Tíminn - 14.10.1964, Síða 9
MinVIKUDAGUR 14. október 1964
TfMINN
n
#§?
m
Aukin trsí á fram*
tíðina í Hólminum
Hið nýja sjálfsafgreiðslufyrirkomulag á mjólk í kjörbúðinni er mjög
hentugt og þægilegt. Hér sézt Bjarni Lárusson, deildarstjóri, hjálpa
litlum viðskiptavin, Ágústi Magna Þórólfssyni.
Áður en ég kom til Stykkis-
hólms, var mér sagt að hann
væri byggður á sjö hæðum
eins og Rómaborg. Og víst er
um það, að æði oft liggja göt
umar upp í móti, svo að svit
inn sprettur fram á ennið og
fæturnir þyngjast, þegar upp
er haldið.
En Stykkishólmur hefur
fleira merkt til að bera en
þetta tvífaramerki Rómaborgar.
Þar er t. d. eitt af elztu starf
ræktu bókasöfnum landsins,
Amtbókasafnið, sem stofnað
Sigurður Haraldsson,
kaupfélagsstjóri.
var 1847. Þar er elzta tvílyfta
hús landsins — „Norskahúsið"
er það kallað, og var byggt
af Ólafi Thorlacíus árið 1828.
Sótti hann viðinn í húsið til
Noregs á skútu sinni og var
aðeins hálfan mánuð í þeirri
ferð. Og ekki ená gleyma systr
um Franciskusarreglunnar,
sem starfað hafa í Hólminum
í áratugi og eru orðinn ríkur
þáttur í bæjarlífinu.
Verzlunarmál Sty'kkishólms
eru þáttur út af fyrir sig,
en þar epu nú reknar tvær
kjörbúðir. Kaupfélag Stykkis-
hólms á 'aðra þeirra, og er
hún mjög nýtízkuleg og full-
nægir öllum þeim kröfum, sem
í dag eru gerðar til kjörbúð-
ar. Á neðri hæðinni er ný
lenduvöruverzlunin, sjálfsaf-
greiðsla á mjólk og mjólkurvör
mm með tilheyrandi kælitækj
um, og sérstök xjötdeild með
djúpfrysti og kæiiborði, en
uppi á annarri hæð er álna
vöruverzlun, og auk þess skrif
stofur kaupfélagsins.
Nuverandi kaupfélagsstjóri i
Stykkishólmi er Sigurður Har-
aldsson, en hann tók þar við
stjórn á miðju ári 1963. Og
inni á skrifstofu hans ræddum
við um kjörbúð kaupfélagsins
og ýmiss önnur málefni bæj-
arins.
— Er þessi glæsilega kjör-
búð kaupfélagsins ekki ný af
nálinni, Sigurður?
— Við byrjuðum á breyting
unni i ágúst í fyrra, en verzl
un kaupfélagsins hér var þá
orðin 33 ára gömul. Vefnaðar
vörudeildin, sem er á annarri
hæð, tók síðan til starfa í
nóvember það ár, nýlenduvöru
deildin í byrjun desember og
kjöt- og mjólkurvörudeildin í
febrúar í vetur. Allar þessar
deildir eru með því fullkomn
asta, sem gerist úti á lands-
byggðinni, og fullnægir kjör
búðin öllum nútímakröfum
fólksins.
— Eg sé að mjólkursalan er
mikill þáttur í kjörbúðinni?
— Já, það má segja, að mjólk
ursalan sé grundvallaratriðið í
breytingunni, og við hefðum
haft kjörbúðina allt öðruvísi,
ef við hefðum ekki fengið
mjólkursöluna. Breytingarnar
voru því gerðar í saimráði við
Mjólkursamsöluna og voru
teikningamar af kjörbúðinni
samþykktar af forstjóra henn
ar, áður en hafizt var handa.
— Hverjir önnuðust mjól'k-
ursöluna í Stykkishólmi áður
en þessi breyting var gerð?
— Kaupfélagið hefur annazt
alla mjólkursölu fyrir bændur
í Stykkishólmi, og fór þessi
dreifing fram í ófullkomnu hús
næði við verzlun Sigurðar
Ágústssonar. Og þegar ákveðið
var að reisa mjólkurbúið í
Grafarnesi, sömdum við við
Mjólkursamsöluna um að hafa
mjólkursöluna áfraim og gerð-
um síðan ráð fyrir þeirri sölu
þegar við breyttum verzlun-
inni, eins og ég sagði áðan.
Og bændur voru í hæsta máta
ánægðir með það fyrirkomu-
lag, m. a. kom áskorun frá 18
af 19 mjólkurframleiðendum í
Helgafellssveit um að kaupfé-
lagið héldi áfram með dreif-
ingu mjólkurinnar, og var sú
áskorun greinileg viðurkenning
á því, að kaupfélagið hafi leyst
þessa þjónustu vel af hendi. —
En nú er sá draumur sem sagt
búinn.
