Alþýðublaðið - 08.05.1953, Page 7

Alþýðublaðið - 08.05.1953, Page 7
’ Föstudaginn 8, maí 195Í ALÞÝÐUBLAÐIÐ Annapurna . . . Framhald af 4. síðu. innra með mér bresi ég að þessu hörmulega errici okkar. Eg er orðinn eins kortar áhorf- andi að. líkamlegu erfiði mínu pg hreyfingum, en finn ekki til areynslunnar. Það er því lík- ast sem þungri byrði hafi'verið lyft af‘ herðum mínum. Þessir ^ieiðu tindar, þessi tindrandi hreinleiki, þetta verður mér allt óraunverulegt ... þetta er tindur drauma minna! Og ég verð gagntekinn ólýsanlegri gleði. Allt er þetta mér svo ó- segjianlega framandi og furðu- legt.“ ' DÝRKEYPTUR SIGUR. Og að síðustu standa þeir á tindinum. 8075 metrurn fyrir ofan sjóvarmál. Auðmjúkir fflenn og stoltir í senn. Þar lif- ir Maurice Herzog hrifningar- stund fjailagarpsins. hina. leiðslukenndu, dulsælu snert- ingu við eilífðina. Og maður skilur það, að til skuli* vera þeir, sem eru fúsir til að leggja á sig ótrúlegasta erfiSi og þraut ir til þess eins, að mega iifa slíka stund. En hræðilegt reynclist lífca það gjald, sem Herzog var krafir.n um. ... Það liggur næstum því við, að öll þau óhöpp, sem y fir hann dundu, verði að teljast gráí- brosleg. Fyrst gerist það, að vettlingarnir renna af höndum hans, þegar þeir félagar eru á leiðinni niður af hátindinum. Fyrir bragðið kelur hann á fingrum og hendurnar verða honum gagnslausar. Þannig er það alla leiðina til baka, leið- angursmenn verða fyrir hverju óhappinu á eftir óðvu; Lache- nal hrapar í gjá og er bjargað á síðustu stundu, en er slasaður og hörmulega til reika. Síðan villast leiðangursmenn af leið í grenjandi hríð og frosti. Óskdj- anlegt er það, hvernig hinum innbornu aðstoðarmönnum tebst að klöngrast niður fjalhð með hinia særðu og slösuðu menn á bakinu. Herzog hrapar fram af hengiflugi og kemst til meðvitúndar þar sem hann íiangir á öryggislínunni, en sex hundruð merta djúp gjá gín við honum. Nú eru hendur hans orðnar blásvartar og Btokkbólgnar og drép komið > fætur hans. Þannig á sig kom- inn nær- hann að Síðasta áfanga staðnum, við fjallsræturnar, þar sem Oudét læknir bíður þeirra með skurðarhnífinn. .. . Það þarf sterkar tauga’ til þess að lesa- næsta kaílann; frá- sögn Herzogs af skuröaðgerð- unum, sem ekki varð komizt hjá að framkvæma, énda þótt engin * deyfilyf væru fyrir hendi; ekki einu sinni nauðsyn leg lyf til sótthreinsunar. Þann ig verður að taka hvern kögg- ulinn á eftir öðrum af íingrum og tám Herzogs, og um leið verður áð dæla í hann lyfjum til varnar kolbrandinum, en þau lyf valda svo miklum sárs- auka og kvölum, ao þeir Her- ,zog og Lachenal linna ekki á ■hljóðum og hafa ekkert viðþol. ÍEn lífsþrótturinn lætur ekki að .“sér hæða; nokkru síðar er Her zog, eða' öllu heldur það, sem enn er eftir af þessum hrausta og djarfa manni, — klæddur í hvítan samkvæmisklæðnað og borinn inn í höll Maharajahs- ins, er sæmir harm veglegu heiðursmerki fyrir unnið af- rek. ÞEIR ERU MARGIR . . . „Viðartágabörurnar vaggast til, og ég hugleiði ævintýrið,. sem nú er brátt á enda. Hug- leiði hinn óvænta sigur okkai’. Það er venja að ræða um hug- sjónir sem eitthvert órafjar- lægt markmið, sem aidrei geti orðið að veruleika. Okkur er Annapurnatindurinn hugsj ón, sém orðið hefur að vevuleika.