður segir, mun
hljómsveitin einungis halda
hér eina opinbera tónleika ein
út af fyrir sig, en þeir verða í
Austurbæjarbíói 9. júní. Dag-
ana 6. og 7. júní mim hún hins
vegar halda hljómleika fyrir
styrktarfélaga Tónlistarfélags-
ins hér og 11. júní fyrir styrkt-
arfélaga Tónlistarfélags Hafn-
arfjarðar.
Að loknu.m hljómleikunum
fyrir styrktarfélagana í Reykja
vík og hinum opinberu tón-
leikum 9. júní sameinast
kammersveitin symfóníu-
hljómsveitinni, og munu þær
halda tvenna opinbera hljóm-
leika í þjóðleikhúsinu, undir
stjóm Olavs Kielland, og verð-
ur sú hljómsveit skipuð 70
manns. Þessir tónleikar munu
fara fram 10. og 13. júní, og
verða áðgöngumiðar að þeim
seldir í þjóðleikhúsinu, en að-
göngumiðar að hljómlekum
kammerhljómsveitarinnar í
Austurbæjarbíói 9. júní verða
seldir frá því í dag í bókabúð-
um Eymundsens, Lámsar
Blöndals og Bóka og ritfanga
í Austurstræti.
Verkin á tónleikunum hér
verða meðal annars symfóníur
eftir Haydn, Mozart, Beet-
hoven og Brahms, fiðlukonsert
eftir Mozart, verk eftir Grieg,
Svendsen, Wagner og Sara-
vinsky.
Kammerhljómsveitin mun
fara aftur með Gullfaxa 14.
júní, og byrjar þá strax að
undirbúa hljómleikaförina til
Edinborgar.
Undanfamar vikur hefur
Olav Kielland æft symfóníu-
hljómsveitina hér af miklu
kappi fyrir komu kammer-
hljómsveitarinnar; en tvær æf-
ingar munu fara fram með
hljómsveitunum sameinuðum
fyrir hljómleikana.
\