Tíminn - 31.07.1964, Síða 15
VEGAÞJÖNUSTAN
(Framhald af 2. síðu).
menn í FÍB verða látnir ganga
fyrir þjónustu þessari, en einnig
mun hún veitt öllum öðrum, eftir
því, sem við verður komið og
greiða þeir fullt gjald fyrir þjón-
ustuna. Félag ísl. bifreiðaeigenda
hefur beitt sér fyrir því að við-
gerðarverkstæði verða opin með
írsm helztu umferðarleiðum á Suð
urlandi, Vestur- og Norðurlandi og
geta bifreiðastjórar, sem þurfa á
aðstoð að halda snúið sér til
þeirra, en sérstakir samningar eru
ekki gerðir við verkstæði þessi og
verða allir að greiða þá þjónustu,
sem þar er af hendi leyst. Af gefnu
tilefni er rétt að taka fram að
þjónusta þessi miðast við að hjálpa
þeim bifreiðum, sem verða algjör-
lega óökufærar, eða því sem næst
og framkvæma aðeins nauðsynleg-
ustu skyndiviðgerðir, en ekki
meiri háttar viðgerðir. Það skal
einnig tekið fram að ekki er unnt
að annast viðgerðir á hjólbörðum
á vegum úti nema bifreiðin sé ó-
ökufær vegna skorts á varahjól-
barða.
ÓÁNÆGÐUR MEÐ
SKATTINN
Frambain af 16. siðu.
starfsmenn skattstofunnar voru
honum ósammála í mörgum veiga
miklum atriðum, og loks fór svo
að hann missti taumhald á skapi
sínu. Þreif hann símann af borð
inu og fleygði honum í höfuð eins
starfsmannsins, og kastaði síðan
stól í eina vélritunarstúlkuna. Því
næst gekk hann berserksgang og
stráði lömpum og reikníngsvél-
um umhverfis sig. Að lokum kom
lögreglan og handtók hann, en
tveir starfsmenn skattstofunnar
voru sendir á sjúkrahús. Annar
þeirra mun þurfa að liggja á
sjúkrahúsi nokkurn tíma vegna
meiðsla í baki.
NÝTT KAUPFÉLAGSHÚS RÍS Á BLÖNDU03B
FB-Reykjavík, 29. júlí
Þessi glæsilega bygging er nýtt
kaupfélag á Blönduósi, en á því
var byrjað seinni partinn í fyrra-
sumar, samkvæmt upplýsingum
Ólafs Sverrissonar kaupfélags-
stjóra. Á neðri hæðinni verða
verzlanir, matvöruverzlun, vefn-
aðarvöru- og búsáhaldaverzlun, en
uppi verða skrifstofur, kaffistofa
HARÐUR BARDAGI
Framhald af 1. síSu.
hafa fengið að gjöf frá Guði sér-
staka biblíu, sem ekki hafi verið
skrifuð af hvítum mönnum, og
hafi slík biblia einungis einu sinni
áður hafa verið gefin manni hér
á jörðu, en þá á Sir Winston
Churchill að hafa verið heiðraður
með slíkri gjöf. Fylgjendur henn
ar trúa því, að vegabréf það, sem
nornin- Alice Lenshina hefur gef
ið þeim, veitti þeim aðgang að
himnaríki, ef þeir verða drepnir,
enda berjast þeir af miklum ákafa
án þess að hugsa um hvort þeir
setji sig í lífshættu eða ekki.
Ekki er vitað með vissu, hvar
nornin heldur sig, en orðrómur
er á kreiki um, að hún hafi farið
til Ndola rétt við landamæri Norð
ur-Rhodesíu og Katanga.
ELÐFLAUGARNAR
Framhald af 16. síðu.
ir drægju tilraunina þangað til,
ða ef seinni eldflauginni verður
skotið þá.
Veðurskilyrði voru óhagstæð
í dag og kvöld og virtust verða
það í nótt. Veðurstofan spáði vest-
ankalda, skýjuðu og skúrum. Er
veðrið eiginlega alveg á mörkum
þess, að hægt sé að skjóta, en
Frakkarnir munu ætla að nota
hverja glufu, sem gefst, og þegar
síðast var haft samband við þá í
kvöld, voru þeir bara bjartsýnir
á, að þeir mundu láta til skarar
skríða í nótt. í dag hafa þeir ver-
ið að senda upp loftbelgi til að
mæla röntgengeislun og fylgjast
með sveimi raflagna.
Eins getur svo farið, að skotið
verði af Mýrdalssandi aðra nótt,
hvort sem það verður þá fyrri eða
seinni eldflaugin en siðan er
einskis að vænta um helgina, því
að þá verður umferð of mikil,
og lögreglan mun þá hafa öðrum
hnöppum að hneppa en að gæta
manna gegn geimvísindum
Frakka.
