Alþýðublaðið - 22.07.1952, Blaðsíða 6
Cfaude Anet; 5» dagur
ARSANE
■vvy /
ÍÞRÓTTAÞÁTTUR
Heilir íslendingar!
Ólympíuleikarnir eru byrjað-
ir, — við höfum þegar verið
slegnir út í fjórum undanrásum,
svo að þetta gengur allt eins og
maður bjóst við. Enn hefur sem
sagt ekkert gerzt á ólympíuleik
unum, sem ekki gat gerzt þar,
— þar getur nefnilega allt gerzt
eins og Benedikt sagði. Okkar
menn hafa þó unnið einn sigur,
sem vert er um að tala; þeir
sigruðu sem sé alla í göngunni
inn á völlinn, voru langfalleg-
asti flokkurinn, sem þar sást;
unnu með öðrum oroum sveita-
keppnina í fegurðarsamkeppni
ólympíuleikanna; þeir voru
heppnir, að kvenfólkið hérna
skyldi ekki eiga fulltrúa.í dóm-
nefndinni, — þá hefðu fegurð-
arverðlaunin áreiðanlega farið
sömu leið og Bláa bandið! En
sem sagt, okkar menn hlupu
þarna í fyrsta sæíi alla leið,
ekki bara fyrsta spólinn, heldur
alla leið í mark, bravó, bravó,
bravó! Þetta er það, sem á út-
lendu íþróttamáli heitir mór-
alskur sigur, en sem okkur vant
ar ennþá orð yfir af skiljanleg-
um ástæðum.
Annars hefur gerzt hérna ann
ar íþróttaatburður, sem er mörg
um sinnum merkilegri en ólym-
píuleikarnir og allar erlendar
keppnir til samans, — VÉR
HÖFUM SIGRAÐ AKRANES-
INGANA og náð ísiandsmeist-
aratigninni! Því eins og hann
Erlendur sagði, að hvaða gagni
kæm; það okkur, þótt við sigr-
uðum alla á ólympíuleikunum,
ef við töpuðum svo fyrir Akra-
nesingum! íslenzka þjóðarstoít-
ið í Vesturbænum getur aftur
hafið sig til flugs af öskuhaug-
unum, eins og fuglinn, sem hét
einhverju útlenzku nafni, eftír
harðan en drengilegan leik. Það
þurfti ekki nema tvo Vesturbæ-
inga, Gvend Jóns 'og ég, til þess
að þvælast drengilega fyrir Rík
arði og gera hann ómögulegan!
Það var dásamleg stund; hver
einasti sannur íslendingur fædd
ur fyrir vestan læk, grét eins
og sigin grásleppa eftir sólsetur
úti í hjalli og íþróttaandinn
sveimaði yfir vötunum! Húrra,
húrra, húrra! Komi nú Rínarúr
valið aftur ef það þorir!
Sem sagt, — fyrst svona fór,
höfum við alltaf efni á því að
tapa einum ólympíuleikum!
Með íþróttakveðjum!
Vöðvan Ó. Sigurs.
Kýkomnar
s
hellur í þýzkar eldavélar S
og passa einnig í RAFHA S
eldavélar. S
S
,s
Véla- og raftækjaverzlunin
Bankastræti 10. Sími 2852.
Tryggvag. 23. Sími 81279.
evna (Arane var nú orðin
fimmtán ára), „ástin er yndis
leg, ef hún er tekin eins og
hún er. En rómantíkin er rót
alls ills. Ég vona nú að ,þér
sé engin hætta búin af henni.
Þú ert skynsöm stúlka og lætur
ekki leiðast afvega.“
Unga stúlkan brosti sér-
stæðu brosi með samanbitnum
vöru.m, en af því varð ekki nið
riinnsta ráðið hvað í hug
hennar bjó.
