Tíminn - 26.08.1964, Page 2
Þriðjudagur, 25. ágúst.
NTB-Aþenu. — Stjórn Grikk-
lands og Kýpur staðfestu í
dag, að Kýpurdeilan yrði lögð
fyrir Alsherjarþing S.Þ. í nóv-
ember. Segir frá þessu í sam-
eiginlegri tilkynningu að lokn
um fjögurra klukkustunda
fundi Makaríosar Kýpurforseta
og Papandreou, forsætisráð-
herra Grikkja.
NTB-Saigon. — í dag bárust
fregnir til Saigon um hroðalegt
morð, sem Búddatrúarmenn
frömdu i kaþólska hluta borg
arinnar Da Nang í gær.
Grýttu þeir mann til bana og
hengdu síðan lík hans á gadda
vírsgirðingu fyrir framan heim
ili Bandaríkjamanns nokkurs.
Yfir 300 hermenn urðu að ráð
ast inn í borgina í brynvögn
um til að stilla tíl friðar.
NTB-Mexicó City. — Að
minnsta kosti 40 manns biðu
bana og um 100 meiddust, er
fjöldi flugelda sprakk í Ioft
upp í þorpinu San Bartoleme
í Mexícó í nótt. Þrjú hús gjör
samlega splundruðust í spreng
ingunni.
NTB-St-okkhólmi. — Kona ein,
sem rekið hefur eina hinna svo
kölluðu „sjóræningjaútvarps-
stöðva" á Eystrasalti var í dag
dæmd í 3 mánaða skilorðsbund
ið fangelsi fyrir starfsemi sína.
NTB-Havana. — Mikill viðbún
aður er nú á Kúbu vegna hætt
unnar, sem stafar af fellibyln
um Cleo. í dag hafði flest fólk
á lægstu stöðum eyjunnar flú-
ið upp á hálendið.
NTB-Nýju Delhí. — í dag voru
69 kommúnistar handteknir í
Nýju Delhi til viðbótar við
þá 500, sem handteknir voru
í gær fyrir mótmælaaðgerðir
gegn verðhækkunum í
landinu. Hyggjast kommúnist-
ar halda mótmælum áfram
næstu fjóra daga.
NTB-Stokkhólmí. — Yfir 30
manns slösuðust alvarlega í
dag, er bílaferja renndi á
fullri ferð inn í bryggju í
Málmey. Með bílaferjunni voru
62 farþegar.
NTB-Melbourne. — Um 4.800
hafnarverkamenn í Melbourne
í Ástralíu hættu í dag að
skipa upp vörum úr 37 skip-
um til að mótmæla kynþátta-
stefnunni í S-Afríku.
NTB-Moskvu. — Foringi Pathet
Lao-manna, Souphanouvong,
prins, kom til Parísar í dag
til að taka þátt í viðræðum
með forustumönnum hlutlausra
og hægrimanna í Laos um deíl
una þar.
NTB-Los Angeles. — Bandarisk
um vísindamönnum tókst í
dag að koma gervitungli af
gerðinni Explorer á fasta braut
umhverfis jörðu.
BOBBY FER
SLAGINN!
NTB-New York, 25. ágúst.
I Róbert Kennedy, dómsmála
ráðherra Bandaríkjanna lýsti
því yfir á blaðamannafundi í
dag, að hann myndi reyna að
ná kosningu sem öldungadeild
arþingmaður fyrir New York-
ríki í kosningunum í haust.
Þessa ákvörðun, sem lengi
hefur verið beðið eftir, hefur
Kennedy tekið, enda þótt vit
að væri, að mikil andstaða væri
meðal demókrata í New York
ríki gegn framboði hans. Er
m. a. bent á, að hann hafi
aldrei búið í ríkinu og hann
njóti aðalstuðnings Paroi-klik-
unnar.
Ekkí er langt síðan Kenn-
edy sagðist engan áhuga hafa
á að verða öldungadeildarþing
maður fyrir New York, en
hann breytti um skoðun, er
Hér standa þelr fyrir framan Hvíta húsið í Washington, Robert Kennedy, dómsmálaráðherra og Robert
Wagner, borgarstjóri New York borgar, en eins og kunnugt er hefur Wagner lýst yfir stuðningl sín-
um við framboð Roberts Kennedys.
Johnson útilokaði hann sem
varaforsetaefni flokksins. Loka
ákvörðun mun svo Kennedy
hafa tekið, er Wagner, borgar
stjóri lýsti yfir stuðningi við
framboðið um síðustu helgi.
Nú bíður Kennedys barátta
við Samuel Stratton, sem fyrir
er á frambjóðendalistanum, um
útnefningu á þingi flokksins í
New York-ríki. Lýstí Kennedy
því yfir á blaðamannafundin-
um, að hann myndi segja af
sér störfum dómsmálaráðherra,
yrði hann útnefndur. Hins veg
ar hefur Stratton lýsti því yf-
ir, að hann muni berjast til
þrautar um framboðssætið.
STUDENTAR 06 BUDDA TRUAR■
MENN FELLDU STJÓRN KHANHS
NTB — Saigon, 25. ágúst.
