Alþýðublaðið - 18.12.1954, Qupperneq 8
Bæjarstjómarfundurinn í fyrranótt.
ngatiliögur íhaldsand
m
Péll Einarsson hæsta-
réttardómari látínn.
PÁLL EINÁPSSON fyrrv.
IxEestaréttardómari lézt - að
lieimili sínu ihér í bænum í
gær. 86 ára gamall. Hann var
fiýslumaður og bæjaifógeti um
26 ára skeið, varð 1908 fyrsti
borgarstjóri Reykjavíkur og
giegndi því starfi í sex ár. 1.
janúar 1920 varð hann dómari
í ihæstarétt; og gegndi því
starfi til 1935.
!Páll Einarsson var samvizku
samur embættismaður og rétt-
sýnn og naut aimennrar virð-
ir.gar hvar sem ihánn fór.
Jón E. Bergsveinsson
látinn.
JÓN E. BERGSVETNSSON,
fyrrv. er'.ndreki SVFÍ, lézt í
Landakotsspítala í gær 75 ára
gamall. Hann gegndi ýmsum
trúnaðarstörfum fvrir sjó-
inannastéttina. var vfirsíldar-
matsmaður á Akureyri í 9 ár
og um skeið forseti Fiskifélags
íslands. Er Slysavarnafélag ís-
lands var stofnað, 1928. varð
hann framkvæmdastjóri þess
og gegndi því starfi meðan
kraftar entust.
f>jih messa með helgU
. leik í Dómkirkjunni,
Á SUNNUDAGTNN kemur,
19. des., kl. 2 e. h. verður þýzk
messa í Dómkirkjunni. Séra
Jón Auðuns dómprófasutr flyt
ur messu, en dr. Páll ísólfsson
leikur á orgel.
Að messu lokinni flytja
nokkrir Þjóðverjar þýzkan
helgileík, Krippenspiel.
Fyrir þrem ármn var sams
lconar helgileikur sýndur við
þýzka messu í Ðómkirkjunni
og vakti hann verðskuldaða at-
hygli.
Hér er.um leik að í'æða, er
tíkazt (hefur að flytja í kirkj-
(Frh. á 6. síðu.)
Fargjöld með strætisvögnum hækkuð,
FJÁRHAGSÁÆTLUN Reykjavíkurbæjar fyrir árið 1955
var endanlega afgreidd um hádegið í gær. Var áætlunin sam-
þykkt eins og hún kom frá íhaldinu ásamt breytingartillögum
þeim, er íbaldið sjálft flutti. Allar breytingartillögur andstöðu.
flokka íháldsins voru felldar. Ályktunartillögum íhaldsandstæð
-inga var öllum vísað til bæjarráðs og hinna ýmsu nefnda.
2. Lögreglumenn, sem verið
hafi í starfinu lengur en 10 ár,
fái flokkshækkun, en 25% upp
bót á næturvaktir.
Fundur bæjarstjórnar stóð
alla nóttina og fram að hádegi
í gær. Var þá loks lok.ð endan-
legri afgreiðslu fjárhagsáætl-
unarinnar.
EIN TILLAGA
ALÞÝÐUFLLOKKSINS
SAÞYKKT EFNISLKGA
Enda þótt allar breytingatil-
lögur Alþýðuflokksins væru
felldar eins og tiliögur hinna
flokkanna, var ein þeirra sam-
þykkt efnislega, þ. e. tillaga
um að áætla útsvör skv. sér-
stökum lögum Va millj. kr.
hærra. Tók íhaidið tillögu
þessa upp á sérstakri breyting
artillögu.
ÖNNUR TILLAGA
SAMÞYKKT
Önnur tillaga Alþýðuflokks
ins, er flutt var einnig í sam-
bandi við fjáiihagsáætlunina,
var elnnig samþykkt. Var það
tillaga, er Jón P- Emils flutti
um að bæjarstjórnin færi fram
á það við ríkjsstjórnina, að rík
Ið bæri meira af kostnaði við
ráðstafanir vegna ófriðarhættu
en það nú gerir. Var sú tillaga
samþykkt samhljóða.
