Tíminn - 03.09.1964, Síða 2
wmmmmm
Miðvikudagur 2. september.
NTB-Washington. — Öldunga-
deild Bandaríkjaþings sam-
þykkti í dag með 49 atkvæð-
um gegn 44 frumvarp til laga
um ókeypis læknisaðstoð við
aldrað fólk, sem fyrsta skrefið
í að koma upp almennu trygg-
ingakerfi. Aður hafði frum-
varpið verið samþykkt í full-
trúadeildinni. Fer frumvarpið
nú til nefndar og búizt við, að
það verði svo lengi þar til með
ferðar, að það verði ekki end-
anlega samþykkt á þessu þingi.
NTB-Nicosíu. — í dag skipt-
ust tyrkneskir og grískir her-
menn á Kýpur á skotum í Lefka
héraðinu, norðanlega á eynní
og er þetta talin mesta skot-
hríð síðan vopnahlé var sam
ið hinn 11. ágúst. Sænskir her
menn úr gæzluliði S. þ. voru
þegar í stað sendir á vettvang
til að rannsaka atburð þennan.
NTB-Washington. — Johnson,
forseti, hefur falið bandarísku
ríkislögreglunni að rannsaka
réttmætí ásakana öldungadeild
arþingmannsins John Williams,
sem sagði i öldungadeildinni í
gær, að árið 1960 hefðu runn-
ið 25.000 dollarar á ólöglegan
hátt í kosningasjóð Kennedys
og Johnsons árið 1960. Gaf öld
ungadeildarþingmaðurinn í
skyn, að fyrrverandi formaður
demókrata í deildinni, Robert
Baker, væri flæktur í málið.
NTB-Washington. — í dag voru
birtar opinberlega niðurstöður
skoðanakönnunar Louis Harrys-
stofnunarinnar og samkvæmt
þeím hefur Johnson unnið á í
Suðurríkjunum, en tapað fylgi
á nokkrum öðrum stöðum, eftir
flokksþingið. Þar segir og, að
enn hafi Johnson forustuna
gagnvart Barry Goldwater og
fylgi um 62% kjósenda John
son.
NTB-Moskvu. — Sovézka stjórn
in ásakaði í dag kínverska
kommúnistaleiðtogann Mao
Tse Tung fyrír að gera tilkall
til mikilla sovézkra landsvæða
og varaði kínversku stjórnina
við að reyna að fylgja þessum
kröfum sínum eftir, því að
slíkt gæti haft hinar alvarleg
ustu afleiðingar.
NTB-Prag. — Krústjoff, for-
sætísráðherra Sovétríkjanna,
sem nú er í opinberri heim-
sókn í Tékkóslóvakíu, heim-
sótti í dag alifuglabúgarð, rétt
fyrir utan Prag, sem sagður er
sá stærsti sinnar tegundar í
heiminum.
NTB-Aigeirsborg. — Ben Bella
forsætisráðherra Alsír lét í
dag þau boð út ganga til allra
erlendra sendímanna i Algeirs
borg, að þeir yrðu að sækja
um sérstakt leyfi til utanríkis
ráðuneytisins, ef þeir færu í
ferðalög um landið. Nær þessi
skipun einnig til starfsmanna
S.þ.
NTB-Salisbury. — Stjórn S-
Rhódesíu hefur bannað starf
semi Zimbawe-flokksins, sem
stofnaður var fyrir tveim dög
um, þar sem stjórnin fullyrðir
að þetta sé sami flokkurinn og
bannaður var fyrir onkkru, en
undir öðru nafni. Sá flokkur
nefndist Zanu.
nmmmmmmmmmmmm^mmmm
Menn velta því nú mikið fyrir
sér, hvort Robert Keanedy sé eins
mikill baráttumaður fyrir sjálfan
sig og aðra, en baráttuhæfileikar
hans komu vel fram í síðustu for-
seta kosningum, er liann barðist
fyrir bróður s'inn John.
Úr þessu verður skorið í kosn-
ingabaráttunni, sem nú fer í hön:l,
og væntanlega mm oft sjást svip-
uð aðstaða, eins og á myndinni.
Stendur Bobby þar uppi á kassa
og talar til fólksins, sem þjarppazt
hefur utan um hann á götu úti.
Vinstra megin við hann sjást
tveir aðstoðarmenn hans, annar
hvítur, hi'nn svartur.
ÆRÐUR FYRIR MÍLLJÓNAR
/• ■■
FJARDRATT UR FRIHOFNINNI
KJ-Reykjavik, 2. september.
