Tíminn - 13.11.1964, Page 2

Tíminn - 13.11.1964, Page 2
FÖSTUDAGUR 13. nóvember 1964 14________________________________ hendi, á árunum 1887 og 1888, þegar hann er 23 ára. Einnig byrj- aði hann nú á þýðingu sinni á Pcer Gynt Ibsens, — Pétri Gaut — þótt á henni yrði síðan langt hlé. Þegar Einar fer utan öðru sinni, til að Ijúka lögfræðinámi, 1890, stefnir hann því á skáldabrautir. Hann á hlut r.5 því ásamt nokkr- um öðrum íslenzkum Hafnarstúd- entum að hrinda af stokkum nýju tímariti, Sunnanfara, vorið 1891. Þar birti Einar allt frá upphafi allmörg kvæði eftir sig, er sum hver vöktu mikla athygli. Þar með varð hann fyrst kunnur sem skáld. Árið 1892 stofnuðu þeir Þorleifur H. Bjarnason svo annað tímarit, Útsýn, er flytja skyldi þýðingaval ljóða og lauss máls úr heimsbók- menntun 19. aldar, koma út í 6 heftum árlega og hvert þeirra helgað einu landi. f fyrsta heftinu voru þýðingar úr bókmenntum Bandríkja Norð- ur-Ameríku. En þar sem Sunnan- fari stóð um alllanga hríð, kom aldrei nema þetta fyrsta hefti af Útsýn, enda gengu báðir útgef- endur undir háskólapróf þá um voríð. Það er því ljóst, að Einar hef- ur ekki verið einhuga við lögfræði- námið í þetta sinnið fremur en hið fyrra, enda ber prófseinkunn því vitni. En Útsýn er fyrsta sjálf- stæða rit, sem Einar stóð að, og, ásamt frumútgáfu þýðingar hans á Pétri Gaut, fágætust þeirra bóka, sem hann áttí hlut að. Hann kemur sem sagt heim nýbakaður lögfræðingur og upp- rennandi skáld 1892. Næstu tvö ár er hann aðstoðarmaður föður síns við sýslumannsembættið nyrðra, um skeið settur til að gegna því. Þarna gekk Einar frá Úrvalsrit- um Sigurðar Breiðfjörðs, sem út komu á forlagi Gyldendals 1894. En það hafði verið eitt sinn á Hafnarárum, er Einari var féfátt, að hann gekk á fund eins forráða- manns Gyldendals og sagði, að Robert Burns íslendinga væri óút- gefinn, og þjóðin krefðist þess að fá helztu verk hans í hendur. Var þá þessum óþekkta stúdent falið að búa til prentunar úrvals- rit Sigurðar Breiðfjörðs og hon- um goldin nokkur fyrirfram- greiðsla af stærsta útgáfufélagi Danmerkur. Einari hefur snemma verið lagin sú list að tala fyrir máli sínu með því sannfæringar- afli, að ómótstæðilegt var. En þess var ekki að vænta um svo sjálfráðan mann og fram- gjarnan, að hann yndi til lang- frama í skjóli föður sins, sem auk þess tók að gerast valtur í sessi. — Ég vil hafa hærra spil, hætta því, sem ég á til. — Alls má freista. Eitt ég vil. Upp með taflið. — Ég á leikínn. Einar flyzt nú suður til Reykja- víkur 1894 og byrjar þar með að sjá sér farborða sjálfur. Hann átti síðan heimili í Reykjavík næsta áratug, þótt það hefði alls ekki verið ætlunin að setjast þar að. Hann hafði sem sé sótt um Rang- árvallasýslu, sem þá var laus, en annar hlaut hana að þessu sinni, rétt eftir að Einar var suður kom- inn. Hefur, honum nú komið í koll að hafa ekki hlotið hærra lögfræðipróf. Hið sama varð uppi á teningnum, þegar hann sótti fá- um árum seinna árangurslaust um málflutningsstarf við landsyf- irdóminn (1896) og um Skaga- fjarðarsýslu (1897). En þá voru tvö málflutningsemb- ætti við landsyfirréttirin, og hlaut Eínar loks annað þeirra 1898. Undanfarin 4 ár hafði hann verið „praktíserandi lögfræðingur“ í Reykjavík, sem við komu hans þangað taldi aðeins um 4.100 íbúa, svo að varla hefur það verið sérlega arðvænlegt. En það kom fljótt í ljós, að Einar kunni að bjargast býsna vel á eigin býti. Hann hóf m.a. fasteignasölu og var brautryðjandi í þeirri við- skiptagrein hér á landi. En fram- an af litu menn þessa nýstárlegu kaupsýslan ærið illu auga, kölluðu hana húsabrask og öðrum niðrun- arnöfnum. Einnig gerðist Einar út- gefandi blaðs og ritstjóri, sem síðar getur nánar, og fleiri járn hafði hann í eldinum. En varðandi lögfræðiþáttinn í lífi hans er vert að minnast þess, að þeir feðgar höfðu um það rætt heima á Héðinshöfða, að til við- bótar lögfræðinni skyldi Einar lesa læknis- og sálsýkisfræði og gerast sálfræðilegur glæpamálasér- fræðíngur: krímínólóg. Eftir að hann var nýlega kominn til Reykjavíkur hélt hann til Lun- dúna, senmma áís 1895, meðal annars í þessu skyni og tók þá að leggja nokkra stund á þessi efni, þótt skammvinnt yrði. En þetta sýnir m.a., inn á hve mann- legar brautir lögfræðin gat beint Einari Benediktssyni. Meðan Einar var enn án fastr- ar stöðu, lét hann prenta fyrstu bók sína, Sögur og kvæði, 1897. En árið eftir að hann hlaut lög- mannsstarfið við landsyfirdóminn, festi hann ráð sitt, gekk að eiga Valgerði, dóttur Einars Zoega veitingamanns í Reykjavík og Mar- grétar Tómasdóttur Klog. Voru þau Einar gefin saman á 18. af- mælisdegi hennar, en Einar þá nærfellt hálffertugur. Frú Val- gerður var glæsileg kona, er sómdi sér vel við hlið Einars og þurfti oft fyrir umsvifamiklu heimili að standa. Ilún ól Einari 6 börn, þrjá syni og þrjár dætur. Hétu öll börnin tveimur nöfn- um, og átti síðara heitið að vera „kenninafn“, sem kæmi í stað föður- eða ættarnafns; og var sú hugmynd frá Einari runnin, og valdi þetta flugmikla skáld fugla- heiti að kenninöfnum flestra barn- anna. Elzta dóttirin, Margrét Svala, lézt 1929, og minningu hennar tih einljaði Einar síðustu ljóðabók sína, Hvamma. Hin fimm börnin lifðu föður sinn. Tvö þeirra hafa nú fallið frá eftir hans daga, Stefán Már og Einar Valur. En þrjú eru á lífi og öll erlendis: Benedikt Örn og Katrín Hrefna í Bandaríkjunum og Ragnheiður Erla í Lundúnum. Einar kaus að eiga fyrstu hjú- skapardaga sína á Þingvöllum. En í Reykjavík bjuggu þau Valgerður fyrstu árin í stórhýsi Einars, Glas- gow við Vesturgötu. Hann seldi það 1902 fyrir 25 þúsund krónur, sem var þá geipifé, eins og ljóst er af því, að fastalaun lögmanns við landsyfirdóminn námu 800 krónum og gátu komizt upp í 1500 krónur á ári með þóknun málsaðila. Einar var því tekinn að hafa nokkuð umleikis, þegar hér var kortiið. Skáldhróður hans fór nú einnlg vaxandi, eínkum við kvæðaflokk- inn Aldamót. Stúdentafélag Reykjavíkur hafði efnt til sam- keppni um aldamótaljóð og heit- ið 100 króna verðlaunum fyrir þau sem dæmdust