íþróttir
hvöttu óapart sín lið — og Fram
átti möguleika á að minnka for-
skot FH niður í eitt mark. En
Hjalti varði langskot og fyrr en
varði var knötturimn kominn áleíð
is að Fram-markimi og Örn skor-
air 18. markið. Og rétt á eftir skor
ar Örn svo 19;15 — og þar með
var gert út um leikinn. Sigurður
Ejinarsson skoraði síðasta mark
Fram úr víti.
FH vann þarna verðskuldað slguir
en sem var eftir atVikum of lítill..
Bezti maður FH var Ragnar Jóns
son ásamt Kristjáni o>g Birgi. —
Hjá Fram voru Gylfi og Sigurður
Einarsson. góðir en Ingólfur fékk
lítið áðhafst.
Dómari var Firímami Gunnlaugs
son. alf.
YFIR 20 ÞÚS MÁL
Framhald af 1. siðu.
Sigurður Bjarnason kom með
fyrstu síldina. Nýtingin hefur ver
ið mjög góð, allt upp í 80%.
Engin veiði hefr verið á síld
armiðunum í dag, enda nokkuð
hvasst á norðnorðvestan út af
Langanesi.
VARNAÐARORÐ
(Framhald af 2 síðu)
og akstur, er ólöglegt og hættu
legt að sameina. Þreyttur öku-
maður getur einnig verið hættu
legur umferðinni. Með örugg
um og ábyrgum akstri komið
þið í veg fyrir mikið tjón og
afstýrið alvarlegum slysum. Á-
byrgur og öruggur akstur bjarg
ar mannslífum og eitt af þeim
getur verið yðar eigið.
Gætið þess ætíð áð öll örygg
istæki bifreiðarinnar séu í full
komnu lagi áður en lagt er
í langferð er einnig nauðsyn-j
legt að athuga vel að vél bif-
reiðarinnar sé í góðu standi. j
Forðizt að aka á þjóðvegum á;
slitnum eða sóluðum hjólbörð-j
um. Gætið þess að varadekkið,
sé í góðu lagi og hafið með-j
ferðis felgulykil, tjakk, skrúf-j
jám og skiptilykil, einnig er;
ráðlegt að hafa með í bifreið-',
inni platínur, kveikjuhamar, j
kveikjulok, háspennukefli og
viftureim ef farið er í löng
ferðalög.
Að lokum slysalaus verzlun-
armannahelgi á að vera mark-
mið vegfarenda.
(frá Félagi ísl. bifreiða-
eigenda).
MÓTEL
ramnalit at 16 síðu.
inn taður fyrir neðan Kambana
vinstra megin við veginn, þegar
ekið er austur. Þeir, sem staðiðj
hafa að undirbúningi stofnunar
hlutafélagsins eru Eyjólfur Kon-
ráð Jónsson, Konráð Guðmunds-
son, Halldór Gröndal, Bragi Einars
son, Hörður Einarsson og Styrmir
Gunnarsson.
Churchill er nú hættur þing-
mennsku eftir nær óslitna 64 ára
setu. Hann mætti á þingi í síð-
asta sinn á mánudaginn. Á mynd-
inni sést Iiann á leið út úr þing
húsinu við þetta tækifæri. Hann
er studíhir niður tröppurnar, enda
er gamla kempan nú um nírætt.
Forsætisráðherra
vestur um haf
Bjarni Benediktsson, forsætis-
ráðherra, og frú hans fara hinn 31.
júlí með flugvél Loftleiða „Leifi
Eiríkssyni" vestur um haf.
Forsætisráðherra mun hinn 3.
ágúst flytja ræðu á íslendinga-
deginum, sem að þessu siani verð
ur haldinn í 75 sinn og nú að
Gimli eins og oftast áður. Forsæt-
isráðherra og frú hans dvelja f/rst
í Winnipeg á vegum íslendinga-
dagsnefndarinnar en munu síðan
halda vestur að Kyrrahafsströnd í
boði Þjóðræknisfélagsins og heim-
sækja byggðir Vestur-íslendinga í
Kanada eftir því sem við verður
komið. Heimsókninni í Kanada lýk
u- hinn 14. ágúst.
Þá hefur forsætisráðherra þegið
boð Johnsons forseta Bandaríkj-
anna um að koma í óformlega
heimsókn til Washington hinn 18.
ágúst til viðræðna.
Ráðgert er, að þau hjón haldi
heimleiðis frá New York hinn 19.
ágúst með m.s. Brúarfossi.
Forsætisráðuneytið,
30. júli 1964.
og því um líkt. Húsið er teiknað
hjá Teiknistofu SÍS, en Trésmiðj
an Fróði á Blönduósi tók að sér
að gera það fokhelt. Yfirsmiður
er Einar Evensen. Nú er verið að
fínpússa húsið að innanoggler
í glugga er væntanlegt frá Noregi
síðar í haust, og þegar það er
komið verður líægt að byrja á inn
réttingum. Áætlað kostnaðarverð"
hússins eru 10 milljónir.
