Tíminn - 31.07.1964, Side 7
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdast.ióri Kristján Benediktsson Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson <ábi Andrés Kristjánsson. Jón Helgason og Indriði
G Þorsteinsson Fulltrú! ritstjórnar Tómas Karlsson Frétta
stjóri' Jónas Krisíjánsson Auglýsingastj. Sigurjón Davfðsson
Ritstjórnarskrifstofur l Eddu-húsinu. simar 18300—18305 Skrii
stofur Bankastr 7 Afgr.simi 12323 Augl. sími 19523 Aðrar
skrifstofur. sími 18300 Áskriftargjald kr 90,00 á mán Innan
lands — í lausasölu kr 5,00 eint — Prentsmiðjan EDDA h.i
Dómur skattskrárinnar
Þegar stjórnarfrumvörpin um breytingar á tekju-
skatts og útsvarslögunum lágu fyrir Alþingi í vetur, héldu
Framsóknarmenn því fram, að þau fælu raunverulega
í sér skattahækkun. Að vísu væri persónufrádrátturinn
nokuð aukinn, og það væri til bóta, en þó þyrfti aukn-
ing hans að verða meiri. Hins vegar væri svo gerð breyt-
ing á skatt- og útsvarsstiganum, er hlyti að leiða til skatta-
hækkunar einkum á skattgreiðendum í millistéttum.
Skattar og útsvör myndu hækka stórlega á þeim, miðað
við gjaldgetu- Sama gilti einnig um verkamenn, sem
ynnu mikla eftirvinnu, en það er þeim nauðsynlegt. ef
launin eiga að hrökkva fyrir nauðþurftum.
Stjórnarsinnar skeyttu framangreindum ábendingum
Framsóknarmanna engu, heldur töldu þær fjarstæður
einar. Jafnframt hertu svo stjórnarblöðin þann áróður
með Gunnar Thoroddsen sem forsöngvara, að hér væri
raunverulega um að ræða mikla skatta- og útsvars-
lækkun, ekki aðeins hjá hátekjumönnum, heldur öllum
skattgreiðendum. Helzt mátti skilja á þeim, að stjórnar-
flokkarnir hefðu eignazt nýjan Erhard, þar sem Gunnar
var! I
Skattskráin hefur nú fellt dóm sinn um það, hvonr
höfðu réttara fyrir sér Framsóknarmenn eða stjórnar-
sinnar á Alþingi í vetur. Skattar og útsvör hafa hækkað
stórkostlega á flestum skattgreiðendum, miðað við síðastl.
ár, jafnvel allt að því tvö- og þrefaldazt, þótt gjaldgetan
hafi ekki aukizt raunverulega. Meiri skattahækkun hefur
aldrei átt sér stað í sögu þjóðarinnar, og þetta á sér stað.
þrátt fyrir margföldun tolla og söluskatta á undanförnum
árum.
Skrif Morgunblaðsins, Alþýðublaðsins og Vísis um
skattalækkanir ríkisstjórnarinnar hafa þannig reynzt
hinar örgustu blekkingar, sem um getur í íslenzkri
stjórnmálasögu. Gunnar Thoroddsen er ekki hinn snjalli
og góðgjarni fjármálasnillingur, sem létt hefur skatt-
byrðum af almenningi, heldur hinn óbilgjarni og ráð-
litli skattheimtumaður, sem hefur aukið skattaklyfjarnar
jafnt og þétt. Þeir flokkar, sem hafa svikið og blekkt
kiósendur eins stórkostlega og stjórnarflokkarnir hafa
gert í skattamálunum, eiga að hljóta maklega fordæm-
ingu þjóðarinnar.
Árás á míllistéttirnar
Hin mikla útsvars- og skattahækkun, sem skattskráin
ber svo ljóst merki, bitnar tiltölulega þyngst á fólki, sem
hefur meðaltekjur. Síðan núv. stjórnarflokkar hafa kom-
ið til valda, hafa þeir unnið markvíst að því að lækka
beina skatta á fyrirtækjum og hátekjumönnum, en hækka
þá á millistéttinni. Með breytingum skatt- og útsvarsstig-
anna í vetur, var alveg sérstaklega unnið að því að færa
skattana yfir á millistéttirnar. Framsóknarmenn bentu
á þetta og vöruðu við þessu, en stjórnarflokkarnir
skeyttu þessu engu. Afleiðingarnar sjást nú vel.
