Tíminn - 26.08.1964, Page 7
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson Ritstiórar: Þórarmn
Þórarinsson 'ábi. Andrés Kristjánsson. Jón Helgason og Indriði
G Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar- Tómas Kartsson Frétta
stjóri: Jónas Krisíjánsson Auglýsingastj Sigurjón Davíðssot.
Ritstjórnarskrifstofur l Eddu-húsinu símar 18300— 18305 Skril
stofur Bankastr 7 Afgr.simi 12323 Augl simi 19523 Aðrar
skrifstofur. simi 18300 Askriftargjald kr 90.00 3 mán innan
lands — í lausasölu kr 5,00 eint - Prentsmiðjan EDDA h.l
Lífeyrissjóður fyrir
alla landsmenn
Emil Jónsson, félagsmálaráðherra, hefur nú tilkynnt
að hann hafi falið Haraldi Guðmundssyni, fyrrum ráð-
herra, að gera skýrslu og álitsgerð um það, hvernig
koma megi upp lífeyrissjóði fyrir landsmenn alla Þetta
mál hefur verið nokkuð til umræðu hér á landi, en fvrst
er þessu máli hreyft á Alþingi 1957, er nokkrir þing-
menn Framsóknarflokksins fluttu tillögu um athugun
almenns lífeyrissjóðs fyrir þá landsmenn, sem ekki nvtu
lífeyristrygginga Þessi tillaga var samþykkt og fram-
kvæmdi 5 manna nefnd undir formennsku Hjálmars
Vilhjálmssonar ráðuneytisstjóra þessa athugun. Nefnd-
in skilaði áliti í nóvember 1960 og lagði einróma til að
sett yrði löggjöf um almennan lífeyrissjóð, sem allir
landsmenn ættu kost á að tryggja sig hjá.
Ríkisstjórnin lá á þessari álitsgerð og aðhafðist ekkert
í málinu og er þrjú ár höfðu liðið og sýnt þótti að ýta
þyrfti við stjórninni flutti Ólafur Jóhannessoh ásamt
fleiri þingmönum Framsóknarflokksins tillögu á síð-
asta Alþingi um almennan lífeyrissjóð Kvað þessi til-
laga á um að 5 manna nefnd semdi frumvarp t.il laga
um þetta efni, er lagt yrði fyrir Alþingi. Þessa tillögu
vildi stjórnarliðið ekki samþykkja en samþykkti < henn-
ar stað breytingatillögu um að fela ríkisstjórninni að
kynna sér til hlítar, hvort ekki sé tímabært ,,að setja
löggjöf um almennan'lífeyrissjóð, sem allir landsmenn,
sem eru ekki nú þegar aðilar að lífeyrissjóðum, geti
átt aðgang að.“
Þarna var reyndar farið aftan að hlutunum og hunds-
uð niðurstaða þeirrar nefndar, sem kynnt hafði sér mál-
ið og lagt hafði til, að sett yrði löggjöf um lífeyrissjóð
fyrir alla landsmenn en verkefnið ekki einskorðað við
þá, sem ekki eiga enn aðild að lífeyrissjóðum Astæðan
til þessara breytingar var að því er virtist aðeins sú
sálarflækja stjórnarliðsins að geta enga tillögu sam-
þykkt óbreytta, sem frá Framsóknarmönnum e" kom-
’n. Nú er og komið áþreifanlega á daginn, að þessi
breyting var aðeins geðveila, því að félagsmálaráðherra
hefur nú einmitt falið Haraldi Guðmundssvni að fram-
kvæma tillögu Framsóknarmanna um almennan lífeyris-
sjóð fyrir alla landsmenn en ekki breytingatillögu þá
sem samþykkt var. Svona geta menn leikið á sjálfa sig,
þegar ofstækissýkillinn spillir hinni andlegu heilsu
Félagslegt jafnrétti
Svíar hafa þegar sett löggjöf am almennan lífeyns-
sjóð og Norðmenn og Danir undirbúa hliðstæða öggjöf
hjá sér, enda stefnir almennur lífe/rissjóður að sem
fyllstu félagslegu jafnrétti og bætir úr misrétti þegn-
anna. í grein, sem Ólafur Jóhannesson ritaði í 'T'ímann
um þetta mál, segir m a.:
„Samkvæmt minni skoðun á hinn almenni lífeyrissjóð
ur ekki að koma í stað almannatrygginganna heidur á
hann að veita viðbótartryggingu Með hinum rlmenna
lífeyrissjóði á að stefna að því að allir landsmenn rái
þá aðstöðu, sem þeir einir hafa nú. er njóta trvggingar
í sérsjóðum. Ég held að honum eigi að ætla sams konar
hlutverk og þeim sérstöku lífevrissióðum sem veita
viðbótartryggingu við a’mannatrvggingarnar -lafnframt
þarf svo með einhverjum hætti að finna ráð tii að rryggja
verðgildi hans.“
Verður McCarthy, öldungadeild-
arþingmaður, fyrir valinu?