(Tímamynd FB)
FYRSTI LAXINN
KJ-Reykjavík 30. júlí.
Undanfarna daga hafa starfs
menn í Laxeldisstöðinni í
Kollafirði veitt athygli fiski
innst í Kollafirðinum, og í dag
sást fyrsti láxinn í löngu fisk-
tjömunum á sjávarbakkanum
þar efra.
Þór Guðjónsson veiðimála-
stjóri skýrði blaðinu svo frá í
kvöld að þetta væri fyrsti lax-
inn sem gengi upp í tjarnirnar
í stöðinni. Hér var um að ræða
á að gizka fjögurra punda lax
sem verið hafði tvö ár í fersku
vatni og eitt ár í sjó.
Það eru margir sem hafa
látið í ljósi áhuga á starfsemi
LaxeMásstöðvarinnar í Kolla-
firði, og nú er sem sagt fyrsti
laxinn genginn upp f tjarnirn
ar.
J
132 SKÁTAR TIL IM0REGS
Dagana 27. og 28. ágúst halda
132 íslenzkir skátar til Noregs.
Hópurinn fer með flugvél til
Osló og dvelur þar í nokkra daga
og skoðar borgina. Móttaka verð
ur fyrir þá í ráðhúsi Oslóarborg-
ar og einnig munu þeir halda fs-
landskvöld fyrir norska skáta.
Að lokinni dvöl í Osló skiljast
leiðir. Piltarnir, sem eru 91 og
undij;. forystp,, þ.eiirra Guðmundar
Ástráðssonar og Birgis JÞórðarson
ar munu halda rakleitt norður til
Bodö og taka þar þátt í lands-
móti norskra drengjaskáta, ásamt
7—8000 öðrum piltum. Þetta mót
er hið fyrsta, sem haldið er norð
an heimsskautsbaugs og er dag-
skrá þess hin fjölbreyttasta.
Stúlkurnar, sem eru 37 og und
ir stjórn frú Hrefnu Tynes og Sigr
únar Sigurgestsdóttur munu hins
vegar ferðast þvert yfir Noreg og
síðan viða um vesturströndina.
Tilgangur ferðar þessarar er
tvíþættur, annars vegar að kynn-
ast landi forfeðranna og hins veg
ar að endurgjalda heimsókn
norskra skáta hingað til lands ár-
ið 1962, en þá héldu íslenzkir skát
ar 50 ára afmæli sitt hátíðlegt
með landsmóti á Þingvöllum.
j Þátttakendur eru frá 13 ára
j upp undir 60 ára aldur og mjög
víða af landinu. Þetta er stærsti
íslenzki skátahópurinn, sem haldið
hefur út fyrir landsteinana.
Hópurinn mun fljúga heim frá
Þrándheimi hinn 17. ágúst.
Auk Noregsfaranna eru fleiri
íslenzkir skátar á útleið eða þeg
ar farnir. 10 manna hópur undir
stjórn Grétars Marinóssonar er á
förum til Englands til að taka þátt
í skátamóti í Devqn, 7 manna hóp
ur er í Bandaríkjunum í boði þar-
lendra drengjaskáta. Forystumað
ur þeirra er Arnfinnur Jónsson.
Og í alþjóðaskála kvennskáta í
Sviss eru staddar tvær íslenzkar
skátastúlkur i boði erlendra kven
skáta.
Eiginmaður minn,
Sveinn Guðmundsson
rafvirkjameistari, Akranesi, lézt á sjúkrahúsi Akraness 29. júlí.
Málfriður Stefánsdóttir.
Innilegar þakkir færum vél cllum þeim, sem sýndu okkur vinar-
hug við andlát og jarðarför
Jóns Aðalsteins Sigfússonar,
Halldórsstöðum, Reykjadal.
Sérstakar þakkir færum vér Karlakór Reykdæla og Hestamanna-
félaginu Þjálfa, fyrir þá virðingu, sem þau félög sýndu hinum
látna.
Vandamenn.
Eiginmaður mlnn, og fósturfaðir,
Þorsteinn Þorsteinsson
frá Ásmundarstöðum,
lézt í sjúkrahúsi Hvltabandsins 27. þ. m. — Jarðarförln ákveðin frá
Fossvogskapellu miðvikudaginn 5. ágúst, kl. 1,30.
Sigríður Ólafsdóttir.
Baldur Óskarsson.
Mínar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför móður mlnnar,
Guðbjargar Bergsteinsdóttur
Selvogsgötu 3, Hafnarfirði.
Bergsteinn Sigurður Björnsson.
T í M i N N, föstudaginn 31. júií 1964 —
15
V
t