Alþýðublaðið - 20.06.1953, Blaðsíða 7
Laugardaginn 20. júní 1953
ALÞYÐUBLAÐiÐ
7
Körner
Framhald af 4. síðu.
Körner var tekinn fastur í
febrúar 1934 af stjórn Dolfuss,
eins og allir helztu emhaettis-
menn jafnaðarmanna, og var
11 mánuði í rannsóknarfangelsi
landsréttarins í Vín. Málaferl-
in gegn honum voru stöðvuð,
eins og gegn öllum hinum leið
togum jafnaðarmanna. Fram
að. falli þriðja ríkisins lifði
Körner rólegu einkalífi. Hann
stundaði hernaðarvísindalegar
rannsóknir, lærði rússneska
tungu og kynnti sér fjárhags-
legt og stjórnmálalegt ástand
Sovétríkjanna.
í her Hitlers vildi hann alls
ekki vera. Þegar kom til mála
að kalla hann aftur í herinn,.
útfyllti hann spurningaskjahð
þannig, að hann lagði áherziu
á allt það, sem gerði hann ó-
hæfan til þjónustu.
BORGARSTJÓRl
Þegar rauði hermn tók hk:ta
Vínarborgar um miðján apríl
1945, hittust fyrrverandi með-
limir stjórnar jafnaðarmanna-
flokksins í ráðhúsi Vínarborg-
ar til að ræða endurstofnun
flokksins og uppbyggingu nýs
lýðræðisstjórnarkerfis. Þar eð
síðasti frjálskjörni borgarstjóri
Vínar, Karl Seitz, hafði verið
tekinn fastur haustið 1944 af
Gestapo og fluttur til Þýzka-:
lands, og dvalarstaður hans var
ekki kunnur, þá stungu leiðtog
ar jafnaðarmanna, ásamt full-
trúum hinna tveggja nýstofn-
uðu stjórnmálaflokka upp á
Körner hershöfðingja sem
bráðabirgða borgarstjóra Vín-
arborgar. Þann 17. apríl stað-
'festi þáverandi rússneski her-
stjóri borgarinnar Blagadotov
herforingi, bráðabirgðabæjar-
stjórn borgarinnar undir for
ustu Körners. Við fyrstu al-
mennu lýðræðiskosningarnar
25. nóv. 1945, var Körner kos-
inn í borgarráð Vínarborgar,
og í þjóðþingið, og borgarráð-
ið kaus hann svo borgarstjóra
Vínarborgar.
Hin víðtæka málakunnátta,
sem gerir Körner sambandsfor
seta mögulegt að semja við um-
boðs.menn hersetuvaldanna á
þeirra eigin málnm, kemur hon
um að góðu haldi í embætti
hans. Vegna skipulasshæfileika
hans og hinnar miklu reynslu
samverkamanna hans, tókst
honum að sbipuléggja að nýju
á nokkrum vikum, stjórnar-
kerfi Vínarborcfar, eftir að það
hafði allt fallið í rústir, koma
í gang umferða- og aðflutnine's
kerfi horgarinnar og rvðja úr
végi mestu strlðsskemmdunum.
t-þakkarskyni fyrir þessi störf
og endujibvgginvu .borsarinn'ar
véitti háskólaráð tækniháskól-
ans í Vín bann 27. okt. 1945
Körner horsrarstióra K#8urs-.
doktorsnafnbót í tæknilegum
visindum.
VINSÆLASTI MAÐTJR
VÍNARBORGAR
Hið fábrotna og einfalda líf-
erni hans og hlédrægni frá lofi
fyrir verðleika hans, gerði
Körner strax þegar hann var
borgarstjóri og gegn vilja hans
sjálfs að ástkæi’asta manni Vín
arborgar. Vinsældir hans komu
bezt í ljós á 75 ára afmæli
hans. Frá öllum stéttum þjóð-
félagsins bárust þáverandi borg
arstjóra mjög hjartanlegar ham
ingjuóskir. Borgarráð Vínar-
borgar gerði hann að heiðurs-
horgara fyrir starf hans fyrir
borgina. samkvæmt tilmælum
allra þriggja stjórnmálaflokk-
anna.
Sem fulltrúi Austurríkis og
Vínarborgar á alþjóða þing-
mannasambandsþinginu í Stokk
hólmi 1946, í opinberri heim-
sókn í Zúrich og Budapest
1947, við afmælishátíð Moskvu
borgar í sept. 1947 og síðast
sem meðlimur austurrísku þing
nefndarinnar, sem boðið var til
Englands í maí 1948, vakti
■hann mesta atbygli, ekki að-
eins vegna hlédrægni sinnar,
heldur einnig vegna sinnar
prúðu og myndarlegu fram-
komu og þeivra ávarpa, sem
liann venjulegast flutti á rnáli
gestgjafa sinna.
Synodus
Verð á témötum lækk-
aér er um kr. 15,60.