Margt virðist benda tii þess að Johnsnn taki í-icOarthy fram yfir Hubert
Hi'mphrey sem varaforsetaefni s kosningunum í haust.
McCARTHY öldungadeildar-
þingmaður nýtur álits við-
skiptajöfra og hefir furðulega
góð sambönd við leiðtoga frá
Suður-fylkjunum, enda þótt
hann sé kominn frá hinum
frjálslynda demokrataflokki
bænda og verkamanna í Minne-
sota. Hann nýtur þess, að hann
er hár vexti, dökkur á hár, lag-
legur, rómversk-kaþólskur, fynd
inn, hefir góða framsögu og er
aðeins 47 ára að aldri.
Hinir óæðri starfsmenn
flokksins víðs vegar um landið.
þekkja hann varla, en það hef-
ir aftur á móti þann kost í för
með sér, að hann á fáa póli
tíska fjandmenn utan Washing-
ton. En styrkasta stoð McCar-
thys er þó hin einlæga. vinátta
Johnsons forseta. Segja má
með réttu, að hann tilheyri
innsta hring forsetans, en það
verður ekki sagt um neinn ann-
an af þeim, sem til greina
geta komið sem varaforseta-
efni.
Þetta er allt, sem almenn
ingur veit um McCarthy öld-
ungadeildarþingmann og mjög
margir leiðtogar demokrata
eru engu fróðari Vegna þessa
hafa jafnmargir og raun ber
vitni, bent á hann sem eðli
legt varaforsetaefni með John
son.
ÞETTA horfir allt öðru vísi
við í Washington, þar sem Mc-
Carthy hefir aflað sér álitlegs
hóps fjandmanna þau 16 ár,
sem hann hefir setið á þingi.
Kennedyarnir og fylgismenn
þeirra hafa ekki farið neitt
dult með það, að hann er ein-
mitt sá maður, sem þeir gætu
ekki með nokkru móti sætt sig
við sem varaforsetaefni. Hum-
phrey, eldri öldungadeildar-
þingmaðurinn frá Minnesota,
sem er í miklum mun meiri
metum hjá starfsmönnum
flokksins, hefir lýst því yfir í
Washington, að hann tæki það
sem persónulega móðgun ef
McCarthy yrði fyrir valinu.
McCarthy hefir aflað sér
þessarar andúðar allra síðustu
árin. Fyrr naut hann mikils
álits sem upprennandi frjáls-
lyndur maður, sem ætti að eiga
í vændum virðingarstöður,
eins og til dæmis forustu demo
krata í öldungadeildinni.
Rétt eftir stríðið hóf Mc
Carthy feril sinn í Demokrata-
flokki bænda og verkamanna í
Minnesota sem eins konar und-
irforingi hjá Humphrey öld-
ungadeildarþingmanni, sem þá
var borgarstjóri í Minneapolis.
Viðfangsefni þeirra var þá
einkum að losa flokkinn við
kommúnista. Þegar sigur var
unninn í þeirri baráttu. voru
þeir báðir kosnir á þing árið
1948, Humphrey sem öldunga
deildarþingmaður og McCarthv
sem fulltrúadeildarþingmaður
I FULLTRÚ ADEILDINNl
gerðist McCarthy fljótt for-
ustumaður i frjálslyndum. her-
skáum hópi demokrata. sem
þótti leiðsögn ftokksins í full
Eugene J. McCarthy
trúadeildinni, undir forustu
Sam Rybums heitins, alltof
hægfara til þess að hafa í fullu
tré við republikana og demo
krata frá Suður-fylkjunum. Mc-
Carthy hafði forustu um hundr-
að demokrata í fulltrúadeild-
inni, en þeir voru stundum
nefndir „villingarnir hans Mc
Carthy“, og í flokknum var sí-
vaxandi tillit tekið til áiits
hans, einkum um félagsmála-
löggjöf og endurbætur skatta-
mála.
Gagnrýnendur kynnu að
segja, að hann hafi talað meira
en hvað hann starfaði, meðan
hann átti sæti í fulltrúadeild-
inni, og frjálslyndi hópurinn
hafi ekki verið skipulagður
formlega eða gerður áhrifamik
ill fyrri en hann fluttist yfir f
öldungadeildina. Engu að síður
var hann á góðri leið með að
verða áberandi stjórnmálamað-
ur þegar hann var kosinn öld-
ungadeildarþingmaður árið
1958.
