Tíminn - 20.08.1964, Blaðsíða 15

Tíminn - 20.08.1964, Blaðsíða 15
VÍÐAVANGUR — hér en í nokkru öðru þjóðfé- lagi, hvort heldur það er vest- rænt eða austrænt, og í mörg- um tilfellum er meira að segja ástæða til að ætla, að það sé eðlilegri þróun atvinnulífs fjöt ur um fót, að stjóiuiendum fyrirtækja séu borguð of lág laun fremur crn of há.“ Þarna er einmitt komið að kjarna málsins. Forstjórar einkafyrir- tækja og athafnamenn hafa í bókhaldi fyrirtækjan-na og á skattskýrslum rúmleaa verka- mannalaun, þótt raunverulega hafi þeir hu'ndruð þúsunda árs- laun, ef allar grefðslur fyrir- tækjanna til þeirra, sem eru í ýmsum myndum, væru fram taldar. Þegar fundið er að svívirði- legum skattsvikum þessara mann-a kallar Mbl. það „ís- lenzka öfund“. Ritstjórar Mbl. eru ekki öfundsverðir af því að þurfa að láta slíkt blóð drjiúpa úr penna sínum, en me»nn ættu ekki að fara í graf- götur um það lengur fyrir hverja þeir skrifa. GEGGJUÐUST Framhald af 16. $t5u. jnu, að á þessari fimm-sýningu hefði verið mest af smákrökkum, Dg öll hefðu þau virzt vera sam- taka í að ösk.ra og æpa, hávaðinn hafði borizt út á götu, en margt fullorðið fólk hefði flúið úr kvik- myndahúsinu. í kvöld sagði hún að* mætti búast við eldri ungling- um, og er ekki gott að vita, hvernig þeir hagasér.________ ÍÞRÓTTIR Framhald af 5. síðu. myndar miðjutríóið með Ellert og Þórólfi. Þessi framlína virðist mjög sannfærandi og vonandi að henni takist vel upp á sunnudag- ínn. Þess má geta, að landsleikurinn á sunnudaginn verður 3. lands- leikur fslendinga og Finna í knattspyrnu. íslendingar mættu Finnum í fyrsta skipti í Reykjavík 1948 og sigruðu þá með 2:0. í annað skipti mætti fsland Finn- landi 1956 og sigruðu Finnar ís- land í það skipti, 2:1. Leikurinn á sunnudag hefst kl. 16. Dómari verður írinn Graham, en línuverðir Baldur Þórðarson og Grétar Norðfjörð. ÍÞRÓTTIR hlaðist upp hjá KR-ingum. Við höfum engan knattspyrnuheið ur að verja, og tap skiptir raun verulega sára litlu máli, jafn- vel tveggja stafa tala En já- kvæðar hlíðar eru margar, kynning á fslandi t. d. og senni lega fáum við meiri pressu á Englandi í sambandi við þessa leiki við Liverpool en gegnum allt „þorskastríðið“. Ég persónulega hefði ekkí vilja skipta á leik við Liver- pool og t. d. við norskt eða finnskt lið, þótt það hefði gefið KR einhverja möguleika á að komast í aðra umferð keppn- innar. Já, KR-ingar voru sann arlega heppnir að draga Liver pool. Sama lán lék við danska liðið B1909 að áliti Dana, sem mun leika við Real Madrid á næstunni og hætt er við að danska liðið tapi ekki síður stórt en KR. Við munum að Real Madrid lék sér að Glasgow Rangers í fyrra eins og köttur að mús — og vann með meiri mun í Madrid (6-0) en KR tapaði fyrir Liverpool Og þó eru margir hér á Iandi, sem álíta Rangers mjög gott lið. Og Danir hafa áður verið svo heppnir að lenda á móti Reál Madrid, B1909 fyrir nokkrum árum. Það lið sótti ekki gull í greipar hinna spönsku leikmanna á leikvell inum (9-0 í Madrid), en gjald- keri B1913 fékk nðg gull að telja, eftir Jeikinn í Óðinsvé- um. Það er hætt við því, að lið smáþjóðanna tapi alltaf með miklum mun fyrir beztu liðum milljónaþjóðanna í Evrópu- keppninni, en við því er ekkert að segja. Aðalatriðið er að vera með. í fyrra léku norsku bikar meistararnir, Gjövik Lyn, við lið frá Kýpur í 1. umferð Evrópukeppni bikarliða