Tíminn - 03.09.1964, Page 8
FundarfólkiS viS klrkjuna í Haukadal.
Guðbrandur Magnússon segir frá
Aðalfundi Skógræktar-
Fundurinn stóð að Laugarvatni
28. og 29. ágúst.
Formaður félagsins, Hákon Guð
mundsson yfirborgardómari, settí
fund, bauð fulltrúa og gesti vel-
komna og tilnefndi sérstaklega
Gunnlaug Briem ráðuneytisstjóra
og frú Þóru Garðarsdóttur konu
hans.
Tilnefndi til ritara Þóri Frið-
geirsson, Hafliða Jónsson og
Björn Ófeigsson.
Formaður minntist andláts Gutt
orms Pálssonar á Hallormsstað Qg
rakti störf hans í þágu skógrækt-
arinnar. Einnig Helga Eiríkssonar
og Sigdórs Brekkan og Sigurjóns
Ólafssonar, Geirlandi við Reykja-
vík. Risu menn úr sætum.
Þá hóf formaður ræðu sína með
því að greina frá, að ársprotar
skógartrjáa væru furðu líkir því
sem vant er, þrátt fyrlr áfella-
samt veðurfar. Margur undraðist
þegar Norðmenn hófu að rækta
skóg, um síðustu aldamót. . . .
Gróður er undirstaða alls lífs á
okkar jörð . . . Við teljum skóg-
rækt hina mikilvægustu, enda er
hún jafnframt skjólgjafi annars
gróðurs. Hlutverk funda okkar er
að halda uppi sókn þessarar rækt
unargreinar, og skipuleggja hans.
Hákon Bjarnason: Hér ber að
greina frá hvað stjórn skógrækt-
arfélagsins hefir aðhafzt á starfs-
árinu. Breytt skyldi skipulagsskrá
Landgræðslusjóðs, og héfir það
verið gert. Bygging er hafin að
Mógilsá.
Töf á skýrslugerð Skógræktar-
félaganna tefur útgáfu hinnar
prentuðu heildarskýrslu. Ársritið
er komið í nýjan kjól. Hugmynd-
inni um vinnuflokka sem fari
milli félaga hefur ekki verið kom
ið í framkvæmd. Haldnir 14 reglu
legir fundir auk fjölda funda með
framkvæmdastjórum skógræktar
FYRRI HLUTI
félaga. Greindi frá skógarbruna í
Tálknafirði. Um aukning Land-
græðslusjóðs lítið áunnizt. Jóla
tréssalan helzta tekjugrein sjóðs-
ins.
Verðlaunaritgerðir menntaskóla
um skógrækt —.
Skógræktarstjóri greindi frá að
hann og Snorri Sigurðsson hefðu
ferðast um Þingeyjarsýslur og
Skagafjörð með fræðsluerindí og
myndasýningar. Unnið væri að
því að skógræktarbændur nytu
sömu kjara og aðrir bændur um
heimtaugargjald rafmagns. Sett
hefði verið löggjöf um sauðfjár-
hald í bæjarfélögum. „Skógar-
manna“ — skíptin milli íslands og
Noregs ættu sér stað með nokk-
urra ára millibili. Voru þessi
mannaskipti talin merkur liður í
samskiptum og menningartengsl-
um Norðmanna og fslendinga.
Snorri Sigurðsson flutti skýrslu
um framkvæmdir hinna ýmsu fé-
laga. Girt land að Búðum á Snæ-
fellsnesi. Stækkaðar girðingar á
sex stöðum. Gróðursetning meiri
en landaukning. Heiðmerkurland
hefði xverið aukið. Mirini plöntun
á síðasta ári, áfelíisveðrið orsök-
in. Minna gróðursett af sitka-
greni en áður, en meír af stafa-
furu og bergfuru. Til verður
meira af‘ lerki á næsta ári, en
áður.
Eyfirðingafélagið gróðursetti
meir en Reykjavíkurfélagið. Tala
ókeypis dagsverka dregst saman.
Norðmenn hvetja til að auka
áburðargjöf á nýgræðing. gera
þarf athugun á hvaða áburð og
hve mikinn á að gefa. Vegagerð
hefur verið nokkur í þágu skóg-
ræktarfélaga.
Rætt var um að koma upp um-
ferðavinnuflokkum. Skipulagsskrá
Landgræðslusjóðs hefði verið
breytt til þess að létta undir með
þessu fyrirkomulagi.
Félögin þyrftu að hafa i'leiri
STEINDÓR STEINDÓRSSON
menn í þjónustunni sem unnið
gætu með hópum áhugamanna að
gróðursetningu.
Skógræktarfélag Svarfdæla
mundi hér eftir starfa sem deild
í skógræktarfélagi Eyfirðinga. Rík
isstyrkur hækkaði lítið eitt (um
23 þúsund). Styrkir frá eínstakl-
ingum námu 70 þúsundum, bæjar-
og sveitarfélögum utan Reykja-
víkur 240 þús.
