Tíminn - 08.12.1964, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 8. desember 1964
TIMINN
Barna- og unglinga-
hækur Iðunnar
AAJHöfn, Hornafirði, 30. nóv.
Gamanieikurinn „Þrír skálkar“ var frumsýndur hér í Sindrabæ, laugar-
daginn 28. nóvember fyrir fullu húsl og við mikla hrifningu. Leikurum
og leikstjóra bárust blóm og var ákaflega fagnað. Tvær svningar voru
á sunnudag einnig fyrir fullu húsi. Ákveðið er að fara ■ leikfór til
Eskifjarðar 5. desember og hafa þrjár sýningar. Leikstjórinn, Höskuldur
Skagfjörð, hefur sýnt mikinn dugnað við að koma þessu leikrlti á
svið, og tók ekki nema mánuð að æfa það.
Myndin er af Mettu (Hildigerði Skaftadóttur) og Núrí, spákerlingu
(Sigrúnu Eiríksdóttur).
Forlagið Iðunn gefur út allmarg
ar barna- og unglingabækur að
i venju á þessu hausti.
Eftir Davíð Áskelsson koma út
tvær bækur, ætlaðar yngstu 'esend
unum. Nefnast þær Dansi, dansi
tíúkkan mín og Litlu börnin leika
sér. Eru þær með teikningum eftir
Halldór Pétursson. Þá má nefna
þriðju smábarnabókina eftir Björn
Daníelsson, og nefnist hún Puti í
kexinu. Allar þessar bækur eru
prentaðar á stóru og greinilegu
letri og vel fallnar til lestraræf-
inga, jafnframt því að era
skemmtilegar og fræðandi, þó að
l með ævintýrabrag sé.
Eyja útlaganna nefnist drengja-
| bók eftir norskan höfund, Magnus
I Thingnæs, og gerist í norska
skerjagarðinum. Benedikt
Arnkelsson hefur þýtt hana. Þetta
er viðburðarík saga, sem hlotið
hefur hylli drengja, bæði heima
í Noregi og erlendis
Þá má nefna bók fyrir unglings-
stúlkur, er nefnist Dagbók Evu,
eftir Mollie Faustman í þýðingu
Jóns G. Sveinssonar. Þessi bók
hlaut verðlaun í sænskri keppni
um beztu sögu til handa unglings-
stúlkum.
Fimm í hers höndum er ný bók
Skortur á húsnæði að Hdlum
vegna
NH—Hofsósi, 4. des.
í sumar hafa verið þó nokkrar
framkvæmdir að Hólum í Hjalta)
dal. Þar var reist anddyri milli
leikfimihússins og aðalbyggingar
innar og tengir það húsin saman.
Þá voru einnig nokkrar endurbæt
ur gerðar á gömlu húsakynnunum
gler tekið upp og tvöfaldað, sett-
ar í nýjar hurðir og nýjum frysti
klefa komið upp jafnframt því,
sem ræktað land staðarins var
aukið
Mikill áhugi er ríkandi hjá for-
ráðamönnum Hóla, bæði heima og
heiman um uppbyggingu skólans,
og einnig fleiri skóla á staðnum í
framtíðinni Hólabúið er að
nokkru leyti tvíþætt, þar eð það
stendur undir eigin rekstri annars
vegar, og er svo um leið kennslu,
bú fyrir bændaskólann. Stefán-
Aðalsteinsson hefur að undan
förnu haft þár aðstöðu til sauð
fjártilrauna, bæði tilrauna til þess
að auka gæði ullarinnar og kjöts
ins
j
Á flólum eru einnig hrossarækt1
artilraunir í fullum gangi, og er
verið að reyna að hreinrækta
Svaðastaðastofninn. en í því skyni
voru keyptaj: nokkrar hryssur og
folar nýlega. Bústofninn, eins og:
hann er nú, er 70 nautgripir, 601
kindui og 100 hross.