vera bezt. Alls bár- ust tíu kvæði eða flokkar. En það var einróma álit dómnefndar, að flokkur Einars væri langbeztur. Var hann síðan fluttur opinber- lega í Reykjavík aðfaranótt nýárs dags 1901. Sagt er, að viðstaddir hafi verið flestir bæjarmenn, þeir er fótavist höfðu og þurftu ekki að gæta ljósa í heimahúsum. Þótti þessi hátíð öll hin eftirminnileg- asta. — Minni athygli almennings hef- ur vakið frumútgáfa afburðaþýð- ingar Einars á Pétrí Gaut, sem prentuð var í aðeins þrjátíu tölu- settum eintökum 1901 og ýmis þeirra seld úr landi, enda verðið ofsahátt, 100 krónur eintakið, svo að þetta mun vera einhver dýr- asta bók, sem út hefur verið gef- in hérlendis, önnur en Guðbrands- biblía. En sitthvað gerðist um þessar mundir, sem afdrifaríkt varð fyr- ir skáldið. Einar ferðaðist jafnan mikið og fór svo oft milli landa, að þar mun enginn íslendingur komast til jafns við hann fyrir eða um hans daga. M. a. fór hann um þrjár heimsálfur og þrisvar til Vesturheims. Allur þorri þessara ferðalaga var í viðskiptaeríndum og flest farin síðar en hér er kom- ið sögu, þótt þegar væru þau orð- in býsna mörg. En sum voru skemmtiferðir, auk námsferðanna. Og skömmu eftir aldamót bauð erlendur vinur hans honum með sér til Ítalíu (1903), og Einar bauð konu sinni með sér til að sjá æskustöðvar hans í Þingeyjar- sýslu, en slíkar ferðir voru þá jafn fátíðar sem þær eru nú al- mennar. Upp af þessum ferðalög- um báðum spruttu mörg og mik- il kvæðí, en um þetta leyti, er Einar var um fertugt, hefur hann verið einstaklega næmur og frjór, þótt vissuléga væri hann það löng- um, bæði fyrr og síðar. Þessi kvæði birtust í annarri ljóðabók hans, Hafbliki. En þegar hún kom út, 1906, var Einar orðinn sýslu- maður í Rangárvallasýslu. Henni gegndi hann þrjú ár, 1904—1907. Á þessum tímum þótti það sjálfsagt lögfræðingi að verða sýslumaður, ef hann átti þess nokkurn kost. En sízt var þó Ein- ari sérlega gjarnt að feta troðn- ar slóðir. Aðallega mun hann hafa þráð nýtt umhverfi, í sveit, og næði til að geta betur gefið sig að skáldskap sínum. En auk emb- ættisstarfa fór mikill tími til stórmannlegrar bústofnunar á Stóra-Hofi, sem Einar keypti. Líklega hefur hann átt þarna einna ánægjulegast heimilislíf á ævinni. En ekki aðeins skáldinu þótti þarna of þröngt um sig til langframa, heldur einnig og ekki sízt athafnamanninum. Árið 1907 sótti Einar um lausn frá embætti og hlaut hana, bar við fótarmeini. En til dæmis um búskapinn eystra er, að þegar þaðan kom, seldi Ein- ar á uppboði í Reykjavík á annað hundrað hrossa, og til dæmis um urnsvifin eða umbrotin, að 1907 fór hann alls 8 ferðir milli landa. Einar hafði nú verlð embættis- maður eða opinber starfsmaður tæpan áratug, en varð það aldrei síðan. Hann naut lítilsháttar eft- irlauna, og löngu síðar hlaut hann- skáldalaun. En nú fluttist hann utan með fjölskyldu sína. Átti hann síðan. heimili erlendis frá 1907 til 1921, fyrst í Edinborg, en lengst í Kaup- mannahöfn og Lundúnum, nema hvað hann var með skyldulið sitt í Reykjavík