Tíminn - 11.12.1964, Blaðsíða 8

Tíminn - 11.12.1964, Blaðsíða 8
FÖSTUDAGUR 11. desember 1964 TÍIVMNN BÖKMENNTIR Tvær sogur bráðsnjall- ar en misgott meBlæti Drengur á fjalli: GuSmundur Daníelsson. ísafoldarprentsmiSja er byrju'ð á heildarútgáfu verka Guðmund- ar Daníelssonar, og hefur sent frá sér í þeim búningi tvær æsku- skáldsögur Guðmundar, Bræðuma í Grashaga í fyrra og Ilm dag- atma á þessu hausti. Guðmundur fylgir henni úr hlaði nú með þessum orðum m.a. „Ég skrifaði bókina alla upp, sá mér ekki annað fært. Söguþráðurínn er þó alveg hinn sami, og er breytingin frá frumútgáfunni einkum fólgin í útstrikunum á málalengingum og lagfæringum á orðalagi og setningaskipun. En þc að ég leit- aðist við að má burt ýn.^a aug- ljósa vankanta, kappkostadi ég að láta hinn upprunalega blæ frá- sagnarinnar haldast. Eftir sem áður skyldi þetta æskuverk verða spegilmynd af hugsunum mínum og vinnubrögðum eins og þau voru í þá daga — fyrir tæpum þrjátíu árum.“ Þetta skrif dagsetur Guðmund- ur í febrúarmánuði 1964, þegar hann gengur frá handriti að þess- ari endurútgáfu. Ég tel hiklaust, að Guðmund- ur Danielsson hafi hér ófrjálsum höndum um farið. — Ég get ekki kallað það annað. Hið sama verð- ur auðvitað að segja um aðra höf- unda, sem fremja sömu óhæfu og luðmundur — að endurrita skáld v-erk sín til útgáfu í ritsafni. Auðvitað má segja, að hvert ;káldverk sé höfundi sínum frjálst :il endurbóta, ef hann þykist sjá dna skyssu og geta um bætt En þá á ritið helzt að gelast út að nýju sem sjálfstætt verk pegar heildcrfúgáfa er gerð að áiiðinni | ævi, eíga æskuverkin að birtast I þar í réttri og upprunalegri I mynd. Þá eru þau fyrst og fremst i heimild um þróunarferil höfund- j arins, og þá heimild er honum ekki leyfilegt að rangfæra. Skað- laust er þó að leiðrétta málvill- ur og prentvillur, en lengra má helzt ekki ganga. En að „skrifa bókina alla upp“, eins og Guð- mundur játar — hamingjan hjálpi okkur — og taka meira að segja til greina ýmsar athugasemdir og aðfinnslur ritdóma frá fyrri tíð er meira en hægt sé að þegja við. Hvað er þá orðið af hinum unga, lífsglaða höfundi, Guð- mundi Daníelssyni, fiá árunum eftir alþingishátíðina, þegar ís- land var að sníða sér lýðveldis- stakkínn? Á hann nú að birtast okkur taminn til nýrra kosta af karlfauski austur á Eyrarbakka á sjöunda tug aldarinnar? Það verð ur þokkaleg enduryrking á æsku- ljóðunum Ég heilsa þér, þegar þau birtast í heildarsafninu! Ég vona, að Guðmundur hætti þeim starfa að yrkja sjálfan sig upp 1 eða umskrifa gamlar Lækur sín- ar. Auk alls sem að framan grein- ir veit ég fáa íslenzka höfunda síður til þess fallna en hann, sem á þaiin höfundarlöst emna verstan að brésta þolinmæði og aga á ritfjörinu, þegar ný verk fæðast. Hann ætti ekki að stofna til endurfæðingar? Þegar ég les Ilm daganna nú, finn ég gerla, að af þeim er strokinn einhver ferskur æsku- blær, sem heillaði mig forðum daga, en ekki skal ég dæma um það, hvort það stafar af árunum, sem færzt hafa yfir mig, eða upp- skrift Guðmundar. En grunur minn er sá, að sagan ilmi ekki lengur með sama hætti í vitum þeirra, sem ungir eru, og sá heill- andi blær hafi að nokkru verið tengdur þeim ungæðisgöllum og hnökrum, sem á henni voru, og strokizt af með þeím nú. Ég ef- ast ekki um, að sagar sé að ýmsu leyti betra skáldverk en áður, en hún glitrar ekki lengur af því kvika lífi, sem æskufólkið fann í henni forðum