í dag neyddist forseti S-Vietnam, Nguyen Khanh, til að segja af
sér, eftir að nær linnulausar óeirðir höfðu geisað í stærstu borgum
landsins í fjóra daga.
ir Á morgun mun byltingarráðið koma saman og kjósa nýjan forseta
en síðan verður það leyst upp og taka meðlimir þess aftur upp fyrri
störf sín innan hersins.
ir Hefur þá byitingarráðið beðið algeran ósigur fyrir stúdentum og
Búddatrúarmönnum og í dag varð það við kröfunni um að nema úr
gildi bráðabirgðastjómarskrána, sem var aðalundirrót óeirðanna.
Framangreindar ákvarðanir tók
ráðið á skyndifundi í aðalstöðvum
sínum í morgun á sama tíma og
um 20.000 stúdentar og Búddatrú
armenn héldu mótmælafund fyrir
utan skrifstofur Khanhs, forseta,
og kröfðust þess, að stjórnarskráin
frá 16. ágúst, yrði numin úr
gildi, og þá af sjálfu sér um leið,
að Khanh færi frá völdum.
Eftir endurteknar hótanir frá
Búddatrúarmönnum um að þeir
myndu hefja sams konar mótmæla
öldu og í fyrrahaust gegn stjórn
Diems, féll byltingarráðinu allur
ketill í eld og gekk að kröfum
þeirra og stúdentanna.
Mótmælafundurinr. fyrir utan
skrifstofur Khanhs hóst eftir að
hann hafði sent frá sér tilkynn-
ingu um, að hann féllist á endur
skoðun stjórnarskrárinnar, stofn
un blaðaráðs og setningu laga um
refsingu fyrir afglöp staðaryfir-
valda.
Mannfjöldinn hafnaði þessu með
hrópum um, að hann viðurkenndi
ekki Khanh sem forseta. Bauð
þá Khanh sendinefnd stúdenta á
fund sinn, en því boði var hafnað
og um leið krafizt, að Khanh kæmi
sjálfur út og talaði til fólksins.
Klifraði þá Khanh upp á hátalara
bifreið ásamt einum stúdentaleið
toga, sem fyrst las upp kröfur
stúdenta. Því næst tók Khanh til
verða við flestum kröfum stúdent
máls og sagði, að hægt yrði að
anna. Hrópaði hann með þeim:
Niður með einræði og bætti við:
Eg er reiðubúinn að hrópa með
ykkur: Niður með kommúnisma,
nýlendustefnu, hlutleysi og ein-
ræði, þar með talið hernaðarein-
ræði.
En eins og áður segir, samþykkti
byltingarráðið, að verða við öll-
um kröfum mótmælenda þar með
að svipta Khanh völdum. f kvöld
var það haft eftir Khanh, hershöfð
ingja, að hann teldi sig hafa góða
mögulei'ka á að verða endurkjörinn
forseti.
Málalið í Kongó
NTB-Leopoldville, 25. ágúst.
í dag komu 30 Belgíumenn og
Frakkar til Leopoldville, og sögð
ust hafa veríð ráðnir sem mála-
liðsmenn til að berjast gegn upp-
reisnarmönnum í Kongó. Rétt áð-
ur hafði Ko«gó-stjórn neitað
FIJF á Akranesi
Fundur verður haldinn í Fram
sóknarhúsinu Akranesi fimmtudag
inn 27. ágúst kl. 8.30. Kosnir verða
fulltrúar á 10. þing SUF á Blöndu
ósi. — Stjórnin.
fregnum um, að málalið streymdi
nú til landsins.
Þá hefur fyrrveraudi foringi i
brezka hernum lýst því yfir í
Salisbury, höfuðborg S.-Rhódesíu,
að hánn skrái málaliðsmenn, sam-
kvæmt beiðni stjórnarinanr í
Leopoldville. Sömuleiðis hefur
annar Breti í Jóhannesarborg,
skýrt frá því, að mann ráði mála-
liðsmenn samkvæmt persónulegri
beiðni Tshombe, forsætisráðherra.
í dag skýrði AFP frá því, að
stjórnarherirnir í Kongó hefðu
stökkt uppreisnarmönnum i Al-
bertville á flótta.
ÚTFÖR TOGLIATTISIGÆR
NTB-Róm, 25. ágúst.
Kommúnistar úr öllum hér
uðum ftalíu voru viðstaddir
geysifjölmenna útför ítalska
kommúnistaleiðtogans Palmiro
Togliatti. Líkfylgdin sem í
voru um hálf milljón manns,
lagði af stað frá aðalstöðvum
kommúnistaflokksins og hélt að
torginu fyrir framan St. Jóhann
esarkirkjuna, þar sem Togliatti
var vanur að halda sínar 1.
maíræður. Torgið var þéttskip
að og meðfram leiðinni sem
líkfylgdin fór stóðu um 200.
000 manns. Fjöldi fulltrúa er-
lendra ríkja voru viðstad-dir
útförina og mörg liundruð
kransar voru bornir í líkfylgd
inni, þar á meðal frá forsætis-
ráðherra Ítalíu og forseta Sov
étríkjanna. Um 250 rauðir fán
ar voru bornir fyrir líkfylgd
inni. Togliatti verður jarðsettur
í brezka kirkjugarðinum
skammt fyrir utan Róm.
Lítil stúlka kyssir á rauða fánann, sem sveipaður er um kistu ítalska
kommúnistaieiðtogans Palmiro Togiiattl, þar sem hún stendur uppi
í aðalstöðvum kommúnlstaflokkslns í Róm.
T í M I N N, mlðvikudaginn 26. ágúst 1964 —
I