og tap aði báðum leikjunum, samtals með 7-0 (6-0 á Kýpur og 1-0 í Noregi), og í næstu umferð tapaði þetta Kýpurlið gegn Sporting Lisbon, sem sígruðu í keppninni, með 1-16. Já, það er hægt að nefna ýmsar tölur í sambandi við Evrópukeppn- ina, en látum þetta nægja. Þátt taka okkar í Evrópukeppninni er nú orðin staðreynd og verð- ur vonandi haldið áfram. —hsím. MÉR LÍÐUR ILLA . . . Framhald af 16. síðu. — Jú, hingað til hef ég ekkí haft aðstöðu til annars en að mála með vatnslitum, en nú hef ég fengið inni hjá Skjólfatagerðinni, þar sem maðurinn minn vinnur, og get því reynt mig við olíulitina. —- Hver er maðurinn þinn,, Sólveíg? — Hann heitir Árni Jónsson og er fulltrúi hjá Skjólfatagerð inni. Við kynntumst úti í Lond on, þar sem ég var við nám í Heatherley School of Art I London. Hann er einn minn bezti kritiker og er alltaf með mér á öllum mínum ferðalög- um. Þegar ég býð kunningjum mínum að líta hér ínn, segi ég það sé i af því, að við Árni sé- um að fara af stað með sýn- ingu. Við eigum fjögur börn, það elzta 16 ára og það yngsta 5 ára. — Er ekki erfitt að sam- ræma heimilishaldið og mál- aralistina? — Nei, alls ekki, mér líður hreinlega illa, ef ég mála ekki, þá kem ég engu öðru í verk heldur. Ég geri skissur á ferða lögum mínum og vinn svo úr þeim, þegar heim er komið. Hér er t. d. ein mynd, sem ég málaði af gígnum útí í Surts ey, en hún er ekki til sölu, þar sem ég ætla að reyna við hana aftur í olíulitum til að ná hitan um betur. Skíssuna gerði ég úti í Surtsey fyrri partinn í sumar. — Hvað verður sýningin lengi opin? — Hún verður aðeins opin í fjóra daga frá og með föstu deginum frá klukkan 14—22. Sýningin verður ekki fram- lengd, því ég barf að taka á móti börnunum, sem eru að koma úr sveitínni. Ég geri ekki mikið annað en að stýra honum syni mínum, þegar hann er kominn heim. Hann er yngstur af börnunum, að- eins fimm ára, og við heima köllum hann Denna dæmalausa. ÍSLANDSKORT Framhald al 16. síðu. kort, ýmsar Ieiðsögubækur, er lend dagblöð og vikublöð og erlendar bækur í vasabókar- broti. En jafnframt er alltaf viss kaupendahópur, sem kýs heldur íslenzkar skáldsögur með sér i sumarfríið. Blaðið náði i dag tali af Steinari Þórðarsyni í Bóka- verzlun Sigfúsar Eymundsson ar og innti hann eftir, hvað helzt sé keypt : bókaverzlunum yfir sumartímann. ’ — Fólk kaupir aðallega ís- landskort og ýmsar leiðsögu- bækur — ságði hann, — Er- lendum ferðamönnum er alltaf að fjölga og svo ferðast ís- lendingar alltaf meira og meira um landið, ávo að eftirspurn eftir kortum og ýmsum leið sögubókum, eins og t. d. Ferða- handbókinni, er mjög mikil. — En hvað kaupir fólk helzt sér til skemmtilesturs? — Erlend dagblöð seljast mjög vel. Yfir sumartímann eru flugferðir daglega hingað, t. d. frá Bretlandi og Norður löndunum, og útlendingar kaupa því mikið af erlendum dagblöðum, bæði enskum blöð um og Evrópuútgáfuna af ýms um bandarískum dagblöðum. , Svo er einnig keypt mjög mik- ið af erlendum vikublöðum, einkum þeim dönsku og brezku. Yfir sumarmánuðina kemur Gullfoss alltaf hálfsmánaðar- lega og vikublöðin koina því mun reglulegar en á öðrum tímum ársins. — En hvað er helzt keypt af bókum? — Fólk kaupir aðallega er- lendar bækur í vasabókarbrotl. Það eru svo margir sem lesa erlend tungumál, og auk þess. eru þessar bækur miklu ódýr- ari en íslenzkar bækur. fslenzk ar bækur