Alþýðublaðið - 02.12.1954, Síða 4
ALÞYÐUBLAÐI®
Fimmtudagur 2. des. 1954.
S
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
Útgefamli: Alþýðufloffatrittn.
Ritstjóri: Helgi Scemundsson.
Fréttastjóri: SigvalJi Hjálmarsson.
Biaðamenn: Björgvin Guðmundsson og
Loftt/r Guðmundsson.
Auglýsingastjóri: Emtna Möller.
Ritstjórnarsímar: 4901 og 4902.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiðslustmi: 4900.
Alþýðuprentsmiðjan, Hverfisgötu 8—10.
Asþriftarverð 15,00 a manuði. I laiisusölu 1,00.
RÁÐHÚSIÐ
Oddur Á. Sigurjónsson:
SJÁUSTÆÐISMENN
ræddu í flokksfélagi sínu á
mánudag bæ.iarmálefni
Reykjavíkur, og hefur Mofg
unblaðið skýrt nokkuð frá
þeim umræðum.. Athyglis-
verðust er ræða Gunnars
Thoroddsens borgarstjóra. -
Hann minnist á ýmis mikil
væg verkefni bæjarstjórnar
innar og lætur þess meðal
annars getið. að undirbún-
ingi að virkjun Efra-Sogs-
ins sé lokíð. Það er þakkar-
vert. Stundum hefur bæjar-
stjórnarmeiri'hlutinn ekki
einu sinni komiö undirbún-
ingi í verk.
Borgarstjórinn vék einn-
ig að ráðíhúsmálinu og hef-
ur Morgunblaðið eftir hon-
um, að vonir. stanöi til þess,
að ibæjarstjórn geti tekið á-
kvörðun um staðsetningu
ráðhússins á næsta ári. Þó
leynir sér ekki, að borgar-
stjórinn er dálí.t:ð áhyggju-
fullur. Skipulagsnefnd 'hef-
ur sem sé verið svo afkasta
mikil að benda á 16 hugsan-
lega staði undir ráð'húsið,
og nú er vandinn að velja.
Fyrir þrjátíu árum kom
fram sú uppástunga að
reisa ráðhús Reykjavíkur
uppi á Skólavörðuhæð.
Hún var kveðin niður og
þótti fjarstæða að fara
me'ð ráðhúsið svo langt
burtu úr bænum! Þessa
lét Gunnar Thoroddsen
getið í ræðu sinni á Varð-
arfundinum samkvæmt
frásögn Morgunblaðsins.
Hitt lætur hann liggja í
láginni, hver liafi kveðið
hugmyndina niður fyrir
þrjátíu árum og vanrækt
að búa ráðhúsinu stað alla
tíð síðan. Það atriði skipt-
ir þó vissulega máli.
Viðhorfin í Reykjavík
hafa gerbreytzt á nokkrum
árum, hvað þá þremur ára-
tugum. Skólavörðuhæðin er
ekki lengur langt í burt frá
borginni. Þar hafa.risið upp
stórhýsi, en ráðhúsið er
ekki meðal þeirra. Ástæðan
er sofandaháttur og hug-
myndaleysi bæjarstjórnar-
meirihlutans. Hann hefur
engan áhuga haft á bygg-
ingu ráðhússins nema í orði
kveðnu fyrir kosningar. Eft
ir hverjar kosningar hefur
hann lagzt fyrir aftur og
haldið áfram að sofa.
Nú er svo komið, að stað
setning ráðhússins er orðin
vandaverk af því að flestar
beztu lóðirnar í hjarta bæj-
arins eru löngu byggðar. En
þetta er bæjarstjórnar-
meirihlutanum engin af-
sökum. Honum bar skylda
til að rá'ða þessu máli til
lykta. Lóðina var hægt að
ákyfeða áður cn bygging
ráðhússins væri tímasett.
Ráðliúsinu þurfti að ætla
góðan stað, og slíkt val
var hægðarleikur allt til
þessa. Lóðin stendur held
ur ekki í vegi fyrir fram-
kvæmdunum enn í dag.
Það sést á því, að skipu-
lagsnefnd gerir tillögu um
16 staði undir ráðhúsið.
En framtaksvilja bæjar-
stjórnarmeirihlutans vant
ar. og það er mergurinn
málsins.
íhaldsmenn halda því
stundum fram, þegar þeir
eru í kosningahug eða há-
tíðaskapi, að Sjálfstæðis-
stefnan hafi sett svip á
Reykjavík allt frá dögum
Ingólfs Arnarsonar og Hall
veigar Fróðadóttur. En ætli
þau merkishjón yrðu hrif-
in af stórhug arftaka sinna,
sem hafa vanrækt til þessa
dags að koma upp heimili
bæjarins og ekki einu sinni
komið undirbúningnum í
verk? Sjálfstæðisflokkur-
inn væri sennilega búinn
að týna öndvegissúlunum,
ef hann hefði átt að gæta
beirra. ‘ ■'] 1 I’Wf
Alþýðubiaðið
Fæst á flestum veitingastoðum bæjarina.
