Tíminn - 15.11.1964, Blaðsíða 1
Rlfrildlð af fiskunum, er kom í vatnsleiSsluna í Efsta sundi 35.
Tímamynd GE. P
Soðningin úr
Skattalög-
reglan að
hefja starf
KJ—Reykjavík, 14. nóv.
Blaðið hefur haft fregnir af
því að rannsóknardeild ríkisskatt-
stjórams sé farin að glugga í bók-
hald fyrirtækja, með tilliti til
skattaframtala sem fyrirtækin
hafa skilað.
Af þessu tilefni hafði blaðið sam
band við rannsóknardeildina, og
spurðist fyrir um starfsemina For
svarsmaður vildi heldur lítið gefa
út á spurningar blaðamannsins,
sagði að stofnunin væri ung, og
varla hægt að segja að starfsemin
væri hafin fyrir alvöru. T.d. hefði
stofnunin verið að flytja í nýtt
húsnæði á dögunum og tíminn
færi því aðallega í að koma röð
og reglu á hlutina. Hins vegar
neitaði forsvarsmaðurinn ekki að
eitthvað væri farið að vinna að
því að rannsaka framtöl en vildi
að öðru leyti ekki segja frekar
um málið á þessu stigi.
Eins og lesendur rekur eflaust
minni til þá var þvi lofað, og
reyndar var gerð þar um laga-
samþykkt, að skattalögregla yrði
sett á laggirnar til að rannsaka
framtöl, sem bærust skattstjórun
um, niður í kjölinn, og nú er þetta
orðið að veruleika þótt hægt sé
farið fyrst í stað. Er ánægjulegt til
,þess að vita að loks sé kominn a’ð-
ili í landinu sem beinlínis er sett-
ur til höfuðs skattsvikurum
MB-Reykjavík, 14. nóvember.
Vatnsveitan virðist vera far
in að gefa borgarbúum ókeypis
soðningu. Hefur hún sent a.
m. k. einum borgara silung
heim eftir vatnsleiðslunni og
vildi fyrir engan mun fjarlægja
skepnuna og varð maðurinn að
fá til kunningja sinn til að ná
henni úr Ieiðslunni, eftir að
hafa hringt í flesta síma Vatns
veitunnar og tvisvar í suroa.
Á miðvikudagskvöldið varð
Einar Vigfússon, er býr í Efsta
sundi 35, var við það, að vatns
leiðsla í baðherbergi var stífl
uð. Rann hvorki vatn i vatns-
kassa salernis né í handlaug-
ina. Þótti honum illt við þetta
að búa og sneri sér til Vatns-
veitunnar. Hringdi hann fyrst
til skrifstofunnar á fimmiudags
morguninn, en þar var bonum
vísað á að tala við verkstjórann.
Sá visaði honum á annan að-
ila, þann er gerir við bilaða
krana. Sá vísaði enn á annan.
Eftir að Einar hafði hiingt í
fimm síma og enga úrlausn
fengið gafst hann upp í bili
og dáðist með sjálfum sér að
skipulagi hins opinbera.
Skömmu síðar hringdi kona
hans, sem ekki vildi .'.na ástand
inu, að nýju í hinn sama verk-
stjóra og maður hennar hafði
hringt í, og kom hann þé al-
deilis af fjöllum og hafði ekki
heyrt um neina bilun í Efsta
sundi 35. Varð enn lít.ið um
framkvæmdir þar af hálfu hins
opinbera.
Einar vinnur við dyravörzlu
hjá Ríkisútvarpinu síðdegis og
sem hann sat þar á kvöldvakt-
inni minntist hann þess að
hann átti kunningja, sem var
pípulagningarmaður og hafði
hann oft gert Einari greiða.
Hringdi Einar nú í hann og
brást hann vel við. Ko-n hann
heim með Einari, er kvöldvakt
inni var lokið 3 fimmtudags-
kvöldið, um miðnættið, cg tók
þegar til starfa. Tók hann í
Framhaid á 15 síðu.
VETUR
NYRÐRA
MB-Reykjavík. 14. nóvember.
Halda Bandaríkjamenn
gognum í Vallarmálinu?
Reykiavík, 14. nóv.
