Tíminn - 15.09.1964, Page 2
/
Mánudagurinn 14. september
NTB-Kaupmannahöfn.
Á fimmtudaginn flýgur stór
hópur kóngafólks frá Kastrup
áleiðis til Athenu til þess að
taka þátt í brúðkaupi Anne
Marie og Constantins. í hópn
um eru m. a. Haraldur krón-
prins, Caroline Mathilde prins-
essa, Elisabeth prinsessa, prins |
og prinsessa Viggo, Ingólf
prins og Christian prins, og
prinsessan af Bourbon-Parma.
Flogið. verður tíl Sviss og þar
bætast í hópinn Carl Gustaf
krónprins, konungshjónin ,
Thailandi og þrjár dætur Fara
ouks og Hertoginn af Wiirten
berg.
NTB-París. — Hinn hlutlausi I
forsætisráðherra Laos, Prins
Souvana Phouma, tilkynnti for
ingja kommúnistaleiðtogans
Souphanavong, að hann hefði
ákveðið að "draga sig í hló og
yfirgefa París, og þá um leíð
hætta viðræðum um hlutleysi
Laos.
NTB-Kaupmannahöfn. — Sér-
fræðinganefnd Norðurlandanna
hefur gert áætlun um norrænt
kjarnorkurannsóknarráð, sem
á að annast alls kyns rannsókn
ir og ráðgert er, að áætlanirn-
ar um þetta rannsóknarráð
verði brátt lagðar fyrir stjórn
ir Norðurlandanna, að Islandi
undanskildu.
NTB-Moskvu, 14. sept. — Þeir
sovézku vísindamenn, sem
töldu sig hafa fundið beina-
grind af snjómanni í kirkju-
garði í Kákasus, hafa nú lýst
því yfir, að beinagrind þessi
hafi vcrið af venjulegri konu.
Sagan sagði að beinagrindin
af snjómanninum væri þannig
í garðinn komin, að bændur
hefðu náð manninum i grennd
við bæinn Tinka og drepið
hann fyrir um hundrað árum.
Þá hafa fjölmargir Kákasus-
búar þótzt hafa séð snjómann
inn. En beinagrindin var sem
sagt af konu, segir Tass-frétt
frá Moskvu.
NTB-New York og Kuala Lump
ur. — Malasíu-sambandiS
ákærði Indónesíu í dag fyrir
ábyrgðarlausar árásir á ríkja
sambandið. Var jafnframt
skýrt frá því, ið s. 1. miðviku-
dag hafi nýr flokkur indónes-
ískra skæruliða gengið á land.
í dag var því lýst yfir í Kuala
Lumpur, að átta þeirra hefðu
verið drepnir en tuttugu tekn
ir til fanga. Malasíudeilan kom
fyrir Öryggisráðið á fundi þess
í New York í dag.
NTB-Ankara og Nicosia. —
Tyrkir hafa lýst því yfir að
þeir muni senda matvæli til
bannsvæða á Kýpur. Jafn-
framt hafa þeir tilkynnt Grikkj
um, búsettum í Tyrklandi, að
þeir fái tíu daga frest til að
fara úr landí. Fulltrúi S.þ. sat
fund með Makariosi í dag, og
var þess óskað að Makarios
drægi úr hömlum á matvæla-
flutningum til tyrkneskra
manna. Engin niðurstaða
fékkst, en fundarmenn sögð- é
ust bjartsýnari á málið.
K VÆÐAMA NNAFÉLA GIÐ
IDUNN 35 ÁRA / DAG
GB-Reykjavík, 14. sept.
Fyrir 35 árum, eða 1. sept-
ember 1929, komu 19 menn og
konur saman í Re.vkjavík, kusu
undirbúningsnefnd, sem starf-
aði í hálfan mánuð, og hinn 15.
sama mánaðar mætti svo fólkið
allt á stofnfundi félags, sem
hlaut tiafnið Kvæðamannafé-
lagið Iðunn. ítilefni afmælis-
ins nú hefur stjórn félagsins af-
hent Þjóðminjasafninu að gjöf
segulbandsupptöku á 303
kvæðalögum, ásamt fjölritaðri
handbók, sem tilgreínir upp-
runa kvæðalaganna, nöfn
þeirra er kynnt hafa þau í fé-
laginu og þeirra, er kveðið
hafa inn á bandið. En eftir er
að kveða inn á bandið 70—80
kvæðalög, sem til eru í fórum
félagsins.
Tilgangur félagsins og það,
sem unnið hefur verið eftir frá
upphafi, var að safna og varð-
veita kvæðalög og lausavísur
og leitast við að viðhalda þess-
um aldagamla sið sem lifandi
fyrirbæri en ekki einungis sem
forngrip, að því er stjórnar-
menn Iðunnar sögðu á fundi
mð fréttamönnum nú um helg-
ina.