100% HÆKKUN
FARGJALDA OG VATNS
í sambandi við fjárhagsáætl
unina var samþykkt tillaga í-
haldsins um 100% hækkun far
gjalda með strætisvöngum á
helgidögum. Einnig var sam-
þykkt breytingartiilaga íhalds-
ins um að hækka vatnsskattinn
um 100%. Hefur hann ver.ð
1% af fasteignamatsverði húsa,
en verður nú hækkaður upp í
2%. Að lokum var einnig sam-
þykkt að hækka kaup lögreglu
manna á eftirfarandi hátt;
1. Lögreglumenn fái greidda
33% uppbót á staðnar nætur-
vakf.r fyrstu 10 starfsár sín.
26 héraðsráðunautar og trúnaðar-
menn Búnaðarfél. á námskeiði
Víðtæk fræðslustarfsemi Bún. íslands.
UNDANFARNA DAGA hefur staðið yfir í Reykjavík nám-
skeið á vegum Búnaðarfélags íslands. Hafa sótt námskeið þetta
um 26 héraðsráðunautar og trúnaðarmenn Búnaðarfélags ís-
lands. Eiga þátttakendur síðan að fræða bændur út um allt
land um landbúnað.
Laugardagur 18. des. 1654.
Erlendur
sfjóri SIS frá næs!
Þegar Búnaðarféiag íslands
(var stofnað árið 1899, komu
strax í þjónustu þess þeir tveir
ráðunautar, sem áður voru
fitarfsmenn hjá Húss- og bú-
stjórnarfélagi Suðuramtsins.
I?að var hlutverk þessara ráðu-
nauta að ferðast um landið og
ieiðþeina bændum og alla tíð
cíðan ihafa meginhlutverk
ráðunauta verið þannig rækt.
MARGIR RÁÐUNAUTAR
Nú eru í þjónustu Búnaðar-
íélagsins 12 menn, er fjegna
fitörfum sem ráðunautar, og
*iokkrir þar að auki til aðstoð-
Kosið í nefndir é al-
þingi í gær.
ÝMSAR kosningar fóru
fram á alþingi í gær að lokinni
atkvæðagreiðslu um fjár'i.igin.
Kosnir voru þrír eftirlitsmenn
opinberra sjóða, fimm menn I
nýbýlastjórn og fimm til vara
og þrír menn til að úthluta
launum til skálda og rithöf-
unda.
Eftirlitsmenn opinberra
sjcða voru kosnir af A-lista
Sigfús Bjarnason, stafsmaður
Sjómannafélags Reykjavíkur,
Andrés Eyjólfsson alþingismað
ur og Þorsteinn Þorsteinsson
sýslumaður með 40 atkvæðum.
B-listi, sem Bergur Sigúr-
björnsson alþingismaður var á,
hlaut 9 atkvæði.
1 nýbýlastjórn urðu sjálf-
kjörnir: Af A-lista Ásmundur
Sigurðsson kennari, af B-lista
Steingrímur Steinþórsson ráð-
herra og Haukur Jörundsson
kennari og af D-lista Jón
Pálmason alþingismaður og
Jón Sigurðsson alþingismaður.
Til vara voru kosnir: Af A-
f*r*mhald 6 7 ■flhs
STJÓRN Sambands íslenzkra samvinnufélaga samþykkti á
fundi sínum í gær að ráða Erlcnd Einarsson sem forstjóra Sam-
bandsins frá næstu áraniótum, en þá lætur Vilhjálmur Þór af
því starfi til að taka við bankastjórastöðu í Landsbankanum.
í framkvæmdastjórn SIS
voru kjörnir auk xorstjóra, sem
er sjálfkjörinn, þeir: Helgi Þor
steinsson, framlxvæmdastjóri
innflutningsdeildar, og er hann
varaformðaur framkvæmda-
stjórnarinnar; Helgi Péturs-
son, framkvæmdastjóri útflutn
ingsdeildar; Hjalti Pálsson,
framkvæmdastjóri véladeildar,
og Hjörtur Hjartar, fram-
kvæmdastjóri skipadeildar.
Varamaður í framkvæmda-
stjórn var kjörinn Harry Fre-
deriksen, framkvæmdastjóri
iðnaðardeildar.
HINN NYI FORSTJORI
Erlendur Einarsson er 33
ára gamall Skaftfellingur,
fæddur í Vík í Mýrdal 1921,
sonur hjónanna Einars Erlends
sonar, sem verið hefur starfs-
maður Kaupfélags Skaftfell-
inga í fjóra áratugi, og Þorgerð
ar Jónsdóttur.
