Alþýðublaðið - 15.07.1952, Page 1
JLLÞÝÐUBLAÐIÐ
------------------------------------------—------.
Loffleiðir hafa seH flesfar
sfærsfu flugvélar sínar úr landi!
(Sjá 8. síðu.)
V________________________________________________J
XXXHI. árgangur. Þriðjudagur 15 júlí 1952. -• 156. tbl.
Hörmuleg útkoma síldarvertíðarinnar hingað til:
sama fíma; fyrra
Svefnvagninn að innan. — Ljósm. Stefán Nikulásson.
Svefnvagn Norðurleiða byrjar
áæflunarferððr norður í nóff
-------*------
SVEFNVAGN Norðurleiða fer fyrstu naeturferð sína milli
Reykjavíkur og Akureyrar í nótt, og á að leggja af stað úr
Keykjavík kl. 10 í.kvöld og vera kominn til Akureyrar milli kl.
7 og 8 í fyrramálið. Er þetta fyrsti svefnvagninn, sem tekinn cr
í notkun hér á landi, og hefur hann sæti fyrir 30 farþega. Lík-
legt er að vagn þessi marki tímamót í langferðalögum með bif-
reiðum, enda er innrétting hans við það miðuð, að sem bezt
geti farið um farþegana.
-----------:------«
Arangursiaus leið-
angur á Eyjafjalla
jökul um belgina
LEIÐANGUR var gerður út
fyrir helgina austur á Eyjafjalla
,jÖkul til að kanna flugvélar-
flakið, sem liggur á hájöklinum
síðan í fyrra. Var förin farin, ef
svo skyldi vera, að snjó hefði
tekið af flakinu, svo að unnt
væri að rannsaka það nákvæm-
lega og leita umihverfis það. En
er að því kom urðu leiðangurs-
menn þéss vísari, að álíka mik-
ill snjór var enn á þessum slóð-
um og í vor, þegar síðast var
farið, og bar förin því ekki ár-
angur,
Leiðangursstjóri var Árni
Stefánsson bifvélavirki, en í för
inni voru með honum 15 menn,
5 íslendingar og 10 Bandaríkja-
menn. Lagt var af stað á föstu-
dagskvöld, öllum laugardegin-
um eytt á jöklinum, en komið
heim til Reykjavíkur á sunnu-
dagsmorgun.
Stjórn Norðurleiða sýndi
j blaðamönnu.m þessa nýju bif-
| reið í gær og óku með þá upp
í skíðaskála. Sætin í svefnvagn
inum eru frábrugðin sætum i
venju'egum langferðabílum,
og svipar mjög til flugvéla-
sæta. Bökin eru hærri en á
venjulegum bílsætum, og er
með einu handtaki hægt að
halla þeim aftu.r, þannig að
vel fari um farþegann, þegar
hann vill leggja sig til svefns.
Þá er og það langt milli sæt-
anna, að menn þurfa ekki að
vera með kreppta fætur, eins
og tíðkast í áætlunarbílum.
Yfirbygging vagnsins og sæt
in eru gerð í BOasmiðjunm, en
fyrirmyndin að sætunura er
dönsk. Tveir ungir piltar úr
Bílasmiðjunni, þeir Eysteinn
Guðmu.ndsson og Eyjólfur
Jónsson, dvöldu fyrir nokkru
fióra mánuði í Danmötku og
kynntu sér nýjnngar í yfirbygg
ingu bifreiða, þar á meðai
gerð sæta í slíkum svefnvögn
um, og hafa þeir annast gerð
sætanna, en Gunnar Björnsson
að öðru leyti stjórnað yfir-
bygging bílsins.
*> Framhald á 7. síðu.
‘Aðeins 11 skip hafa
j veitt 500 mál eða
j þar yfir,- 60 í fyrra
! ----------------
LAUGARDAG 12. júlí
á miðnætti voru síldveiði-
skipin, sem stunda veiðar
við Norðurland, búin að
leggja upp í bræðslu 17874
mál, en á sama tíma í
fyrra 61146 mál, auk tæpl.
•16 þús. tunna í salt. Til
beitufrystingar og í niður-
suðu hafa nú farið tæpar
j 3000 tunnur.
Aðeins 11 skip hafa veitt nú
500 mál og tunnur og þar yfir,
en 60 á sama tíma í fyrra. Þá
var aflaliæsJa skipið með 2305
mál, það var Illugi frá Hafnar-
firði, en nú er aflahæst „Akra-
borg“ frá Akureyri með 1442
mál og tunnur.
