Alþýðublaðið - 05.12.1954, Blaðsíða 7
Simnudagur 5. desember 1954
ALÞYÐIIBLAOVCV1
75 áro á morgun:
iæmundur Benedikfsson
ÉG VAR NÝSETZTUR að á
Stokkseyri og umiiverfiS og
fólkið mér enn framandi. Mér
yarð reikað inn í verzlun Ás-
geirs Eiríkssonar, sem jafn-
framt var póf.tafgreicjsla,
spurði eftir bréfi, Öllu fremur
af rælni, en vegna þess að ég
ætti. von á, að nokkur hefði
farið að skrifa mér til. Inni
var allmargt manna, sumir að
vitja um dag'blöðin, aðrir að
rseða ..atburði dagsins", eins
og gerðist og gekk í þánn tíð
í sjávarþorpum, þar' sem verzl
anirnar voru daglegur sam-
lcomustaður þorpsbúa
í>á vatt sér inn í búðina
maður nokkur, mikill vexti og
vörpule.smr, stórskorinn nokk-
«ð í andliti og svipm'kill. djarf
ur i fasi, rómsterkur og harð-
ar í máli. Ekki hafði hann þar
langa dvöl, blandaði. sér ekki
í unaræðurnar, en hélt á brott.
c-r 'hann hafði lokið erindi sínu,
Suma menn treystir maður
sér ekk; til að þekkia aftur
frá öð.rum, þó að rnaður hafi
. virt þá fyrir sér nokkra hríð:
aðra hvar sem væri, þótt mað-
«.r hafi aðeins séð þá í svip.
í>essi var í hópi hinna síðar-
töldu.
Þannig bar fyrst saman
fundum okkar Sæmundar
Benediktssonar. Semna tók-
ust með okkur nánari kynni,
®inkum. eftir að oftur lágu
saman leiðir okkar i Vest-
snannaeyjum. Synir hans urðu
vinir mínir og samstarfsmenn,
©g bar oft við, að við Sæ-
mundur áttum, tal saman. Ekki
get ég þó sagt, að hann hafi
rætt við mig persónuleg mál-
efni; Sæmundur er þannig
skapi farinn, að hann. telur
engan varða um kjör sín eða
sinn, innri mann, og eins er
ttann blessunarlega laus við
að gerast hnýsinn um hug ann
arra. Mun mörgum þykia
feann dálítið hrjúfur og kald-
íærm í svörum og framkomu
fyrst í stað, — en það er skel-
|n. Og þótt honuni láti ekki
blíffmæli, er hann traustur
sínumi, og tryggur þeim, er
liann tekur kynni við.
Sæmundur verður sjötíu og
fimm ára á morgun, fæddur
1879 að Vestra-íragerði á
Stokkseyri. Ungur að árum
tók hann að stunda sjóinn:
fvrst á róðrarskioum frá
Stokksevri, síðar á skútum frá
• Revkiavík og vélbátum. f,rá
Stokksevri, Ög eftir að hann
fcætti sjósókn fyrir aldurs sak-
ír, vann hann við aðgerff og
beitingu. svo að allt hans ævi-
starf hefur verið þeim atvinnu
vepi tenst,
Á Stokksevri biuggu bau
bjónin, Á.stríður Helffadó+tir
off Sæmundur. að Baldurshaga,
til ársins 193S. en bá fln+tnct
þau til Veotmannaevia. Þeim
varð níu barna auðið, tvö
þeirra. stúlka n« dreneur rtAu
í æsku. á lífi ern Bene-
dikt vélstióri á Akurevri;
OnA'nJn, fnj { RevVipvik:
Anrta, starfsstúlka { Revkia-
VjV; Ás+rnjjnájjr. bnndí að
Grund á E+okkce'^ri• T>nrvilri-
ijr. kennari x VestrnannÖAvíi
ujnv Helgi, ri+r+ióri Alibvðu-
biaðs;ns í Revkiavfk off Ást-
þio’-Xjjr. sVi-ífctjofjjm qður.
■ ■E>o5rn,. c,pm nú p,ru kownír til
ftiiTorðinsára. er Uóst. að nokk
urt á+ak og haffsvn: burfti til
að Voma svo fiölmennum
fcarnqbón til msnns á 'fceim
árnrn- naut Sætnundur þar
dugnaðar síns og sparsemj og
Sæmundur Benediktsson.
ráðdeildar konu sinnar, er var
sllk. afbragðskona, bæði sem
húsmóðir og móðir, að
heimili þexrra var við brugðið
fyrir reglusemi og Tjiyndarbrag.