FYRSTA verk McCarthys í
öldungadeildinni sýndi kæn-
lega breytingu á stjórnmálaað-
ferðum hans. Þessi fyrrverandi
forustumaður uppreisnar
gjarnra frjálslyndispostula í
fulltrúadeildinni lét félaga
sína í öldungadeildinni fljótt
vita, að uppreisnarferli hans
væri lokið og nú vildi hann
hljóta þægilega stöðu i öld-
ungadf/idinni. Hann hafði áður
beitt sinni hvassyddu fyndni til
þess að stríða Johnson, sem þá
var forustumaður Demokrata
flokksins í ■ öldungadeildinni,.
fyrir hneigð hans til að semja
um öll mál, unz útkoman yrði
„tvíkynja löggjöf", en nú
gerðu þeir tveir náið banda
lag.
McCarthy kom sér einnig
með hægð i mjúkinn hjá Suð-
ur-fylkjahöfðingjunum ’ öld-
ungadeildinni, einkum Byrd,
hinum sérlega íhaldssama for-
manni fjárhagsnefndar deildar-
ínnar, en hann tók brátt að
hrósa McCarthy og telja hann
langefnilegasta nýliðann sem
hann hefði komizt í kynni við
um langt árabil McCarthy
barðist enn fyrir framgangi
vmissa áhugamála frjálslyndra.
en hann hafði sem sagt breytt
verulega um aðferðir
EKKl var minna um vert þá
áköfu baráttu, sem hann háði
gegn útnefningu Kennedys sem
forsetaefnis árið 1960. Hann á
leit Kennedy að sönnu aðhyll-
ast gervifrjálslyndi og vera ó-
fullnægjandi kaþólikka, en auk
þess gætti persónulegrar óvin-
áttu. Hann lagði sig allan
fram um að styðja hvern þann
demokrata, sem hann taldi lík
legan til að stöðva Kennedy
Fyrst studdi hann Humphrey,
síðar Johnson og að síðustu
Adlai Stevenson, en McCarthy
hélt einu minnisverðu ræðuna,
sem haldin var honum til
stuðnings yið forsetaefnisvalið S
í Los Angeles. Kennedyarnir
tóku vel eftir þessu öllu, og
þeim er annað betur gefið en
að gleyma og fyrirgefa.
Þegar búið var að kjósa
Kennedy, gerði McCarthy þá
skyssu að reyna ekki að ná ein-
hvers konar sáttum við flokks-
leiðtogann. í þess stað dró hann
sig £ raun og veru út úr virku
stjórnmálastarfi. Hvíta húsið
var honum ekki einungis lok-
að, heldur var hann að veru-
legu leyti utan við meginstarf
öldungadeildarinnar. Hann van
rækti frjálslyndisáhugamálin,
sem hann hafði barizt fyrir
undangengin 12 ár, og beitti
orku sinni einkum að því á ár-
unum 1961—1963 að koma
fram í fjárhagsnefndinni, sem
vinur hans Byrd veitti for-
stöðu, ýmsum sérstökum skatta
lagabreytingum vegna smærri
heilda.
McCarthy hafði áður barizt
fyrir umfangsmiklum félags-
legum lagfæringum, svo sem
umbótum á löggjöfinni um
atvinnuleysistryggingar og af-
námi sérstakrar skattmeðferð-
ar ágóðahluta. En nú laut
hann að stuðningi mála eins og
sérstakri skattaívilnun við pip-
armeyjar. Hann virtist ávinna
sér orð fyrir að standa eins og
Ieikmaður í baksölum öldunga-
deildarinnar og hvísla spak-
mælum og fyndni. Þegar hér
var komið sögu, hafði hann
gerzt nöldursseggur í starfi,
sem einmitt krefst þess, að
öllu slíku sé haldið í skefjum
McCARTHY endurfæddist
skyndilega í pólitíkinni þegar
Johnson félagi hans var kom-
inn til valda í Hvíta húsinu.
Dyr, sem höfðu verið honum
luktar í þrjú.ár, opnuðust nú (
allt í einu og hann virtist aftur
verða virkur þátttakandi í
stjórnmálunum Hlutverk hans
í öldungadeildinni hélt áfram
að vera takmarkað, og í ár virð-
ist hann einkum hafa beitt
orku sinni að því að afla sér
fylgis sem varaforsetaefni.
einkum meðal viðskiptajöfra
og flokksleiðtoga. En hann
hefir með öllu hætt við hlut
verk hins nöldrandi áhorfanda
Keip Goldwaters öldunga
deildarþingmanns eftir atkvæð
Framhald á síðu 13
FTmINN, miðvikudaginn 26. ágúst 1964 —
7