GJALDKERINN í Fríhöfnlnni
á Keflavíkurflugvelli, sem upp-
vís varð a8 fjárdrætti í Fríhöfn-
inni fyrir um ári síðan, hefur
nú verið ákærður fyrir fjárdrátt
að upphæð kr. 995.466.00. Fjár-
hæð þessa dró gjaldkerinn sér á
þrem árum, og kom það ekki
fram fyrr en ítarleg endurskoð-
un hafði farið fram á bókhaldi
Fríhafnarinnar. Lögreglustjóra-
embættið á Keflavíkurflugvelli
annaðist lögreglurannsókn máls-
ins, sem nú er lokið. Mál gjald-
kerans verður þingfest 1. okt.
n. k.
Bobby í framboð
’ NTB-New York, 2. september.
Seint í gærkvöld var Robert
Kennedy, dómsmiálaráðherra
Bandaríkjanna valinn sem fram-
bjóðandi demókrata til öldunga-
deildar kosninganna í haust fyrir
New York-ríki.
Hlaut Robert mikinn meirihluta
atkvæði á flokksþingi ríkisin-s, eða
564 atkvæðum meira en hann
þurfti til þess að ná útnefningu.
Vegna þessa framboðs verður
| Robert Kennedy að segja af sér
störfum dómsmálaráðherra, og
var búizt við, að liaron gerði það
séint í kvöld og að á morgun
myndi Johnson, forseti, skipa r.ýj-
an í hans stað.
MAKARI0S SEGIR USA BERA
ÁBYRGD Á L0FTÁRUSUNUM!
NTB-Nicosíu, 2. september.
Bandaríkjastjórn krafðist þess
í dag, að Kýpurstjórn gerði þegar
í stað grein fyrir, hvort satt væri,
að Makarios erkibiskup og forseti
Kýpur, hefði sagt, að bandaríska
stjórnin væri meðsek Tyrkjum í
Ioftárásinni, sem gerð var á Kýpur
í fyrri viku. Einnjg hefur brezka
stjómin beðið um skýringu á orð-
rómi þessa efnis.
Sendiherra Bandaríkjanna,
Taylor G. Belcher afhenti utan-
ríkisráðherra Kýpur orðsendingu
í dag, þar sem bandaríska stjórn
in harmar, að Makarios skyldi
hafa samþykkt fyllyrðingar um,
að Bandaríkjamenn hefðu á einn
eða annan hátt staðið á bak við
loftárásina, sem Tyrkir gerðu á
Mansoura^ Kokkina og Polis hinn
7. ágúst. Á Makarios að hafa fall
izt á þau ummæli eins talsmanns
egypsku stjómarinnar í Alexandr
iu nú um helgina, að Bandaríkja
menn bæru stóran hluta af ábyrgð
inni á þeim hörmungaratburðum,
sem urðu þann 7. ágúst. í orð-
sendingunni, sem afhent var utan
ríkisráðherra Kýpur í dag, neitar
bandaríska stjórnin ákveðið
áburði þessum og krefst þess, að
Kýpurstjórn geri grein fyrir mál-
inu og afsanni orðróm þennan.
Mývatnsfundur
Landsfundur Samtaka liernáms-
-andstæðimga verður haldinn í (
Skjólbrekku við Mývatn dagana
5.—6. september 1964.
Dagskrá fundarins verður sem
hér segir: Klukkan 14 á laugar-
dag er fundurinn settur af Stein-
grími Baldvinssyni, Nesi, Aðal-
dal. Þá verða kjörnar nefndir og!
starfsmenn landsfundarms.
Ragnar Arnalds, alþingismaður, i
flytur skýrslu miðnefndar um störf I
samtakanna og ræðiir næstu verk-j
efni.
Síðan flytja ávörp þeir Magnús;
Torfi Ólafsson, Guðmundur Ingi-
Kristjánsson frá Kirkjubóli, Þór-|
arinn Haraldsson, Laufási og Þor-j
steinn frá Hamri. Síðan verður
fundinum framhaldið fram eftir
kvöldi.
Á sunnudag munu nefndir skila;
áliti til fundarins og kjörin verður
landsnefnd samtakanna, þá verður
fund islitið síðdegis klukkan 17,
með borðhaldi í Reynihlíð af Þór-;
oddi Guðmundssyni frá Sandi.
— Ferðir á vegum samtakanna
verða frá BSÍ í Reykjavík klukkan
14 á föstudag. Bíll sá mun verða,
í Borgarnesi um kl 17 en áj
Blönduósi um kl. 20 Önnur ferð
verður svo farin frá sama stað í
Reykjavík, kl. 23 (næturferð) áj
föstudagskvöld.