Millistéttirnar búa nú við hærri skattaálögur en dæmi
eru til um annars staðar. Þeir verkamenn. sem mest
leggja á sig, komast nú yfirleitt orðið í sama skattstig-
ann og millistéttirnar. Þannig bitna skattaálögur ríkis-
stjórnarinnar einnig hart á þeim.
Millistéttirnar munu búa við þessi ólög áfram. nema
þær geri það vel ljóst, að þau verði ekki þoluð. Og það
verður ekki gert með öðru en að millistéttarfólkið svipti
stjórnarfiokkana hinum óeðlilega mikla stuðningi, sem
það hefur veitt þeim.
Verður Strauss nýr Goldwater?
Erhard veitír enn betur í átökunum innan kristiiega fiokksins
í VIÐTALI því, sem de
Gaulle átti nýlega við blaða-
menn, vakti það ekki mesta
athygli, að hann taldi lokið
forustu Bandaríkjamanna í
Evrópumálum eða að kalla
H bæri saman ráðstefnu til þess
að vinna að hlutleysi landanna
í Suðaustur-Asíu. De Gaulle
hefur nefnilega sagt þetta oft
áður, að vísu ekki alveg með
sömu orðum, en efnislega.
Þess vegna kom þetta ekki
neitt á óvart. Það, sem kom á
óvart. var óbein gagnrýai á
stjórn Vestur-Þýzkalands De
Gaulle revndi bersýnilega að
kenna henni um. hve lítið hefði
gengið í þá átt að láta þýzk-
franska vináttusamninginn,
sem þeir Adenauer gerðu,
koma til framkvæmda og
skapa þannig grundvöli fyrir
nánari samvinnu meginlands
ríkjanna í Vestur-Evrópu.
Það var ljóst af því. sem de
Gaulle sagði, að hann var mjög
óánægður með árangurinn af
fu.ndi þeirra Erhards, sem ný-
lega var haldinn í Bonn Það
er nú upplýst, að á þessum
fundi hefur Erhard færzt und
an því að láta fransk-þýzka
vináttusamningurinn koma til
1 fullrar framkvæmdar og eins
neitað de Gaulle um fjárhags
lega aðstoð við kjarnorkuvíg
Íbú.nað Frakka Stefna Erhards
er að vinna að aukinni sam-
vinnu Vestur-Evrópvi- . allrar,
þ.e að Bretlandi meðtöldu, og
varðveita jafnframt 00111'
tengsli við Bandaríkin Fyrir
honum er samvinna Atlants-
hafsríkjanna sízt minna atriði
en samvinna Evrópuríkjanna
AF HÁLFU vestur-þýzku
stjórnarinnar var strax mót
mælt. að vísu óbeint. þeirri
gagnrýni. sem hafði komið
fram í ummælum de Gaulle
Þau munu eigi að síður hafa
tilætluð áhrif. Með þeim hefur
de Gaulle ætlað sér að styrkja
áhrif þeirra manna í flokki
kristilegra demokrata í Vestur
Þýzkalandi, sem fylgja sömu
stefnu og hann, en þar ber
mest á þeim Adenauer og
Strauss, fyrrum landvarnaráð-
herra. Þessir menn hafa und-
anfarið reynt að beygja Er-
hard til fylgis við sig, en hann
ekki látið sér segjast. Eins og
er má Erhard sín miklu meira
í kristilega flokknum Það styð-
ur jafnframt aðstöðu hans, að
bæði jafnaðarmenn og frjáls-
lyndir demokratar hafa lýst
fylgi við stefnu hans.
Eins og málin horfa nú.
bendir allt til þess, að stefnu
Erhards verði fylgt meðan hans
nýtur við, en hann nálgast
brátt sjötugsaldurinn. Hins veg
ar hafa þeir Adenauer og
Strauss sterka aðstöðu og geta
haft áhrif á, að Erhard verði
að fara hægara í sakirnar en
ella, t.d í samningum við
Rússa.