TÓMATAR hafa nú lækkað í
verði, og er sumarverðið byrj-
að. Kostar kg. kr. 15,60. Mesti
tómatauppskerutíminn fer nú í
hönd. Það er eins með tómata-
verðið oð verðið á agúrkum, að
það hefur verið hlutfallslega
miklu lægra síðustu ár en áður.
Skemmtiferð Ljós-
myndafél. Reykja-
LJÓSMYNDAFÉLAG Reykja-
víkur efnir til skemmtiferðar
fyrir félaga og gesti þeirra
næstk. sunnudag 21. þ. m. —
Menn gefi sig fram við Þor-
varð R. Jónsson, Ferðaskrif
stofu ríkiskis fyrir hádegi í dag
laugardag.
ma
Framhald af 5 síðu.
handa því fólki, sem á og mrn
erfa landið. Enginn má tefja
framsókn þessa ,fólks á leið
þess til frelsis, friðar og fram
fara. Séu steinvölur fyrir vagn
inum, ýtum við þeim úr vegi.
Séu aktaumarnir að slitna, fá-
um við okkur nýja, ef vagn
stöngin er að brotna, skiptum
við um. Á ferðinni til fyrir
heitna landsins geta orðið taf
ir, og sannarlega geta einhverj
ir veikzt, sem veginn eiga að
varða. En ef við sjálf fer.um á
verði og alltaf reiðubúin, þá
kemur maður maœ<í stað, og
framtíð menningarinnar bygg'
ist á því, að sjálfsbjargarvið
leitni alþjbunnar og framtak
sé ávallt vaxandi.
G. B. B.
MESSIIE Á M O R G U N
Dómkirkjan: Messa kl. 11 f.
h. Séra Jón Auðuns.
HafnarfjarSarkh’kja: Messa
kl. 10. Séra Garðar Þoi'steinss.
Bessasta'ðir: Messa kl. 2.
Iierra Sigurgeir Sigurðsson
biskup prédikar.
Laugarneskirkja: Messa kl.
11 f. h. Séra Pétur Ingjaldsson
í frá Höskuldsstöðum prédikar.
Fríkirkjan: Messa kl. 11 f. h.
Séra Þorbergur Kristjánsson,
prestur í Bolungavik, prédikar.
Messa í Elliheimiíinu kl. 10
árdegis. Séra Ragnar Lárusson
frá Hofsósi prédikar.
Framhald aí 8. síðu.
Níu kirkjukórar voru stofn-
aðir á árinu, enn fremur nokk-
ur kirkjukórasambönd.
RITAUAR
PRESTASTEFNUNNAR
Ritarar synodunnar voru-
skipaðir sr. Friðrik A Friðriks
son, sr. Þórbergur Kristjáns-
son, sr. Jón Auðuns og sr.
Björn Jónsson.
Síðdegiskaffi drukku syno-
dusprestar á Gamla Garði í
boði bæjarstjórnar Rvíkur.
KIRKJUBYGGINGAR
AÐALMÁLIÐ
Þá hófst aðaiumræðuefni
prestastefnunnar: Kirkjubygg-
ingar. Og voru þeir sr. Sigurð-
ur Einarsson í Holti og sr. Jak-
ob Jónsson í Rvík málöhefjend-
ur.
Sr. Sigurður taldi kirkjurnar
yfirleitt ekki til sóma, og yrðu
útlendingum mörgum til
hneykslunar. Og nú er ekki
lengur hægt að ganga frambjá
því verkefni að gera kirkjurnar
notihæfa staði til guðsþjónustu-
gerðar og helgiathafna á
stærstu stundum fólksins í
gleði þess og sorgum.
Oft verður því úíkoman hin
ægilega gleði satans: Hrörleg
kirkja, sinnulaús söfnuður og
pokaprestur.
Kirkjur skiptast í þrennt:
Góðar, vel skreyttar kirkjur,
óvistlegar og vanræktar kirkj-
ur og ónothæfar kirkjur, og’
mætti í fjórða lagi nefna söfn-
uði, :sem enga kirkju eiga.
Þarna verður að taka í taum-
ana go bæta úr, ef metnaður og
heiður þjóðarinnar á ekki að
krenkjast og menning hennar
að gjalda afhroð. Fólkið vill, að
ríkisjóður verji fé til kirkna
engu síður en til skóla og félags
heimila, sagði Sigurður, og fátt
mun vænlegra í þessum málum
en styðja frumvarp það, sem nú
liggur fyrir allþingi, borið frarn
af Sigurði Ólafssyni, þing-
manni Árnesinga. Enn fremur
ættu prestar að safna undir-
skriftum um bað, hvað fjöldinn
vill í þessu efni, svo unnt sé að
sýna þingmönnum svart á
hvítu hvað þeir eiga að gera á
þinginu.