Allt frá fyrstu tíð hefur fé-
lagið haldið fundi hálfsmánað-
arlega vetrarlangt, efnt til árs-
hátíðar og farið í sumarferða-
lag, og hafa þær ferðir alltaf
verið þátttakendum slíkur líf-
gjafi, að þar hafa verið ortar
þetta 100—250 vísur í hverri
ferð, en ótaldar stemmurnar,
sem kveðnar hafa verið daginn
þann. Á fundum er ætíð kosin
nefnd til að undirbúa næsta
fund, og eru þá margir skyld-
aðir til að taka lagið, sem eng-
inn telur eftir sér. Og það er
ekki rétt, sem margir ætla, að
einungis eldri kynslóðin skipi
hópinn í Iðunni. Hún er raunar
í meiri hluta, en ætíð bætist
yngra fólk í hópinn, t.d. sagði
félagsstjórnin okkur, að meðal
þeirra, sem bezt hafa unnið að
upptöku laganna, sem félagið
nú á afmæli sínu gefur Þjóð-
minjasafninu, sé ungur kven-
stúúent, Nanna Bjarnadóttir,
svo og bræður hennar tveir,
Flosi og Hörður. Nanna segir
þó, að það sé alls ekki rétt, að
hún sé yngsti félaginn, þar
hafi komið fram á fundum
aðrir enn yngri og kveðið
stemmur af mikilli list. Á
fundi hverjum er gengið
manna á milli með bátslíkan,
sem nefnist „Skálda“ og safn-
að vísum í, sem félagsmenn
leggja til frá sjálfum sér hver
sem getur, síðan er „gert
að aflanum1- sem kallað er og
vísurnar fluttar í fundarlok,
sem er ekki litið tilhlökkunar-
efni. Fundir hafa m'örg und-
—mmnnriiinn rrr~ in i iTmn—
anfarin ár verið haldnir annað
hvert laugardagskvöld hér í
samkomusal Edduhússins, en í
haust flyzt félagið með starf-
semi sína í samkomusal múr-
ara að Freyjugötu 27, og eru
þar boðnir og velkomnir allir
þeir, sem þessari gömlu þjóð-
aríþrótt unna til að viðhalda
henni sem lengst, svo ekki fari
fyrir henni eins og víkivökun-
um hinum einu þjóðdönsum ís-
iendinga, sem féllu svo ræki-
lega í gleymsku og dá, sem er
óbætanlegur skaði, að nú veit
enginn með vissu, hvernig á að
stíga dansinn þann.
Formenn Kvæðamannafélags-
ins Iðunnar frá upphafi hafa
verið í þessari röð: Kjartan
Ólafsson (múrari), Björn Frið-
riksson, Jósep Húnfjörð, Sig-
urður Jónsson frá Haukagili og
Ríkarður Hjálmarsson. En aak
hans eru nú í stjóm: Sigur-
björn Stefánsson ritari, Ulrik
Richter gjaldkeri, Þórður Jóns-
son varaformaður og kona
hans, Elísabet Björnsdóttir
formaður rímnalaganefndar,
og systir hennar, Rósa Bjöms-
dóttir, upptökustjóri, og Jó-
hann Garðar Jóhannsson for-
maður vísnanefndar. (Þær
Elísabet og Rósa em dætur
stofnandans Björns Friðriks-
sonar, en systur hans voru
kvæðakonurnar kunnu Sigríð-
stúdent — eln hlnna ungu í
Iðunnl —
ur og Þuríður Friðriksdætur).
Áður hafa verið nefnd systkin-
in Flosi, Hörðu rog Nanna (og
birtum við hér mynd af henni
sem einum af yngstu félögum
Iðunnar), en einnig eru virkir
félagar foreldrar þeirra, Bjarni
Jónsson og María Bjamadóttir.
J
NTB-Saigon. 14. sept. Khan
hershöfðingi, kom aftur til Sai-
gon í dag og heldur áfram störf-
um sem forsætisráðherra. Upp-
reisnartilraun sú, sem gerð var í
borginni á sunnudag rann út í
sandinn. Rétt eftir komuna til
borgarinnar, hélt Khan blaða-
mannafund ásamt nokkram yngri
yfirmönnum úr hernum, sem
höfðu bjargað stjórn hans. Talið
er að þessir menn hafi beðið
hann að taka fastar um stjómar-
taumana, snúast einarðlega gegn
þrýstingi, pólitískum og trúarleg-
um.
Á sama tíma fóru um þúsund
stúdentar í kröfuköngu um göt-
ur Saigon. Þeir bára spjöld þar
sem þeir fordæmdu gagnbyltingar
og hlutleysi.
Einn af leiðtokum byltingar-
innar var viðstaddur blaðamanna-
fundinn. Han nhafði heitið Khan
stuðningi sínum, en tveir aðrir
byltingarstjórar létu ekki sjá sig.
Seinni fréttir báru með sér að
þeir væru farnir úr borginni.
Stjórnarvöld lýstu því þá yfir að
þeim myndi hegnt.