Kunni Sæmundur það vel að
meta, enda þótt hann flíkaði
því ekki hversdagslega, frem-
ur en öðrum tilfinningum sín-
um, og samhent hafa þau hjón
verið um, allt í langri og far-
sælli sambúð, þótt ólík séu um
mai-gt hvað framkomu snert-
ir.
Margir eldri og yngri sam-
ferðamenn munu senda Sæ-
mundi hlýjar kveðjur í tilefni
afmælis hans, og þeim hiónum
báðum, og vil ég vera einn í
þeim hópi, Ekki ætla ég að
velta beim kveðium neinn
mærðarbúning, — það mundi
Sæmundi Benediktssyni lítt að
skapi. Gerí ég beldur ekki ráð
fyrir, að bonum byki afmælis-
daffurinn öðrum dögum stórum
merkílegri, en taki aldrinum
eins og öðru, — æðrulaust og
án bess að láta sig miklu
skipta.
Loftur Gxiðmundsson.
KVIKMYNDIR
Salka Valka
,SALKA VALKA !l"' Þá er
hún. komin, rnyndin. sem
svo margir hafa beðið eftir.
Það er erfitt að kveða upp
dóm um þessa mynd. Bókin,
sem hún er gerð eftir, er svo
margbrotin, að ekki fer hjá
því, að hver og einn hafi sín
ar eigin hugmyndir um,
hverju megi sleppa og hvað
sjculi taka, úr því að ekki er
hægt að halda þræðinum ó-
slitnum.. Þó fer maffur út af
myndinni með þá tilfinn-
ingu, að hér hafi þeir menn
haldið á skærum, sem allt
aðra skoðun og hugmyndir
hafa um efni bókarinnar
Sölku Völku en allur þorri
íslendinga. Svíarnir hafa
lagt megináherzluna á til-
finningasemi og ,,erótík“, og
má segja, að við þvi hefði
verið að búast frá þeim,
blessuðum. En hvar er gam
ansemin? Manni finnst þó,
að hún sé ekki svo lítil í bók
inni, að henni beri að sleppa
msð öllu. En sú hefur orðið
raunin á, að það örlar varla
á gamansemi. Hafi eitthvað
verið tekið með af henni- í
byrjun, hefur sá, sem skær-
um. stýrði, kálað henni með
öllu. Þeir Guð.mundur kad-
ett og Beinteinn í Króknum
sjást aðeins í öi’fáar mínút-
ur samanlagt. Ur þessari
sögu úr íslenzku sjávar-
þorpi, lifi fólksins þar og
baráttu er orðin ,,týpisk“
kvikmynd um sænska
sveita-,,rómantík“ í dálítið
öðrum búningi en venjulegt
er. — Myndin er dálítið
langdregin, og mun það or-
sakast af því, að stjórnand-
inn, Arne Mattsson, vill láta
myndavélina segja sem
alka mest af sögunni (lýsti
því reyndar yfir hér í sum-
ar, að hann vildi helzt
hverfa aftur íil þögulla
mynda). Hefur hann fullan
rétt á þeirri skoðun sinni,
einkum þegar það er athug-
að, að myndatakan í þessari
mynd er prýðileg, nánast ó-
venjulega góð. Um leikinn
er allt gott að segja, en hann
er í sanxræmi við þau tök,
sem efnið er tekið. Þó
finnst manni óþarfur rudda-
skapur gsra um of vart við
sig.
SKIPAUTGCRÐ
RIKISINS
Baldur
fer til Grundarfjarðar, Skarðs-
stöðvar, Salthólmavíkur og
Króksfjarðamess eftir helgina.
Vörumóttaka á mánudag.
Bubble-ljós 245. Venjuíeg 135.
Krisíals-vörur. — Nýsilfur-vörur.
Jólatrésskraut.
Mikið úrval af smávörum nýkomið.
Pétur Pétursmm
Hafnarstræti 7. — Laugavegi 38.
Heildsala Veltususid 1. — Sími 82062.
JÓLABÓK REYK
svip á bæinn
eftir Jón biskup Helgason
Höfundur segir í bók þessari frá bæjarlíf-
inu í höfuðstaðnum á seinni hluta síðustu
aldar. Einnig greinir hann frá þeim borg-
urum, er settu svip sinn. á bæinn í þann
mund.
160 andlitsmyndir em í bókinni og
11 hópmyndir.
Þetta er í senn afar fróðleg og skemmti-
leg bók og verður kærkomin jólagjöf jafnt
ungu kynslóðinní, sem hinum eldri.