Tíminn - 22.11.1964, Side 16
1
s*
Sunnudagur 22- nóvember 1964
238. tbl.
48. árg.
MERKI VANTARÁ 63%
ÞJÚDVEGA LANDSINS
MB-Reykjavík, 21. nóvember.
Skýrslu þeirri, sem sajngöngu
málaráðherra hefur lagt fyrir al-
þingi um framkvæm.d vegaáætlun
ar árið 1964, kemur fram, að enn
þá er eftir að setja vegamerki
við 63% akfærra þjóðvega á land
inu, miðað við kílómetratal þeirra.
Auðvitað er ástandið mismun-
andi, eftir því hve fjölfarnir veg-
í dag er eitt ár liðið frá
því Kennedy forseti var myrt-
ur í Dallas í Texas, og verður
þess minnzt með minningarat-
höfnum víðs vegar um Banda
ríkin. Á fimmtudaginn afhjúp
aði Johnson forseti brjóst-
mynd af Kennedy í fundarsal
ráðuneytisins í Washington, og
verður myndin látin standa þar
þangað til hún verður flutt í
Kennedy bókasafnið, sem
byggt verður í Cambridge. Á
myndinni er Euni Shriver syst-
ir hins látna forseta.
J
RJÁTÍU OG EINN MAÐUR FÓRST11 SLASAÐIR OG1ÓMEIDDUR
FLUGSLYS SVÍA
NTB-Angelholm, 21 nóvember.
Mesta flugslys í sögu Svíþjóðar
varð í gærkvöldi, er tveggja
tveggja hreyfla farþegáflugvél frá
sænska flugfélaginu Linjeflyg,
hrapaði skammt frá Ángelholm,
það er á vesturströnd Svíþjóðar
á milli Halmstad og Helsingja-
borgar. 31 maður fórst, 11 slös-
uðust og 1 slapp ómeiddur. Far-
þegar með vélinni, sem allir voru
sænskir, voru 39 að tölu, en
áhöfnin fjórir menn, þar af einn
norskur. Líðan margra hinna slös
uðu er mjög slæm.
Flugvélin kom frá Stokkhólmi
og ætlaði að lenda í Halmstad, en
var neitað um lendingu þar
vegna veðurskilyrða. Ætlaði vélin
þá að lenda á flugvellinum fyrir
utan Ángelholm, en þegar hún
hafði gert allar nauðsynlegar lend
ingarráðstafanir, beygði flugmað-
urinn skyndilega til hægri til
að komast í rétta lendingarstöðu,
fór of lágt og rakst á háspennu-
streng járnbrautarstöðvar, sem er
skammt frá flugvellinum.
Þegar háspennustrengurinn
rofnaði heyrðist hár hvellur og
eldglæringar sáust í mikilli fjar-
lægð frá slysstaðnum. Vélin lenti
á hæð í 100 m fjarlægð frá jám-
brautarstöðinni og þeyttust hreyfl
arnir og vængirnar af henni. Sjálf
lagðist vélin saman en aftasti hluti j
hennar var svo til óskemmdur.
Louise Hoffsten önnur flugfreyj-
Ove Andersen
an, sem er frá Stokkhólmi, sat
aftast í vélinni, og var hún eina
manneskjan, sem slapp ósködduð.
Slæmt veður var á þessum slóð-
um í gærkvöldi og vont skyggni.
Herdeild, sem hefur bækistöð
í grennd við slysstaðinn, var fljót-
lega fengin til hjálpar og sjúkra-
bílarnar streymdu að og fluttu lík
in og hina særðu í sjúkrahús í
Ángelholm og í Helsingjaborg.
Nauðsynlegt var að gera upp-
skurði á flestum hinna særðu og
í dag Iítur út fyrir að þeir munu
allir halda lífi. Margir slösuðust
í brjósti eða maga, þar sem allir
höfðu spennt á sig öryggisbeltin,
vegna lendingarinnar. Flugvélin
snerist við í fallinu og þegar að
var komið héngu margir farþeg-
anna í sætum sínum.
Vegna skemmdarinnar á há-
spennustrengnum varð mjög mikil
truflun á allri umferð um vestur-
strönd Svíþjóðar í dag. Símasam-
band rofnaði líka á mörgum stöð-
um. Strax eftir slysið, streymdi
fólk úr öllum áttum að slysstaðn-
um og hafði lögreglan nóg að gera
við að koma sjúkrabilunum áfram.
Starfsfólk flugvallarins við Ángel
holm var úti á flugvellinum í gær-
kvöldi og beið lendingarinnar, en
gerði strax viðvart, þegar það sá
eldglæringarnar og heyrði spreng
inguna. Þegar að var komið, lá
flugvélin afvelta á jörðinni eftir
að hafa markað i hana 300 m.
langt og 10 m. breitt far. Margir
þeir, sem lifandi voru, er komið
var á slysstaðinn létust í sjúkra-
bílunum.