“ Og auðskilin verða manni loka orð hans: ,,Þeir eru margir, Annapurnatindarnir, sem ögra manni í Iífinu.“ Sá Annapurnatindur, sem nú ögrar Maurice Herrog, er að fella sig ■ við lífið og ganga í baráttu þess, lemstraður og limavana. Og það er allt útlií fyrir, að honum taki.st einnig að klífa þann örðuga .tind. Með ótrúlegri þolinmæði hefur hon- um tekizt að læra að nota fing- urstúfana og baltrast áfram á sínum lemstruðu fó.tum. Hann hefur haldið fjöldann allan af fyrirlestrum og grætt oi fjár á bó-k sinni, — en allan ágó'5- ann hefur hann gefið félagi franskra fjallgöngumanna, sem styrkti hann til fararinnar. Og bezt kann hann við sig í húsa- kynnum þess, þar sem myndir af hæstu og torgengustu f jalla- tindum veraldarinnar prýða veggina. Furðulegast er þó ef til vill það, að .hann gerir sér vonir um, að ný skurðaðgerð muni bæta svo örkuml hans, að hann geti aftur tekið þátt í íjallgöng um. Hver sá, er frásögn hans ies, hiýtur að finna ti! stolts yfir því að vera maður, -- og ril ábyrgðerinnar, sem þv: er sam fara. Rauði krossinn... Framhald aí 5 siðu. hvítur fáni með rauðum krossi í (öfugt við svissnes.ka flaggið, sem er rautt með hvítum kroissi). ATHYGLI OG AÐDÁUN Þetta starf Dunants spurðist fljótlega ium alla álfuna og vakti hvarvetna hina mestu at- hygli og aðdáunj og var nú fyr- ir alvöru farið að ræða um al- þjóðasamtö'k um að stuðla að linun þjáninga særðra í ófriði og setja reglur um meðftrð þeirra og til verndar því fólki, sem ynni að slikri hiálparstarf semi. í októiber 1863 var kölluð sarnan ráðstefnan í Genf. til þess að undirbúa stofnun slíkra samtaka þjóða á rneðal, og 8. ágúst 1864 var aftur kvödd sam an ráðstefna fulltrúa 16 ríkja til þess ða ganga frá samningi þar um. Þann 22. ágúst er svo hinn frægi „samningur um vel ferð hermanna, er særast í ó- friði“ undirritaður. Síðar bæt.t- ust svo fleiri ríki í þessi sam- tök, og nú eru Rauða kross fé- lög starfandi í 71 landi. STARFIÐ HÉR Á LANDI Hér á landi var Rauða kross félag stofnað hinn 10. desem- ber 1926, og eru nú starfandi 10 deildir alls, með því sem næst 3000 félagsmönnum. Þar eð íisland hefur ekki vopnaðan her og á því ekki í ófriði við aðrar þjóðir, er hlutverk Rauða krossins íslenzka nokkuð ann- að en sam'svarandi félaga í öðr- um löndum.. Hefur starf félagsr ins hér því verið í því fólgið aðallega að útvega og reka sjúkrabifreiðir, koma upp sjúkraskýlum og sjá börnum fyrir sumardvöl í sveit á sumr- um, og hefur í þessu þrennu verið unnið mikið og gott starf. En nú bíða fleiri og ný verk- efni. Ástand það, er ríkt hefur í heiminum undanfarin ár, gæti leitt til ófriðar hvenær sem vera skal, og' þar sem hætt er við, að við íslendingar för- um ekki vafhluta af slíkum hildarleik, vill RKÍ vera viðbú inn með