Tíminn - 14.10.1964, Blaðsíða 11

Tíminn - 14.10.1964, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 14. október 1964 TÍMINN gekk aftur eftir bátnum, snéru menn sér undan alvarlegir á svip. Þegar böðullinn kom að þóftunni, sem líkið var bundið yfir, hikaði hann og leit efablandinn á Courtney, sem kominn var aftur út að borðstokknum. — Til- búinn! Gerið skyldu yðar! skipaði hann og var á svipinn eins og maður. sem óttast að miðdegisverður hans kólni. Maðurinn með köttinn lét skottið renna um lófa vinstri handar, lyfti hægri óendi og lét höggin ríða yfir hið misþyrmda lík. Ég sneri mér undan veikur af viðbjóði. Bligh stóð við borðstokkinn og studdi höndunum á mjaðmirnar. Á honum sást engin svipbreyting. Höggunum rigndi yfir líkið og hvert þeirra rauf hina djúpu þögn eins og skammbyssuskot. Ég taldi höggin og fannst heil eilífð líða. En loks var öllu lokið — tuttugu og tvö — tuttugu og þrjú — tuttugu og fjögur. Ég heyrði skipunarorð, aftur gekk lífið sinn vanalega gang á skipinu og bátsmaðurinn blés til miðdegisverðar. Þegar við settumst að borðum, var eins og Courtney hefði gleymt þess- um atburði. Hann drakk skál Blighs og bragðaði á súpunni. — Hún er orðin köld, sagði hann gramur. Bligh réðist að súpunni, eins og hungraður úlfur. Það var bersýnilegt, að hann átti heldur að borða með hásetunum, því að borðsiðir hans voru hræðilegir. — Gerið ekkert, sagði hann. Verra var stundum um borð i „Poule“. — En ekki á Tahiti, mætti segja mér. Ég heyri sagt, að þér eigið að heim- sækja hinar innfæddu ungfrúr á Suðurhafseyjunum. — Já, ég verð sennilega lengi í þeirri heimsókn. Við verðum sennilega að dvelja þar nokkra mánuði, meðan við lestum brauðávaxtatré. — Það á vist að útvega þrælunum á Vestur-Indíum ódýran mat. Ég vildi sannarlega óska, að ég gæti fengið að vera með. — Það vildi ég líka. Ég gæti lofað yður skemmtilegum veiðiferðum. — Eru innfæddu heimasæturnar jafn fállégar og Cook skipstjóri lýsti þeim? — Já, það eru þær sannarlega, ef þér hafið enga andúð á brúna litn- um. Þær eru mjög fagurlimaðar og mjúkar í hreyfingum. Sir Joseph getur borið vitni með mér. Hann segir, að hvergi í heiminum séu eins fallegar konur, sem jafnist á við þær. Gestgjafi okkar stundi þungan: Segið ekki meira, segið ekki meira! Ég sé yður í anda undir pálmakrónunum með kvennabúr, sem soldáninn sjálfur mætti öfunda yður af. Ég var ennþá veikur eftir það, sem ég hafði verið sjónarvottur að, en reyndi að láta sem ég hefði góða matarlyst. Ég sat þögull meðan hinir rædd- ust við. Það var Bligh, sem fyrst vék orðum að hegningunni. — Hvað hafði maðurinn brotið af sér? sagði hann. Courtney setti frá sér rauðvínsglasið og leit upp eins og annars hugar: — Ó, þessi náungi, sem var húðstrýktur. Hann var einn af skipsmönnum Allisons skipstjóra á „Unconquerable,“ og mér var sagt, að hann hefði verið mjög duglegur. En hann gerðist liðhlaupi. Og Allison þekkti hann, þar sem hann kom út úr knæpu í Portsmouth. Maðurinn reyndi að flýja, en Allison greip í kraga hans. Þá fékk Allison blátt auga um leið og hópur sjóliða fór þar fram hjá. Þeir gripu sökudólginn, og eftirleikinn hafið þið séð. Okkar skip var fimmta skipið, sem hann var strýktur við. Hann þoldi ekki nema níutíu og sex högg. En Allison hefur bátsmann, sem er hreinasti snillingur í sinni grein. Hann er nautsterkur og auk þess örvhentur, svo að hann legg ur höggin í krákustíg. Bligh hlustaði á með áhuga og kinkaði kolli samþykkjandi Ekki nema það þó, barði yfirmann sinn. Hann átti skilið, það sem hann fékk og meira en það. Engin lög eru réttlátari, en þau lög, sem aga menn á sjó. — Er það alveg nauðsynlegt að