Tíminn - 15.11.1964, Blaðsíða 16
Sunnudagur 15. nóvember 1964
232 tbl.
48. árg.
Olga er fyrirmynd
Láru I dr. Zhivago
FB-Reykjavík, 14. nóv.
Saga Olgu Ivinskayu, einkarit-
ara félaga Boris Pasternaks er að
mörgu leyti óþægilega lík sögu
kvenhetjunnar Láru í bók skálds-
ins Dr. Zhivago, en í síðasta blaði
Time segir, að Olgu hafi verið
sleppt úr fangabúðum að nýju, og
fyrsta deginum í Moskvu hafi hún
eytt við gröf hins látna vinar síns,
Pastemaks.
„Gátur lífs eða dauða, töfrar
snilligáfu og fegurðar — þetta
voru hlutir, sem við hugsuðum
um“, sagði hin fagra Lára grát-
andi yfir líki elskhuga síns, dr.
Zhivago. „En vandamál hversdags
lífsíns — endurskipulagning plán-
etunnar — þess konar mál, nei,
þakk ykkur fyrir, við hugsuðum
ekki um þau“.
Skömmu síðar var söguhetja
skáldsins Boris Pasternak í hinni
miklu skáldsögu hans handtekin,
og það gerði sovézka leynilögregl-
an „og dó ef til vill eínhvers stað-
ar gleymd eins og nafnlaust núm-
er á lista, sem síðan hafði lent á
flækingi, í einum af fangabúðun-
um fyrir norðan“.
Örlög Láru í skáldsögunni virt-
ust hafa spádómsmátt. Eftir dauða
Pastemaks sjálfs árið 1960, hand-
tók leynilögreglan, sovézka, Olgu
Ivínskayu, hina laglegu ljóshærðu
skáldkonu, sem verið hafði hin
mikla ást, sálufélagi, bókmennta-
legur ráðunautur og einkaritari
Pasternaks — fyrirmynd skáldsins
að hinni blíðu og höfðinglegu
Láru. Þetta var í annað sinn, sem
Olga hafði orðið að greiða fyrir
tryggð sína: eftir að Stalínstjóm-
in ásakaði Pastemak fyrir villu,
eyddi hún fjómm árum í fanga-
búðum, og var ekki leyst úr þeim
fyrr en við sakaruppgjöfina eftir
dauða Stalíns árið 1953. Fyrir
nokkru, ef til víll sem afleiðing
af brottvikningu Krastjoffs, var
Olga, sem nú er 59 ára gömul,
látin laus aftur.
Framhald á 15. síðu.
Bora eftir heitu
vatni í Sælingsdal
MB-Reykjavík, 14. nóvember.
Tilraunaboranir era nú að hefj-
ast á vegum Jarðhitadeildar Raf-
orkumálaskrifstofunnar á Laugum
í Sælingsdal. Á þessu svæði hefur
ekki verið borað áður eftir vatni,
en heitt vatn seitlar út úr bergi
þama.
Vatnið, sem seitlar út úr berg-
inu, er um 50 stiga heitt. Vont er
að komast að þeim stað, sem
heita vatnið er, og verður að bora
nokkuð frá því. Jón Jónsson, jarð
fræðingur, sagði, að borað yrði
100 metra djúp hola til að byrja
með.
Myndin er tekin af Olgu við líkbör-
ur Boris Pasternaks.
Reykjaneskjördæmi
Kjördæmisþing Framsóknar-
manna í Reykjaneskjördæmi verð
ur haldið að Hlégarði í Mosfells-
sveit í dag 15. þessa mánaðar og
hefst það kl. 9.30 árdegis.
Auk venjulegra þingstarfa
verða á þinginu flutt erindi um
helztu atvinnuvegi þjóðarinnar og
Jón Skaftason, alþm. flytur ræðu
um stjórnmálaviðhorfið
Framsóknarmenn í Reykjanes-
kjördæmi era hvattir til að fjöl-
menna á þingið.
Stjórnin
Fundur í Framherja
Fundur verður haldinn í Fram-
herja, félagi launþega, í dag
15. nóvember í Tjarnargötu 25
og hefst kl. 2 e.h. Dagskrá: Rætt
um verkalýðsmálin í dag — Sýnd-
ar verða skuggamyndir frá Nor-
egi Félagar fjölmennið. Stjórn
ÞRÁTTAÐ UM SAMASTAÐ HÚSS
MB-Reykjavík, 14, nóvember.
Gamalt hús hefur orðið all-
mikið hitamál suður i Hafnar-
firði, eða öllu heldur ákvörð-
un bæjarstjórnar þar um að
setja húsið niður i hverfi, þar
sem einungis eru nýbyggð hús.
Er gamla húsið nú orðinn
strandaglópur og stendur á
tunnum við Keflavíkurveginn
nýja, rétt hjá vegamótunum
við Engidal, og bíður þess að
sættir náist um einhvem sama-
stað fyrir það.
Hús þetta er meira en hálfr-
ar aldar gamalt, en ætlunin
var að setja það niður í Grænu-
kinn 27. Þar í hverfinu eru
engin aðflutt hús og fannst
íbúum Kinnahverfis því hið
gamla hús stinga illilega í
stúf við hin nýju hús í hverf-
inu. Fór svo að um 70 íbúar
hverfisíns skrifuðu undir mót-
mælaskjal gegn fyrirhuguðum
flutningum. Málið kom til um-
ræðu í bæjarstjórn og mót-
mæltu fulltrúar minnihluta
flokkanna, Jón Pálmason, bæj-
Framhald á 15. síðu.