sjúkrahjálp, svo sem hjúkriunarlið, rúm, rneðul o. fl., og er nO'kkuð af þessu nú þegar fyrir hendi, en ekki nóg. ! Þarf til þess meira fé en RKÍ hefur ftil umráða, og þess vegna snýr félagið sér til allra lands-1 manna í dag og biður þá um að C\ gerast meðlimir. Það er óaýrt, | / en getur verið félagl.nu rníkill ' styrkur. Gerist því i dag félagar í Rauða krossi íslands. Iljálpið Rauða krosimim i dag — á morgun* barfið ]>ér ef til vill á hans hjáío að lialda. BD Framhald af 8. síðu. að íþróttablað. íþrótta.biað. drengja, sem það hcl'ur gefíð út' síðan það var stofnað, og kem- ur út fknm sinnum á ári. FJÖLRITARINN HANS SIGURJÓNS Tekjur hefur þó bandalagið ekki fyrst og fremst af félags- gjöldum. eða öðru slíku, t. d. mótum, þótt þa.ð haldi' lands- mót drengja í frjáisum íþrótt- um ár eftir ár og dreng.irmr borgi félagsgjöld, heldur af fjöl ritun. Fru'mkvöðull bandalags- ins, Sigurjón Þorbergsson, á nefnilega fjölritara og ritvél Oig hafa drengirnir ekki einasta fjölritað blað sitt í honum í tómstundum sínum, hekiur einnig tekið að sér að fjölnta skólablöð og annað bess háttar, og lá'tið tekjurnar ganga tii sambandsins. VAR í SVEIT OG STOFNAÐI ÍÞRÓTTAFÉLAG Sigurjón er nú 17 ára, en 1948, þegar hann var 13 ára, var hann í sveit a-ustur í Gaul- yerjabæjarhreppi og stoifnaði íþróttafélagið þar með nokkr- um drengjum. Var svo um tal- að eystra að hann rtofnaði í- bróttabandalagið, er ham kæmi til Reykjavíkur, með þeim fþróttafélögum drengja, sem til væru og síðan yrðu ný stofnuð. Sigurjón var formaður bandalagsins þar til síðasta haust, að hann var kominn yfir alidurshíámiarkið, og formaður- inn er nú Guðmundur Guð- mundsson, 16 ára. Fn Sigurjón er samt enn boðinn og búin til að v.inna fyrir bandalagið. Hann er nú í kennsraskólanum og hef-ur hug á að verða íþrótta kennari. SKRIFA SJÁLFIR f BLAÐIÐ OG TEIKNA MYNDIR Drengirnir skrifa! sjálfir í blaðið og teikna í það myndir. Er frág'angur á bla.ð.:nu góður og vandvirkni'sleeur. Og hú fer það að verða víðlesið, er allir félagar í bandalaginu fá ];að. Hannes £ horninu. Framhald af 3. síðu. um sé að ræða smáborgara, sem hugsa aðeins um litla askinn sinn og vilja heldur hafa hann hálfan en að berjast fyrir því að fylla hann á heiðarlegan hátt. OG SVO eru garðleigjendur í Kringlumýri að kvarta und- an því, að þeir fái ekki að setja niður í garðana sína. Það er búið að grafa skurði þarna og garðyrkjuráðunautur hafði að setja niður í vor, en nú sagt, að garðleigjendur fengju kvað hann segja, að borgar- stjóri verði að veita leyfið. — Fólkið bíður eftir því að fá að vinna í görðunum. Hvað veld- ur biðinni? I AUGLYSIN G. um skoðun bifreiða og' bifhjóla í Gullbringu- og Kjósarsýslu og Hafnarfjarðarkaupstað 1953- Samkvæmt bifreiðalögum tilkynnist hér með, að hin árlega skoðun bifreiða og bifhjóla fer á þessu ári fram sem hér segir: Grindavík: Mánudaginn 11. maí, við barnaskólann. Skulu þá allar bifreiðir og bifhjól í Grindavíkur&repp færð til skoðunar. Sandgerði: Þriðjudaginn og