daga. En nóg um þetta. Ég ætlaði ekki að skrifa hér langt mál um æskuverk Guðmundar Daníelsson- ar, heldur minnast á bók þá, sem ég hef nýlesið — bókina Drengur á fjalli, smásögur rit- aðar á síðasta áratug eða svo, og er nýkomin út. Ég opnaði þessa bók satt að segja með nokkurri forvitni. f mínum augum 'iafði Guðmundur aldrei verið neinn smásögusnill- ingur Beztu verk hans eru og hafa verið viðamiklar skáldsögur, og ber Sinfjötla þar ianghæst. en þess mátti þó sjá ýmis sólarmerki, að hann væri að ná betri tökum á þeírri listgrein. Tækist honum að brjóta ísinn í þessari bók? Að lestri loknum varð ég að álykta, að svo væri ekki að fullu, — ekki nema vakir. Að vísu.birt- j ast þarna ýmsir stórsnjallir smá- ! sögusprettir, en hina skilyrðis- 1 lausu hlýðni við smásöguformið skortir enn. Fyrsta -agan og sú, sem bókin dregur nafn af. Dreng- ur á fjalli hefur áður birzt á prenti svo sem fleiri sögur í þessari bók, og hlotið gott lof, svo sem verð- ugt er. I-Iún er ákaflega vel rituð, meira að segja af heitari innlif- un en flest annað, sem Guðmund- ur hefur skrifað. En form hennar er ekki stakkur smásögunnar. Hún er líkari kafla úr lengrí sögu og sver sig meira í ætt frásögu en smásögu. Eigin raun mergjar hverja línu þessarar frásögu, og nákvæm lýsing á ákveðnu öræfa- svæði með réttum örnefnum og allri tilhögun leitar og áfanga í göngum á þesum aioðum snýrir drættir frásögunnar enn betur. En skynjun drengsíns er svo einlæg, næm og sönn, að allir hljóta að hvífast með og skilia betur en áður, hvað fyrstu göngurnar eru og voru íslenzkum dreng. Lýsing- in er svo fullkomin hjá Guðmundi að drengurinn á alla samúð les- andans, djúpan skilning og Ijúf- sára hrifningu, sem snertir streng djúpt í brjóstínu. Margt hefur verið vel skrifað um göngur og ævintýri þeirra í augum ungra drengja. En ég held, að þessi frá- sögn taki flestu eða öllu fram sem ég hef lesið um þetta. Drengur á fjalli mun fá sinn sess í klassísk- um, íslenzkum bókmenntum, og hann á sem fyrst að komast i les- bækur unglingaskóla. En víkjum þá að hinum sögun- um. Sumar eru örstuttar myndir, augsýnilega minningar og um- hverfislýsingai. en þeim er oftast ekki aitlaður sá æðri tilgangur að skýra eða birta ný lífssannindi, ný viðhorf, sýna nýjan flöt eða nýtt gildi. Fyrir bragðið eiga þæi ekki inntaksgildi smásögunnar Þó á þetta ekki við um allar sögurnar. Frú Pálína hefur t.d. smásögu- byggingu og er líklega ætlað það hlutskipti að birta örlagaþung- ann í ólíkri skapgerð hjóna, en atburðarás sögunnar er of „bill- leg“, ofgerð, ekki nógu hlýðin við boðun sögunnar. Guðmundur Danielsson Fiskurinn mikli og Lokadagur er afar skemmtilegar veiðilýsíng- ar, fersk náttúruskyynjun, dýrðar óður um Ána, en ekki smásögur. Sögurnar Yfir fljótið og Þú ert maðurinn, þar sem efnið er sótt aftur í liðnar aldir. nálgast það miklu meira. En þegar kemur að síðustu sög- unni, Tapað stríð, glaðnar yfir manni. Guðmundur átti þá væna rúsínu í keppshorni. Hún er full- komin smásaga að allri gerð. Þar er brugðið upp eftirminnilegri mynd af hörðum, sálrænum átök- um, en þó hvergi of lýst, atburða- rásin virkjuð í þágu sögunnar, ef svo mætti segja, en ekki látin hlaupa með hana út undan sér í lýsingagleði og fjörkippum, eins og Guðmundi hættir stundum til. Hér finnur maður hínn þunga und- irstraum mannlegra örlaga, og myrkar ástríður hinna fullorðnu togast á um viðkvæma og