Þá mun það hafa mikil áhrif,
hvernig stjórnmálrn þróast í
Bandaríkjunum. Uppgangur
Goldwaters styrkir aðstöðu
þeirra Strauss og Adenauers.
Úrslit forsetakosninganna í
Bandaríkjunum geta haft meg-
Adenauer og Erhard.
ináhrif á vestur-þýzk stjórn-
mál.
Því er nú fylgt með mikilli
athygli, jafnt innan og utan
Vestur-Þýzkalands, að stjarna
Strauss virðist vera ört hækk
andi á ný. Hann varð að láta
af embætti landvarnaráðherra
fyrir nokkrum misserum vegna
Spiegels-málsins svonefnda, því
að hann hafði beitt þar^yfir-
gangi og rangindum. Ýmsir
héldu að ferli hans væri þá
lokið, svo hefur ekki orðið
Strauss hefur verið foringi sér
staks flokks í Bæjaralandi, sem
er raunar deild í ki istilega
flokknum, og er hann valda
meiri þar nú en nokkro siffni
fyrr. Strauss hefur sým það.
að hann getur ekki síður verið
diplomat en harðjaxl, ef hann
telur það betur henta. Honum
hefur tekizt að vinna til fylg
is við sig þá menn, sem áður
voru helzt á móti honum i
flokknum, og nýtur því orðið
einróma stuðnings. Mjög er nú
talað um, að Erhard muni ekki
komast hjá því að fela Strauss
veigamikið ráðherraembætti
eftir kosningarnar 1965
Þetta myndi jafnframt þýða
það, að Strauss fengi aðstöðu
til að keppa um kanslaraemb
ættið, þegar Erhard léti af því
Eins og sakir standa í dag, er
ekki talað um neinn sjálfsagð
an arftaka Erhards. Þar koma
margir sæmilegir menn tii
greina, en enginn þeirra verð
ur þó talinn jafnoki Strauss.
hvað snertir skörungsskap og
ræðumennsku.
ÝMISLEGT bendir til þess,
að Strauss geti haft sterka tafl-
stöðu, þegar að því kemur að
velja Erhard eftirmann Það
yrði t.d. vatn á myllu hans, ef
ekki batnaði neitt sambúðin
milli Vestur-Þýzkalands og
Austur-Þýzkalands, eða ef Gold-
water styrkti aðstöðu sína í
Bandaríkjunum, án þess þó að
sigra í forsetakosningunum.
Því er nú meira og meira farið
að tala um Strauss sem eins
konar vestur-þýzkan Goldwater
Jafnvíst og það er. að ekki er
hægt að fullyrða, hvaða forseti
kemur til valda i Bandaríkjun
um, þá er ekki fremur hægt að
fullyrða, hvaða kanslari verðúr
i Vestur-Þýzkalandi Undir
venjulegum kringumstæðuni
hefur þó ríkt meiri stöðugleiki
í bandarískum stjórnmálum ep
þýzkum. Þar hafa sveiflur orðið
meiri, enda verið betri jarðveg-
vegur fyrir þær. Eins og er-
virðist lýðræðið vera að stýrkji-
ast í Vestur-Þýzkalandi, en ekki
er hægt að segja. að það sé orð
ið fast í sessi. Ómögulegt er
t.d. að sjá fyrir, hvaða áhi;if
tvískipting Þýzkalands. getur
haft á þýzk stjórnmál ef hún
helzt lengi.
Ef Johnson sigrar í Banda
ríkjunum. Erhard verður áfrarh
við völd í Vestur-Þýzkalandj
og Krustjoff í Sovétríkjunum
getur skapazt möguleiki til að
vinna að lausn Þýzkalandsmá)
anna. er bætt gæti sambúðiha
milli austurs og vesturs Skaþ
ist slíkur möguleiki ekkt. eða
misnotist hann af einhverjurn
ástæðum, getur tími mann^
eins og Goldwaters og Straus' f
verið framundan. Þ.Þ
/
T ( M 1 N N, föstudaglnn 31. júlí 1964