miðvikudaginn, 12. og maí. Skulu, þá allar bifreiðir og bifhjól úr Miðness- og Gerðahreppi færð til skoðunar við vörubílastöðina í Sandgerði. Brúarlandi: Föstudag og mánudag 15. og 18. maí. Skulu þá allar bifreiðir og bifhjól úr Kjósar- Kjalar- ness- Mosfellshreppum færð til skoðunar að Brúarlandi. Seltjarnarnes: Þriðjudag 19. maí. Skulu þá allar þireiðir og bifhjól í Seltjarnarneshreppi færð til sfcoð- unar að barnaskólanum. Vogar: Miðvikudag 20. maí. Skulu þá alla: bifreið- ir og bifhjól úr Vatnsleysustrandarhreppi færó til skoð unar að hraðfrystihúsinu í Vogum. Kópavogslireppur: Fimmtudag og föstudag 21. og 22. maí. Skulu þá allar bifreiðir og bifhjól í Kópavogs- hreppi færð til skoðu.nar að barnaskólahúsinu á Digra- neshásli. Keflavíkurflugvöllur: Þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag, 26., 27. og 28. maí. Skulu þá allar bifreið- ir og bifhjól úr Njarðvíkur- og Hafnarhreppi og Kefla- víkurflugvelli færð til skoðunar að lögreglustöðinni á flugvellinum, Hafnarfjörður: Föstudag 29. maí, mánudag 1. júní, þriðjudag, miðvikudag, fimmtudag og föstudag, 2., 3., 4. og 6. júní og mánudag, þriðjudag og miðvikudag, 8., 9. og 10. júní. Skulu þá allar bifreiðir og bi'hjól úr Hafnarfirði og BessastaSa- og Garðahreppi ::ærð til skoðunar á Vöruibílastöð Hafnarfjarðar. Ennfremur fer þá fram sfcoðun á öllum bifreiðum, sem eru í notkun á áður tilgreindum stöðum, en skrá- settar utan umdæmisins. Við skoðun sku,Tu þeir, se meiga tengivagna eða farþegabyrgi koma með þau um leið og bifreiðiri er færð til skoðunar Þá skulu okumenn bifreiða leggja fram fullgild ökuskírteini við skoðun. Vanræki einhver að koma bif- reið sinni til skoðunar á réttum degi, verður hann lát- inn sæta ábyrgð samkvæmt bifreiðalögum og bifreið- in tekin úr umfelð af lögreglunni, hvar sem tii hennar næst. Ef bifreiðáeigandi (umráðamaður) getur ekki af óviðráðanlegum ástæðum fært bifreið sína til skoðunar á rét.tum tíma, ber honum að koma á skoðunarstað og tilkynna það. Tilkynningar í síma nægja. ekki. Bifreiða skattur fyrir árið 1952 (1. jan. 1952 — 31. des 1952), s'koðunargjald og iðgjöld fyrir vátryggingui ökumanns, verða innheimt um leið og skoðun fer fr,am. Séu gjöld þessi ekki greidd við. skoðun. eöa áður, verður skoðun ekki framkvæmd og bifreiðin stöðvuð þar til gjöldin eru greidd. Sýna ber skilríki fyrir því, að lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé í lagi. Athygli skal vakin á því, að umdæmismerki bif- reiða skulu ávallt vera læsileg, og er hér ;með lagt fyrir þá bifreiðaeigendur (umráðamenn), sem þurfa að endurnýja númeraspjöld á bifreiðum sínum, að gera það tafarlaust nú, áður en bifreiðaskoðunin hefst. Skoðunin fer fram kl. 10—12 og 13—17.30 daglega. Þetta tilkynnist hér með öllum, sem hlut eiga að máii til eftirbreytni. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði, sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu, 6. maí 1951, Guðm. í. Guðmundsson-

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.