— Búinn?
— Já, þegar við vorum bún-
ir að byggja þessa nýtízku kjör
búð, þar sem viðskiptavinirnir
geta fengið allar vörur á ein-
um stað, byrjuðu vissir aðilar
mikinn áróður gegn kaupfélag-
inu og mjólkursölu þess og
snéru þar við öllum staðreynd
um. En öll þessi læti urðu til
þess, að stjóm Mjólkursamsöl
unnar fór að kröfum þessara
aðila og tók af okkur mjólk-
ursöluna. Við munum því að
eins annast hana frarn að ára
mótum.
— Og ætlar Mjólkursamsal
an þá að annast söluna sjálf?
— Já, það mun vera ætlunin.
og þeir eru nú að byggja hér
skúrbyggingu á svipuðum stað
og gamla mjólkursölubyggingin
okkar var áður, þ e við aða'
torg Stykkishólms.
— Er það ekki furðuleg
„Iipurð“ af bæjaryfirvöldunum
að veita lóð undir slíka bygg-
ingu við aðaltorgið?
— Jú, maður skyldi ætla, að
dýrmætustu lóðirnar í mið-
depli bæjarins væru heppilegri
til annars en skúrbygginga
Það er útlit fyrir, að vissir að-
ilar ætli sér að byggja þarna
einhvert tehúsahverfi. sem að
sjálfsögðu brýtur niður skipu-
lag bæjarins, sem samþykkt
hefur verið af skipulagsstjóra
rikisins.
— Verður þetta nýja fyrir
komulag ekki til óhagræðis
fyrir framleiðendur?
— Jú, það liggur í augum
uppi, að kostnaðurinn við dreif
inguna mun stóraukast við
þetta nýja fyrirkomulag, eins
og forstjóri Mjólkursamsölunn-
ar hafði þegar komið auga ó,
þegar hann veitti kaupfélaginu
mjólkursöluleyfið, en stjóm
Mjólkursamsölunnar hefur nú
orðið að beygja sig fyrir
ákveðnum öflum, sem ekki virð
ast taka hið minnsta tillit til
hagsmuna framleiðenda.
— Og hvaða áhrif telur þú,
að þetta hafi á viðskiptavin-
ina?
— Með þessari ráðstöfun er
tvímælalaust verið að taka all-
mikla þjónustu af viðskiptavin
unum aftur, þar sem þeir geta
nú gert öll vöruinnkaup sín á
sama stað, sn þurfa í framtíð
inni að fara á tvo staði þeirra
erinda. Auk þess verður hin
nýja mjólkurbúð opin styttri
tíma en hjá okkur í kaupfélag
inu, og af því er einnig mikið
óhagræði. Auk þess veldur
þetta að sjálfsögðu kaupfélag
inu miklu tjóni, þar sem við
miðuuðum breytingarnar við
mjólkursöluna.
— En er ekki fólkið yfirleitt
ánægt með núverandi fyrir-
komulag?
— Jú, það virðist mér, enda
er mikið hagræði í því að
geta fengið allar sínar vörur
á sama stað og á sama tíma.
Þessi ráðstöfun Mjólkursamsöl
unnar er því alls ekki í þágu
neytenda, heldur vissra ann-
arra afla í Stykkishólmi.
— En svo að við snúum okk
ur að öðru, hvað er að frétta
af útgerð hér?
— Það er tvímælalaust vax
andi útgerð í Stykkishólmi
núna. í fyrravetur voru gerðir
út hér fimm bátar, en allt
útlit er fyrir að 7 bátar verði
gerðir út í vetur á vetrarver-
tíð, og er líklegt að 4 þeirra
leggi upp hjá kaupfélaginu.
Þetta hefur gefið okkur von-
ir um stöðugra atvinnulíf í
Hólminum í framtíðinni.
— Og byggingarframkvæmd
ir?
— Þær hafa verið óvenju-
miklar í ár, og hefur aldrei
verið byggt eins mikið á einu
sumri og nú, en alls munu 9
íbúoarhús vera í smíðum.
Fram að þessu hafa verið
óvenju litlar framkvæmdir í
Hókninum, en þessar bygging
ar benda til þess, að fólkið líti
nú bjartari augum á framtfð
armöguleika bæjarins — sagði
Sigurður kaupfélagsstjóri að
lokum. — EJ.
Starfsfólkið í kjörbúð kaupfélagsins í Stykkishólmi. F. v.: Bjarni Lárusson, deildarstjóri, Einar Stein-
þórsson, Jóhannes Guðjónsson, Sigurður Ól. Lárusson, Sigríður Lárenzínusdóttir, Vigdís K. Þórðar-
dóttir, Guðmundur Ó. Bæringsson og Kristrún Óskarsdóttir.
Séð yfir hluta af hinni nýju og glæsilegu kjörbúð Kaupfélags Stykkishólms.
, !P'
TÍMAMYNDIR-EJ