Gamla HúsIS stendur á tunnum vlS Ketlavíkurveginn, meSan melrihluti bæjarstjórnar HafnarfjarSar
reynlr aS troSa því meSal nýrra húsa í Klnnahverfinu. 1 (Tímamynd KJ).
kIÍSSIísíS
370 FULLTRUAR
Á ASÍ-ÞINGINU
EJ-Reykjavík, 14. nóvember.
Klukkan 4 sfðdegis á mánudag-1
inn mun Hannibal Valdimarsson, j
forseti Alþýðusambands íslands, !
setja 29. þing sambandsins í KR-I
húsinu. Þingið, sem er hið fjöl- j
mennasta í sögu Alþýðusambands-
ins, mun standa yfk í nokkra daga
en ekki er venja að afmarka því
ákveðinn fundartíma fyrirfram.
Alls vora nú kjömir um 370
fulltrúar á 29. þing Alþýðusam- j
bands fslands, en á þínginu árið '
1962 vora um 330 fulltrúar, auk j
33 fulltrúa verzlunarmanna. Er
þetta því fjölmennasta þingið,
sem ASÍ hefur haldið til þessa.
Margir telja, að þing Alþýðu-
sambandsins séu orðin alltof fjöl-
menn, og hefur forseti ASÍ sjálfur
sagt, að þau séu orðin of þung í
vöfum. Mikið hefur verið rætt um
ýmsar skipulagsbreytingar, sem
geri það að verkum, að færri full-
trúar þurfi að mæta á Alþýðu-
sambandsþing, en lítið hefur orðið
úr framkvæmdum enn sem komið
er. Ríkir alger óvissa um, hvort
verður á undan, einhver slík skipu
lagsbreyting, eða þá að Alþýðu-
sambandsþing verði það fjölmenn,
að enginn fundarsalur á landinu
verðí nægiíega stór fyrir það.
Alþýðusambandsþing verður
að þessu sinni haldið eins og síð-
ast í KR-húsinu við Kaplaskjóls-
veg, og setur forseti samtakanna,
Hannibal Valdimarsson, það klukk-
an 16 á mánudag. Ekki er venja,
að ákveða fyrirfram, hversu lengi
Alþýðusambandsþing eigi að
standa, en venjulega er þingstörf-
um ekki lokið fyrr en eftir 4—5
daga, og má búast við að eins
verði nú.
Á þinginu mun forsetinn flytja
ræðu um þróunina í kaupgjalds-
málunum og öðram verkalýðsmál-
um að venju, og munu umræður
verða um þau mál. Auk þess verð-
ur rætt um mörg önnur mál, sem
snerta verkalýðinn, nefndir skíp-
aðar og samþykktir gerðar. Al-
þýðusambandsþingi lýkur síðan
með stjórnarkjöri.
Sútunarverksmföja starfrækt áA kranesi
FB-Reykjavík, 14. nóv.
í vikunni tók til starfa nýtt at-
vinnufyrirtæki á Akranesi, Sútun
h.f. Árleg afköst verksmiðjunnar
munu verða 50 þúsund Iamb-
skinn, og verður öll framleiðslan
seld úr landi, en markaðir hafa
þegar verið tryggðir.
Framkvæmdastjóri Sútunar h.f.
er Helgi Júlíusson, og tjáði hann
blaðinu í dag, að verksmiðjan
hefði tekið til starfa á þriðjudag-
inn, en hún er til húsa í nýju hús-
næði, 400 fermetra, að Ægísbraut
9 á Akranesi.
Verksmiðjan er búin fullkomn-
um vélakosti. Sútunarkerin eru
húðuð með trefjaplasti, sem er al-
ger nýjung, og eru þau smíðuð
í verksmiðjunni Bene í Hafnar-
firði, en sama verksmiðja hefur
einnig smíðað nokkuð af vélakosti
Sútunar, en aðrar vélar eru frá
Þýzkalandi og Danmörku.
Arleg afköst Sútunar eru áætl-
uð um 50 þúsund lambskinn, en
eínnig er hægt að súta önnur
skinn til margs konar framleiðslu.
Framleiðslan verður seld úr landi,
mest til Ameríku, en einnig til
Danmerkur, samkvæmt upplýsing-
um Helga Júlíussonar. Samband
ísl. samvinnufélaga mun láta verk
smiðjunni í té öll skinn til vinnsl-
unnar. Starfslið Sútunar verður
10—12 manns og hefur danskur
sútarí, Ivan Hins verið ráðinn
vinnslustjóri. Vinnsla hvers skinns
tekur um 7—10 daga og hefst í
blautvinnslunni, sem fer fram á
neðri hæð hússins, en á efri hæð
inni er þurrvinnsla og öll snyrt-
ing skinnanna.
Formaður verksmiðjustjórnar er
Þórhallur Björnsson, Siglufírði, en
yfirumsjón með uppsetningu á
tækjum hafði Benedikt Einarsson,
Hafnarfirði.
Haust-
pestír
í rénun
MB—Reykjavík, 14. nóv.
Haustfairsóttiraar virðast
vera í rénum hér í Reykja-
vík, samkvæmt fréttatil-
tilkynníngu frá skrifstofu
borgarlæknis. Skýrslan er
um farsóttir í borginni vik-
una 25. — 31. október. Vik-
una áður bárust skrifstof-
unni upplýsingar um 76 háls
bólgutilfelli en þessa viku
48, kvefsóttartilfellum hafði
fækkað úr 179 í 84 lungnak-
tilfellum úr 38 í 29, Iðira-
kvefssjúklingum úr 33 í 11
og Hvotsóttartilfellum úr 88
í 56. Þess má þó geta að
skýrslurnar vikuna 25. —
31. október voru frá færri
læknum en vikuna á undan,
20 á móti 28.