í vasabókarbroti selj ast nokkuð jafijt árið um kring, jafnt um sumar sem vetur. — Selst eitthvað af íslenzk um skáldsögum um sumartím- ann? — Já, það er alltaf stór hóp ur af fólki sem kýs helzt að lesa á íslenzku og við höfum selt nokkuð af íslenzkum skáld sögum í sumar. — En hvað um sölu á mynd um af íslandi? — Við seljum hér litskugga myndir, bæði frá Sólarfilmu og Geísla, og er sala á þeim mjög mikil. Við höfum á boðstólum fallegt úrval slíkra mynda, og eru þær mikið keyptar, bæði af útlendingum og fslending- um. HREINDÝRAKÁLFAR Framhald af 1. síðu. — í vor bar aftur á móti nokk- uð á þvl, að stálpaðir kálfar væru mjög veikir eða að dauða komnir, en ekki hefur verið mikið um það áður. Eftir útliti kálfanna og ein- kennum öðrum að dæma, þá er líklegast, að hér sé um að ræða eitrun svipaða þeirri, sem veldur lambadauða. Sauðféð og hreindýr- in hafa sameiginlegt beitiland og eitrun er áberandi í sauðfé á Austurlandi. Aftur á móti er ekk- ert, sem bendir til verulegs hruns í kálfunum. — Hefur hreindýrunum fjölgað mikið undanfarið? — Já, þeim hefur fjölgað gíf- urlega síðustu áratugina. Árið 1930 eru þau sögð vera fáein hundruð, en 1960 voru dýrin á þriðja þúsund. En þau eru þó ekki eins mörg og þau voru flest hér áður fyrr. — Og eftirlit verður haft með hjörðinni framvegis eins og hing- að til? — Já, það er eindreginn vilji allra þeirra, sem með þessi mál fara, að fylgjast með hreindýra- stofninum og vera viðbúnir, ef eitthvað ber út af. Við förum þessa árlegu leiðangra og auk þess fáum við mikið af sýnishornum á ári hverju. Nú er einnig farið að safna sýnishornum úr vömb dýr- anna til þess að athuga á hverju þau lifa á hverjum árstíma, og mér er mikið í mun að athuganir verði gerðar á gróðrinum, sem þau þurfa, en um þessa hluti er ennþá of lítið vitað. Meiningin er að geta'gert sér grein fyrir heil- brigðisástandi hreindýranna í heild og vera viðbúnir, ef eitt- hvað' óeðlilegt kemur í Ijós, — sagði Guðmundur að lokum. Auglýsið í Símanum TRÖLLAFOSS Framhald af 16. sfðu. mannskap á skip félagsins vegna fría og annars því um líks og því tá gera ráð fyrir, að flestir mannanna starfi áfram hjá félag inu, þótt þetta skip verði selt, en nýju skipin, sem félagið hefur pantað koma ekki fyrr en á næsta ári. TAÐA Nokkur hundruð hestar af góðri, smágerðri töðu til sölu. Uppl. i Árbæ, Ölfusi, sími um Selfoss. Mei Hringbraui Simi 15918 PUSSNINGAR- SANDUR Heimkeyrður pússningar- sandur og uikursandur sigtaður eða ósigtaður við húsdyrnar eða kominn upp á hvaða hæð sem er eftir óskum kaupenda. Sandsalan við Elliðavog s.f. Sími 41920 TRULOFUNAR HRINGIR AMTMANNSSTÍG 2 HALLDÖR KRISTINSSON gullsmiður. — Sími 16979. Dagheimilið í Kópavogi VIÐ HÁBRAUT vantar starfsfólk nú þegar. Viðtalstími forstöðu- konu er kl. 2—4 daglega, sími 41565. Forstöðukona. Verkstæðispláss Höfum til leigu hentugt verkstæðispláss Góður staður. Sanngjörn leiga. Upplýsingar í síma 24850. 7ST68IH6&E MSTEieafB sími 24850 Austurstræti 10 Jarðarför móður mlnnar Guðríðar Gunnlaugsdóttur frá Urrlðaá, fer fram frá Dómkirkjunni föstudaglnn 21. þ. m. kl. 2 e. h. Blóm afþökkuð, en þeim sem vildu mlnnast hlnnar látnu er benf á Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra. F. h. ættlngja Jóhannes Sigurðsson. 7 (M I N N, fimmtudaginn 20. ágúst 1964 — 15

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.