Tíminn - 14.10.1964, Side 2

Tíminn - 14.10.1964, Side 2
TÍMINN MIÐVIISUDAGUR 14. okt«ber 1964 ER FÖR ÞRÍMENNINGANNA UPPHAFIÐ AÐ GEIMFBRÐUM FRAMTÍÐARINNAR? Þriðjudagur, 13. október. NTB-Loíidon. — Kosningabar- éttan í Bretlandi nær nú há- marki sínu, en kosningarnar Verða á fimmtudaginn. í kvöld héldu formenn verkamanna- flokksins og íhaldsflokksins báSir ræðu í sjónvarpinu. Dai- ly Express kunngjö/ði í dag úrslit skoðanakönnunar, og samkvæmt þeim hefur íhalds- flokkurinn 0,9% meira fylgi en verkamannaflokkurinn. NTB-Rio De Janeiro. í dag kom de Gaulle til Brazilíu, síðasta ríkisins í S.-Ameríkuferðinni. Fékk hann þar heldur kulda- legri móttökur, en á hinum viðkomustöðunum. Ríkisstjór- inn í Guanabara, héraðinu í kringum Rio de Janeiro, lýsti því yfir opinberlega, að hann hefði ekkert með heimsókn hins franska forseta að gera. NTB-London. — í kvöld lenti flugvél Elizabetar Englands- drottningar heilu og höldnu á Lundúnaflugvelli. Kanadaferð hennar er þá lokið, en hún flaug frá Ottawa til London. Var drotningu mjög vel tekið í Ottawa og hvergi á allri ferð- inni kom til alvarlegra uppþota af hálfu frönskumælandi manna. Philip prins var eftir í Kanada í einkaerindum. NTB.-Hongkong. Alls misstu 21 maður lífið í hvirfilbylnum, sem geisaði í Hongkong í dag. 34 er saknað, 73 hafa slasazt og500 manns eru heimilis-laus- ir. Vindhraði hvirfilbylsins var 170 km á klukkustund. Þetta er sjötti hvirfilvindurinn, sem verður í Hong Kong í ár, og sá þriðji á 40 dögum. NTB-Washington. Johnson for- seti kom í dag heim úr 16.000 km. langri kosningaferð. Hann heimsótti m.a. Dallas í Texas, en þangað hefur hann ekki komið síðan Kennedy var myrt- ur þar. Goldwater skorar nú á Johnson forseta í sjónvarps- viðræður og segist munu haga spurningum sínum svo, að Johnson tali ekki af sér og stofni með því ríkinu í hættu. Samkvæmt upulýsingum Gold waters, hefur hann nú eitt- hvað aukið fylgi sitt. NTB-Leopoldville. Tshombe kom í dag heim til Leopoldville frá París. Þúsundir manna fögnuðu honum við heimkom- ana og báru þeir spjöld með áletrunum: Lengi lifi Tshombe Niður með Nasser for- seta, Niður með Ben Bella. Fjöldi erlendra sendiráðs- manna tók á móti Tshombe á flugvellinum og yfirvöldin höfðu gefið út tilkynningu um það, að í dag skyldi vera frí dagur í landinu. NTB.-London. 500 tæknistarf- andi menn við neðanjarðarjárn- brautirnar í London krefjast þess nú, að starfsskilyrðum þeirra verði ekki breytt, ella muni þeir fara í verkfall. Allt er gert til að koma í veg fyrir verkfallið, þar sem það gæti haft áhrif á kosningarnar á fimmtudaginn. NTB-MOSKVA, 13. október. f MORGUN lenti sovézka geim- farið Voskhod í Norður-Kasakst- an, 1000 km. fyrir norðan þann stað, sem því var skotið upp frá. Sovézka útvarpið tilkynnti í gær, að geimferðin mundi ná yfir lengri tíma, svo það kom öllum á óvart, er geimfarið lenti eftir að hafa verið aðeins sólarhring á lofti. — Geimfararnir þrír voru við beztu heilsu, þegar þeir lentu og sögðu ferðina hafa gefizt vel. Voskhod er stærsta geimfar, sem hingað til hefur verið smíðað, var skotið á loft af alveg nýrri tegund