— Kaupið biaðið um Ieið og þér fáið yðui
morgunkaffið.
ii
Alþýðubíaðið
ÚTVARPSHLUSTENDUR
‘hér eystra hafa það fyrir satt,
að nú hafi verið sérstaklega
vel vandað til útvarpsdagskrár
innar það sem af er þessum
verti.
Því fer þó fjarri, að menn
hafi átt þess kost að fá vit-
neskju um þetta, nema af ein-
skærri afspurn, því að enginn
kostur er að kynnast því af
eigin raun.
Undanfarin ár, eða síðan
bylgjulengd stöðvanna var
brevtt, hefur verið mjög
miklum erfiðleikum bundið að
fylgjast með útvarpssending-
um hér að vetrarlagi, þó að
aldrei hafi keyrt eins um þvert
bak og nú í ár.
Ég hygg. að það hafi ekki
komið einn einasri dagur í
vetur, sem unnt hefur verið
að njóta neins útvarpsefnis, án
þess að þurfa jafnframt að
þola ótrúlegustu auka- og að-
skotahljóð, sem minna langt-
urn heldur á ömmiega Tyrkia
messu en flutning ræðu eða
tónlistar.
LANGÞREYTTIR
Á AÐ KVARTA
Þess verður ekki vart, að
nein tilraun sé gerð til að 'bæta
•hér úr og má ve^a að það
stafi af því, að Austfirðingar
eru orðnir langþreyttir á að
kvarta yfir. þessum ósórna án
þess að útvarpsyfirvöldin eða
eigandi útvarpsins, ríkið,
rumski af sínu græna eyra.
Hér skal ekki lagður dómur
á, hversu auðvel teða örðugt
kynni að reynast að lagfæra
ágallana. Slíkt er sennilega
ekki á færi annarra en tækni-
mer.ntaðra manna á þessu
sviði. En það geíur ekki á
neinn hátt ’breytt, eða skotið
forráðamönnum útvarpsins
undan skyldunni að reyna að
hitta ráð. sem, gætu bætt úr
þessu ófremdarástandi.
SENNILEGA
HEIMATILBÚIÐ?
Mér er persónulega um það
kunnugt, að því fer fjarri, að
þetta sé ekki á viíorði tækni-
legra ráðamanna þar í sveit,
því að ég var viðstaddur, er
hringt var um jólaleytið til
eins af æðstu mönnum útvarps
ins á því sviði og honum lof-
að ihlusta á „dásemdina“ gegn-
um símann, og var þá óvenju
gott símasamband.
Torvelt er að hugsa sér ann-
að heppilegra ráð til þess að
^era Ijóst hvernig ástandið er
í raun og veru, því að þar var
og það var lærdómsríkt að at-
heyrnin allri sögusögn ríkari
huc"a viðbragðið.
Því var nefnilega skotið
fram, að sennilega væri þetta
heimatilbúið allt eíns og auð-
velt var að skynja önuglega
axlavntingu út af ónæðinu.
sennilega frá bví að hlýða á
útvarpsdagskrána!
RÍVocta sönnun þess, að hér
er ekki farið með neinar eet-
sakir. er sú. að ekkert, bók-
staflegq, ekkert hefur verið
gert til úrbóta, og hefur bó
mikið vatn til sjávar runnið
síðan .þetta skeði.
Það er fremur tileaneslítið
að segia okkur hér, sð útvarps
truflanirnar s.én af völdum
rafkerfis í bænum, bar eð við
knnnum sæmilega skil á. bví.
að ómur af orðum og tónlist.
sem heyrist gegnum sendingar
íslenzku stöðvanna, er af allt
öcrum toga spunninn. Þar að
auki eiguni við þess daglega
kost að hlýða truflanalaust á
erlendar stöðvar. sem staðsett
a%. eru austur undir járntjaldi!
ANNAÐ LAND?
Ríkisútvarpið er nú orðið
svo þýðingarmikill þáttur í
möguií'jkum fój’ks, einkum 'j
strjáibýlinu, til dægrastytting
ar og fróðleiksöflunar, að það
er fullkomið hneyksli að búa
þannig, um hnútana, að lítill
kostur sé þess að njóta útsend-
inganna í heilum lyndshlutum.
Ég skal ekki leggja dóm á,
hvort það er útbreidd skoðun
meðal ráðamanna ríkisstofn-
ána, sem skauzt upp úr einum
slíkum, að litið væri á Aust-
firði sem „annað land“ og Aust
firðinga ,,sem aðra þjóð.“ Að
vísu átti þetta sennilega að
vera í gamni mælt og þó öllu
gamni fylgir nokkur alvara.
ýmislegt bendir til þess, að hér
sé ekki farið ýkja lanst frá
raunv * mleikanum iað (l' {' er
til útlána x'íkisins og ýmissa
ríkisstofnana tekur.
STENDUR EKKI Á
SKATTAKRÖFUM
Það er næsta örðugt að sjá,
að þeir háu herrar, sem mestu
éða öllu ráða, eigi nema eina
höndina, „þá þó að þiggja á-
vallt en veita aldrei“, því að
ekki ber á verulegri tregðu við
að krefja allskonar ríkisgjöld
og kvaðir, þó að lítið komi á
móti úr sameiginlegum sjóðum
landsmann eða þjónustu, sem
öllum er ætluð og fyrir er
greitt ekki síður né treglegar
hér en annars staðar.
