Alþýðublaðið - 24.09.1952, Side 1
23 íslenzkir logarar á sa!l
fiskveiðum .við Grænland
Sjá á 8. síða.
J
LÞYÐu
XXXIII. árgangur. , Miðvikudagur 24. september 1952,
212. tbl.
Miðstöð AlþýðufloMísins í Noregi
Bílar vamarliðsins
búiiir að fá
íslenzk númer
MENN HAFA veitt því eftir
tekt að bílar varnarliðsins á
Kefla\Mkurflugvelli eru búnir
að fá íslenzk númer. Eru þeir
allir merktir VL og síðan áfrain
haldandi númerum.
Bílar, sem eru í einkaeign
amerískra manna á Keflavíkur
flugvelli, eru ekki með íslenzk
um númerum. Merki þeirra eru
G. 02000 og svo framvegis.
raun brezkra úígerðarmanna ti
þess að knýja Isiendinga til und
anhalds í landhelqismáiinu
Filketeaterbygningen nefnist þetta hús, en það er með
sfærstu húsum í Oslo. Það er 12 hæðir og liggur milli tveggja
gatna. Þarna hefur norski Alþýðuflokkurinn aðalbækistöðvar
sínar og Arbeiderbladet í Oslo. sem er stærsta blað norska Al-
þýðuflokksins, en alls eru gefin ,út á vegum hans rúmlega 40
blöð víðsvegar um landið og hafa þau sína eigin fréttastofu,
.Arbeidernes Pressekontor, sem einnig er í þessu húsi. Sjálf':
Arbeiderbladet hefur til umráða 9 hæðir í húsinu auk kjallar-
ans. Þá eru skrifstofur Alþýðuflokksins á einni hæðinni, Menn
ingar og frséöslusamband alþýðu og bókaforlagið ..Tidens for-
lag“, og blaðið „Akxueli' * naia ema næðina, en efst uppi er sam
eiginleg veitingastofa, sem rekin er af Arbeiderbladet og góð-
templarareglunni. Loks eru vmsum einkastofnunum leigðar
skrifstofur og verzlanarhúsnæði hins vegar í húsinu, og þar er
emnig alþýðuleikhúsið, sem taka mun til starfa í haust.
ákvað á ársÞIngi sínu
gær aS styðja Stevenson
F3ÖLMENNUSTU verkalýðssamtök Bandaríkjanna, Arpe-
rícan Federation of Labor, hafa ákveðið að veita forsetaefni
demókrata, Adlai Stevenson, fylgi sitt við forsetakosningarnar.
ÁkvörSun um þetta var tekin á fulltrúaþingi féiagsins í gær. I
samtökum þessum eru 8 milljón manns. Annað stærsta verka-
lýðssambandið í BandaríkjUnum, CIO, hefur einnig heitið Ste-
venson fylgi sínu.
Það þykir tíðindum sæta. að
AFL tekur opinbera afstöðu til
pólitískra kosninga, en það hef
ur það ekkí gert síðan það var
síöfnað fyrir 70 árum.
Ástæðan fyrir stuðningi
pin m
i
GEORGE F. KENNAN, sendi
herra Bandaríkjanna í Rúss-
%»dij sagði frá þvi nýlega, að
Framhald 7. síðu.
verkalýðssamtakanna við Ad-
lai Stevenson er sú, að hann
hefur heitið því, að nái hann
kosningu muni hann vinna að
því að fá hin illræmdu Taft-
Hartley lög afnumin, en þau
skerða mjög félagsleg réttindi
verkalýðssamtakanna hvað við-
víkur verkföllum.
Afstaða Eisenhowers til Taft-
Hartley laganna er sú, að hann
vill fá þeim breytt, en ekki
afnumin, og mun ástæðan fyrir
því vera, að hann vill ekki
hætta á að missa fylg'i kjós-
enda Táfts við forsetakjörið.
Ágúst H. Bjarnason
prófessor lálinn
ÁGÚST H. BJARNASON
prófessor, hinn þjóðkunni heim
spekingur og rithöfundur, and-J
aðist að Landakotsspítala á
mánudagskvöldið, eftir hálfs
mánaðar þunga legu þar, 77
ára að aldri.
Ágúst H.'Bjarnason prófess-
or var fæddur á Bíldudal 20.
ágúst 1875, sonur Hákonar
Bjarnasonar kaupmanns þar og
konu hans, Jóhönnu Kristínar
Þorleifsdóttur. Hann varð stú-
dent í Kaupmanahöfn 1894 og
meistari í heimspeki við háskól
ann þar 1901. Var styrkþegi
Hannesar Árnasonar sjóðsins
1901'—1904, aukakennari við
menntaskólann í Reykjavík
1905—1911 og prófessor í heim
speki við háskóla íslands, er
hann var stofnaður, 1911. Því
háskólakennarastarfi gegpdi
hann síðan fram á elli.árý en
var jafnframt mjög athafna-
eamur rithöfundur á sínu svi?i.
