Alþýðublaðið - 17.10.1954, Blaðsíða 6
6
ALÞVSUBISSW
Sunnudagur 17. október 1954,
KROSSGÁTA. Nr. 748.
2 3 V
? J
2 <?
10 II IX
12 19- IS
lí n L
/«
Lárétt: 1 fögiur. 5 tímamœl-
arnir, 8 beljaki, ö frumefnis-
tákn, 10 líkamsíhluta, 13 grein-
ir, 15 hægur gangur, 16 sögn,
18 matarforði.
Lóðrétt: 1 ögn, 2 lengdare:n-
ing, 3 sníkjudýr, 4 tala, 6 miótt
op, '7 saumur, 11 bókstafur, 12
afleiðing brúkunar, 14 eýktar-
mark, 17 mynni.
Lausn á krossgátu m\ 747.
Lárétt 1 söknuð, 5 Anna, 8
lima, 9 dr., 10 nösk, 13 æf, 15
sala, 16 tapa, 18 túlka.
iLóðrétt: 1 sælgæti, 2 öxín, 3
Kam, 4 und, 6 nasa, 7 arkar, 11
ösp, 12 klók, 14 fat, 17 ai.
Brúarfoss
Fer héðan miðvikudaginn
20. þ. m. til Vestur-, Norður-
og Austurlands.
Viðkomustaðir:
■Patreksfjörður,
ísafjörður,
Siglufjörður,
Akureyri,
Húsavík,
Seyðisfjörður,
Norðfjörður,
Reyðarfjörður,
Eskifjörður,
Fáskrúðsfjörður.
Matreiðslunámskeið
Húsmæðrafélags Reykjavík-
ur hfest mánudaginn 18. októ-
ber kl. 2 e. h. í Borgartúni 7.
Kennd verður algeng matar-
gerð, gerð veizlumatar og köku
bakstur. Tvær stúlkur geta
enn komizt á námskeðiið veina
forfalla.
Kvenfélag Hóteigssóknar
ætlar að halda bazar 9. nóv-
ember. Konur í Háteigssókn
eru vinsamlega beðnar að
styrkja bazarinn. Efni í fatnað
og fleiri er þakksarnlega þegið.
Mununum sé komið “til Auðar
Eiríksdóttor, Drápuhlíð 28 og
Kristínar Sæmund.sdóttur, Há-
tcigsvegj 23.
• ! I I
(•••
GRAHAM GREENE:
N J O S N A RIN N
15
Eg lenti í dálitlu sysi, — bílslysi.
Hún sagði: í*að er númer '27. Efstu hæð.
Eg skal fylgja yður.
Þér þurfið ekki að ómaka yður. Eg hlýt að
rata.
Jú, alveg sjálfsagt. Það er kominn dagur.
Eg er kominn á fætur hvort sem er. Verst
pegar maður er vakinn upp á miðri tnóttu,
tvisvar, þrisvar sinnum á hverri nóttu, bara
til þess að hleypa gesti út eða inn. Upp tvo
fyrstu stigana voru teppi í þrepunum, síðan
ber viðurinn. Á einum stað opnaðist hurð, og
hálfklæddur Indverji í víðum morgunslopp
gægðist fram í gættina. Stúlkan þrammaði á
undan upp bratta stigana. Það var gat á öðr-
um hælnum og skórnir löppuðust. Hann myndi
hafa sagt, að hún væri subba, ef hún hefði
verið eldri; þess í stað var hún bara illa hirt,
af því að hún var krakki. Hann spurði: Hafa
komið nokkur skilaboð til mín?
Það kom maður í gærkveldi. Hann skildi
eftir bréfmiða. Hún snéri lyklinum í skránni.
Hann er á þvottaborðinu.
Herbergið var lítið, járnrúm, borð með rönd-
óttum dúk, ruslakarfa úr tágum, blátt teppi
yfir rúminu, hreint en snjáð og örþunnt. Á ég
að koma með heitt vatn? spurði stúlkan.
Nei, nei. Það er óþarfi.
Og hvað á ég að koma með handa yður í
morgunverð?
Flestir taka reykta síld eða soðin egg.
Eg þarf engan morgunverð. Eg ætla að leggja
mig og reyna að sofa fram eftir morgninum.
