Tíminn - 08.12.1964, Side 12
fyrlrliða KR, Reykjavíkurbikarinn. Fyrir affan er
afhendir Karli
Andreas
Fyrri leikur ÍR og Belfast Collegians í Evrópubikarkeppn-
inni í korfuknattleik, fór fram í íþróttahúsinu á Keflavíkur-
flugvelli á laugardaginn. Lauk leiknum með yfirburðasigri
ÍR 71:17. Þetta var sannarlega leikur kattarins að mús-
inni. Ollu leikmenn Collegians töluverðum vonbrigðum. Eftir
leik þennan má alveg slá því föstu, að það verður ÍR. sem
mætir Frakklandsmeisturunum í baráttunni um áframhald-
andi keppni í 2. umferð.
Yfirburðir ÍR voru of miklir til
þess að um skemmtilegan leik
væri að ræða. Leikurinn var á köfl
um oft daufur og olli því „taktik“
íranna í sókn. ÍRingarnir voru
taugaóstyrkir fyrstu mín. leiksins
og þeir voru mjög óheppnir með!
körfuskot. A 2. mín. skorar1
Murphy úr tveim vítaköstum, en
bá vakna fR-ingai taka góðan
spreti og breyta stöðunm i 9:2.
Um miðjan nálfleikinn er nokkuð
þóf, oe þegar 9 mín. voru til hálf1
leiks var staðan 11:5 ÍR í hag.
Þá taka þeir sig til Birgir Jakobs-
son. Hólmsteinn og Viðar og
skoruðu hverja körfuna á fætur
annarri og lauk hálfleiknum 31:5
fyrir ÍR. ÍR-ingar byrjuðu síðari
hálfleik öllu betur en þann fyrri.
Settu þeir oft upp skemmtilegar
leikflettur. sem gjörsamlega rugl
uðu írana ÍR-ingai skoruðu á
skömmum tíma 13 stig gegn l Þá
byrjuðu þeir að leyfa írunum að
skjóta af færi. Á 7. mín. síðari
hálfleiks skora svo Collegians úr
langskoti í fyrsta skipti í leiknum
allt hitt höfðu írsku leikmennirn
ir skorað úr vítaköstum. ÍR-ingar
héldu nú áfram að auka forskotið
og lauk leiknum með yfirburðar
sigri 71:17. ÍR ingar hafa oft sýnt
betri leik en þennan, sendingar
voru tíðum ónákvæmar og komust
írarnir stundum inn í þær.
Hjá ÍR bar mest á þeim Birgi
Jakobssyni, ungum leikmanni,
skoraði 16 stig (þar af 10 í röð í
síðari hálfleik) og Hólmsteini
(16 stig). Þá var liðinu mikill
styrkur af Guðmundi Þorsteins-
syni sem nú lék aftur með eftir
langa fjarveru vegna veikinda.
Hanr var svo til einráður undir
báðum bakfjölum og skoraði auk
þess 12 stig.
Þorsteinn .-iallgrímsson (6 stig)
lék oft snilidarlega og byggði vei
upp en meiddist á fæti í fyrri
hálfleik og var hafður lítt inn á.
kramhalo a bls 13
írsku lelkmennirnir berjast um knöttinn í leiknum gegn ÍR á laugaidag.
I
SigurSardóttir, fyrirliði kvennaliðs Vals, með Reykjavíkurbikarinn í mfl. kvenna.
Varnarleikaðferðin
færði okkur sigur
- segir Karl Jóhannsson. - KR-ingar urðu Reykjavíkurmeíst-
arar í handknattleik 1%4.
Islenzku og sænsku
meistararnir í dag
í dag klukkan 17.30 eftir íslenzkum tíma hefst í Gautaborg í
Svíþjóð, leikur Fram og Redbergslid í Evrópubikarkeppninni í
handknattleik. Eflaust bíða margir spenntir eftir urslitum leiks-
ins minnugir góðrar frammistöðu leikmanna Fram í síðnstu
Evrópubikarkeppni. — Eins og fram kom í viðtali við Birgi Lúð-
víksson, formann handknattleiksdeildar Fram, hér í blaðinu fyrir
helgi, taldi hann Fram-liðið í góðri æfingu, en varaði við of
mikilli bjartsýni. Svíar eiga handknattleikslið, seni eru á borð
vð það bezta í heiminum — og eiga mun sterkari lið en t. d.
