Tíminn - 11.12.1964, Blaðsíða 11

Tíminn - 11.12.1964, Blaðsíða 11
FOSTUDAGUR 11. desember 1964 T8SV8SNN 49 ágangi sævarins. Þar ei stórt rif. Ef til vill er Tahiti hvergi jafn þéttbýl og þar. Það var þessi strönd, sem ég hafði séð, þegar Bounty á sínum tíma nálgaðist ströndina. Þegar rifinu sleppir taka við grænir klettar, sem bylgjur Kyrrahafsins gnauða við. Það er óbyggt og hrjóstrugt land, þar sem eyjarskeggjar álíta, að illir andar búi. Þar sem rifinu sleppir og klettarnir byrja, lá litla kóraleyjan, um hálfa mílu vegar frá landi, og þar höfðum við hugsað okk- ur að eyða deginum. Við breiddum ábreiður okkar í skugga af stóru tré, og Tuahu sótti morgunverðinn. Stewart hrópaði til konu sinn- ar: Komdu með börnin, Peggy, við Byam skulum líta eftir þeim meðan þið Tehani rannsakið eyjuna. Við Stewart teygðum makindalega úr okkur í skuggan- um. Dætur okkar sváfu í vöggum sínum, hreyfðu sig annað slagið, en opnuðu ekki augun. — Byam, hvað álítið þér, að sé orðið af Christian? spurði Stewart. — Stundum dettur mér í hug, að hann hafi framið sjálfsmorð. — Það hefur honum aldrei dottið í hug. Hann fann til svo míkillar ábyrgðar gagnvart samsærismönnum sínum, að slíkt er útilokað. ' — Ef til vill hafið þér á réttu að standa. Þeir hafa þá sennilega setzt að á einhverri eyjunni. Mér þætti gaman að vita. hvar þeir eru. — Ég hef oft hugsað um það, svaraði ég. — Það kann að vera, að þeir hafi siglt til Navigator-eyjanna, eða til einhverrar kóraleyjarinnar, sem við fórum fram hjá í norð- urleiðinni. Stewart hristi höfuðið: — Það held ég ekki, sagði hann. — Þeir staðir eru allir of kunnir. Það hljóta að vera fjölmargar óþekktar, gróðursælar eyjar í hafinu hér um- hverfis. Christian hefur áreiðanlega leitáð hér að aðseturs- stað, þar sem hann hefur mátt vera nokkurn veginn óholt- ur. Ég svaraði ekki, og lengi lá ég á bakinu með hendurn- ar undir hnakkanum. Friður og fegurð eyjarinnar hreif mig mjög. Fyrir utan hinn hvíta kóralboga gáraðist flöt- ur Kyrrahafsins. Ég leitaði í huganum að grískri setningu, og að lokum fann ég hana. Sjórinn dökkur sem vín. Ste- wart talaði við sjálfan sig í hálfum hljóðum: Þetta er tilval- inn staður handa einbúa, hér getur hann látið hugann reika. — Mynduð þér vilja búa hér? spurði ég. — Ef til vill. En ég myndi sakna þess að sjá aldrei ensk- an mann. En þér, Byam, sem búið eingöngu meðal hinna innfæddu, óskið þér aldrei eftir nærveru manna af yðar eigin kynstofni? Eg hugsaði mig um andartak, áður en ég svaraði: — Nei, þess hef ég ekki óskað ennþá. stewart brosti. Þér eruð þegar að hálfu leyti orðinn Tahitibúi. Enda þótt mér þyki vænt um Peggy, myndi mér leiðast á Matavai, ef Ellison væri þar ekki. Mér er farið að þykja vænt um þann pilt, og hann dvelur hjá okkur tímunum samán. Það var hörmulegt. að hann skyldi gerast uppreisnarmaður. — Það er ekkert illt í þeim pilti, sagði ég, — og nú verður hann að sigla burtu ásamt Morrison og eyða því. sem eftir er ævinnar, meðal mannætna á einhverri eyju hér vestur frá. Aðeins vegna þess, að hann gat ekki neitað sér um, að sveifla byssusting við nefið á Bligh. „Resolution“ verður hleypt af stokkunum eftir sex vik- ur, sagði Stewart. — Morrison hefur nærri því gert krafta- verk! Þetta er lítið en laglegt skip og þolir hvaða storm sem er. Konur okkar komu nú aftur, og á eftir þeim kom Tuahu, sem bar angandi blóm, sem þær höfðu bundið í blóma- vendi. Ég veitti sérstaka athygli blómi með langa anga og dá- samlegan ilm. Það var óþekkt á Tahiti og stúlkurnar veltu því fyrir sér, hvað það gæti heitið. — Þetta blóm er algengt á eyjunum vestur frá, þar sem mannæturnar búa, sagði Tuahu. — Ég sá breiður af