Viljið þér að ég veki yður?
Nei, þakka yður fyrir, þess þarf ekki. Stig-
arnir eru svo langir. Eg get vaknað á hvaða
tíma, sem ég sjálfur kýs.
Hún sagði af tilfinniiigu: Það er gott að
vinna fyrir fínan herra eins og yður. Þeir koma
hingað alltof sjaldan, — bara Indverjar og svo-
leiðis. Hún virti hann fyrir sér af mikilli að-
dáun. Hún var á peim aldri, að hægt var að
vinna hana með einu orði á sitt band, á þeim
aldri,, þegai" eitt vingjarnlégt andsvar eða
augnatillit getur orsakað ævilanga vináttu. —
Hafið þér engar töskur?
Nei.
Það biðu hans tvö bréf. Þau stóðu upp á rönd
á þvottaborðinu og hölluðust upp á vatnsglasi.
Fyrra bréfið bar nafnið: „Tungumálamiðstöðin“
preníað stórum stöfum þvert yfir siðuna; það
4--------------
------*
Síðmta
Myndir og málverk, sem
legið hafa hér í 6 mánuði
éða lengur, óskast sóttar
innan viku. Verða annars
seldar fyrir kostnaði.
S.ííim jo; vsiif
ííafnarstræti 17.
var vélritað: Þátttaka í námskeiðum vorum
er mjög ódýr, nðeins þrjú hundruð krónur mið-
að við hverjar þrjátíu stundir. Yður er ætlað
að mæta á roorgun, hinn 16. þessa mánaðar kl.
8,45 fyrir haSegi, og það myndi gleðja oss mjög
ef þér sæjuð ýður fært að taka hinu sérstaka
tilboði voru. $lf tíminn hentar yður ekki, eða
þér af einhverjum ástæðum sjáið yður ekki
fært að mæta á umræddum tíma, væri oss
kært, ef pér vilduð gera svo vel að láta oss
vita, og vér munum gei’a allt, sem i okkar
valdi stehdur,'til þess að velja þann tíma, sem
yður hen'íar bétur.
Ilitt bi’éfið var frá einkaritara Beneditch lá-
varðar/ þar sern hann staðfesti loforð um að
veita D.’ rftóttöku á tilteknum tíma.
D. tautaði fyrir munni sér: Það lítur ekki
út fyrir að ég megi sofa lengi í þetta skiptið.
Stúlkan var ekki farin ennþá. Hún nam
staðar á: þrepskildinum: Það er þarna gassjálf-
sali. Vitið þér hvemig á að nota hann? Hvað
Lohdön hafði breytzt lítið! Hann mundi eftir
tikkirm í þessu apparati, gráðugu í smápen-
inga; hvernig hann týndi úr vösum sínum
hvern aur og hvolfdi úr buddu hennar til þess
að halda sem léngst hejtu í herberginu, þar til
myrkrið grúfðist yfir og hún yfirgaf hann, þar
til useaíicL. kvöld. Hann var farinn að víða því
að komá’ út á götuná. Það myndi svo margt
miÝIhá hann á liðna claga og minningarnar vekja
trega og söknuð. .. ... Ó, já, já, já, sagði hann
og ejns og vaknaði áf draumi. Eg kann pað;
þakka yður fyrir. Húh gekkst upp við þakklæti
hans: Þetta var saimur herramaður. Hún lok-
aðrhurðinni várlega á eftir sér.
D. fór úr skónum og lagðist ofan á rúmið.
Gaf sér ekki tírna til þess að þvo framan úr
sér blóðið. - Hann gáf sjálfum sér skipun um
að vakna klukkan kórtér gengin í níu, og var
í samá bili steinsofnaður. Hann dreymdi að
hahh var á gangi með virðulegum, eldri manni
á. árþakka 'nokkrum. Sá hinn sami var að ræða
yjð hann um bökmenntir og eitt skáldverlta
sjáifs hans, „Söngur Rolands“, barst sérstak-
lega í tal. D. var hreýkinn af þessu verki sínu
■~Qg bafði á því dálítið aðrar skoðanir en þessi
félagi hans. Gegnt þeim á árbakkanum hinum
megin risumikjlfenglegar byggingar, líkar
þeim, sem hann hafði séð á myndum af Rocke-
•i'eller torginu í Ne\v York. Ilann heyrði hljóð-
færaslátt. Það var Mljómsveit að spila. Úrið
hans var nákvæmlega kortér gengin í níu, þeg-
ar hann vaknaði.