sak- lausa barnssál. Það er ekki í fyrsta sinn, sem Guðmundur Daníels- son notar barnssálina sem brenni- depil stríðandi ástríðna þeirra, sem eldri eru, og tekst það oftast snilldarlega. Sagan Tapað stríð er vægðariaus og grimm afhjúpun, meira að segja skelfileg þrátt fyrir mýkt- ina í stílnum. Segja mætti, að sögu- lokin væru ofgerð, þar sem hann lætur föðurinn tæla saklaust barn sitt til þess að skjóta prestinn í staðinn fyrir svartan hrafn, en um þetta er farið svo mjúkum hönd- um, að lesandanum finnst þetta Framhald á bts 14. Þyrlll — olíuskiplð — sem síðar var breytt í sildarflutningaskip með sildardæiu. jSíldarflutningaskipin útbúin með síldardælu - myndi auðvelda losun og lestun síldveiði- skipanna og tryggia aukið aflamagn Á síðustu sumarsíldarvertíð voru við veiðar um 150 skip að stærð 70 til 120 rúmlestir. Engum sem til þekkir dylst að erfitt mun vera að stunda veiðarnar á ekki stærri skípum svo langt úti eins og nú er gert. Veiðarnar hafa far- ið að mestu fram á svæði, sem er 60 til 80 sjóm. úti og stundum mikið utar. Gefur það auga leið að oft mun erfiðleikum bundið að sigla svo langan veg með drekk- hlaðin skipin þvi oft getur spyllzt veður á skemmri tíma en ækur I skipin að ná til hafnar á svo langri ’ siglingu. Á sama tíma os síldin hefur fjarlægzt hefur hún dýpkað á sér, stendur hún dýpra, svo allt- af þarf dýpri nætur ár frá ári, verður þetta skipunum ofviða ef þau þurfa um langan veg að fara til losunar. Þess vegna þarf að auðvelda þessum skipum veiðarn- ar og er þá helzt að taka_ upp síldarflutninga af miðunum. Á síð- astliðinni síldarvertíð var gerð at- hyglisverð tilraun með síldarflutn inga af miðunum og gaf hún svo góða raun að við betri árangri var varla að búast. Með tilkomu síldardælunnar opnuðust möguleik ar tíl aðstoðar sem minni skin- unum er svo nauðsynleg. Ef hægt er að losa þessi nunni skip við siglinguna af og á mið- in í hvert sinn er þau fá síld opnast þeim leið til þess að nafa stærri nætur en það er eítt af því sem þau geta ekki ef þau þurfa að sigla langa leið með full- fermi. Ef hægt reynist að koma ílutn- ingunum í það horf að það full- nægi að minnsta kosti minnstu skipunum er enginn vafi að enn um sínn verður hægt að nota bessi skip tii veiðanna. sem ann ars verða að hætta (bessum veið um) og ekki svo auðvelt að finna þeim annað verkefni. Ef af þess- um síldarflutningum yrði þarf að undirbúa þá svo vel að ekki bregð ist þeir þegar verst gegnii. Öll síldarflutninpaskip þyrftu í fram- | tíðinni að vera útbúin með dæl- I um, og auðveldar það geysilega ’ losun og lestun því þau verða ekki | eins háð bryggjuplássi þegar hægt ; er að leiða um langan veg losun- arbarka, og ætti það að gefa j meiri möguleika til þess að fá skip til flutninganna, heldur en ef að þurft hefði að notast við ákveðnar stærðir skipa. Augljost er að aflamagnið hlýtur að aukast að miklum mun við það að skip- in þurfa ekki að yfirgefa veiði svæðið og er ekki gott að gera sér fulla grein fyrir því að óreyndu. Oft hefur komið t'yrir að skipin, sérstaklega þau minni i hafa átt í erfiðleikum þegar um j stór köst er um að ræða, en þegai ! flutningaskipin eru á miðunum geta þau iðulega hjálpað til við stói köst og bannig bia'v- ' .m' | um verðmætum Auðséð er að am geysilegan olíusparnað verður að ræða | hjá flotanum við það að pau geta Framhald á bls 14.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.