þessum blómum á Anæa, þegar ég var þar í fyrra. íbúarnir á Anæa hafa gefið þessu blómi nafn, og það höfum við líka, en ég man hvorugt. — Tafano, hrópaði Tehani allt í einu. — Já, það er víst nafnið, sagði bróðir hennar, og ég skrifaði hjá mér nafnið til þess að hafa það með í orðabók- inni. Við sóttum matarílátin fyrir stúlkurnar, en þvi næst vik- um við karlmennirnir okkur afsíðis, að sið Tahiti-búa, með an við mötuðumst. Þegar máltiðinni var lokið, og við höfð- um öll hreiðrað um okkur i skugga trjánna, sagði Tiíahu okkur þjóðsögu um eyjuna. — Langar ykkur til þess að heyra, hvernig á þvi stend- ur, að hér búa engir menn? Það er vegna þess, að það er hættulegt að dvelja hér á nóttunni, hóf hann máls. — Oft hafa menn reynt að sofa hér til þess að reyna hugrekki sitt, eða vegna þess, að þeir vissu ekki, hvað það var hættu- leg't að sofa hér. En allir hafa þeir komið til Tahiti að morgpi þöglir og niðurbrotnir og þeir hafa eftir á annað- hvort dáið eða brjálazt. Frá því menn fyrst muna hefur komið hingað kona á hverju kvöldi, þegar sól er hnigin. Hún er fegurri en allar aðrar konur undir sólunni, hefur hreimfagra rödd, sítt, fagurt hár og ómótstæðileg augu Hún leikur sér að því að tæla mennska menn, en faðmlög hennar gera menn vitskerta. Stewart kinkaði kolli. Hann sleit upp tvö strá, annað langt, en hitt stutt, svo rétti hann þau í áttina til mín, gaf stúlkunum hornauga og sagði: — Við skulum draga um það, hvor okkar á að dvelja þar í nótt. Tehani greip stráin úr hendi hans. — Þú mátt vera hérna í nótt, ef þú vilt, sagði hún við Stewart, — en Byam kemur í land Ég vil ekki láta neinar töfrakonur tæla hann. Stewart sigldi til Matavai daginn eftir þessa skemmtiferð okkar, og fjórir mánuðir liðu, áður en ég sá hann aftur. NYR HIMINN - NÝ JÖRÐ EFTIR ARTHÉMISE GOERTZ 59 Narcisse hafði gleymt að koma með vagninn. — Hví skyldi hann koma með vagninn, þegar þinn vagn er þægi legri? — Ég tók hana upp í vagninn vegna þess, acr nún komst ekki heim á nokkurn hátt öðruvísl. — Var það kannski vegna þess, að þú ætlaðir heim með hana, sem þú ókst upp eftir veginum í átt frá bænum? Gerði hann það ekki, Marcel? — Jú. svaraði Marcel hásum- rómi. — Ég var í sjúkravitjun. Ég gat ekki skilið hana eftir, þar sem hún var. þegar að gekk með ofsa- veður. — Já, einmitt. Sjúkravitjun úti í mýrinni. Sjúkur krókódíll senni- lega? Þú heldur þó líklega ekki, að við höfum ekki séð þig fara beint til stefnumótsins í kofanum. — Við leituðum þangað til að standa af okkur óveðrið. Leon hló. — Vorum við alein þar. Segðu systur þinni frá því. Vorum við ein? — Ég veit ekkí hvort ég á að telja hundinn með. sem átti að vara ykkur við, ef eínhver kæmi? — Þú veizt vel, að Felix dreng- urinn var með okku henni það Leon hló hæðnislega. - A eg líka að segja henni frá því, að þú borgar honum fyrir lánið á kofanum og fyrir að standa vörð með byssu til taks? Lækninum fannst hann ætla að kafna af reiði. Hann hefði getað tekið unga manninn og slegið honum upp við vegginn. Hann kreppti hnefana. Kóletta stóð hreyfingarlaus ein og höggmynd, sagði ekki orð. Hún fylgdist með orðaskiptum þeirra eins og ann- ars hugar og leit til þeirra á víxl. Hið eina, sem bar þess vott, að þetta fengi á hana, var eld- heitur roði i vöngum hennai En hún gat ekki trúað bróður sínum. Hún hlaut að ímynda sér, að hann hefði ætlað sér að slá tvær flugur í einu höggi, hefna sín á lækninum og herja út vasa- peninga. Viktor sneri sér að henni og mæltí rólegri röddu: — Kóletta, trúir þú þessu öllu? Varir hennar titruðu. eins g henni lægi við gráti. — Já, svaraði hún. — Komdu Marcel, sagði Leon. Hann tók í handlegg hins vand- ræðalega