við hafa slíka harðýðgi? spurði ég og gat ekki þagað lengur. — Hvers vegna var ekki vesalings maðurinn hengd- ur, svo að öllu væri lokið sem fyrst? — Vesalings maðurinn? Courtney snéri sér að mér steinhissa. — Þér eigið ennþá eftir að læra mikið. Hann harðnar eftir fyrsta árið sitt á sjónum, haldið þér það ekki, herra Bligh? — Ég skal reyna að sjá um það, sagði yfirmaðurinn á Bounty. — Nei, herra Byam, það má ekki sýna þessum þorpurum neina miskunnsemi. — Og munið það, sagði Courtney vingjarnlega — munið það, sem herra Bligh segir, að það eru ekki til réttlátari lög. Þau eru ekki einasta réttlát, heldur einnig nauðsynleg. Agi verður að vera, hvort sem er á herskipum eða verzlunarskipum, og uppreisnir og mótþróa verður að bæla niður með harðri hendi. — Já, sagði Bligh. Hernaðarlögin eru ströng, en þau eru aldagömul. Og þau hafa orðið mannúðlegri með árunum, bætti hann við, eins og honum þætti fyrir því. Það er hætt að kjöldraga menn, nema Frakkar halda þeim sið ennþá. Og skipstjóri hefur ekki framar leyfi til að dæma menn til dauða og láta framkvæma dóminn. Gestgjafi okkar sýndi mikinn áhuga á umræðuefninu. — Hernaðarlöggjöfin er jafngömul stjórnarskránni, sagði hann. É£ hef átt sæti í herrétij, oftar en einu sinni og er töluvert kúnnugur lögunúm. '■ Ég borðaði lítið, en drakk meira en ég var vanur. Ég var ennþá órólegur vegna þess, sem ég hafði verið sjónarvottur að og sat því þögull og hlustaði NÝR HIMINN - NÝ JÖRD EFTIR ARTHÉMISE GOERTZ 19 10. kafli. Loksins var þaS uppnám gleymt er heimsókn Viktors til Fagraness hafði vakið á heimilinu. Þeir, sem lent höfðu í slysinu, voru allir komnir heim, og þegar nokkrar vikur voru liðnar frá hinum ör- lagaþrungna atburði, hafði hann vikið úr hugum manna fyrir nýj- um tíðindum. Margt og mikið gerðist hvar- vetna í heiminum, jafnt á sviði stjórnmála sem uppgötvana. En íbúar Mandeville gáfu lítinn gaum að slíku. Þau tíðindi, er mest áhrif höfðu meðal sumargestanna var auglýsingaspjald nokkurt, er fest hafði verið upp á járnhliðið að Joli Bois, aðsetri Fauvette d’ Eaubonne. Hneyksli það, er skyndilega hafði vakið svo gífurlegan áhuga allra hefðarkvenna, fólst í fáorðri tilkynningu á nefndu spjaldi: Chambres á louer Pension. Og til frekara öryggis stóðu sömu orð þar fyrir neðan á ensku máli: Rooms and board — Fæði og húsnæði. Hún Fauvette — siðasti ai springur d‘Eaubonne ættbálks ins — þeirra sem dansað höfðu í veizlunni. sem sjálfur Lafayette hafði verið haldin ei hann heim- sótti New Orleans árið 1825. þeirra er snæti aöfðu aí gulldisk um með Henry Clay á St. Louís hóteli - Fauvette d'Eaubonne gat fengið af séi að auglýsa eftir kostgöngurum á tveim tungumál- um! Hér áður fyrr höfðu d'Eaubonn arnir látið fara vel um sig. Margs kyns öheppni átti sök á þ. í hvernig þeii voru nú komn ir. Fyrst höfðu jarðeignir þeirra fyrir norðan New Orleans eyði- lagzt í geysilegum flóðum Míssi- sippi. Byggingar, búfénaður, þræl ar, sáðkornið — allt, þar með margt af sjálfu ættfólkinu, öllu hafði stórfljótið skolað burtu. Þeir, sem eftir lifðu ættarinnar, höfðu naumast náð sér eftir ófar- irnar, er borgarastyrjöldin brauzt út. Og eftir hana höfðu jafnvel hin lægstu dýr svarizt í fóstbræðralag gegn d'Eaubonnes fólkinu. Eina nóttina hafði hinn ægilegi leiráll komizt inn á sykur reyrsakrana. Og frá sólsetri til dagsmála þá sömu nótt var allt gereyðilagt á þeim, svo að ekki stóð ein einasta reyrjurt eftir. Og loks hafði faðir Fauvette látist af hjartaslagi, hnigíð niður í baðm- ullarkauphöllinni þegar æsing- arnar brutust út árið 1894. Móðir Fauvette hafði barizt við fátæktina bað sem eftii var æv- innar, og reynt