eitt ár við upphaf heimsstyrjaldarinnar. Bjó hann þá í húsi, er hann festi kaup á og stendur á fögrum stað niður við vogana fyrir austan bæinn. Skírði hann það Héðinshöfða, en er nú oft kallað Höfði. Á utanvistarárunum kom Ein- ar iðulega heim, jafnvel oft sum árin og stundum með fjölskyldu sína. Þetta urðu mestu velgengn- isár hans í veraldlegum efnum. Á þessu skeiði gaf hann út eina ljóðabók, Hrannir 1913, og aðra við lok þessara utanvistarára, Voga 1921, og árið eftir var prent- uð almenningsútgáfa af endur- skoðaðri þýðingu hans á Pétri Gaut Ibsens. Eftir heimkomuna um áramót 1921-22 átti Einar síðan heimili í Reykjavík til 1930, þótt enn færi hann alloft utan. Nú var fé mjög af honum gengið. Settist hann þá að í húsinu Þrúðvangi við Laufásveg, þar sem Mennta- skólinn í Reykjavík hefur nú í seli. En það var þá eign tengda- móður hans, og þar stóð heimili hans, fagurlega búið, til 1927. En þá gerði frú Margrét þeim Einari og Valgerði að flytjast þaðan með stuttum fyrirvara. Hafði löngum verið fátt í kærleikum með þeim Einari og tengdamóður hans, þótt í rauninní bæru þau virðingu hvort fyrir öðru, en til að mynda þéruðust þau ávallt, og mun Ein- ar hafa valdið þar meiru um. Nú settust þau Valgerður að í 2 herbergjum í húsi við Veltusund. Máttu þau þá muna fífil sinn fegri. Þarna leystist heimili þeirra upp. Þau fóru saman til Noregs, en þaðan kom Eínar einn saman 1928. Þar með var samvistum þeirra lokið, eftir nærfellt þriggja áratuga hjúskap. Síðan átti frú Valgerður lengstum heima erlend- is, síðast í Ósló, en lézt í Reykja- vík 1955. Það hefur ekki verið vandalaust hlutverk að vera eiginkona Ein- ars Benediktssonar, tíðir híbýla- flutningar, oft landa á milli, heim ilisfaðirinn i sífelldum ferðalög- um, en þegar hann var heima oft gestanauð mikil og stórveizlur, ýmist auðsæld eða skortur, og eig- inmaðurinn margskiptur milli fjölskyldu, framkvæmdastarfa og skáldskapar. Virðast afkomuörðug- leikar hafa valdið miklu um skiln- að þeirra. Síðar sagði frú Valgerð- ur fyrir endurminningar sínar af Einari af miklum hlýhug í hans garð. En um sama leyti og hjúskap- arslitin urðu, lágu saman leiðir Einars og annarrar konu, er síðan varð stoð hans og athvarf. Það er Hlin Johnson, dóttír Jóns Eldons Erlendssonar frá Garði í Keldu- hverfi. Á fermingaraldri hafði hún séð Einar í Þingeyjarsýslu og ekki gleymt honum síðan, og Ijóð hans urðu henni hjartfólgin. Síð- an giftist hún og bjó bæði vestán hafs og austan, en var skilin fyrir allmörgum árum, fimmtug og átta barna móðir, sem öll voru komin af höndum, þegar kynni þeirra Einars tókust svo, að ekki skildi með þeim eftir það. Verður í minnum höfð sú umönnun, er frú Hlín veitti honum, er hann þurfti hennar mest með’og heilsu hans tók að hraka. Hann var þó enn allvel hraust- ur, þegar hér var komið, en fjár- hagur þröngur. Árið 1927 rituðu kennarar heimspekídeildar Há- skóla íslands og forseti Hins ís- lenzka bókmenntafélags Alþingi

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.