Hershöfðingjar. í borginni hafa
sett fram kröfur um að spilltir
iiðsforingjar og spilltir starfs-
menn ríkisins verði reknir og
þeim hegnt. Hafa þeir lagt þessar
kröfur fyrir Khan og óskað að-
gerða.
Frá Washington berast þær
fréttir, að Bandaríkjaforseti
hyggist að haida áfram óbreyttri
stefnu í S.-Vietnam, þrátt fyrir
ókyrrðina þar.
VIKUAFLINN
RÚM 88 ÞÚS.
EJ—Reykjavík, 14. september.
Vikuaflinn í síðustu viku var
rúmlega 88 þúsund mál og tunn
ur en var á sama tíma í fyrra um
195 þúsund mál og tunnur. Á-mið-
nætti s.l. laugardags var heildar
aflinn því orðinn rúmlega 2.2 millj
ónir mál og tunnur, en var á sama
tíma í fyrra um 1.3 milljónir.
Ógæftir hömluðu síldveiðunum
s.l. viku, og var veiðisvæðið nær
eingöngu um 60—90 milur út af
Dalatanga. Heidarafiinn er nú orð
inn 2.245.778 mál og tunnur, en
var á sama tíma í fyrra 1.374.414
mál og tunnur.
Aflinn hefur verið hagnýttur
þannig (tölur í svigum eru frá
í fyrra): í salt 302.956 uppsaltað
ar tunnur (462.867), í frystingu
33.037 uppmældar tunnur (31.223)
og í bræðslu 1.909.785 mál (880.
274).
Raufarhöfn er hæsta löndunar
höfnin með 416.877 mál og tunnur.
Aðrar hafnir hafa eftirfarandi:
Siglufjörður 260.159, Ólafsfjörður
21.311, Hjalteyri 45.788, Krossa-
nes 86.160, Húsavík 35.709. Vopna
fjörður 217.063, Bakkafjörður 22.
244, Seyðisfjörður 364.410, Nes-
kaupstaður 310. 093, Eskifjörður
159.422, Reyðarfjörður 124.973,
Fáskrúðsfjörður 98.575, og Breið-
dalsvík 21.995.
Við Vestmannaeyjar hefur verið
dræm síldveiði undanfarið, en frá
1. júní er búið að landa þar 160.
598 málum.
Sæmileg síldveiði var síðastlið
inn sólarhring, og fengu 67 skip
samtals 46.280 mál og tunnur. Nú
cr aftur á móti komið vont veður
á miðunum og bátarnir hafa leitað
til hafna. Er því ekkert útlit fyrir
veiði í nótt.
Sæmilegasta veiði var fyrir aust
an í nótt, og fengu aflahæstu skip
in um 1100 mál, og sum fengu
það í einu kasti. Síldin er mjög
blönduð, en þó var eitthvað af
henni saltað, t.d. var saltað á öll-
um stöðvum á Seyðisfirði í dag.
Aftur á móti fer veður versnandi,
og flest skip, bæði íslenzk, norsk
og færeysk, hafa leitað til hafna.
Tveir bátar komu til Borgar-
fjarðar í gær ,hvor um sig með
400 tunnur í söltun, og í dag kom
Höfrungur III með 800 tu. Sa^ltað
var á báðum plönunum þar í dag.
Engin síld hefur komið til Rauf
arhafnar undanfarið, og er síldar
bræðslan nú tóm.
SILDAR-
AFUNN
Síldarfréttir mánudaginn 14. sept-
ember 1964.
Gott veður var á síldarmiðunum
s.l. sólarhring, en í morgun var
kominn kaldi á miðunum. Skipin
voru einkum að veiðum 76—80 míl
ur ASA frá Seley. Síldin, sem
veiddist, *var mjög blönduð.
Síidarleitinni var kunnugt um
afla 67 skipa, með samtals 46.280
mál og tunnur.
Máni GK 500 Garðar GK 280 Jón
Finnsson GK 950 Svanur ÍS 200
Sæhrímir KE 350 Helgi Flóv. ÞH
350 Sólrún ÍS 600 Hilmir KE 350
Þorbjörn GK 100 Rifsnes RE 1000
Sigurpáll GK 1500 Bergur VE 1000
ísleifur TV VE 700 Sigrún AK
700 Kristján Valgeir GK 350 Sigl
firðingur SI 1200 Strákur 600 Jón
Oddsson GK 350 Freyfaxi KE 250
Eldey KE 1400 Glófaxi NK 650
Guðbjörg GK 1100 Sigurbjörg KE
700 Náttfari ÞH 800 Sólfari AK
1200 Sveinbj. Jakobss. SH 450
Húni II HU 450 Le-bVE 500 Hann
es Hafstein EA 1500 Hólmanes KE
600 Þórður Jófiasson RE 1200 Sæ-
faxi NK 400 Höfrangur III AK
Framhald á síðu 15.
2
TÍMINN, þriSjudagur 15. september 1964 —