Tíminn - 20.11.1964, Blaðsíða 5
I
5
FÖSTUDAGUR 20. nóvember 1964
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: í'órarinn
Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Ir.driði
G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Aug-
lýsingastj.: Steingrímur Gíslason. Ritstj.skrifstofur i Eddu-
húsinu, símar 18300—18305. Skrifstofur, Bankastræti ?. Af-
greiðslusími 12323. Auglýsingasími 19523. Aðrar sknístofur,
sími 18300. Áskriftargjald kr. 90,00 á mán. innanlands — í
lausasölu kr. 5,00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f.
Meðan organistinn
ieikur sálmalög
Sjálfstæðisflokkurinn hét fyrrum íhaldsflokkur. For-
feólfar hans skiptu um nafnið til þess að grímuklæðast
Dg villa á sér og honum heimildir. Jón Þorláksson var
á móti nafnbreytingunni. Hann vildi að flokkurinn væri
heilsteyptur og sýndi sitt rétta andlit.
Grímubúningur íhaldsins á íslandi, ásamt tilheyrandi
leikbrögðum, hefir blekkt margan til fylgis við Sjálf-
stæðisflokkinn. Án grímunnar og leikbragðanna hefði
hann aldrei orðið stærsti stjórnmálaflokkurinn, jafnvel
þótt máttarstólpar hans leggi stórfé í áróðursstarfið.
Fólkið hefir ekki varað sig á því sem skyldi, að gríman
er ekki rétta andlitið og yfirlýsingar flokksins um um-
bótavilja í þágu almennings að verulegu leyti yfirdreps-
skapur.
Meðan forkólfar Sjálfstæðisflokksins segja, að flokk-
urinn vilji gera allt, sem hann getur almenningi til hags-
bóta og heilla, og umfram allt skipta þjóðartekjunum
réttlátlega, þá hagræðir ríkisstjórn flokksins efnahags-
málum þjóðfélagsins á þá leið, að auknar þjóðartekjur
af tækni nýrra tíma fara utan garðs hjá almenningi svo
skemmilega, að kaupmáttur launa lækkar, en braskarar
græða meira en nokkru sinni.
Meðan þeir, sem hafa orð fyrir Sjálfstæðisflokknum,
lýsa því yfir með miklum fjálgleik, að flokkurinn hafi
einlægan áhuga á því, að almenningur geti stytt vinnu-
dag sinn, þá neyðist fólkið til að lengja vinnudaginn,
sökum efnahagsráðstafana ríkisstjórnarinnar, sem
þrengja kosti þess.
Meðan hrópendur Sjálfstæðisflokksins básúna, að
flokkurinn sé að stórlækka alla skatta og álögur á al-
menning, fá meðaltekjumenn á sig þyngri gjaldkröfur en
nokkru sinni og sjá ekki ráð til að standa straum af þeim.
Þetta og margt fleira minnir á fræga sögu, sem segir
frá kirkjuorganista, er lék sálmalög á hljóðfæri kirkj-
unnar meðan hann lét son sinn ræna dýrgripum úr alt-
arinu.
Bækumar birtast
Nýju bækurnar birtast okkur hver af annarri þessa
dagana. Við höfum beðið þeirra með eftirvæntingu og
tilhlökkun, því að þær eru fagnaðarvinir. Miðaldra mað-
ur lét nýlega svo um mælt, að hann hefði ætíð tregað
íslenzka sumarið og kviðið hausti og vetri, en á seinni
árum hefði þetta breytzt eftir því sem hann fór að gefa
bókum meiri gaum. Nú hlakkaði hann til haustsins og
vetrarins vegna bókanna, sem þá birtust. Bókaflóðið
á haustin væri eins og nýr blómatími ársins.
Fyrir hvert bókaskeið bíða menn þess með eftirvænt-
ingu, hvort nýir og efnilegir höfundar komi fram, ný
ljóðskáld, nýir skáldsöguhöfundar, sem binda megi mikl-
ar vonir við, menn, sem líklegir séu til þess að auðga
íslenzkar bókmenntir eða halda vel á lofti merki okkar
sem bókmenntaþjóðar. Varla munu þess sjást augljós
merki, að slíkur maður hafi fram komið á þessu hausti.
Einna mesta athygli munu enn vekja aldnir laukar,
og mun bera efnna hæst, að þessa dagana kemur út
bók eftir Laxness með sjö sögum. Hennar munu áreiðan-
lega margir bíða með mikilli eftirvæntingu.
TÍMINN
ERLENT YFIRLIT
Foringjaefni ungra republikana
John V. Lindsay vann stærsfa kosningasigurinn.
John V. Lindsay
ÞAÐ HEFUR jafnan þótt
vænlegt til frama í Bandaríkj-
unum að gegna . háttsettri
stöðu í New York-ríki, sem frá
upphafi hefur verið fjölmenn-
asta ríkið í Bandaríkjunum
þar til nú, að Kalifornía er að
taka forustuna. Forsetaefni
flokkanna liafa oft verið menn,
sem hafa verið búnir að sýna
í New York-ríki, að þeir væru
vænlegir til kjörfylgis. Það var
því ekki út í bláinn, að Robert
Kennedy sóttist eftir að verða
öldungadeildarþingmaður þar.
Sigur hans hefur vissulega
fært hann nær .forsetastólnum,
þótt hann eigi vafalítið enn
eftir ýmsar torfærur á þeirri
leið.
