Tíminn - 20.11.1964, Blaðsíða 12
12
IÞROTTIR
TÍMINN
ÍÞRÓTTIR
FÖSTUDAGUR 20. nóvember 1964
STUTTAR
FRÉTTIR
i&$iS£ÍÍíKí'ífeívi
Roald „Kniksen" Jensen.
Fleiri til
Skotlands
Enn auka skozk knattspyrnu-
félög innflutning á erlendum
knattspyrnumönnum, og enn
eru Norðurlönd aðalmarkaður-
inn. Snemma í þessari viku
undirritaði einu snjallasti og
efnilegasti knattspymumaður
Noregs, Roald „KNIKSEN“,
Jensen frá Brann, samning við
1. deildar liðið Hearts um að
gerast atvinnumaður með fé-
laginu.
„Kniksen“ fær eldskírn með
hinu nýia félagi sínu, þegar
það mætir Clyde á heimavelli
n. k. laugardag. „Kniksen“ er
vel þekktur leikmaður á Norð
urlöndum. Ilann hefur leikið
með norska landsliðinu — og
hann lék með Norðurlandalið-
inu, sem mætti Evrópuliðinu í
Kaupmanxvahöfn í fyrra.
RangerT
sigraði
Glasgow Rangers sigraði aust
urríska liðið Rapid á miðviku-
daginn 1-0 í 2. umferð í Evr-
ópubikarkeppni meistaraliða.
Leikurinn var háður í Glasgow
á leikveUi Rangers, Ibrox Park.
Vinstri innherji Rangers, Baxt-
er, átti mjög góðan leik, og átti l
allan undirbúning að markinu,
sem vinstri útherjinn Wilson
skoraði, en hann lék nú með í
fyrsta skipti um langan tíma,
og hefur átt við meiðsli að
stríða. Síðari leikur félaganna
verður í Vín. Þess má geta, að
Þórólfur Beck má ekki leika
með Rangers í þessari keppni
fyrr en eftir tvo mánuði — en
sú regla gildir um leikmenn,
sem skipta um félag.
Úrvals-
lið HSÍ
ÚrvalsUð HSÍ, sem leika á
gegn Ajax í íþróttahúsinu á
Keflavíkurflugvelli á morgun,
var valið fyrir skömmu og er
Framhald á bls. 13.
FH-ingar tóku cfönsku
meistarana í
kennslutíma
Unnu 35:24. Danir
kenna dómaranum um
Alf — Reykjavík.
FH-ingar möluðu danska meistaraliðið Ajax mélinu smærra aS
Ilálogalandi í gærkvöldi — og þegar leiknum lauk, mátti sjá á marka-
töflunni 35:24 fyrir FH. Geysilegur hraði var í leikmim og að sama
skapi var harka á dagskrá, einkum af hálfu hinna dönsku leikmanna,
sem kunnu illa mótlætinu. Varð dómarinn, Valur Benediktsson, að
vísa dönskum leikmönnum fjórum sinnum af velli. Ragnar Jónsson
var í essinu sínu í gærkvöldi og skoraði 13 mörk fyrir félag sitt.
Allan tímann var hann mjög virkur og lék hina dönsku mótherja sína
grátt.
FH-Iiðið byrjaði afar illa og
eftir 3. mín. leik var staðan 3:0
fyrir Ajax. FH-liðið var óöruggt
og flaustursleg skot voru tíð En
þetta var bara á fyrstu mínútun-
um. Síðan fór FH-vélin í gang og
flíótlega var staðan jöfnuð, 3:3.
Um miðjan hálfleik komst FH vel
yfir og í hálfleik skildu .3 mörk
á milli, 16:13, fyrir FH.
í síðari hálfleik hafði FH tögl
og hagldir — og bilið breikkaði
óðum. Danirnir réðu bókstaflega
ekkert við hinn mikla hraða, sem
FH hélt uppi — og Ragnar Jóns-
son var ofjarl þeirra. Hann skor-
aði 5 fyrstu mörkin fyrir FH í
síðari hálfleik, sum þeirra meist-
aralega skoruð. Þrátt fyrir, að yf-
irburðir FH væru ljósir allan síð-
ari hálfleikinn, var leikurinn að
mörgu leyti spennandi og skemmti
legur fyrir hina fjölmörgu áhorf-
endur, sem hafa verið um 800 tals
ins. Harka var geysimikil af hálfu
dönsku leikmannanna og dómar-
Ragnar Jónsson — var bezti maður vallarins.
inn gaf óspart áminningar og vís
aði af velli.
Lokatölur urðu 35:24, eða 11
marka munur — og má með sanni
segja, að danska meistaraliðið hafi
fengið þarna allgóða kennslu-
stund. í þetta skipti var ekki
ferðaþreytu til að dreifa. Stað-
reyndin er einungis, að íslenzkír
handknattleiksmenn eru fremri
þeim dönsku. En Danir eru
„heimsmeistarar“ í afsökunum —
og eftir leikinn sögðu þeir við
blaðamann Tímans, að dómarinn
hefði átt mikinn þátt í sigri FH,
Framhald á bls. 13.
Kdrfykíiatfleiksmerm taka upp
deildaskiptingu í fslandsmótinu
Frá ársþingi KKÍ. - Bogi Þorsteinsson endurkjörinn formaður sambandsins.
Fjórða ársþitig Körfuknattleikssambands fslands var haldið sunnu-
daginn 1. nóvember s.l. í félagsheimili KR við Kaplaskjólsveg.