eldflaugar og lenti einnig ásamt tækni, sem ekki hefur þekkzt áður. Það nálgaðist jörðina hægt í fallhlíf og um leið og það lenti var alveg dregið úr hraðan- um. Bremsurnar voru notaðar, þeg ar geimfarið var yfir Afríku. Mál- gagn ífjssnesku stjórnarinnar, Iz- vestia, segir í dag, að geimfararn- ir hafi beðið um að fá að halda ferðinni áfram í einn dag, en yf- irmanni geimfarsins á jörðu fannst ekki ástæða til að breyta út af áætluninni. Eftir að geimfarið var lent voru geimfararnir sóttir í flugvél og farið með þá til bæjarins Kustan- ai, en þar gengu þeir undir ná- kvæma læknisrannsókn og fengu svo að hvíla sig á eftir. í kvöld héldu þeir svo áleiðis til Bai'kon- ur, þar var geimfarinu skotið upp. Að öllum líkinducr. verður hátíð- leg móttaka fyrir geimfarana á Rauða torginu í Moskvu, þegar þeir koma þangað. Reiknað er rneð að Krústjoff muni í tilefni af móttökunum gera hlé á dvöl sinni í Kákasus. Ekki er vitað fyrir víst, hvort geimfarið lenti samkvæmt áætlun eða hvort eitthvað varð skyndi- lega að. Geimfararnir segja, að allt hafi heppnast vel, öll tæki hafi verið í lagi og þeir hafi lent samkvæmt skipun. Tass-fréttastof an segir, að ferðin hafi aldrei átt að standa netna einn dag og geim faramir hafi lokið því verki, sem þeir áttu að vinna. Ennfremur seg ir fréttastofan, að vísindamennirn- ir hafi safnað mjög verðmætum upplýsingum og sé það ekki að undra, þar sem þetta sé í fyrsta skipti, sem vísindamennirnir sjálf- ir hafa farið út í geiminn. Rann- sóknar- og móttökustöðvar víðs vegar í heiminum hafa skýrt frá því, að rétt áður en Voskhod lenti, hafi hljóðcnerki frá því hætt að heyrast. Þegar Voskhod lenti, hafði það ferðast í kringum 700.000 km. vegalengd og komizt fjær jörðinni en nokkuð annað geimfar, það er u. þ. b. 400 km. Áður en geimfar- arnir lentu í morgun sendu þeir skýrslu um það, að þeir hefðu borðað morgunverð með beztu lyst, öll tæki væru í lagi og hrein- lætisaðstæður væru í eðlilegu horfi. Haldið hafði verið áfram við vísindalegar rannsóknir í nótt og hiti í geimfarinu var í kringum 22 gráður á Celcíus. Þegar geim- farið lenti, var það að fara 13. hring sinn í kringucn jörðina. Rétt áður en geimfararnir lentu tilkynntu þeir útvarpinu, að þeim j hefði liðið vel um nóttina og héldu áfram fyrirhuguðu verki j sínu. Það er heilmikið, sem við getum sagt ykkur frá, en það verð ( ur að bíða þangað til við erum komnir niður. Geimfararnir Titov I og Tereshkova voru í geimstöð- inni í morgun og fylgdust með síðustu ferð geimfarsins í kring- ucn jörðina. Þekktur sovézkui geimvísinda- maður sagði í París í gær, að þetta geimskot væri aðeins undir- búningur að geimskotum, sem taka mundu nokkur ár. Vísinda- maðurinn sagði, að geimfararnir mundu rannsaka ýmislegt, sem hefði í för með sér gerbyltingu í sambandi við geicnrannsóknir. — Framh a 15 síðu Þægilegra að vera ís lenzkur ríkisborgari — segir Þórunn MB-Reykjavík, 13. október. Meðal þingskjala, sem útbýtt hefur verið á alþíngi, er frumvarp til laga um veitingu ríkisborgara réttar. Meðal þeirra ,sem nú hafa sótt um íslenzkan ríkisborgara- rétt er Þcrunn Jóhannsdóttir Ashkenazy, en hún hefur undan- farin ár verið rússneskur iikis- borgari. f athugasemdum við lagafrum- varpið segir svo: „Umsaekjandi númer 18 (Þórunn, aths. Tímans) var .