Tíminn - 11.12.1964, Blaðsíða 1
Þurrabúðarmenn lýsa sambúðinni
VITA EKKI UM
NEFNDASAMNING
VIÐ STJÚRNINA
Skeiðará kemur enn sem fyrr að mestu undan suðausturhorni hans, við Jökulfell. Þar er jökullinn brattur en
ekki úfnari en svo að oft hefur verið farið upp með Jökulfelli og yfir jökulinn fyrir ofan upptökin. Myndin
var tekin í haust af Skeiðará, þar sem hún rennur undan jöklinum. Tímamynd.
JÚKLAR MINNKA
MINNA EN ÁÐUR
MB-Reykjavík, 10. des.
Jöklar hafa minnkað heldur
minna í ár en undanfarið, sam-
kvæmt þeim niðurstöðum jökla-
mælinga, sem nú liggja fyrir, að
sögn Jóns Eyþórssonar, veður-
fræðings, og sumir hafa jafnvel
lengzt nokkuð.
Blaðið átti í dag tal við Jón
Eyþórsson, veðurfræðing, sem að
öðrum ólöstuðum er allra manna
fróðastur um breytíngar á íslenzk-
um jöklum og hegðun þeirra.
— Yfirleitt hafa jöklar stytzt á
langflestum mælingastöðvunum,
sagði Jón, en með minna móti eins
og eðlilegt er eftir fremur kalt
sumar, og á stöku stað hefur orð-
ið lítilsháttar framgangur. Mörg
árin hafa allir jöklar stytzt, svo
að þetta ár hefur orðið nokkur
„afturför" í þróuninni. Til dæmis
hefur Kvíárjökull lengzt um 52
metra og Fellsjökull um 20 metra.
Aftur á móti hefur Breiðamerkur-
jökull stytzt um 70 metra,
Jón kvað orðið erfiðara með
mælingar en áður vegna fólksfæð-
ar í nágrenni jöklanna. Til dæmis
Framh. á bls. 2.
TK-Reykjavík, 10. des.
Alfreð Gíslason upplýsti það á
þingi í dag, að sambúðin á Alþýðu-
bandalagsheimilinu er á þann veg
komin, að ekki er einu sinni rætt
við þá „þurrabúðarmenn", Gils,
Alfreð og Hannibal, um meginmál-
efni eins og samninga Sósíalista-
flokksins við stjómarflokkana um
fjölgun í nefndum. Var þetta til
frekari undirstirkunar á þeirri yf-
irlýsingu Þjóðviljans fyrir nokkr-
um dögum, að samstarfsmenn
kommúnista í Alþýðubandalaginu
væm ekki annað né meira en
„þurrabúðarmenn hjá Sósíalista-
félagi Reykjavíkur“.
Við umræður í efri deild í gær
um frumvarp á breytingu á lögum
um þingsköp Alþingis, þ. e. að
fjölga í þingnefndmn úr 5 í 7,
gerði Ólafur Jóhannesson þá grein
fyrir afstöðu Framsóknarmánna
til þess máls, að þar sem hér væri
um samkomulag að ræða, sem gert
hefði verið utan þings milli Sósíal-
istaflokksins annars vegar og
stjórnarflokkanna hins vegar, sem
Framsóknarflokkurinn hefði ekki
átt neina aðild að, og því lýst yfir
að hans aðildar væri ekki þörf.
Framsóknarflokkurinn vildi því
ekki bera ábyrgð á þessari ráðstöf-
un og rétt að stjórnarflokkarnir
bæra einir heiðurinn af henni.
Heiður þeim, sem heiður ber. Hins
vegar vildu Framsóknarmenn ekki
bregða fæti fyrir þessa breytingu
af samúð með Alþýðubandalaginu,
því að samkvæmt þingstyrk þess
ætti það fullan rétt á einum full-
trúa í 5 manna nefndum, en þessu
sæti ræna stjómarflokkarnir með
sameiginlegum lista víð nefnda-
kjör. — í þessu máli hefur ráð-
herrum gengið illa að samræma
guðspjöll sín. Bjarni Benediktsson,
Framhald á 3. síðu.
FJÖRTÁN
TEKNIR
MB-Reykjavík, 10. desemeber
Várðskipið Þór tók í dag biezk
an togara út af Geiróifsgnúp og
er það fjórtándi cogarinn, sem
varðskip færir til hafnar á þessu
ári fyrir ólöglega iandhelgisve\ðar.
Undanfarin ár hafa ekki svo ir.arg-
ir togarar verið teknir við élög-
legar veiðar.
f nótt kom varðskipið Þór að
brezka togaranum Kingston Jac-
inth H-198 að meintum ólögletrum
veiðum, 2.4 sjómílum innan við
fiskveiðilögsögutakmörkin út af
Geirólfsgnúp. Fór varðskipið með
togarann til Akureyrar og komu
Skipin þangað í morgun.
Þetta er fjórtándi togarinn, sem
varðskip taka við ólöglegar veiðar
hér við land á þessu ári. 11 þeirra
hafa verið brezkir og 3 íslenzkir.
Er þetta óvenjulega há tala og
hærri en verið hefur undanfarin
ár. Til dærnis voru 11 togarar teíkn
ir í fyrra og venjulega hafa þeir
verið 10—12. Er þá að sjálfsögðu
■ekki reiknað með þeirn mörgu tog
uram, sem kærðir voru í „þorska
stríðinu" en ekiki var unnt að
færa til hafnar vegna valdbehing
ar brezkra hersfeipa.
TVEIR FENGU
MILLJÓNIRNAR
KJ-Reykjavík, 10. des.
í dag var dregið í 12. flokki
Happdrættis Háskóia fslands. og
meðal vinninganna sem út vora
dregnir, vora tveir a eina milljón,
er komu upp á miða númer 36.
580 og seldir í umboði Frímanns
Frímannssonar í Hafnarhúsinu.
Sitt hvor maðurinn atti miðana,
og þrír aðrir aukavinningana sem
eru 50000 hver. Sá sem átti
númer 36.581 hafði Oætt við sig
miðum í Aukaflokknum og fékik
því eitthundrað þúsund krónui í
aukavinninga.
Tíminn reyndi að ná tali af þess
um tveim nýju „miliiónerum" en
annar vildi ekkert við blöðin tala,
og hinn sagðist ekki geta talað við
blöðin fyrr en hann væri búinn að
jafna sig eftir að hafa fc-ngið
milljónina.
Tvö hundruð þúsund króna vinn
ingurinn kom á háifmiða númer
13.816. Voru tveir miðanna seldir
Framh. á ols. z
Frá drættinum í 12. flokki Háskólahappdrættisins í gær. Úr stærra
hjólinu eru vinningsnúmerin dregin, en vlnningsupphæðir úr því
minna, lengst til vinstri. (Timamynd KJ.).