Formaður KKÍ, Bogi Þorsteinsson, setti þingið með stuttri ræðu
og bauð velkomna fulltrúa og gesti, en gestir þingsins voru Gísli
Halldórsson, forseti ÍSÍ, og Hermamn Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri ÍSÍ. ,
Mörg mál voru tekin til með-
ferðar á þinginu og merkar laga
breytingar gerðar. Má í því sam
bandi nefna, að körfuknattleiks
menn ákváðu að taka upp deilda-
skiptingu í íslandsmóti og kemst
sú nýbreytni í framkvæmd á
næsta keppnistímabili. Verða þá
framvegis 5 lið í 1. deild — og
allt að 6 lið í 2. deild, en verði
um fjölgun að ræða breytast þessi
hlutföll.
Á þinginu var ákveðið að fela
stjórn KKÍ að koma á fót bikar
keppni, en með henni er stefnt
að því að auka þátttöku utanbæj-
arliða. Verður um útsláttarfyrir
komulag að ræða, líkt og í knatt
spyrnunni.
Bogi Þorsteinsson flutti skýrslu
stjórnar og sagði m.a., að hús-
næðisskortur væri mikil] og hái
það starfseminni Hann sagði, að
t.d. yrði landsliðið að fara tvisvar
smnum i viku 100 km. leið til
æfinga, en þrátt fyrir þessa erfið
leika hefðu orðið gífurlegar
framfarir. Þá ræddi hann um
þjálfaraskortinn og erfiðleikana
á að fá kennara fyrir utanbæjar
liðin. Formaður skýrði frá því,
að á 100. fundi stjórnar KKÍ hefði
verið rætt um nauðsyn þess, að
koma upp æfingamiðstöð
Sagði hann, að körfuknattleikur
ætti í vök að verjast vegna á-
róðurs ýmissa manna. Taldi hann,
að hin góða frammistaða íslenzkra
körfuknattleiksliða erlendis hafi
vakið mikla athygli, og þakkaði
að lokum meðstjórnendum sínum
fyrir gott og gæfuríkt samstarf á
liðnu starfsári.
Gísli Halldórsson, forseti ÍSÍ,
flutti ávarp á þinginu. Hann hóf
mál sitt á því að færa KKÍ beztu
árnaðaróskir og kveðjur og þakk
aði góða samvinnu á undanförnum
árum. Taldi hann ánægjulegt
að sjá mikla framför í körfuknatt
leiksmálum undir stjórn KKÍ og!
að körfuknattleikur hafi náð
langt, þrátt fyrir ýmsa erfiðleika. [
Taldi hann bjartara framundan,|
þar sem stefnt væri að því að
, byggja stærri fimleikasali við
! alla skóla í framtíðinni og von-,
| aðist hann til að það yrði til þess (
að örfa enn frekar áhuga fyrir
! körfuknattleik í landinu Þá sagð
ist hann vona að samvinna við
| KKÍ yrði eins góð í framtíðinni
og hingað til, sagði framkvæmda-
stjórn ÍSÍ vinna að því að létta
á störfum stjórna sérsambanda,
meðal annars með því að fjölrita
og sjá um dreifingu á ýmsu, er
til félli fyrir sérsamböndin. For-
seti skýrði ennfremur frá því, að
ÍSÍ hefði komið á fót fræðslu-
og útgáfuráði, er aðstoða skyldu
sérsambönd á þýðingum og út-
gáfum ýmissa bæklinga. Þá sagði
forseti, að í athugun væri að
reisa æfingar’miðstöð eða búðir
og yrðu sérsamböndin að standa
einhuga með ÍSÍ, svo að úr mætti
verða. Að lokum sagðist forseti
vona, að þingið mætti ganga að
óskum (og að KKÍ mætti blómg-
ast og blessast, körfuknattleiks-
íþróttinni til framgangs, um allt
land.
Að lokum fór fram stjórnar-
kosning. Bogi Þorsteinsson var
einróma endurkjörinn formaður
sambandsins. Aðrir í stjórn voru
kosnir Magnús Björnsson, Gunn-
ar Petersen, Halldór Sigurðsson,
Þráinn, Scheving, Gunnar Hanns-
son og Helgi Ágústsson.
íngSmd vann 2:1
England sigraði Wales á miðvikudag í landsleik i knattspyrnn
2:1 á Wembley-Ieikvanginum í Lundúnum í mjög lélegum leik. Mikið
vair um nýliða í enska landsliðinu og miðherjinn Wignall frá Nottm.
Forest, sem lék sinn fyrsta landsleik. skoraði bæði mörk Englands
og var bezti maður liðSins ásamt félaga sínum frá Nottm. Forest,
Hinton, sem Iék á vinstra kanti.
Greaves og Moore léku ekki
með vegna meiðsla og komu
Hunt, Liverpool og Young Sheff,
Wed. í þeirra stað Þá má geta
þess, að Alf Ramsey valdi ekki
Bobby Charlton. Manch. Utd.,
þrátt fyrir, að hann hafi sýnt
frábæra leilci að undanförnu með
félagi sínu, skoraði t.d. þrjú
mörk gegn Borussia, fjortmund, á
dögunum. Jones, Tottenham skor
að mark Wales og lagaði mark-
töluna í 2:1 um miðjan síðari hálf
leik. Eftir það hélt Wales uppi
mikilli pressu með Rees Conven-
try sem bezta mann, en ensku
vörninni tókst að standast ahlaup
in. Enski markvörðurinn. Waiters,
varði nokkrum sinnum mjög vel
í leiknum.
»