Eru bækur hans um heimspeki,
,svo sem Saga mannsandans
(Austurlönd, Hellas, Vestur-
lönd og Nítjánda öldin), Sálar-
fræði og 'Siðfræði löngu þjóð-
kunn rit, enda mikið lesin um
land allt. bæði fyrr og síðar.
Ágúst H. Bjarnason prófess-
or var kvæntur Sigríði Jóns-
dóttur, Ölafssonar skálds og
ritstjóra, og lifir hún mann
sinn. ! I;'®!
sendimenn farnir lil Englands (i
þess að alhuga málið þar
FÉLÖG togaraútgerðarmanna í Hull og Grimsbj7-
hafa samþykkt að lána ekki íslenzkum togurum lönd-
unartæki sín í þessum tveimur hafnarborgum, og er
því, að svo stöddu, loku fyrir það skotið, að íslenzkir
togarar geti landað afla sínum þar. íslenzkir togarar
fá heldur ekki not af tækjum þeim, sem höfð eru tii
þess að ferma skipin ís, kolum eða brennsluolíu.
Skýrt var frá þessu í Reut-*~
ei-sfregn í gærkvöldi, þar sem
sagt var, að H. White, formað-
ur félags togaraútgerðarmanna
í Hull, hefði kunngert þessa
samþykkt félaganna í gær; en
félag togaraútgerðarmanna í
Grimsby hafði fyrir nokkru
tilkynnt íslenzka ræðismann-
inum þar, Þórarni Olgeirssyni,
að þeir hefðu gert sams konar
ráðstafanir og hefði hann til-
kynnt það Félagi íslenzkra
botnvörpuskipaeigenda.
Kommúiiisfar tópuðu
fulltrúa Rakara-
sveinafélagsins
AÐALFUNDUR Rakara-
sveinafélags Reykjavíkur var
Framhald á 7. síðu.
sendimenn til englands
Jón Axel Pétursson og Kjart
an Thors eru farnir til Eng-
lands til þess að reyna að leysa
úr þeim vanda, sem skapazt af
löndunarbanninu, og virðist
aðeins um tvær leiðir að gera;
annað hvort að fá löndunar-
banninu aflétt, eða skapa ís-
lenzkum togurum löndunar-
skilyrði á annan hátt, og þá
helzt með því að íslendingar
eignist löndunartæki í þessum
hafnarborgum sjálfir.
Framhald á 7. síðu.
Ðýr varnarræða fe
onsí
sjánvarpi í gær
í GÆRKVÖLDI flutti - vara-
forsetaefni repúblikana, Ric-
hard Nixon ræðu, sem úívarp-
að og sjónvarpað var um öll
Bandaríkin. Gerði Nixon grein
fyrir ásökunum þeim. sem
stjórnmálaandstæðingar hans.
hafa borið hann, en það er að
hann hafi þegið mútur fyrir að
ljá ýmsum þingmálxim fylgi
sitt og svo að hafa gerzt sekur
um skattsvik.
New York Times og önnur
stórblöð í Bandaríkjunum, sem
flest styðja málstað repúblik-
ana. telja að ákæra þessi sé
mikið áfall fyrir flokkinn og
geti komið til mála að fram-
boð Nixons verði afturkaliað.
Framhald 7. síðu.
Frambjóðandi Framsóknar var
kjörinn í Vestur-lsafjarðarsý
ÚRSLIT aukakosningarimiar til alþingis £ Vestur-ísafjárð-
arsýslu á sunnudaginn urðu þau, að frambjóðandi Framsóknar-
flokksins, Eiríkur Þorsteinsson, var kjörinn þingmí'.ður kjör-
dæmisins með 405 atkvæðum. Framhjóðandi Sjálfstæðisfloí hs-
ins, Þorvaldur Garðar Kristjánsson, fékk 273 atkvæði, fra;• i-
bjóðandi Alþýðuflokksins, Sturla Jónsson, 233 atkvæði og frani
bjóðandi kommúnista, Gunnar M. Magnúss, 34 atkvæði.
Á kjörskrá voru samtals
1086 manns; en þar af greiddu
958 atkvæði eða 89,7% þeirra,
sem á kjörskrá voru. Auð-
ir seðlar revndust 6 og ógildir
7.
Við síðustu alþingiskosning-
ar 1949, urðu úrslit í Vestur-
Isafjarðarsýslu sem hér sagir:
Ásgeir Ásgeirsson, frambjóð
andi Alþýðuflokksins, fékk 418
Framhald á 7: síðu.