Þau ellefu skip, sem nú hafa
aflað 500 mál og tunnur og
þar yfir, eru þessi (mál og
tunnur):
„Akraborg“, Akureyri, 1442,
„Björgvin“, Keflavík, 591,
„Grundfirðingur“, Grundar-
firði, 532, „Guðmundur Þor-
lákur“, Reykjavík, 908, Hauk-
ur I“, Ólafsfirði, 623, „Ingvar
Guðjónsson“, Akureyri, 511,
„Jón Guðmundssoa", Keflavík,
670, „Páll Pálsson“, Hnífsdal,
560, ,,Rifsnes“, Reykjavik, 625,
„Súlan“, Akureyri, 538, „Vörð
ur“, Grenivík, 546.
mm
Olvaður maður brýí-
ur rúðu í verzlun
Skarst á hendi og
blóðferillinn rak-
inn heim til hans.
ÖLVAÐUR MAÐUR braut
í gærmorgun stóra rúðu í
glugga verzlunarinnar, Bald-
urs, Framnesveg 29.
Þetta mun hafa gerzt um
áttaleytið, samkvæmt upplýs-
ingum frá rannsóknarlögregl-
unni. Maðurinn var ofuvölvi,
og er enginn til frásagnar um
atvikið, en er lögreglan kom
á vettvang, gat hún rakið blöð
feril frá verzluninni í hús þar
skammt frá og kom í ljós, að
maðurinn, sem var valdur að
skemmdinni, átti þar heirna.
Hafði hann skorizt á hendi, er
hann braut rúðuna.
Athöfnin í kirkjugarðinum að Bessastöðum í gær.
Aska Sveins Björnssonar for-
seta jarðsett að Bessastöðum
ASKA Sveins Björnssonar
forseta var jarffsett í kirkju-
garffinum á Bessastöffum ár-
degis í gær aff viffstöddum
nánustu vandamöimum, ráff-
herrum og frúm þeirra og
nokkrum öffrum.
Athöfnin hófst meff því, aff
kór Bessastaffasóknar söng
sálminn: Ég lifj og ég veit.
Sóknai-presturinn, séra Garff
ar Þorsteinsson, flutti baen,
en séra Bjarni Jónsson vígslu
biskup lokaði hinni steyptu
gröf, er gerff hafffi veriff fyr-
ir ösku forsetans, mælti nokk
ur orff og flutti drottinlega
blessun. Síffan söng kórinn
versiff: Ég lifi í Jesú nafui.
Legstaður forsetans er í
kirkjugarffinum aff Bessastöff
um viff norffurvegg kirkjunn
ar. Á gröfinni er hella úr is-
lenzkum steini og á hana letr
aff: Sveiun Björnsson.
AS athöfninni lokinni vaj’
gengiff í Bessastaffastofu og
ávarpaffi forsætisráffherra
frú Georgíu Björnsson og
þakkaði henni i nafni þjóff-
arinnar hin mikilvægu störf
hennar sem fyrstn forsetafrú
ar landsins. Henrik Sv.
Bjömsson sendiráffunautur
flutti aff skilnaði þakkarorff
fyrir móffur sína og fjölskylö
una. (Tilkynning forsætis-
ráffuneytisins.
Sjö keppa í Chicago um að
verða forsetaefni demókrata
--------•------
Fulítrúar á flokksþing þeirra byrjaðir að
streyma til borgarinnar; hinir farnir.
------------------+-------
FKEGNIR frá Washhington herma, að fulltrúar á flokks-
þing demókrfata, sem á að hefjast 21. júlí, séu nú að byrja að
streyma til Chicago; en á því þingi verður forsetaefni þeirra
valið. Talað er um sjö menn, sem líklegir séu til þess að koma
til greina við það kjör: öldungadeildarmennina Russel, Kerr,
Kefauver og MacMahon, Barclay núverandi varaforseta, Ray-
burn forseta fulltrúadeildar þingsins, Stevenson fylkisstjóra í
Illinois og Harriman, ráðunaut Trumans og forstjóra hinnar
gagnkvæmu öryggisstofnunar.
Einn þessara keppenda,
Russel, er þegar kominn til
Chicago og hefur leigt þá hæð
í einu hóteli borgarinnar, sem
Taft hafði meðan flokksþing
repúblikana stóð. Fór Taft það
an fyrir helgina til Kanada,
sér til hvíldar, og lét svo um
mælt, að hann myndi ekki
framar gefa kost á sér sem
forsetaefni fyrir flokk sinn.
NÝ KROSSFERÐ EISEN-
HOWERS.
„krossferð — fyrir freisi Ame-
ríku og frelsi alls heimsins“.
Líkir hann þar með kosninga-
baráttu sinni við herferð sína
í Evrópu í annarri heimsstyrj
öldinni, en bók sína um hana,
sem út kom nokkrum árnm eft
ir stríðið, kallaði hann „Cru-
sada in Europe‘‘ — þ. e. Kross
ferð í Evrópu.
Veðrið í dag:
Eisenhower er nú að hefja
bosningabaráttu sína gegn
demókrötum og kallar hana
Vestan og síðar suðvcst-
an gola, sliýjað og dálitii
rigning.