Herða þarf róðurinn inn á við,
en einnig leita eftir stuðningi frá
þeim, er utan sjálfra samtakanna
standa.
Formaður þakkaði skýrsluna,
og mundi fundurínn koma að þess
um málum síðar í fundinum.
Einar Sæmundsen las og
skýrði ársreikninga félagsins og
Landgræðslusjóðs. Eign Land-
græðslusjóðs er 4,6 milljónir.
Nýtt félag, Skógræktarfélag
Bolungarvíkur bættist í hópinn,
og bauð formaður fulltrúa þeirra
sérstaklega velkomna.
Formaður lýsti tillögum sem
fram yrðu bornar:
1. Tillögu um aukin framlög til
skjólbelta, og að á þau yrði
litið sem almennar jarðræktar-
framkvæmdir.
2. Lýsti hversu valið lið hefði far-
ið milli landa. íslendingar til
Noregs og Norðmenn til ís-
lands. För forustumanna
norsku þjóðarinnar til ís-
lands á síðasta ári var merk
og mikílvæg.
3. Aukin dýrtíð rýrir fé það úr
ríkissjóði em fram er lagt,
þyrfti hér að verða breyting á.
Þurfa framlögin að aukast í
hlutfalli við afköst félagsins.
Ráðherra samþykkti á sínum
tíma áætlun um skógræktar-
störf, og þurfa framlög að mið
ast við þá áætlun.
Formaður greindi frá að feng-
in væri trygging fyrir því, að gjaf
ir til skógræktar yrðu frádráttar-
bærar við skattframtöl, ef um
væri sótt fyrir 31. október. Hvetja
yrði til trjágarðaræktar við sveita
heimili.
Gunnar Skaptason: Of stór hóp-
urinn sem engan áhuga hefur á
skógrækt. Sameina þyrfti fleiri
til starfa, helzt að setja sér að
marki að tvöfalda félagatölu 4
næstu tveim árum.
Sigurður Blöndal. Finna þarf
ráð til þess að auka tæknilega
aðstoð við skógræktarfélögin.
Formaður þakkaði bendingarn-
ar en til aukinna framkvæmda í
þessu efni, þyrfti aukið fjármagn.
Ármann Dalmannsson vék að
skiptum vinnuflokka milli Norð-
manna og íslendinga, og þá til
dæmis til sumardvalar.
Hákon Bjarnason hugði að
þessu mætti koma fram, en þá
þyrftí að vera ráðið um áramót,
hver þörfin væri af okkar hendi.
Hákon vék að hinni nýju
fræðslubók um skógrækt, Æskan
og skógurinn, og hvemig henni
hagkvæmlegast yrði komið í gagn
ið. Verðið er 95 krónur.
Þórarinn Þórarinsson lýsti
ánægju sínni yfir hinni nýju bók
um skógrækt sem ber heitið:
Æskan og skógurinn.
Leiðbeiningar í skógrækt fyrir
unglinga. Bók, sem þyrfti ekki
aðeins að vera kynnt í skólunum,
heldur komast inn á sem allra
flest heimili. Kveðst hafa lesíð
hana í einum legg. Ég gat ekki
hætt lestrinum fyrr en bókin var
lesin til loka.
Steindór Steindór: þessi
bók hefur alla kosti, stuttorð og
á allan hátt gagnmerk. Hér er bók
sem eykur ekki aðeins þekkingu,
heldur hlýtur jafnframt að vekja
áhuga. Bókin er ágæt! Þetta er
bók sem á að komast í hendur
sem allra flestra manna.
„Ef hægt væri að fá kennara
landsins til að vekja áhuga nem-
enda á efni þessarar merku bók-
ar!
Ekki að gera hana að skyldu-
námsbók. Heldur líta á hana sem
gersemi — sem allir ættu að kynn
ast, lesa og læra af!“ — svo mæRi
hinn kunni skólamaður Steindór
Steindórsson.
Hefur Tíminn orðið sér úti um
eintak af þessari einstöku bók,
sem hlotið hefur slíka dóma, og
birtir hér mynd af kápumynd
hennar og einnig af titilblöðum
þessarar sömu, háttlofuðu bókar!
Samþykkt var ályktun um að
unnið skyldi að því, að trjárækt
við sveitabýlí og kostnaður við
hana, yrði frádráttarbær á skatt-
skýrslu. i
Samþykkt var að vinna að út-
breiðslu bókarinnar um „Æskuna
og_skóginn!“
Áréttuð var ályktun aðalfundar
1963 um verndun birkigróðurs.
Laugardag 29. ágúst hófst fund
ur með því að Ingvi Þorsteinsson
magister flutti gagnmerkt erindi
um rannsóknir á íslenzku gróð-
arlendi sem starfað hefur verið að
undanfarin 4—5 ár.
Framfiald á síðu 13
8
T í M 1 N N, fimmtudaginn 3. september 1964