Ástæðan til þess, að Nelson
Rockefeller þótti um skeið sig-
urvænlegasta forsetaefni re-
publikana, var fyrst og fremst
sú, að hann var ríkisstjóri í
New York-ríki. Hann hefði
vafalítið orðið forsetaefni re-
publikana 1964, ef giftingar-
mál hans hefði ekki spillt fyrir
honum. Fram að þeim tíma,
átti hann að fagna miklu meira
fylgi innan flokksins en Gold-
water. Nu virðist Rockefeller
alveg úr sögunni sem forseta-
efni. Meira að segja er talinn
vafi á því, að hann haldi sæti
sínu sem ríkisstjóri, -ef hann
sækir um endurkjör eftir tvö
ár. Talsvert er nú rætt um, að
hann ætti að draga sig til
baka og láta Javits öldunga-
deildarþingmann koma í stað-
inn, en hann er nú vinsælasti
leiðtogi republikana í New
York-ríki. Hins vegar er lítt
talað um hann sem hugsanlegt
forsetaefni
Yfirleitt eru horfur repu-
blikana nú taldar þungar í
New York-ríki. Þeir hafa unnið
þar hvern sigurinn öðrum
meiri undanfarin ár, þegar
undan er skilið borgarstjóra
kjörið í New York. Með kosn-
ingu Kennedys lauk þessari
sigurgöngu. Við það bættist
svo, að demokratar fengu
.meirihuta á ríkisþinginu í New
York, en peir hafa verið þar í
minnihluta um langt skeið.
í ÞESSUM raunum republik-
ana í New York-ríki, er þeim
það vafalítið nokkur raunabót,
að efnilegasti ungi maðurinn í
þeirra hópi, John V- Lindsay.
vann mesta kosningasigurinn,
sem einstakur frambjóðandi
vann í kosningunum í haust.
Áður var farið að ræða um, að
hann ætti sér framtíð sem rík
isstjóraefm og jafnvel forseta
efni Sigui hans nú hefur
mjög aukið þetta umtal. Hann
hefur líka aldui til að bíða
nokkur ár enn, en a.m.k for
setaefni verður hann ekki méð
an Goldwateristar ráða flokkn
um. Hann tilheyrir nefnilega
frjálslyndari armi flokksins og
var einn þeirra frambjóðenda
republikana, er neitaði að
styðja Goidw'ater.
JOHN V LINDSAY er 43
ára gamaii Föðurafi hans var
innflytjandi frá Bretlandi, en
faðir hans var efnaður banka
maður. Lindsay var rétt byrj
aður á laganámi við Yale-há
skólann, þegar styrjöldin hófst,
og gekk 'nann þá í sjóherinn,
þar sem hann vann sér háar veg
tyllur og mikla viðurkenningu.
Að stríðinu loknu, sneri hann
sér að laganáminu aftur og
lauk prófi frá Yale 1948. Hann
gekk síðan í þjónustu þekktrar
lögfræðiskrifstofu í New York
og byrjaði um líkt leyti að taka
þátt í flokksstarfi republikana.
Árið 1951 var hann formaður
í félagi ungra republikana og
fór sem slíkur í ferðalag til
Evrópu í þeim erindum að
heimsækja Eisenhower og lýsa
stuðningi ungra republikana
við væntanlegt framboð hans
Árið 1955 vann hann skamma
hríð í Washington sem aðstoð
armaður Brownells dómsmála-
ráðherra. Hann fór aftur til
New York 1956 og bauð sig
fram tveimur árum síðar til
fulltrúadeildai Bandarikja
þings. Demokratar og republik
anar voru þá taldir álíka sterk
ir í því kjördæmi; þar sem
hann bauð sig tram en Lind-
say tókst að sigra með 7 þús.
atkvæðamun. Árið 1960 sigr-
aði hann með 27 þús atkvæða
mun, árið 1962 með 53 þús.
atkvæðamun og nú í haust
sigraði hann með 90 þús. at-
kvæðamun Kjördæmi hans er
á Manhattan, þar sem demo-
kratar eru yfirleitt mjög sterk
ir. Hann hefur þvi bersýnilega
ekki síður unnið fylgi þeirra
en republikana. Vcgna þess, að
hann neitaði að styðja Gold-
water, buðu íhaldsmenn sér-
staklega t'ram gegn honum.
Það virðist síður en svo hafa
spillt fyrir honum.
LINDSAY hefur unnið sér
orð sem mjög starfhæfur og
frjálslyndur þingmaður. Hann
hefur á ýmsan hátt orðið merk-
isberi hinna frjálslyndari re-
publikana í fulltrúadeild
Bandaríkjaþings. Hann hefur
sinnt þingstörfum mjög sam
vizkusamlegá. Hann er ræðu-
maður ágætur, skýr í viðtölum
við blaðamenn, myndarlegur í
sjón og aðlaðandi í viðkynn-
ingu. í tómstundum sínum les
hann mikið. Hann iðkar og
nokkuð íþróttir, aðallega skíða-
og skautaferðir. Hann er
kvæntur og fjögurra barna
faðir, Á síðari árum hefur
hann ritað' talsvert af greinum
um stjórnmál, er birzt hafa í
víðlesnum viku- og mánaðar-
ritum.
Lindsay fer ekki dult með
það, að nörð átök séu fram-
undan í flokki republikana.
Hann gerir sér von um, að
fyrr en síðar verði Goldwater-
istar að láta undan síga. Hann
verður vafaiaust virkur í þeim
átökum. Hinir yngri menn í
frjálslyndan armi flokksins
líta nú cil hans sem helzta
foringja síns. Þ.Þ.