Tíminn - 19.11.1964, Blaðsíða 7

Tíminn - 19.11.1964, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 19. nóvember 1964 Bfflisg TÍMINN Læknislausum iiéruðum ver veitt aðstoð til sjúkraflutnin Jóhann Hafstein, heilbrigðis- málaráðherra, svaraði í gær fyrir- spum frá Ásgeiri Bjarnasyni um hvaða ráðstafanir heilbrigðis- stjómin hygðist gera til að lækn- ishéruð landsins verði skipuð hér- aðslæknum. Ásgeir fylgdi fyrirspurninni úr hlaði og greindi frá hinu uggvæn- lega ástandi í læknismálum dreif- býU8Ías. 7 héruð væru nú læknis- laus og tvö auglýst til umsóknar og víða væru héraðslæknar aðeins settir. Einkanlega væri þetta baga legt á vetrum, þegar ófærð haml- aði samgöngum og þar vfð bætt- ist, að það fólk, sem byggi í læknislausum héruðum yrði að kaupa læknisþjónustuna á marg- földu verði. Jóhamt Hafstein sagði, að skip- uð hefði verið 6 manna nefnd til að endurskoða læknisskipunarlög- in og hefði hún skilað áliti og frumvarpi til nýrra læknisskipun- arlaga. Væri frumvarpið nú til at- hugunar hjá ríkisstjóminni og yrði lagt fram mjög bráðlega. Ásgeir Bjarnason sagði að frum varp til nýrra læknisskípunarlaga yrði áreiðanlega til bóta, en allt of langt hlyti að líða þar til frum va pið vrði að lögum og umbætur þess færu að bera árangur. Strax yrði að gera bráðabirgðaráðstaf- anir til að bæta úr brýnustu þörf- inni í þeim héruðum, sem verst eru nú sett í þessu efní. Það þyldi enga bið að gera einhverjar um- bætur í læknismálum þeirra. Sigurvin Einarsson kvaðst vilja vekja athygli á því, að ríkissjóði TÓMAS KARLSSON RITAR sparaðist verulegt fé í læknislaun- um við það, að héruðin væru læknislaus og 'spurði ráðherra, hvort ekki væri réttmætt og sjálf- sagt að nota það fé, sem þannig sparaðist til þess að greiða fyrir sjúkraflutningum í þeim héruðum, sem læknislaus væru og fólk vissi, að ætti sér aðstoð vísa, þegar flytja þarf sjúkling til læknis- hjálpar. Jóhann Hafstein sagði sjálfsagt að athuga strax aö veita hinuro læknislausu héruðum einhverja as stoð við sjúkraflutninga og kvaðst vona, að frumvarpið til nýrra læknisskipunarlaga fengi greiða afgreíðslu gegn um þingið. Ekki ma fresta lengur að taka ákvarðanir um Alþingishús Bjarni Benediktsson svaraði í gær fyrirspurn frá Þórami Þór- arinssyni um byggingu Alþingis- húss. Þórarinn Þórarinsson fylgdi fyr- irspuminni úr hlaði og minnti á Héraðsskóli að Reykhólum Þeir Hannibal Vald’imarsson og Sigurvin Einarsson flytja tillögu tii þingsályktunar um héraðsskóla að Reykhólum. f greinargerð, sem tillögunni fylgir, segja flutnings- menn: Tillaga samhljóða þessari var frumflutt á seinasta þingi og fylgdi henni þá svohljóðandi grein argerð: Allir héraðsskólar em nú yfir- fullir, og verða ungmenni oft að bíða eitt til tvö ár eftir því að geta fengið námsvist í héraðs- skóla. Þetta er afleiðing þess, að fenginn nýr héraðsskóli hefur ver- íð byggður síðastliðin 15 ár. Skóga skóli mun vera sá yngsti þeirra, en hann tók til starfa árið 1949. Hér stappar nærrl, að í óefni sé komið, því að vissulega verður það að teljast meðal dýrmætustu mannréttinda æskufólks að geta aflað sér nauðsynlegrar almennr- ar menntunar. Og tvímælalaust er það ekki rétt stefna að láta löng- um og löngum undir höfuð leggj- ast að byggja skóla til almennrar fræðslu, en þurfa síðan að rjúka i að byggja marga samtímis. f þessu efni sem öðru er affara- sælast að svara kröfum eðlilegr- ar þróunar með jöfnum skrið. Sem stendur munu vera starf- andi 7 héraðsskólar á öllu land- inu, og getur hver þeirra aðeins tekið á móti 35-40 nýjum nem- endum á ári. Það eru því í mesta lagi 