Bílferðir á vegum samtakanna
kosta 680 krónur báðar leiðir.
Ennfremur eru flugferðir norð-
ur til Akureyrar kl. 9 á laugar-
dagsmorgun og munu samtökin
sjá um ferðir frá Akureyri að Mý-i
vatni. I
Samtökin útvega mönnum næt-
urstað, en fólk verður almennt að
gera sér að góðu að sofa í svefn-
pokum, sem það verður að leggja
til sjálft. Þó eru nokkur rúm laus
enn í hótelunum við Mývatn og
þar mun einnig alltaf unnt að fá
heitar máltíðir. Hins vegar verður
alltaf til reiðu í Skjólbrekku
smurt brauð, heitar súpur, kaffi,
mjólk, gosdrykkir og fleira við af-
ar vægu verði.
(Frá Samtökum hernáms-
andstæðinga).
INNRAS í malaysíu
NTB-Kuala Lumpur, 2. september.
Yfirvöld í Malaysíu sendu í dag
aukinn herstyrk til Johorehéraðs
ins á suðurströnd Malaya, vegna
fregna um, að 30 indónesískir fall
hlífahermenn hefðu verið settir
þar á land um nóttina. Síðar í dag
bárust fregnir af bardögum þarna
og sagði talsmaður stjórnarinnar,
að einn Indónesi liefði verið felld
ur og þrír tcknir til fanga.
Fyrstu fregnir um landgöngu
þessa bárust frá fólki í smábænum
Labis, sem hafði orðið vart við
herflutninga þessa. Áður hafði
forsætisráðherrann, Abdul Bahm
an skýrt frá því, að indónesískar
Framhald á síðu 15
HERAÐSMOT Á SUDURLANDI
í SUÐURLANDSkjördæmi hafa
í ágústmánuði verið haldnar tvær
héraðssamkomur á vegum Fram-
sóknarflokksins.
Hinn 8. ágúst gekkst Framsókn-
arfél. Vestur-Skaftafellssýslu fyrir
móti í félagsheimilinu Kirkjubæ
að Kirkjubæjarklaustri og 22. ág-
úst hélt Félag ungra framsóknar-
manna í Árnessýslu sumarhátíð að
Flúðum. — Báðar þessar sacnkom-
ur voru mjög fjölsóttar og fóru
vel fram.
Að Kirkjubæ stjórnaði Jón
Helgason, form. Framsóknarfél.
Vestur- Skaft. mótinu. Þar fluttu
ræður: Óskar Jónsson, fulltrúi, Sel
fossi, og Eysteinn Jónsson, form.
Framsóknarflokksins. Var máli
þeirra mjög vel tekið af um 400
manns sem tnættir voru^ þegar í
upphafi samkomunnar. Árni Jóns-
son, tenórsöngvari söng með undir
leik Mána Sigurjónssonar og Emil
ía Jónasdóttir, leikkona flutti gam
anþætti við mikla hrifningu á-
heyrenda. Var síðan stiginn dans
fram eftir nóttu undir ágætri mús-
ik „Tónabræðra“, sem er orðin
mjög vinsæl hljómsveit.
Voru samkomugestir mjög á-
nægðir með samkomurnar, svo
sem ávallt hefur verið með sumar-
hátíðir Framsóknarmanna í Vestur
Skaftafellssýslu.
Að Flúðum stjórnaði mótinu
Páll Lýðsson, formaður FUF í
Árnessýslu. Þar flutti erindi Stein
grímur Hermannsson formaður
rannsóknarráðs ríkisins. Var hon-
um þakkað með dynjandi lófataki.
Erlingur Vigfússon óperusöngv-
ari söng einsöng með undirleik
Ragnars Björnssonar og Valur
Gíslason, leikari, las upp úr Gullna
hliðinu. Var þessum listamönnum
mjög vel fagnað. Loks var dansað
af miklu fjöri eftir músik hinnar
víðfrægu hljómsveitar Óskars Guð
mundssonar. Geysilegur fjöldi
fólks sótti sacnkomu þessa, sem
var mjög glæsileg.
Er mjög ánægjulegt og uppörv-
andi fyrir flokksstarfsemina, hve
fólk sækir vel þessar samkomur
flokksins og ber vott um vaxandi
áhuga æskufólks fyrir málefnabar-
áttu hans.
2
T í M I N N, fimmtudaginn 3. september 1964