í Bændaskólanum að Hólum eru
rúmlega 30 nemendur í vetur eða
um 10 fleiri en i fyrra, og um-
sóknir eru þegar farnar að ber-
ast fyrir næsta vetur, og jafnvel
fyrir veturinn '66—67. Eins og
stendur er varla rúm fyrir fleiri
nemendur, og síðan fjölgaði í skól
anum hefur orðið tilfinnanlegur
skortur á húsnæði fyrir starfsfólk
ið á búinu sjálfu
í sumar fóru fram athuganir á
því, hvort heitt vatn myndi fást á
Hólum og eru líkur taldar sterkar
fyrir því að svo sé, og er nú mikill
áhugi á að hefja rannsóknarborun
Hefur verið ákveðið að fram-
kvæmó rannsóknarborun strax og
Sauðárkróksborinn svókallaði er
laus sem líklega verður í vetur
eða með vorinu. Mikið hefur ver-
ið rætt um að koma upp héraðs
skóla í héraðinu, og fyndinst mörg
um æskilegt, að hann yrði reistur
á Hólum, og finndist heitt vatn
á staðnum, væru það að minnsta
kosti mikil meðmæli með honum.
eítir Enid Blyton í þýðingu Krist-
mundar Bjarnasonar. Áður eru
komnar út átta bækur í þessum
flokki hjá Iðunni, en Enid Blyton
er einn vinsælasti barnabókahöf-
undur, sem nú er uppi.
Eftir sama höfund kemur og út
bókinDularfulla hálsmenið, og er
það fimmta bókin í þeim flokki.
Þá hefur Iðunn hafið endurút-
gáfu á sögunum af Önnu í Grænu-
hlíð eftir L. M. Montgomery, en
þær sögur urðu fyrir allmörgum
árum afar vinsælar meðal unglings
stúlkna. Kemur í haust út önnur
bókin í þessum flokki, en þes6ar
bækur eru í þýðingu Axels Guð-
mundssonar.
Að undanförnu hefur Iðunn gef-
ið út flokk barnabóka um Óla Alex
ander, sem lengi var kunn sögu-
STamnaic » ois u
Fl gefur
afslátt
Flugfélag íslands hefur um
margra ára skeið haft þann hátt
á að veita skólafólki afslátt af far-
gjöldum innan lands um hátíðarn-
ar og auðvelda þannig þeim, sem
stunda nám við skóla fjarri heim-
ilum sínum, samvistir vjð ætt-
ingja og vini á sjélfri hátíð heim-
ilanna, jólunum.
Þessi háttur verður og hafður
á nú. , i , ........ t
Állt skólafólk, sem óskar að
ferðast með flugvélum félagsins á
flugleiðum innan lands um hátíð
arnar, á kost á sérstökum, lágum
fargjöldum, sem ganga í gildi 15.
desember í ár og gilda til 15.
janúar 1965.
Þessi fargjöld eru 25% lægri
en venjuleg einmiðafargjöld innan
lands.
Afsláttur þessi er háður þeim
skilyrðum að keyptur sé tvímiði
og hann notaður báðar leiðir, og
2. ýnt sé vottorð frá skolastjóra,
sem sýni, að viðkomandi stundi
nám við skólann.
Það skólafólk, sem hugsar sér
að notfæra sér þessi hlunnindi
ætti að panta sér far með góðum
fyrirvara, því samkvæmt reynslu
undanfarinna ára verða síðustu
ferðjr fyrir jól fljótt fullskipaðar
Auk DC-3 flugvélanna mun
Viscountflugvélin „Gullfaxi” jrða
í innanlandsfluginu um hátíðarnar
Ævisaga eyðimerkurkonungs
FB—Reykjavík, 4. des.
Ibn Saud, ævisaga eyðimerkur-
konungsins eftir David Howarth
er komin út hjá Bókaútgáfunni
Vörðufelli í Reykjavík. Bókin seg-
ir frá ibn Saud, sem árið 1901 hélt
við fertugasta mann frá Kuwait til
þess að heimta aftur konungdæmi
föður síns. Hann var þá tutf - og
eins árs og félaus. Þegar hann dó
fimmtíu árum síðar réð hann óum-
deilanlega yfir nærri allri Arabíu
og var sennilega annar ríkasti mað
ur heimi.
Á bókarkápu segir, að markmið
hins ævintýralega lífs ibn Saud
hafi verið tvíþætt: að sameina Ara-
bíu og hreinsa trúna; i nafm trúar
innar færði hann út veldi sitt frá
hafi til hafs og hertók hina helgu
borg Mekka Hann var hraustur
hermaður, vígfimur f návígi með
sverð og byssu og meistari í hinni
ævafornu hernaðarlist eyðimerkur
búanna en mildi hans og persónu
töfrai tærðu honum einnig sigur
yfir þrjózkufullum sheikum.
