Tíminn - 19.11.1964, Blaðsíða 5

Tíminn - 19.11.1964, Blaðsíða 5
FlMMTUDAGUR 19. móvember 1964 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstiórar: í-órnrinn Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Aug- lýsingastj.: Steingrímur Gíslason. Ritstj.skrifstofur • Eiddu- húsinu, símar 18300—18305. Skrifstofur, Bankastræti ■ Af- greiðslusími 12323. Auglýsingasími 19523. Aðrar sknistofur, sími 18300. Áskriftargjaid kr. 90,00 á mán. innanlands — í lausasölu kr. 5,00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f. Einræðisuggine Eitt hið furðulegasta fyrirbæri í áróðurssöng ríkis- stjórnarinnar og aðalmálgagns hennar er sú síendurtekna upphrópun, að Framsóknarflokkurinn sé óþarfur flokk ur í íslenzkum stjórnmálum. Eins og kunnugt er þá er Framsóknarflokkurinn stærstur og sterkastur flokkur stjórnarandstöðunnar og á herðum hans hvílir hin raun- verulega stjórnarandstaða í landinu. í öllum lýðræðis- löndum er hlutverk sterks stjórnarandstöðuflokks viður- kennt mjög mikilvægt í því mundangshófi, sem er aðall lýðræðislegs stjórnarfars, og það eru réttmæt áhrif og gagnrýni stjórnarandstöðu, sem öðru fremur greina slíkt stjórnarfar frá stjórnarháttum einræðis og sjást þess ætíð ljós merki t. d. í Bretlandi, Norðurlöndum og Bandaríkjunum. í einræðisríkjum er þessu öfugt farið. Þar eru stjórn- arandstöðuflokkar taldir óþarfir, jafnvel svo óþarfir, að þeir eru bannaðir. Þar er gagnrýni á ríkisstjórn talin óþörf og fjandsamleg. Þetta er eitt skýrasta einkenni ein- ræðis eins og allir vita. Þó að hér hafi ráðið undanfarin ár hatröm íhalds- stjórn, sem freistar þess að koma á mjög íhaldssömum stjórnarháttum með gróðahagsmuni sérgæðinga að bjart- asta leiðarljósi, hefði mátt vænta þess, að lýðræðis- stjórnarfar væri orðið svo þroskað og stæði svo föstum fótum á íslandi, að ekki mundi örla á einræðisuggum í þeirri stjórn. Sú hefur nú samt orðið raunin á. Ekki hefur það heyrzt, að brezka íhaldsstjórnin teldi verka- mannaflokkinn ,,óþarfan flokk“ í stjórnarandstöðunni. Þær raddir hafa ekki heldur heyrzt frá stjórnarflokkum á Norðurlöndum eða í Bandaríkjunum. Sú rödd hefur aðeins heyrzt hjá íslenzku íhaldsstjórninni. Hún ein ber einræðisugga, sem henni tekst ekki að leyna. Málgögn Sjálfstæðisflokksins bregðast aldrei reiðari við en þegar á það er bent, að stundum örli hjá þessum flokki á skyldleika við aðferðir Hitlers eða einræðis- stjórnir Suður-Ameríku. Samt eru þeir enn margir sem muna eftir venzlum flokksins við íslenzku nazistana fyrr á árum. Það var raunar vitað mál, að fvrir 1940 var for- ystulið Sjálfstæðisflokksins gegnsýrt af anda nazisma, og ýmsir, sem þá kölluðu hæst „Heil Hitler“ eru enn í forysturöðum íhaldsins á íslandi. Engan þarf því að furða, þó að einræðisugginn sé ekki með öllu dottinn af íhaldinu enn. Þolir ekki gagnrýni Það er eitt skýrasta einkenni einræðishneigðar hjá lýðræðisflokki, sem fer með stjórn, að hann þolir illa gagnrýni og allra sízt sterkan andstöðuflokk. Þá brestur hina lýðræðislegu þolinmæði. Þá er farið að hrópa, að andstöðuflokkurinn sé óþarfur, og slík upphrópun sver sig greinilega í ætt við bannið. En hvað er það, sem íhaldinu þykir verst, að Fram- sóknarflokkurinn skuli gagnrýna? Það er stjórnarstefnan sjálf. Henni vildi íhaldið helzt geta komið fram með hlióðlátari hætti, því að það veit, að hún er ekki fallin til almenningshylli. íhaldið þolir ekki, að Framsóknar- flokkurinn skuli berjast gegn þeirri fjármálastefnu að jaka almenning með háum neyzlusköttum og beinum sköttum — en halda jafnframt dugandi einstaklingum og samtökum þeirra í lánasvelti til framkvæmda og athafna, meðan hátekjumenn bera mjög lága skatta og sérgæð- ingar íhaldsins leika sér að tugmilljónum. - TÍÍVIINN Heldur Longo forystunni? Mikilvægar kosningar á Itaiiu næstkomandi sunnudag. Á SUNNUDAGINN kemur fara fram sveitar- og borgar- stjórnarkosningar í Ítalíu. Úr slita þeirra er beðið með nokk- ' urri eftirvæntingu. Ástæðan er sú, að þau eru líkleg til að leiða í ljós afstöðu almennings til þeirrar samstjórnar kristi lega flokksins og vinstri jafn- aðarmanna, sem farið hefur með völd undanfarin misseri. Jafnframt verða þau vísbend- ing um, hvernig kommúnistum muni farnast eftir að Togliatti er fallinn frá, en hann hefur verið leiðtogi kommúnista í öllum kosningum, sem hafa farið fram á Ítalíu síðan síð- ari