Sr. Jakob Jónsson rakti
nokkuð samskipti kirkju og
þings, og hve neikvæð þau
hefðu oftast verið fyrir kirkj-
unnar hönd, en brautryðjandi
af kirkjunnar hálfu var Gísli
Sveinsson, sem bar fram frum-
varp um ríkisstyrk til kirkju-
bygginga árið 1944. En nú verð
ur að skríða til skarar og herða
á að frumvarp Sig. Ólafssonar
verði að lögum á næsta þingi,
sagði sr. Jakob að lokum.
Enn sirjúka fangar.
Framhald af 8. síðu.
RHEE NEITAR ENN.
Rhee hefur enn neitað að
fallast á vopnahlé. Kvað hann
ómögulegt fyrir Su.ður-Kóreu
menn að faliast á siíkt, meðan
landið væri enn ekki samein-
að. Enda kvað haon það vera
yfirlýst markmið Sameinuðu
þjóðanna að sameina landið.
TALSMAÐUR SÞ
NEITAR.
Talsmaður Sameinuðu þjóð-
anna tilkynnti, að takmark S
Þ væri að stilla til friðar í Kór
-eu, en sameinmg yrði að fara
fram friðsamlega og að undan
gengnum frjálsum kosningum.
Hannncs á horninu.
Framhald af 3. síðu.
ar. Margir af þeim tapast. Það
verða aðeins nokkrir þeirra,
sem geta horfst í augu við veru
leikann og hafið starf að nýju
á öðrum vettvangi.
Hannes á horninu.
Þeir, sem vilja fylgjast
með þvi sem nýjast er,
1 e s a
••*
V
S!
Á1
V
s!
I
I
1
s'
s1
\Álþyðublaðið |
5312 fonn af fiski seldusf
ekki í Huíl í maí.
SAMKVÆMT fréít í Fishing
News voru 5312 tonn af fiskí
þeim, er barst til Hull í maí,
óseld í lok inánaðarins. Enn
fremur höfðu 4600 tonn farið i
salt fyrir lækkað verð.
Er þetta mesta magn af fiski,
sem óseljanlegt hefur verið eft
ir stríð. Sennilega orsakast
þetta af háu verði, lélegunj
fiski og miklu fiskmagni.
álfrei Gíslason
Framhald af 1. síðu.
þetta mál verður stofnað 21. þessa mánaðar. — Ritgerð eftir
j Alfreð læknir u,m sálgæzlu birtist í 3. hefti Kirkjuritsins, 15.
árangi. Ritgerð eftir hann um aðbúnað gamla fólksins, birtist
í Heilbrigt líf 1.—2. hefti 1950. Þá vakti hann máls á því £
Læknafélaginu að læknar gengjust fyrir stofnun Krabba
meinsfélagsins, og er hann formaður þess, en það félag hefur.
látið geysimargt gott af s'ér leiða. Alfreð læknir hefur haft á
huga á atvinnusjúkdómum og flutti erindi í útvarpið og birt
ritgerðir um þá. í vor flutti hann erindi á námsskeiði rafmagr.s
eftirlitsmanna um rafmagnsslys.
Alfreð Gíslason læknir er ekki fyrir það, að láta mikið á
sér bera. Hann hefur allt frá námsárum sínum haft brennandi
áhuga á þj óðfélagslegum vandamálum og ekki látið þar við
sitja, heldur starfað að þeim árum saman af lifandi áhuga og
fórnfýsi. Kynni hans við fólkið, erfiðleika þess, áhyggjur og ör
væntingu' vegna böls, sjúkdóma og annarrar óhamingju,
hafa valdið því, að hann er fylgjandi Alþýðuflokknum. — Hann
er enn á bezta aldri, gjörhu.gull, rólyndur maður, en fastur
fyrir og fylginn !sér. Alþýðuflokkurinn er stoltur af því að geta
notið stuðnings slíks ágætismanns og væntir þess að almenn
ingur í Reykjavík kunni að meta störf hans og mannkosti.
Hann er í baráttusæti flokksins við kosningarnar 28. þ. m.
Þeir, sem hafa ákveðið að hjálpa til á kosningadaginn eru beðnir að skrásetja sig í
skrifstofu flokksins í Alþýðuhúsinu nú þegar, símar 5020 og 6724.
Alþýðuflokkurimi þarf á mörgu starfsfólki að halda og veltur á miklu að enginn bregð
ist skyldu sinni.
Þeir, sem eiga bifreið og vilja aka fyrir AI þýðuflokkinn á kjördegi, eru beðnir að til
kynna það sem allra fyrst í skrifstofu A-listans í Alþýðuhúsinu.
Alþýðuflokkurínn
er
ræðui’ livorki yfir sjóðum litgerðarauðvalds ms, lieildsalanna né áróðursmiðstöðva
lendra ríkja. Hann er íslenzkur alþýðuflokkur. Látið það ekki ásannast að fjármagn stór
burgeisanna né erlent áróðursauðmagn næg i til að vinna kosningar á íslandi.
Svarið fjáraustri íhalds og' kommúnista með öruggu starfi og samtökum.
A-Ustum.