ýf Hann réjsjj|pp og þvoði af sér blóðið. Hann
■f'háfði ekki misst neinar framtennur, hins vegar
'tób jaklai Þáð vár nú bót í máli; nógu'var hann
samt orðinn ólíkur myndinni á vegabréfinu.
Á'iÖ.rl'ögin virtust staðráðin í að gera hann stöð-
S; ii'g't,‘:síðvir..þeh.kjaiilegan af henni. Hann var
vkminha skrámaður en hann hafði haldið. Hann
't. gékk niður. Á móti honum barst ilmur af
i steiktum.fiski Hann settjst við borð í borð-
. stofunni. Li’tlá stúlkan kom að vörmu spori
j með tvö soðin egg. Ó, sagði hún. Afsakið, að
ég .... Ósjálfrátt greip hann fram í fyrir
henni: Hvað hejtið þér, ungfrú?
Else.
Hlustið á mig, Else. Eg læsti dyrunum að
herberginu mínu. Eg ætla að biðja yöur að sjá
't’ir'|)ess, að þangað fari enginn inn, meðan ég
j ér að heiman.
Leirverksmiðja
Farmhald af 1. síðu.
mundur sent Rafmagnseftir-
liti ríkisins nokltrar vörur
sem sýnishorn og hafa þær
líkað a. m. k. jafnvel erlend-
um.
LISTIÐNAÐUR.
Hinn hluti verksmiðjunnar
myndi framleiða alls kyns
listi’ðnaðarvörur lil sölu. Hef
ur Guðmundur góðar vonir
um að hægt myndi vera að
afla inarkaða fyrir þær e>>
lendis. Listvinahús 'Guðmund
ar Framleiðir nú 14—16 þús.
listmuni árlega og selst gífur
lega mikið á Keílavífcurflug-
velli, og má af því og öðru
ætla, að auðvelt myndi að
afla markaða fyrir listmuni
þessa erlendis.
30 þús kr. ágóði a!
hiufavelfu kvenna-
deildar SVFÍ
EESTS OK KUNNUGT er, þá
er ihin árlega hlutavelta
kvennadeildar Sly.savarnarfé-
lagsins í Reykjavík nýafstaðin.
Varð verulegur ágóði af
hlutaveltunni. Þær frúrnar
Guðrún Jónasson og Gróa Pét-
ursdóttir formaður og vara-
formaður kvennadeildarinnar
aíhentu í gær stjórn Slysavarn
arfélagsins 30,000,00 krónur,
er voru ágóði af þessari hluta-
veltu. Þess var sérstaklega ósk
að að þessu fé yröi skift milli
þriggja framkvæmda, sem fyr-
irhugaðax hafa verið á vegum
Slysavarnarfélagsíns. Það er
vitaljósaútbúnaður í hið ný-
byggða skýli á Breiðadalsheiði
milli ísafjarðar 03 Önundar-
fjarðar, björgunarskýli, sem
þegar er byrjað að reisa á Aust
urfjörutungum við Hornafjörð
og svo til nýs skipsforotsmanna
skýlis, sem ákveðið hefur ver-
ið að reisa að Þöngiabrekku við
Þorgeirsfjörð, gamalli kirkju-
jörð í miðri gveit, sem öll er
komin í eyði.
Hið mikla og giftudrjúga
starf hinna ágætu slysavarna-
kvenna ber þannig ríkulega á-
vöxt til gagns og blessunar fyr
ir slysavarnavtarfið í hinum
ýmsu landshlutum.
Bílar.
Ef þér þurfíð að selja bíl;
þá látið okkur leysa
vandann.
BILASALAN
Klapparstíg 37
Sími 82032
&r vellyktsnd! sótthrein?:
andi vökvi, nauðsynleg-;
ur á hverju heimili til»
sótthreinsiinar á mun- E
œn, rúmfötum, húsgöga *
om, símaáhöldum, and-»
rúmslofti 0. fl. Hefur:
onnið sér miklar vln-;
sældir hji ðllum, sem ■
hsfffi nctað feann. i