Önnur meginregla Varvöru
Petrovnu var sú, að fjármálum
og ástum mætti aldrei blanda
saman. Að því leyti vorui sið-
gæðishugmyndir hennar ná-
kvæmlega þær sömu og ann-
arra rússneskra kvenna. Með-
an peningarnir eru ekki undír-
rót ástanna, er allt eins og
það á að vera, og stúlkan
heiðarleg, hvað sem annars
hendir hana. Ósiðsemin byrjar
þá fyrst, ef peningarnir hafa
áhrif á framkomu hennar.
Meðan Varvara dvaldi í Genf,
hafði hún stundum ekki til
næsta máls. Ei að síður myndi
hún ekki hafa þegið svo mikið
sem eina einustu máltíð eða
fyrir fargjaldi í strætisvagni
af elskhuga sínum, enda þótt
hann hefði verið auðugur
maður. Þetta einkenni er svo
sterkt í fari rússneskra kvenna
að nálgast hreina tilgerð.
Um þær mundir sem Ariane
kom fyrst á heimilið, var elsk-
hugi Varvöru þekktur mála-
flutningsmaður í nágrannaborg
nokkurri ,sem tvisvar í viku
kom í viðskiptaerindum til
höfuðborgar héraðsins. Hann
svaf þá á sömu hæð og Var-
vara í húsinu við Dvoranskaya.
Svo kom verkfræðingu.r nokk-
ur í hans stað. Út á við virtist
ekkert skorta á að velsæmis
væri gætt í einu eða öllu. En
Varvara PPetrovna gerði Ari-
ane fljótlega að trúnaðarmanni
sínum og lét aldrei undir höfuð
legjast að tjá henni frá verð'-
leikum, kostum og gölltifn
elskhuga sinna.
,.Ég geri þér mikinn greiða ‘,
bætti hún stundum við. „Þú
færð þá ekki Fugur í höfuðio.
Þú sérð þá hlutina í réttu Ijósí,
og sá tími mun koma," að þú
lærir að meta mig‘‘.
En á síðasta ári hafði orðið
breyting á högum Varvöru Pe-
trevnu. Hún var nú nýlega orð-
in fertug. Um það leyti hneigð-
ist hugur hennar skyndilega
mjög sterkt til læknis nokkurs.
Hann var almennt álitinn mjög
myndarlegur maður. Verkfræð
ingurinn hafði horfið af sjón-
arsviðinu þegjandi og hljóða-
laust og Vladimir Ivanovitsch
kom í hans stað. Þattnig liðu
fyrstu sex mánuðírnir í sælu-
vímu. En þá var það, að Var-
vara Petrevna kenndi tilfinn-
ingar, sem var henni algerlega
framandi. Hún var ástfangin.
Vitneskjan um það gerði hvort
tveggja að fylla hana fögnuði
og örvæntingu. Fyrra líf henn-
ar sýndist hljóta að hrynja í
rúst. Hún þekkti sig ekki leng-
ur. Henni var innanbrjósts eins
og manni, sem fallið hefur í dý
og finnur jörðina vera að
gleypa sig, en kemur hvergi
auga á neina handfesti sér til
bjargar. En hún var um leið ó-
umræðilega hamingjusöm, sælli
en nokkurn tíma áður. Hana
dreymdi dagdrauma eins og
sautján ára stúlku.
,,Ó!“ sagði hún við Ariane.
„Ég hef ekki vitað hvað ham-
ingja var. Ég hef átt átján elsk-
huga ... hvers vegna er ég að
kalla þá elskhuga? ... vini,
ekkert meira. Og svo hitti ég
ekki Vladimir, fyrr en ég er
orðin fertug. .. . Hvílík til-
hugsun, að hann skuli hafa átt
heima í námunda við mig allan
þennan tíma, - Ég get ekki fyr-
irgefið sjálfri mér. ... Ó, ef þú
aðeins gætir gert þér í hugar-
lund, hvernig hann er.“
Hún klifaði stöðugt á þessu
Stúlkan hlustaði þögul, brosti í
kampinn og beit á vörina.