250-300 nemendur, sem nám geta hafið árlega í öllum héraðs- skólunum. Þetta er sorglega lág tala og ber áhuga og skilningi stjórnarvalda um almenna alþýðu- menntun ekki allt of fagurt vitni. Þeð getur þannig ekki orðið ágreiningsefni, að þess er full þörf, að nýr héraðsskóli — eða jafn- vel fleiri en einn — verði reist- ur hið fyrsta. Flutningmenn þessarar tillögu teija eðiilegt, að Reykhólar í Aust- ur-Barðastrandasýslu verði fyrir valinu sem skólasetur. Þar hefur verið haldið uppi unglingaskóla nokkur undanfarin ár af miklum áhuga og fómfýsi heimamanna, en sú kennsla hefur nú fallið niður vegna erfiðrar aðstöðu og brott- flutnings forgöngumannsins, Sig- urðar Elíassonar tilraunastjóra. Nokkur byggð er þegar komin á Reykhólum, og bendir allt til þess, að þar rísi á næstu árum kauptún, er bvggi á landbúnaði og iðnaði. Það var á sínum tíma vel ráðið, er héraðsskólunum var yfirleitt valinn staður, þar sem gnægð var jarðhita, og hann nýttur fyrir þess ar stofnanir, bæði til upphitunar húsakosts, til sundlauga og á ýms- an annan hátt. Hefur þetta þegar sparað þjóðfélaginu ógrynni fjár. Með tilliti til þessara náttúruauð- æfa var héraðsskólunum að Laug- arvatni, Laugum, Reykholti, Reykjanesi og Reykjum í Hrúta- fírði valinn staður. Svo sem kunnugt er, búa Reyk- hólar yfir miklum auðæfum jarð- hita, sem hingað til hafa ekki ver- ið hagnýtt sem skyldi. Meðal ann- ars með tilliti til þessa eru Reyk- hólar valinn skólastaður. Þá mundi skóli vera þama vel settur. Enginn héraðsskóll er á öllu Vest urlandi allt frá Reykholti í Borg- arfirði. Þá mundi skóli á Reyk- hólum vera merkur liður í upp- byggingu staðarins, en ýmis fyrir- heit hafa að undanfömu verið gef- in af opinberri hálfn nm eflingu byggðar að Reykhólum, hinu forna og landkostarika stórbýit og höfð- ingssetri. s Margt fleira, sem óþarft er hér að telja, mælir með því, að al- mennur æskuKðsskóli verði reist- ur á Reykhé og er það von flutningsmar að málinu verði svo vel tekn á háttvirtu þlngi, að það fái afgreiðslu á þessu þingi, svo að skólabygging geti hafizt strax, er nauðsynlegum undirbún- ingsframkvæmdum væri lokið. þingsályktunartillögu, er hann hafði flutt ásamt fleirum um kosn ingu nefndar til að gera tillögur um nýtt þinghús eða stækkun Al- þingishússins og nefndin skilaði BILAKJOR Opel Record ‘64 ekinn 11 \ Iþús. km. i Taunus 12 M. ‘64 Peugout 403 ‘64. t Sinca ‘63 j I Opel Kapitan ‘61, ekinn ein- ; \ göngu í Þýzkalandi. í Willys ‘62 lengri gerð, allsk., ■ skipti koma til greina. Renault R 8, fasteignabv kem ! ur til greina Volkswagen ‘63 verð 85 þús. \ Mercedes Bens 190 ,57, skipti ! á M.B. 220 60—62 millgj gr. j strax. Chevrolet ‘56 skipti á minni yngri bíl. Einnig flestar árgerðir og teg- undir eldri bifreiða. j Bifreiðir gegn fasteignatr. skuldabr. og vel tryggðum víxl- i I um. Opið á liverju kvöidi t'? kl. 9. áliti ekki síðar en haustið 1962. Þessi tillaga var afgreídd með þeirri breytingu, að forsetum þingsins var falið málið ásamt fulltrúum frá þingflokkunum. Þessi nefnd hefur nú starfað á fjórða ár, en ekkert frá henni heyrzt enn. Fór Þórarinn síðan nokkrum orðum um hin miklu hús næðisþrengslí þingsins. íslending- um er gjarnt að halda því ^ lofti við erlenda menn, að Alþingi sé elzta starfandi þjóðþing í veröld- inni, en ræktarsemi okkar við þeti. ''Hg er ekki til að halda á lofti. Ivrenn hefur greint á um það lengí, )u_yt byggja ætti við Alþingishúsið eða reisa nýtt hús. Ákvörðun um þetta má ekki drag- ast lengur og ákvörðun um þetta mál þarf að taka á þessu þingi. Bjarni Benediktsson sagði, að málið væri í