Tíminn - 26.08.1964, Blaðsíða 1

Tíminn - 26.08.1964, Blaðsíða 1
I 192. tbl. — Miðvikudagur 26. ágúst. — 48. árg. Sex skaðbrenndust við gassprengingu í eldhúsi KH-Reykjavík; 25. ágúst. Nýlega varð það slys að bænuiu Miklaholti á Mýrum, að þar varð sprenging í gaslofti, og eldhúsíð, sem í voru 6 manns, varð eitt eldhaf á svipstumdu. Öll sex brenndust mikið, en eldur- inn dó út, þegar gasloftið var búið. Slysið átti sér stað um há degi á fimmtudaginn var. Dav- íð Sigurðsson, bóndi í Mikla holti á Mýrum, var staddur í eldhúsinu ásamt kouu sinni, dóttur og dótturdóttur, sem voru þar gestkomandi, og tveimur sonarbörnum. Jón Ein- arsson, umboðsmaður Sam vinnutrygginga í Borgarnesi, sem kom á staðinn á föstudag, sagði blaðinu, að aðalkrani á gaskút, sem var þar inni, mundi hafa verið opinn og gas- ið streymt út, og sprengingin orðið út frá gljákolaeldavél í eldhúsinu. Eldhúsið varð eitt eldhaf á einu sekúndubroti, og eldurinn sleikti sig fram í gang og þvottahús. Davíð bóndi kom kútnum út úr húsinu, og hitt fólkið ko-mst út, en eldurinn slokknaði, þegar gasloftið var búið og hafði þá ekki náð að. éta sig í mikið eldfimt. Þó eyðilagðist málning og fleira, og talsvert af fatnaði brann þarna inni, Allt var vátryggt. Fólkið brenndist allt meira og minna. Tvennt var rúm- liggjandi, þegar Jón kom í Miklaholt á föstudaginn, dóttir Davíðs og sonarsonur. Hafði drengurinn brennzt einna mest. Læknir, sem kom á staðinn, sagði þó, að þetta væru ekki tiltölulega slæm brunasár, en fólkið mundi eiga lengi í þeim. Kona Davíðs sagði svo frá, að sokkar, sem hún var í, hefðu alveg horfið utan af fótleggj- Framh. á 15. síðu ■mro H BEID DAUÐA SINSITJOÐRIVIDSTAUR - er tveir drengir f undu hann og f relsuðu KJ-Reykjavík, 25. ágúsl. f gær fundu tveir drengiv i Mosfellssveit, hest sem hafði gleymzt, tjóðraður vi ðstaur, og er hann áreiðanlega búinn að vera þannig í 3—4 daga — í sveltí Tveir drengir Jón Haraldsson 10 ára og Smári Baldursson 6 ára voru á leið frá Brúarlands- hverfinu og niður að sjó í gær er þeir sáu hest sem hafði verið tjóðraður við staur í landi Markholts. Fóru þeir og huguðu að hestinum, þar sem hann hafði vafið taumnum um staurinn og gat vart orðið hreyft höfuðið. Tóku þeir beizlið strax fram af hestinum, sem varð að vonum feg inn frelsinu, og fór strax í næsta læk og drakk mikið að sögn drengjanha. Um bessar slóðirtóga hestamenn úr Reykjavík gjarnan leið um, og æja oft á graslend- inu þarna. Fréttamaður blaðsins fór i dag með Baldri Magnússyni umboðs- manni Tímans í Mosfellssveit upp eftir til að skoða verksummerki, og er greinílegt að hesturinn hefur verið þarna í allt að fjóra daga. Baldur sagði að hesturinn, sem er rauðskjóttur, hefði verið með beizli, og einteymingur á því. Hafði taumnum verið hnýtt um staurinn neðanverðan. Þegar svo Framh á 15 síðu TALSTOÐVAR VID UMFERÐARSTJÓRN ViS þennan staur var hesturinn skilinn eftir í reiðileysi. Tr^ðkið sést greinlega. (Tímamynd K.J.) KJ—Reykjavík, 25. ágúst. Þá er lögreglan ■ Reykjavík farin að nota burðar-talstöðvar við inn hér á myndinni, Steinþór Ny- gaard, var vlð umferðarstjórn á horni Mlklubrautar og Löngu hlíðar i dag, þegar verið var að mála akreinamcrrk. á Miklubraut ina. Annar lögregluþjónn var niðri á Miklatorki, og sá hafði líka litla talstöð, „hóki-tóki" Þessi tilraun með að nota tal stöðvar við umferðarstjórn i dag gaf nokkuð góða raun, en tal- stöðvarsambandið truflaðist samt dálítið af umferðinni. (Timamynd K. J.) mmssBsnm 6 í hrakningum í Odáðahrauni FB-Reykjavík, 25. ágúst. í dag lögðu mcnn upp frá Reynihlíð við Mývatn tU þess að ná í tvo Landrover-bíla, sem sex Svisslendingar höfðu orðið að skilja eftir fyrir sunnan Dyngjufjöll fyrir helgina. Sviss lendingarnir höfðu farið i Öskju, og ætluðu að aka þaðan niður að Svartárkoti í Bárðar dal, cn bílarnir fcstust i snjó og annar varð olíulaus, svo mennirnir urðu að ieggja af stað gangandi, og náðu þrír þeirra að lokum að Svarárkoti illa til reika, en þrír létu fyrir berast i leitarmannakofa í Suð nrárbotnum. Pétur i Reynihlíð hringdi ti) okkar í dag og sagði, að Hall dór Eyjólísson, Guðbjartur Pálsson og Bragi Sigurðsson hefðu lagt af stað Inn að Dyngjufjöllum í dag til þess að ná þar í tvo bíla, sem svissneskir stúdentar hefðu skilið þar eftir fyrir helgina. Bjóst trann við. að mennimir kæmu aftur með bílana ein hvern tíma í nótt. Þá hringdum við í Hörð bónda Tryggvason f Svartár- koti í Bárðardal, en þangað komu þrír Svisslendingar á sunnudaginn heldur illa til reika og sögðu sínar farir ekki sléttar. Sex saman höfðu þeir lagt af stað norðui Kjalveg fyrir nokkrum dögum og haldið til Akureyrar, Raufarhafnar, um Brúaröræfi og að Dettifossi á tveimur Land-Roverbílum, en bílana höfðu þeir tekið á leigu í Reykjavík. Síðan ætluðu þeir í Öskju, og komust þangað. En að Öskjuferðinni lokinni hugðust þeir fara suður fyrir Dyngjufjöll og baðan sem leið Framh. á bls 15

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.