í því máli, sem að ofan get-
ur, höfum við þráfaldlega far-
ið bónarveg um úrbætur og
eins og ég gat um lagt fram
óhrekjanleg gögn til rökstuðn
ings kurteisislegum ábending-
um og beiðnum. Það hefur
neyxxzt- vera jþýöingad'.aust). I
þetta sinn er það krafa, sem
óhætt er að fullyrða, að allii*,
sem við ánauðina eiga að búa,
standa bak við, að ófrem.dar-
ástandið verði lagfært tafar-
laust.
Vel er mér ljóst, að við höf-
um ekki bolmagn til áðgerða,
sem við mundum vilja og vert
væri, ef við þessu verður ekki
snúizt réttiiega., En krafan er
hiér sett opiriberlega fram. í
þeirri trú, að þeir séu þó til,
sem kunna enn skil á siðferð-
legum skyldum við landslýð,
sem bolmagn hafa og ráð
kunna, til þess að knýja úrbæt-
ur fram, þótt þessir eiginleik-
ar forsvarsmanna útvarpsins
hafi daprazt nú um hríð sem
að ofan er lýst.
Við treystu.m því jafnframt,
að þegar málið h'efur nú ver-
ið lagt fram umbúðalaust,
stöndtim við ekki einir uppi.
Neskaupstað, 17. nóv. 1954.
Oddur Sig-urjónsson.
Yfilýsing frá H
Valdimarssyni
Alþýðublaðinu hefur bor-
izt eftirfarandi yfirlýsing
frá Hamiibal Valdimarssyni
vegn a samþykktar mið-
stjórnar Alþýðuflokksins
síðast liðinn mánudag með
ósk um birtingu. Yfirlýsing-
in fer orðrétt hér á eftir:
AÐ GEFNU TILEFNI yfir-
lýsingar, sem birt var á for-
síðu Alþýðublaðsins i gær um
afstöðu Alþýðuflokksins ■ til
mín sem forseta. Alþýðusam-
bands íslands, vil ég biðja
heiðrað blað yðiar að birta eft-
irfarandi:
Ég hefi verið kjörinn forseti
Alþýðusamhands. ísiands af
löglegum meirihluta á þingi
verkalýðssamtakanna og óska
ekki eftir, að neinxi pólitískur
flokkur taki ábyrgð á störfum
mínum sem forseta sambands-
ins.
Að kosningum og öðrum
undirbúningl alþýðusambands-
þings var unnið fvrir opnum.
tjöldum á s. 1. sumri, og hafði
miðstjórn Alþýðuflokksins lýst
yfir því, að afstaða til annax-ra
flokka í verkalýðsmálum væri
sérmál verkalýðsfélagánna.
Þess vegna unnu ýmsir al-
þýðuflokksmenn að undirbún-
ingi alþýðusambandsþings með
það fyrrir augum að myndá þar
meiri hluta með stjórnarflokk
unum.
Ég vann hins vegar að því,
að mynduð yrði sterk 'stjórn
Alþýðusamfoandsins ineð þátt-
töku stærstu verkalýðsfélaga
landsins, án tillits til stjórn-
málaskoðana forustumanna
þeirra.
Auðvitað höfðu báðir aðilar
jafnan rétt til þessarar afstöðu
sinnar og starfsemi.
Minnihlutastjóx'n Alþýðu-
j flokksins yfir verkalýðssam-
t tökunum taldi ég í senn óíýð-
ræðislega og m.áttlausa.
Miðstjórnarsamþykktir stjórn
málaflokka um, að það skoð-
ist sem flokksleg hollustu- og
trúnaðarbrot, ef fulltrúar á al-
þýðusambandsbingi taki þessa
eða hiná afstöðu til manna og
málefna tel ég óvrðurkvæmi-
lega tilraun til skoðanak.úgun-
1 ar og mótmæli slíkum afskipt-
um stjórhmál aflokkanna.
Samstarf við pólitiska and-
stæðinga Alþýðuflokksins um
stjórn A.iS.Í. er ekki að hefj-
ast nú og. hefur ekki þótt víta-
ve^t til þessa.
I alþýðusambandi.mi er fólk
í öllum stiórnmáiaflokkum, og
kemur mér því miög á óvart,
ef nauðsynlegt þykir. að for-
seti sambandsins starfi aðeins
á ábvrgð eins stiórnmálaflokks.
Það er þing A&ýðasamfoands
Islands, sem með röskum
m.eiriihluta atkvæða lxefur fal-
ið mér forustu samtakanna
næstu tvö ár, og verður sú á-
bvrgð að nægja, hvað sem
stiórnmálaflokkarnir segja.
Gefst þeim óefað tækifærji til
að svna í verki, hversu heilir
verkalvðsflokkar heir séu. beg
ar t.il þeirra verður leitað um
stuðning við mál verkalýðs-
samtakanna.
/
Með þökk fyrir birtingxina.
Hannial Valdimarsson.
(forseti A.S.Í.) J