Á hádegi í dag höfðu öll líkin
þekkzt, en allir utan annars flug-
mannsins, sem var norskur, voru
Framhald á 15. síðu.
irnir eru. Til dæmis er alveg bú-
ið að merkja alla þá vegi, sem í
vegalögum eru nefndir hraðbraut
ir, en þeir vegir eru nú táldir
121 kílómetri. Hraðbrautum er
skipt í tvo flokka, A og B. A eru
þeir vegir, sem áætlað er að 10
þúsund bílar eða fleiri aki um
á dag innán 20 ára yfir sumarmán
uðina og skal stefna að því að
þeir verði með fjórfaldri ak-
braut og varanlegu slitlagi. B
eru þeir vegir, sem áætlað er
að 1000—10000 bílar aki um á
dag yfir sumarmánuðina innan 10
ára og skal miða að því að þeir
verði með tvöfaldri akbraut úr
varanlegu slitlagi. Eru hraðbrautir
alls taldar 121 kílómetri, eru
það aðalvegirnir út úr Reykja-
vík.
Þá koma þjóðbrautir. Það eru
vegir sem ná til eitt þúsund íbúa
svæðis eða meira og skal miða
að því að þær verði með malarlagi
og tvöfaldri akbraut. Til glöggvun
ar má nefna að á Suðurlandi end-
ar því þjóðbraut í Vík í Mýrdal.
Þjóðbrautir eru alls taldar 2792
kílómetrar og af þeim er búið að
merkja 2192 km., eða 78.5%.
Eftir eru þá landsbrautir, en
það eru þeir þjóðvegir, sem ekki
fullnægja áðurnefndum skilyrð-
um. Þær eru alls 5715 km og þar
er ástandið í merkingamálum
Framhald á 15. síðu.
Keflavík ■ Suðurnes
Framsóknarvist verður spiluð í
Aðalveri, næstkomandi miðviku-
dag, klukkan 9 síðdegis.
Mætið stundvíslega.
F.U.F., Keflavík.
Reykjan.kiördæmi
Formenn Framsóknarfélaganna
i Reykjaneskjördæmi eru beðnir
um að mæta á stjórnarfund í kjör-
dæmissambandinu í Tjarnargötu
26, klukkan 16 í dag, sunnudag. —
Akranes
Framsóknarfélag Akraness held
ur skemmtisamkomu í félagsheim
ili sínu Sunnubraut 21 í kvöld
klukkan 8.30. Spiluð verður Fram
sóknarvist og sýndar kvikmyndir.
Öllum heimill aðgangur.
Daninn varsleginn
Hsím.-Reykjavík, 21. nóv.
í blaðinu í gær birtist frá
sögn úr BT um leik Damnerk-
urmeistaranna í handknattleik,
Ajax og Vals, gestgjafaliðs
Dana, þar sem einn danski Ieik
maðurinn segir frá því að hann
hafi verið sleginn af áhorfenda.
Því miður virðist þessi frétt á
rökum reist eíns og eftirfar-
andi yfirlýsing, sem blaðinu
barst i gær, ber með sér.
„Ég stóð við fyrstu eða aðra
súluna, hægra megin í salnum,
ásamt bróður mínum, og get
fullyrt, að íslenzkur piltur
hrinti og sló til eins dansks
leikmanns — og öll framkom;.
þessa umrædda áhorfenda með
an á leinkum stóð var til lítils
sóma.
Einnig sá ég, að umræddur
leikmaður, Ove Andersen, gekk
á eftir piltinum og hefur senni
lega ætlað að hafa tal af hon
um, en pilturinn hljóp á brott.
Kom þá einn af fararstjórum
liðsins og fékk Ove Andersen
með sér — en hann var greini
lega mjög reiður. Síðan sá ég
eftir leikinn við Hafnarfjörð
að þessi íslenzki piltur stóð
milli sama fararstjóra og mark-
mannsins, Morten Petersen. og
voru þeir sýnilega að reyna að
fá hann til að koma með sér,
c-r; sem fyrr flýði pilturinn“.
Kolbrún Karlsdóttir.
Stýríshús til Stykkishólms
K.J.—Reykjavík, 21. nóv.
Það var heldur óvenjulegur
flutningur sem við sáum á vöru
bíl upp við Þóroddsstaði á föstu
dagskvöldið, — eða eitt heljar-
mikið stýrishús á fiskibát.
Við eftirgrennslan kom í ljós
að húsið var á ferðalagi frá Vél-
smiðju Björns Magnússonar í
Keflavík, þar sem það er smíðað.
og vestur í Stykkishólm, þar sem
það verður sett á nýjan 60—70
lesta eikarbát, sem er þar í
smíðum hjá Skipavík.
Björn Magnússon í Keflavík
sagði blaðinu, að þeir hefðu gert
töluvert af því að smíða svona
hús og hvalbaka fyrir fiskibáta,
sem síðan eru send út á land.
Þetta væri þó í fyrsta skipti sem
svona stórt hús væri sent á bí
alla þessa vegalengd vestur i
Stykkishólm. I fyrsta áfanga var
farið til Reykjavíkur. og í dag
var ætlunin að komast á leiðar
enda. Tafir verða áreiðanlega ein-
hverjar á leiðinni vegna síma og
rafmagnslína, því eins og sjá má
á myndinni sem fylgir fréttinni
þá er húsið ekkert smásmíði.