Tíminn fékk upplýst í gæi, að
Keflavíkurflugvallarmálið er enn
ekki komið til saksóknara ríkis-
ins. Málið liggur þvi enn óklárt
hjá Ólafi Þorlákssyni, sakadómara,
sem annaðist rannsókn þess, en I lengur kenndur við þá alræmdu
hann segir tíðindalaust hjá sér. vélritun, sem stóð gangi þass fyr-
Ekki er annað sjáanlegt en ir þrifum Iengi vel.
hnútur sé kominn á málið því Sannleikurinn mun sá, að enn
drátturinn á því að fá það iiend hefur ekki tekizt að ljúka rann-
ur saksókn-ara ríkisins verður ekki I sókn málsins, þrátt fyrir þaö, að
FÆRRA Ft SLÁTRAÐ í ÁR
MB-Reykjavík, 13. nóvembei
Heldur færra fé var slátrað hér
lendis í haust en í fyrra, en
kjötmagn mun vera álíka. þar eð
dilkar voru yfirleitt talsvert vænni
nú en þá.
Blaðið átti i dag tal við Jón-
,nund Ólafsson, yfirkjötmatsrcann,
og spurðist fyrir um þessi mál.
Jónmundur kvað endanlegav tölur
ekki liggja fyrir enn þá, þar eð
skýrslur væru enn að berast utan
af landi. Þó væri auðséð að
færra fé hefði verið slátrað nú
en í fyrra. Kjötmagn myndi hins
vegar vera litlu minna, þar eð
dilkar hefðu yfirleitt verið mun
vænni nú en þá. Mestur væri mun
urinn á svæðinu frá Blönduósi,
austur um til Langaness, en dilk
ar á því svæði voru mjög slæmir
i fyrra, en þá gerði þar mjög
vond hausthret. eins og flestum
er í fersku minni. Hvað minnstur
mun munurinn vera á Vesturlandi
en eins og fyrr segir eru dilkar
yfirleitt vænni um allt land en
þeir voru í fyrra.
nú fer að verða ár liðið fra því
hún hófst. Þættir Keflavíkutvallar
málsins, eins og pósthúsmálið,
hafa leitt til sérstakra og óvæntra
ráðstafana, eins og frystihúskaups
Pósts og síma, og liggur nokkuð
Ijóst fyrir. Hins vegar tefst það
líka, vegna tengslanna við hið
eiginlega Keflavíkurvallarn’ai.
Sá sem einkum hefur veriö orð
aður við Keflavíkurvallarmálið
hefur gerzt æði umsvifamikill und
anfarið. þýtt sakamálabók og
stefnt þremur blöðum landsins
fyrir samtals um tvær milljónir
króna. Þetta mun hann byggja á
því, að í ljós muni koma að ekki
verði unnt að höfða mál á hend
ur honum. Kemur cöfin 3 máls-
rannsókninni heim við þetta Það
virðist þvi sem helzti sakaraðili
Framhald á 15. síðu
Vetur konungur virðist nú
genginn í garð á Norðurlandi,
um stundarsakir a. m. k. f
morgun var norðaustanátt og
víðast hvar snjókoma með 4—
6 stiga frosti frá Breiðarirði og
austur um suður á Austfirði
Knútur Knudsen veðurfræð-
ingur sagði blaðinu laust fyrir
i hádegið, að frost væri komið
! um allt land, nema í Skafta-
! fellssýslum, þar væri hiti um
i eða rétt yfir írustmarki. Norð
j austlæg átt var þá um allt land
| og frost 4—6 stig um norðan
vert landið. Éljagangur og snjó
koma var frá Breiðafirði og
austur um, suður á Áustfirði,
en yfirleitt ekki mjög hvasst.
Blaðið spurðist fyrir um
! það hjá Vegamálaskrifstofunni,
| hvort fréttir hefðu borizt þang-
! að af því að vegir hefðu spillzt.
Snæbjörn Jónasson, verkfræð-
ingur, kvað fréttir af því ekki
hafa borizt, en búast mætti við
því, að hæstu fjallvegir lokuð
ust í áhlaupinu, s. s. Siglufjarð
i arskarð, Möðrudalsöræfi o fl.
í Guðmundur Sveinsson, frétta
ritari blaðsins á ísafirði, kvað
! þar ekki vera snjókomii, en
éljaslitring i næstu fjöJium.
Breiðadalsheiðin er enn þs fær
og komu bílar að sunnan í
morgun.