íslenzkur ríkisborgari, en gifti ist rússneskum manni á árinu 1961 og öðlaðist i því sambandi rúss- neskt ríkisfang er hún ná hefur afsalað sér“. Blaðið hringdi til Þórunnar í gær vegna þessa og spurði, hverju sætti að liún sækti nú að nýju um íslenzkan ríkisborgararétt. Þó: unn kvað ástæðuna vera þá, að hið rússneska vegahréf hennai væri að verða útrunnið og þyrfti hún því að sækja um nýtt. Það hefði á sínum tíma, er þau hjónin bjuggu í Sovétríkjunum, verið miklu hagkvæmara fyrir hana að vera rússneskur ríkisborgari. Nú væri þessu á annan veg farið. Sé hún með rússneskt vegabréf þurfi hún að fá áritun til hvers einasta lands sem þau ferðist til. Umboðs menn manns hennar sjá um þessar áritanir fyrir hann, en þessu iylg.ia talsverð umsvif fyrir hana. Telji hún því betra fyrir sig að fá ísl. ríkisfang að nýju „Eg hef haít ís- lenzkt vegabréf hér í Englandi í tuttugu ár. Eg er íslenzk og maður- inn minn rússneskur, svo það er ekkert athugavert við það, þótt við höfum vegabréf í samræmi við þjóðemi okkar“ sagði Þórunn. Að- spurð sagði hún, að maður hemar hefði alls ekki í hyggju að breyta um ríkisfang. Þórunn kvað mikið að gera tyrir mann hennar, allt skipulagt til árs ins 1966. Þau hafa verið á miklu ferðalagi um Vestur-Evrópu og eru nú að fara til Ítalíu. í janúar fara þau til Japan og koma til Ameríku og þar heldur Ashkenazy 25 kon- serta. „Ökkur langar til að koma þá við heima“ sagði Þórunn að lokum. önnur aðaikalda- vatnsæðin lekur! FB—Reykjavík, 13. október 1 en vatn fór að seitla úr æðinni fyr endalandi, og hafði þarna mynd Eftir bádegi i gær var byrjað ir hálfum mánuði. Hér er um að azt töluverð tjörn. að gera vi® aðra aðalkaldavatns i ræða 24 tommu vatnsæð, og eru Þrír menn voru sendir upportir æðina, sem liggur hingað tií borg samskeytm farin að láta sig á ein í dag og þegar við komum á «>ett . arinnar frá Gvendarbrunnunum. um stað víð Vatnsveituveg í Vatns vang voru þeir búnir að grafa irá __ ,, _ ^ vatnsæðinni og hin óþéttu sam þeir okkui að blý hefði farið úr og þyrfti nú að slá það í aftur eða bræða, og myndi eflaust þ írfa i að draga úr þrýstingnum í æðinni j á meðan það væri gert. ■ Þessi vatnsæð var lögð árið i 1947, og hefur ekki komið fram j skemmd á henni á þessum stað j áður. Til samanburðar um stærð ina má geta þess, að vatnsæðin, sem sprakk í Suðurlandsbrautinni fyrir nokkru og olli miklu tjóni i Túnunum, var aðeins 14 tommur, eða 10 tommum minni en pess1. æð. Eins og fyrr segir tók fólk fyrst eftir því að vatn var farið að seitla úr þessari vatnsæð fyrir hálfum mánuði, og á mánudaginn íyrir viku var vatnsveitan látin vita un lekann, sem þá var mikið farinn að aukast. Það var þó ekki fyrr en í gær, sem þeir sáu sér fært að sinna þessu þrátt fyrir vatnsskort, sém mikið hefur verið talað um að undanförnu hér í borg. Hér er verið að grafa utan af æð inni. (Tímamynd GE) ea

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.