Danir. Það ber einnig að hafa í huga, að heimavöllur hefur mikla
þýðingu og hjálpar það eflaust Svíunum í dag.
Engu að síður er ástæða til að vona það bezta og allir hér
heima hljóta að óska Fram velgengni í þessari viðureign við
frændur okkar í Svíþjóð, því eftir þessum leik verður tekið
og dæmt út frá.
Alf — Reykjavík, 7. desember.
— Við getum þakkað nýrri varnarleikaðferð sigur í pessu
móti, sagði Karl Jóhannsson, fyrirliði KR, eftir að KR-ingar
höfðu tryggt sér sigur í Reykjavíkurmótinu í handknattleik
á sunnudag. Þessi ummæli Karls eru vissulega réttmæt, KR-
ingar hafa leikið afbrigði af tvöfaldri vörn í öllum leikjum
sinum í Reykjavíkurmótinu og ekkert lið fundið svar við
henni. Síðast urðu ÍR-ingar fórnarlömb, en þeir stóðu gersam-
lega ráðþrota gegn þessari varnarleikaðferð KR s.l. sunnu-
dag og náðu aldrei að ógna sigri KR, 17:8.
KR-ingar eru Rvíkurmeistarar í
handknattleik 1964 eftir að hafa
unnið alla sína leiki, einnig gegn
íslandsmeisturunum Fram. Frekar
óvæntur sigur, en fyllilega verð-
skuldaSur. Hvort KR teikst eins vel
upp í íslandsmótinu skal látið ó-
sagt, en liðið er í stöðugri fram-
för og sinn stóra þátt í því eiga
ungu leikmennirnir. Bakgrunnur-
inn er svo Karl Jóhannsson ,sem
itýrir liði sínu á velli, en utan vall-
ar er Reynir Ólafsson, sem sjálfur
h'efur lagt skóna á hilluna, en erj
nú þjálfari liðsins.
i
á sunnudagskvöld fór annar leik |
ur fram í meistaraflokkj karla og j
áttust við Þróttur og Víkingur. j
Þróttur vann með 8:7 eftir
skemmtilega viðureign. Einum j
leik er nú ólokið í mótinu, leik
Fram Ármanns, en honum var
frestað vegna utanfarar Fram.
j Valsssúlkurnar sigr-
iuöu í meistaraflokki
j Valsstúlkurnar urðu Rvíkurmeistarar í mfl. kvenna, en á
j laugardag sigruðu þær Ármann með 7:4 í spennandi Ieik.
Sigur Vals var verðskuldaður, þótt tvísýnt væri um úrslit
! undir lokin. Valur hafði yfir í hálfleik 4:2, en Ármann jafn-
aði þetta bil um miðjan síðari hálfleik, 4:4.
En síðasti kafli leiksins var vel
leikinn af hálfu Vals-stúlknanna.
Sigríður S.igurðardóttir skoraði 5:4
úr víti og biætti litlú siðar 6. mark
inu við. Öruggan sigur undirstrik
aði svo Björg „litla“ Guðmunds-
dóttir, systir Sigrúnar með fallegu
marki. — Dómari í íeiknum var
Guðjón Magnússon og virðist þar
á ferð upprennnandi góður hand-
knattleiksdóm ari.
A iaugardagskvöld fór einnig
fram úrslitaieikur í 2. flokki
kvenna og áttust við Fram og Vík
ingur. Fram-stúlkurnar sigruðu
örgglega 5:1. Má til gamans geta
þess að þetta er eini flokkurinn frá
Fram, sem sigraði í þessu Rvíkur-
móti, en Fram hefur átt mikilli
velgengni að fagna í Reykjavíkur-
mótinu s.l. ár.
KR og Valur unnu í flestum
flokkum í nýafstöðnu Rvíkurmóti í
handknattleik. Hér birtist tafla yf-
ir sigurvegara.
Mfl. karla. KR.. 1. fl. karla KR
2. flokkur karla: Valur. 3. flokku.
karla: Valur.
Mfl. kvenna: Valur
2. fl. kvenna: Fram.
I.R. reyndist alger of-
Jarl írsku meistaranna
- Vann Collegians með 71:17 á laugardaginn
RITSTJÓRI: HALLUR SÍMONARSON
IWfflíiIiMI TÍMINN ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 8. desember 1964