heimsstyrjöldinni lauk. Þegar Togliatti féll frá á síðastl. sumri, þótti sjálfsagt, að Luigi Longo yrði eftirmað ur hans. Hann hafði verið nán- asti samverkamaður Togliattis um meira en tuttugu ára skeið Ymsir töldu hins vegar vafa- samt, að Longo yrði lengi aðal foringi ítalskra kommúnista. í flokknum eru ungir og fram gjarnir forustumenn, sem eru honum snjallari áróðursmenn í ræðu og riti Meðan Togli- atti lifði, /ar því haldið fram, að það hentaði Longo betur að fylgja fram fyrirskipunum en að marka stefnu. Hið síðar- nefnda var hlutverk Togliattis Af þessu var ályktað, að Longo myndi ekki reynast vel sem aðalforustumaður þótt hann hefði reynzv vel sem nr. 2. Urslit kosninganna á sunnu daginn geta ráðið miklu um, hve traustur Longo kann að reynast í sapti. SAMKVÆMT frásögn er- lendra blaðamanna, sem hafa fylgzt með kosningabaráttunni. hefur Longo staðið sig frem- ur vel. Hann er enginn mælsku garpur á borð við Togliatti og er heldur þurr í viðmóti. Hins vegar er hann snjall skipuleggjari og bersýnilega vel hygginn. Hann hefur gætt þess vel að hafa nána sam- vinnu við flokksstjórnina og forðazt að taka afstöðu til meiriháttar mála, nerna í sam- ráði við hana. í viðtölum við blaðamenn ■ hefur hann staðið sig heldur vel, svör hans eru skýr og umbúðalaus, hann heldur sér við efnið og lætur ekki teyma sig inn á neinar viðsjárverðar hliðargötur. Ræður hans eru ljósar og því Togliattl og Longo. heldur sannfærandi. Hann hef ur sýnt á ýmsan hátt, að hann yill láta flokkinn vera sjálf stæðan, þótt hann hafi nána samvinnu við rússneska komm únistaflokkinn. Longo er tal- nn hafa ráðið mestu' um, að hin svonefnda pólitíska erfðá skrá Togliattj var birt Hann er einnig talinn hafa ráðið því, að ítalskii kommúnistar hafa gagnrýnt aðferðina, þegar Krustjoff var steypt úr stóli, og hann hefur sjálfur farið ýmsum viðurkenningarorðum um Krustjoff eftir fall hans. Annars reynir Longo að að ræða sem minnst um tengslin við Moskvu, en leggur þeim mun mein áherzlu á innan landsmálin og svo einstök sveitarstjórnarmál. Hann hef- ur gefið til kynna, að þótt kommúnistar kæmust í stjórn, myndu þeir fara sér hægt í þjóðnýtingarmálum. Þeir væru engan veginn á móti öllum einkarekstri, en þeir væru and- vígir einokun og stórgróða einkaaðila. ÞÁ LEGGUR Longo á- herzlu á það í áróðri sínum, að kommúnistar vilji ná völdum eftfr lýðræðislegum leiðum Longo gerir sér bersýnilega ljóst, að byltingarstefna á ekki lengur sama hljómgrunn í Ítalíu og áður. Þess vegna er kommúnistaflokkurinn að ýmsu leyti stórum veikari flokkur nú en hann var fyrir t.d. 10—20 árum, enda þótt hann hafi aldrei fengið fleiri atkvæði en i seinustu kosning- um. Félagsmönnum í flokksfé- lögunum hefur fækkað, en mest hefur fækkunin þó orðið i æskulýðsfélögum flokksins. í sumum verkalýðsfélögum eru kommúnistar á undanhaldi. Ilins vegar bætti flokkurinn við sig um 1 millj. atkv. í sein ustu þingkosningum og hlaut um 25% allra greiddra at- kvæða Flokkurin hefur 166 þingmenn fulltrúadeild þings- ins af 630 alls, og 83 í öld- ungadeildinni af 320 alls. Fylg- isaukning tlokksins í kosning- um á sama tíma og meðlim- um fækkai i flokksfélögunum, ber þess merki, að hann safnar um sig óánægðum kjósendum, sem ekki eru Wnmúnistar. Þetta virðist Longo gera sér ljóst og haga sér i samræmi við það. Hins vegar eru nokk- uð skiptar skoðanir um þetta i flokknum, en Togliatti hafði svo trausl völd, að hann gat haldið öllum meiriháttar deil- um niðri Hætt er við„ að þess ar deilur olossi uppi, ef ekki gengur vei í kosningunum á sunnudaginn. Þess vegna verða úrslit þeirra mikilvæg persónu lega fyrir L.ongo Tapi flokkur- in, œuni sumir vilja taka upp byltingarstefnu að nýju í kín- verskum anda, en a.ðrir ganga enn meira til móts við borgara leg sjónarmið. LUGi 1ÍONGO er 84 ára gamall, kominn af fátækum bændaættum. Hanr* gerðisi ungur kommúnisti og tók fljótt þátt j ólögiegum verkföllum og ýmsum óeirðum og var hvað eftir annað fangelsaður, en þó ekki lengi í einu Þegar borg arastyrjöldrn á Spáni hófst. fór hann fl.iótlega þangað sem sjálfboðnliði og var meðal hinna seinustu sem hættu mótspyrnunni gegn Franco Hanr þótt sýna mikið hug i'ekk; og mikla skipulagshæfni í þessum átökum, enda var hann á eftir kvaddur ti! Clark hershöfðingi sæmir Longo heiðursmerki. Framhald á siðu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.