að halda virðingu sinni. Og yfirskini velmegunar tókst henni nokkrun veginn að viðhalda, meðal annars með því að hafa miðdegisboð og vera þar broshýr og höfðingleg húsfreyja. Þegar læknirinn gekk inn, var Fauvette niðursokkin í að spila póker við herra Néron Paviot, sem var lífið og sálín í hinu nýja fyrirtæki hennar. Hann var hinn álitlegasti maður og alltaf á hött- 1 unum eftir viðskiptavinum við olíufélag sitt. Allir aðrir, þeirra sem þarna höfðu dvalizt eftir slys ið, voru farnír heim, en herra Paviottáti átti hvergi eiginlegt heimili. Hafði hann talið Fauvette á að stofna sumarhótel og tekið sér þar aðsetur sjálfur, fyrstur gesta. Án efa hefir það verið miður glæsilegt ytra útlit Fauvette, sem var rauðhærð, freknótt og flatvax in, er varnaði því að nokkrum kæmi til hugar að tala tíla nm hana, þótt hún byggi alein í hús inu með ókunnum manni. — Gott kvöld, herra læknir, mælti herra Paviot og reis úr sæti. Sandur og vatn hafði verið hreinsað úr buxum hans og síð- frakka, en ætíð barmaði hann sér yfir að hafa misst skó og silki- hatt. Læknirinn óskaði honum þó til hamingju í hljóði með að hafa ekki misst hárkollina. Var skipt ing eftir henni miðri og snyrti- legir líðir yfir enni. í stað lakk- skónna hafði hann fengið sér tenn isskó. Þegar þeir höfðu tekizt í hend ur, afsakaði herra Paviot að hann yrði að hverfa frá, þyrfti að fara til pósthússins. Kvaðst núast við bréfum frá Caddo Parish, þar sem olíuborun skyldi bráðlega hefj- ast. — Þér eruð gangandi? mælti fr. Fauvette í spurnarrómi. — Eg varð ekki vör við, að neinn vagn staðnæmdist fyrir utan. — Já, veðrið er svo gott. Hann gat þess ekki, að Sep hefði verið hegnt fyrir að aka vagninum út að Fagranesi í óleyfi frænku hans — Þér hafið ekki komið aftur að Fagranesi? — Nei, ég hef ekki haft tfma til þess. Sjúklingarnir lýstu því allir yfir, að þeim liði vel eftir þessa einu heimsókn mína. Ekki veit ég, hvort ég hefi læknað þá. eða hvort þeir hafa orðið hræddii við mig. — Það er Mirjam, sem málað hefur letrið á spjaldið úti, sagði Fauvette. — Annars leggur hún ekki þess háttar fyrir sig, en hún gerði það fyrir mig. — Hvað málar hún annars helzt? spurði Viktor. — 0, landslag. Og kyrralífs- myndir. Faðir hennar kenndi henni. — Hvar er faðir hennar? glopp- aðist út úr honum. — Hann dó úr taugaveiki. Það var í Froissy, litla þorpínu rétt fyrir utan París. Þau þögnuðu bæði. Lækninum var Ijóst, að Fauvette var í vafa um, hversu mikið hún ætti að segja, og sjálfur vissi hann ekki. hve langt var þorandi að ganga í spuminum. — Hver skyldi það eiginlega vera, sem vill, að þær flytji sig? spurði hann eftir nokkra þögn. —Ég varð fyrir tilviljun vitni að andstyggilegri misþyrmingu á dýri, sem átti að verða eins kon- ar töfragripur til að koma þeím burt. — Hverj^r . . . . ó, þér eigið við Palmýru og dóttur hennar? Ja, það eru svo til allir. En sér í lagi .... Hún hikaði við. - Nú? — Nú, já einn áf skyldmenn- um yðar — Júlíen. Hann hefur haft augastað á jörðinni og lang- mjög til að ná í hana. Líka Bidault — af sömu ástæðu. Dætur Chamberts dómara, ekki síður en frú Larouche, sem er nú farin til New Orleans og hefur í hyggju að koma ekki aftur, fyrr en þær eru farnar. Ellegar frú Vigée. . . Eða Olympe? hugsaði Viktor. Eða Nanaine? Og þó. Nanaine var allt of mikil trúkona til þess að vilja fást við töfragripi og særingar. — Ef til vill er það hinn mikli Zombien sjálfur — Fauvette hló. — Hann heldur kannski. eins og allir aðrir, að dómarinn hafi dáið af því að sjá Palmýru aftur. Zombien hefur kannski ekki vilj- að missa af þeirri anægju

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.