Brátt kom að því, að Var-
vara Petrovna hreppti storma
hinna miklu ásta. Hún þóttist
verða vör dvínandi tilfinninga
af hálfu Vladimirs Ivanovitch.
Hann kom að vísu á hverjum
degi, en hann var hættur að
gera boð á undan sér. Stundum
kom hann meira að segja um
sexleytið, einmitt þegar Var-
vara hafði farið út sér til dag-
legrar hressingar, og hann var
hættur að bíða þá eftir henni
eins og hann hafði gert fyrst í
stað. A kvöldum var hann næst
um hættur að fara inn í litlu
setustofuna við hliðina á sveín
herbergi Varvöru. Hún þurfti
að beita sér til þess að fá hanu
þangað inn. Hann vildi heldur
sitja í borðstofunni. Þar voru
ævinlega, auk Ariane, Olga
Dimitrievna, vinkona hennar,
sem mánuðum saman hafði um
þessar mundir verið þar í fæ'ði,
og þjónustufólkið allt.
Hann hafði afsakanir á reið-
um höndum: konan hans hafði
komið óvænt heim utan af
landi; konan hans var lasin;
hann þurfti að vitja sjúklinga;
hann hafði höfuðverk, og svo
framvegis.
Varvara Petrovna átti mjög
bágt. Þessi kona, sem aldrei
hafði þurft að þiðjast neins af
elskhugum sínum, laut nú svo
lágt að láta frænku sína og heim
ilisfólkið allt vera heyrnar-
votta að tilmælum hennar um
stefnumót við Vladimir Ivano-
vitch.
Hún var örvita af afbrýði.
Vladimir hlaut að eiga aðra vin
konu. Hún tók til að njósna um
hann. Hún mældi hann með
augunum, fylgdi hverri hreyf-
ingu hans. Reyndi að verða ein
hvers vísari af svipbrigðum
hans, af raddblæ hans. Aður
fyrr hafði hún varla farið út
fyrir húsdyr. Nú hljóp hún
borgina á enda á hæla hans,
gekk fram hjá húsi hans marg-
oft sama daginn. Hún gekk jafn
vel svo langt að láta aka sér á
eftir honum í vagni. Hver gat
vitað, til hvers glæsilegur lækn
ir væri líklegur?
Hún hafði tapað gleði sinni.
Þessi kona, sem aldrei hafði
þurft að hafa neinar áhyggjur,
var nú rúin allri öryggistilfinn
ingu.
..Hvernig gekk þér prófið?“
Áður en Ariane gat nokkru
svarað, voru dyrnar opnaðar og
Vladimir Ivanovitch kom inn.
Engu líkara en hann hefði
leynzt við dyrnar til þess að
geta komið inn í stofuna um
Ieið og Ariane. Hann var af
þeirri tegund manna, sem allt-
af er að flýta sér, alltaf kvikir,
nálægt fimmtugu, sléttrakað-
ur, grár í vöngum. Enginn
hafði betri né fallegri tennur,
augun voru hvöss undir loðn-
um brúnum. Hreyfingarnar
lýstu takmarkalausu sjálfs-
trausti. Varvara þaut á fætur
og xétti fram hendina.'
,.Þú lcemur seint.“
Vladimir Ivanovitch kyssti
hönd Varvöru, sleppti henni
eins fljótt og við varð kcmið
og gekk á móti Ariane.
„Ég hraðaði mér hingað til
þess að samgleðjast yður, Ari
ane Nikolaevna. Dóttir mín
sagði mér af frábæru afreki yð
ar. Ekki svo að skilja, mér kem
ur það sízt af öllu á óvart.“
Hann hók hönd Ariane í báð-
ar sínar. Ariane togaði hendina
til sín. Varvara hafði geflð
þeim nánar gætur.
„Viltu ekki fá þér sæti, Vla-
dimir Ivanovitch?“ sagði hún.