Oft vann hann uppreisnarmenn
á sitt band með pví að setja þá
aftui stöðui sínar og kvænast
systrum þeirra og dætrum (sagt
er að hann hafi kvænzt 300 sinn-
um) Eyðimerkurkóngurinn dreg-
ur ekki einungis upp skýra mynd
ai nafnkunnum stríðsmanni og
þjóðlífi sem hvergi á sér hlið-
stæðu á tuttugustu óldinm. hún
er jafnframt viðburðarrík og hug-j
tæk saga, sem kemur lesandanum i
hvað eftir annað til að minnast
hins forna arabíska ævintýraheims
í Þúsund og einni nótt
Þýðndi bókarinnar er Sig-
laugur Brynleifsson og lætur þess
getið lok eftirmála. að i þann
muna sem bókin fór í prentun
hafi Saud verið settur af og Faisal |
hafi tekið við af honum. Veikindi j
konungs voru nefnd sem ástæða
fyrir valdaafsali hans. |
3
Afmælisminning
Morgunblaðsins
Dýrtíðarmál eru eitt megin-
viðfangsefni hverrar ríkisstjórn
ar, ekki aðeins hér á landi,
heldur í flestum öðrum lýðræð-
islöndum. í fyrrahaust baðst
finnsk ríkisstjórn iausnar, af
því að dýrtíðin hafði vaxið um
5,6% á einu ári og ekki var
samstaða um gagnráðstafanir
til stöðvunar. Árið 1958 baðst
Hermann Jónasson, þáverandi
forsætisráðhcrra, lausnar fyrir
ráðuneyti sitt, af því að fyrir
dyrum var 17 stiga hækkun
vísitölunnar, ef ckki yrði að
gert, og ekki var samstaða um
gagnráðstafanir með stjórnar-
flokkum. Þessi dýrtíðarhækkuh
stafaði einvörðungu af ábyrgð-
arlausri stjórnarandstöðu Sjálf
stæðisflokksins, sem hafði
meira að segja gengið svo langt
að láta einstök fyrirtæki ná-
tengd flokknum bjóða kaup-
hækkanir til þess að koma
skriðunni af stað. Þegar Sjálf-
stæðisflokkurinn kom svo sjálf-
ur til vald-a litlu síðar, var
fyrsta verk lians að taka aftur
þær kauphækkanir, sem hann
hafði komið fram, en dýrtíðin,
sem af þeim hafði skapazt,
hélzt og vel bað.
Morgunblaðið minntist þess
fyrir nokkrum dögum, að sex
ár voru liðin síðan vinstri
stjórnin fór frá af fyrrgreind-
um ástæðum, 17 vísitölustigun-
um, sem ekki fékkst samstaoa
um að ráðast gegn, og Sjálf-
stæðisflokkurinn og Alþýðu-
flokkurinn tóku við völdum
með það loforð æðst að stöðva
dýrtíðina.
130 stig — og
situr enn
Það loforð hefur „viðreisnar-
stjórnin“ efnt með þvi að
hækka dýrtíð og verðbólgu um
Bjami Benediktsson.
60—70 stig, sem eru tvöföld á
við 17 stigin 1958, eða sam-
svara a. m. k. 130 sams konai
stigum. En Bjarna Benedikts-
syni hefur ekki þótt ástæða til
þess að biðjast lausnar. Hann
telur sig hafa siðferðislegan
rétt til að sitja, þó að hann
hafi efnt stöðvunarloforð sín
með því að bæta við 130 stig-
um. Von er, að honum þyki
löðurmannlegt að segja af sér
vegna einna 17 stiga.
Viðreisnarstjórnin hefur
blásið út dýrtíðina margfalt
á við vinstri stjórnina, þrátt
fyrir loforð um stöðvun. For-
sætisráðherranum hefur þó
aldrci dottið í hug, að honum
bæri að segja af sér. Hans
boðorð er það eitt að sitja, og
sitja sem fastast, hversu sem
fer um öll loforð. Og er nokkur
furða, þótt hann bendi með
Framnald á bls. 13.
IBN SAUD