vinar síns. Ég er þyrst- ur. Læknirinn hrofði á Kólettu, orð laus yfir vantrausti hennar á hon um. Hann hafði alltaf verið sann- færður um, að skapgerð hennar væri of nætn til þess, að húr léti slúðrið hafa minnstu áhrif á sam band þeirra og þessi óvæntu am- skipti í framkomu hennar fengu mjög á hann. Hún horfði á hann, hnarreist og kuldaleg, og allt í einu var sem eitthvað minnti hann á hörku og drembílæti frænku hans og hið stingandi, hvassa augnaráð afa hans á mál- verkinu uppi yfir arninum. En j aldrei hafði hún þó verið feg" len einmitt nú. Kjóll hennar _______________________________n fleginn, svo fagurskapaðar axlirn- ar voru naktar ásamt nokkru af bolnum, og hún bar hið forna hálfsmen, sem hann hafði gefið henni. Honum varð hugsað til þess, hversu ólíkur fundur þeirra þann dag hafði verið pví, sem nu var að gerast. Og hann óskaði þess innilega að geta vakið með henni sömu tilfinningar nú og á því augnabiiki, er hann hafði iagt menið um háls henni. — Kóletta, hann gekk til henn- ar, ég get sannað . . — Hef ég beðið þig um nokkr- ar sannanir? spurði hún kulda- lega. — Hefi ég nokkurn tíma beðið þig um þær? Þegar ég frétti um ferðir þínar út í skóginn — þegar ég frétti um fundinn í lækn ingastofu þinni — bað ég þig þá um sannanir fyrir því, að það væri ekki satt? Ég met ætt okkar allt of mikils, til þess að láta einn meðlim hennar bletta hana með fölskum fullyrðingum. Svona hafði hann aldrei séð hana fyrr. Allur sá hofmóður, er gagnsýrt hafði þá ættliði, sem á undan henni höfðu lifað, virtust sameinast í logandi augnaráði hennar Honum fannst hann gersamlega varnarlaus gagnvart henni .... og — guð mínn góður, hvað hún var nú falleg — þessi unga stúlka, sem ákveðið var, að yrði brúður hans. . — Kóletta — hlustaðu á mig, mælti hann í bænarrómi. — Ég get fengið Felix, dregninn, til að . . Hún sneri við honum baki. — Og borgað honum fyrir að samþykkja söguna, er það ekki? — Kóletta. Það sló í ömurlega þögn á milli þeirra. — Svo sagði hann. — Ef þú trúir þessum lygum um mig, þá getur þú ekki elskað mig, Kóletta. — Jú, ég elska þig ,.-r- heyrirðu það? Það er einmitt vegna þess, að ég elska þig, sem betta fær svo mikið á mig. — Hér er ekkert, sem er ann- að né meira en ímyndanir Leons. Svívirðing sú, er hún hafði varp- að framan í hann birtíst í hverj- um andlitsdrætti hans. Skyndilega brast hún í grát, og hún varð aftur sú Kóletta, sem hann þekkti, blíð og eftirgefanleg, full af ástúð og skilningi. Hún fleygði sér í faðm hans. — Ó, Vik. Ég er ekki nema manneskja. Ég get ekki að því gert, þó ég sé afbrýðissöm. að er svo margt smávegis, slúðrið í fólkinu, hvernig þú dansaðir við hana um daginn, þú veizt, og þú komst henni fyrir við kennsluna í klaustrínu ..... þeir verða svo stórir, þessir smámunir, þegar maður raðar þeim saman. Ó Vik, mér líður svo illa . . . Hann hallaði höfði hennar að brjósti sér og þerraði vanga henn- ar með vasaklút sínum. —- Ég verð að biðja þig að fyr- irgefa mér, sagði hann. — Ég hefði átt að vera varkárari. Ég skil mætavel nú, hvemig það mun hafa litið út. Hún reyhdi að brosa. — Mér leiðist, að ég skyldi verða svona afbrýðisöm. — Og mér þykir vænt um það. Það sýnír aðeins, að þú elsk- ar mig. — Elskar þú mig? — Já. Hann kyssti hana blíð- lega á kinnina. — Já, já, Kóletta. — Jæja, — ef þú vilt endilega fá að sanna eitthvað, mælti hún, — þá sannaðu mér það. — Já, á hvern þann hátt. sem þú helzt villt. — Ætlarðu að iofa mér því? Hún lagði handleggina um háls honurn. — Ég lofa öllu. — Þá ætlarðu ekkí að fara frá mér Þá ætlarðu ekki að fara aft- ur til Panama á laugardaginn Þá

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.