„Ég skal láta koma með kaffi
handa þér.“
„Nei. Ég hef ekki tíma. Ég
þarf svo margt að gera.“
„Þú verður að fá bolla af
kaffi. Ég læt þig ekki fara. Ég
kem kannske með þér út á eftir
mér til hressingar. Þetta er
fyrsti dagur sumarsins. Hvað
ætlar þú að gera, Ariane?“
,,Ég verð heima til ldukkan
sjö,“ svaraði stúlkan. „Nikolas
kemur að sækja mig í vagni.
Ég ætla að leggja mig dálitla
stund. Ég er þreytt.“
„Ó, ég gleymdi,“ sagði Var-
vara. „Það er bvéf frá föður
þínum í svefnherberginu þínu.“
Ariane hnyklaði brýrnar.
Það færðist skuggi yfir andlit
hennar við að heyra foður sinn
nefndan.
Nokkrum mínútum seinna
var enginn eftir í borðstofunni.
3. Bréfið.
Hún kom strax auga á bréfið
um leið og hún steig inn í her-
BYGGINGARFELAG VERKAMANNA.
Aðaífundur
félagsins verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu föstudag-
inn 25. þ. m. klukkan 8,30 e. h.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Félagsmenn sýni skírteini fyrir árið 1951 við innganginn.
Stjórnin.
S
S
s
s
*
l
ý
s
s
$
s
S
S
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s_
s
\
\
s
s
c
s
s
s
s
s
s
s
s
S'
s
s
s
s
s
s
s
s
S'
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
S
s
S
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
'S
s
Smurt brauð.
Snitéúr.
Til í búöinni allan daginn. ^
Komið og veljið eða aínaið. ^
Sífd & Flskur.
Ora-viðgerðir.
Fljót og góð afgreiðgla. s
GUÐL. .GÍSLASON,
Langavegi 63,
lími 81218.
Smurt brauð
og snittur.
Nestispakkar.
Ódýrast og bezt.
sarrilegast pantið
fyrirvara.
MATBARINN
Lækjargötu ð.
Síini 80340.
Rafíækjaeigendur
Vin- ^
með
s;
v
y
í
s
y
s
s
Tryggjum yður ódýrustu S
og öruggustu viðgerðir á S
raftækjum. — Árstrygg-S
ing þvottavéla kostar kr. $
27,00—67,00, en eldavéla^
kr. 45,00. y
Raftækjatryggingar h.f. \
Laugaveg 27. Sími 7601. ^
S
-----------------——'S
s
s
s
s
s
s
S
-----------------------s
s
Minningarspjöfd $
dvalarheimilis aldraðra ijó^
manna fást á eftirtóldum ?
stöðum í Reykjavík: Skrif-í
etofu Sjómannadagsráð* •
Grófin 1 (ge igið inn frá ‘
Tryggvagötu) sími 6710,-
skrifstofu Sjómannafélags ?
Reykjavíkur, idverfisgötu ?
8—10, Veiðafæraverzlunin •
Verðandi, Mjólkurfélagshúj ?
inu, Verzluninni Laugateig-
ur, Laugateig 24, bóka-verzll
uninni Fróði Leifsgötu 4,?
tóbaksverzluninni Boston, •
Laugaveg 8 og Nesbúðinni, J
Nesveg 39. — í Hafnarfirði 3
hjá V. Long.
Köld borð og
heitur veizfu-
matur.
Sífd & Fiskur.
y
?
?
V
?
s
s
?
hefur afgreiðslu í Bæjar- s
y
sendibílastöðin h.f,
bílastöðinni í
16. — Sími 1395
Aðalstræti y
V
s
s
S
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
_s
s
s
s
s
s
S
y
y
Minnlngarspjöfd s
Barnaspítalasjóð* Hringsln* S
eru afgreidd í Hannyrða- S
verzl. Refill, Aðalstræti 12. S
(áður verzl. Aug. SvendS
sen). I Verziunni VictorS
Laugaveg 33, Holts-Apó- S
teki, Langhuitsvegi 84, V
Verzl. Álfabrekku við Suð- S
urlandsbraut og Þorsteina- ý
búð, Snorrabraut 61. s
!AB i