athugun, en erfiðlega gengi að fá samstöðu um málið og taldi ekkí ráðlegt að vinna þannig að málinu, að skerist í odda. Sagðist hann ekki vilja fjöl- yrða um málið meðan álit for- setanna lægi ekki fyrir. Þórarinn Þórarinsson kvaðst harma það, að forsætisráðherra vikí sér undan að svara fyrir- spuminni. Nefndin hefur starfað á fjórða ár og hefur fengið nægan tíma til að athuga malið og taka um það ákvörðun. Ef nefndin get- ur ekki lokið störfum, verður að taka málið upp með nýjum hætti og gera út um það við atkvæða- greiðslu í þinginu, hvort byggja eigi við húsið eða reisa nýtt Al- þingishús. Málið mætti ekki drag- ast svona von úr viti. Til þessa máls eiga þingmenn ekki að taka afstöðu eftir flokkum — þetta á ekki verða flokksmál og það má ekki dragast lengur úr hömlu að ákvörðun verði tékin. Rauöará Skúiagötn 55 Shni 15812 Rúmgóð 4ra hcrb. fbúð Til sölu á fallegum stað i Hliðunum, tvöfalt gler, harðviðar hurðir, (ljós eik) sér þvottahús Sér inngangur. Sér hiti. Skóli og matvöruverzlanir rétt hjá. Stór lóð ræktuð og gyrt. Útb 400 þús. Málaflulnir.gsskrifstofa: Þorvarður K. Þorsteinssoo Miklubraut 74. Fasteignavlðsklpti: Guðmundur Tryggvason Síml 22790. Á ÞINGPALLI ★★ Sverrir Júlíusson bar í gær upp í fiarveru Matthíasar Á. Matthiesen fyrirspum er sá síöarnefndi hafði lagt fram til sam- göngumálaráðherra um hvað liSi undirbúningi að lagniitgu nýrra akbrauta frá Reykjavík um Kópavog og Garðahrepp til Hafnar- fjarðar og hvort væri að vænta frekari bráðabirgðarráSstafana af hálfu vegamálastjóraarinnar til þess að bæta úr þvi umferðar- öngþveiti, sem nú ríki á leiðinni milli Reykjavíkur og Hafnar- fjarðar. ★★ Ingólfur Jónsson, samgöngumálaráðherra, sagði það væri ekki fyrst og fremst fjárskortur, sem hefði tafið framkvæmdir í þessum málum, heldur hitt að staðið hefur á skipulagi frá Kópavogskaupstað. Kópavogur hefði átt kost á töluverðu af vegafé en ekkert verið unnt fyrir það að vinna, vegna þess að skipulag væri ekki fyrir hendi. Ákveðið hefði nú verið að aSalveg- urinn frá Reykjavík til Hafnarf jarðar yrði um Miklubraut. Kringlu mýrarveg á Reykjanesbr. við Fossvogslæk og leiðin óbreytt úr þvi, sem nú er. Jafnframt er fyrirhugað að nýr vegur verði lagður úr Blesugróf um Kópavog til Hafnarfjarðar og vonast til að hann muni létta eitthvað af umferSinni um Reykjanesbraut. Ákvarðanir um vegagerðina verða teknar á næstunni og vonast er til að framkv. við Reykianesbr. úr Fossvogi í Kópavog geti hafizt á næsta sumri. Dómsmálaráðuneytið er nú að athuga ásamt bæiarstjórn Kópavogs að fjölga í lögregluliði kaupstaSar- ins og efla umferðargæzlu. Þá vinnur Garðahreppur að því að koma upp gangbraut frá Silfurtúni að Hraunshólslæk. ★★ Ingólfur Jónsson hafði í gær framsögu fyrir skýrslu um vega- framkvæmdir á árinu 1964 en skýrslan er Iögð fram skv. ákvæð- um vegalaga og var útbýtt í þingimi fyrir nokkrum dögum. ★★ Sigurvin Einarsson taldi, að þar sem þetta væri í fyrsta sinn, sem slík skýrsla væri lögð fram væri líklegt að næstu skýrslur yrðu sniðnar eftir henni og taldi hann því rétt að hreyfa nokkr- . um athugasemdum, þar sem skýrslunni væri í mörgum atriðum ábótavant, einkum varðandi vegaframkvæmdir, sem unnai væru fyrir lánsfé. Þá væri ljóst af skýrslunni að unnið hefði verið að j vegum án þess að heimild væri fyrir í vegaáætlun, en það I væri skýlaust brot á ákvæðum vegalaganna og þyrfti að koma | þessum málum í það horf í næstu vegaáætlun að slík lagabrot ( þyrftu ekki að eiga sér stað enda auðvelt að koma málum þannig 1 fyrir í vegaáætlun.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.