FRAMHALDSNÁM
í HARVARD
Erlendur réðist 15 ára gam-
all til starfs hjá kauþfélaginu í
Vík og vann þar til ársins 1942,
nema hvað hann stundaði nám
í Samvinnuskólanum veturna
1939—1941. Eftir það varð
hann starfsmaður Landsbank-
ans, en fór vestur um haf til
framhaldsnáms 1944—1945.
kalatdlit ilangnarnek
Grœnlandsvinurinn9 blað til
kynningar á Grœnlandsmálinu
Ráðgert að stofna Glæniandsvinafélag
Grænlandsvinurinn verður selt
a götum bæjarins næstu daga.
Framhaldandi útgáfa veltur á
viðtökum almennings. Það er
16 síður í hálfri dagblaðsstærð.
Útgefandi er Ragnar V.
Sturluson, Einholti 11, Rvík.
ar á ýmsum sviðum. Enn frem
ur hefur Búnaðarfélagið trún-
aðarmenn til þess að meta
verklegar framkvæmdir víða
um land, og svo hafa búnaðar-
samböndin ráðunauta í þjón-
ustu. sinni, 16 samtals nú, en
vonandi fjölgar þeim á kom-
andi árum, því allmörg héruð
hafa enn engan ráðunaut.
FUNDIR OG NÁMSKEEÐ
Námskeið þéssi fyrir ráðu-
naútana éiga að samstilla þá til
átaka og samræma átökin til
vænlegs árangurs í störfum
Framhuld á 7. síOu.
NYTT BLAÐ befur hafið
fföngu sína í Reykjavfk. Nefn-
ist það Grænlandsvinurinn og
er gefið út til a'Ö efla kynn-
ingu og bróðurleg samskipti
milli Islendinga og Grænlcnd-
insra.
í blaðinu er meðal annars
sagt frá umræðum á alþingi
19. nóv. síðastllðinn um Græn-
land og birt tillaga Péturs Otte
sens um það á undanförnum
þingum. Þá eru greinar um
Grænland eftir tyo þekkta
menn, þá dr. jur. Ragnar Lund
borg og dr. jur. Jón Dúason. í
blaðinu er einnig kort af Græn
landi og Danmörku með leið-
réttum staðaheitum. og raktir
yfir fimmtíu þýðingarmiklir
stjórnarfarslegir a.tburðir úr
sögu Grænlands. Þá er og kort
með skýringum vfir landa-
fundi og siglingar Islendinga í
fornöld.
í þessu fyrsta tölublaði
Grænlandsvlnarins eru að lok-
um áskorunarorð útgefanda
um nauðsyn þess að stofna
Grænlandsvinafélag. Blaðið
V e 8 r 11 f fif
Súðvestam og vestan átt, all-
livass með köflmn. Éljaveð-
ur, Iiiti ura frostmark.
Erlendur Einarsson.
Lagði hann þá fyrir sig banka-
mál og starfaði jafnframt við
banka í New York. Síðan Ihefur
Erlendur dvalizt eitt missirit
við framhaldsnám í Harvard
háskólanum vestra. og var það
veturinn 1952.
Árið 1946 var Erlendur ráð-
inn til að Veita forstöðu Sam-
vinnutryggingum, sem settar
voru á stofn það ár. Dvaldist
hann þá um hríð í Englandi við
undirbúning tryggingafélagsins
og hefur veitt því forstöðu síð-
an. Það er, eftir aðems átta ái'a
starf, annað stærsta trygginga-
félag landsins.
JÓN ÓLAFSSON FORSTJÓRI
SAMVINNUTRYGGINGA
Stjórn Samvinnutrygginga
hefur samþykkt að ráða Jórs
Ólafsson lögfræðing sem frarrs
kvæmdastjóra félagsins frá ára
mótum í stað Eriendar Einars-
sonar. Jón yerður eftir sem áð-
ur framkvæmdastjóri líftrygg-
ingafélagsins Andvöku.
Síld og Fiskur opnar nýja kjöf-
verzlun í Haga-byggðinni
í sama húsi verða nýlenduvöruverzlun*
mjólkurbúð, vefnaðarvöruverzl, fiskbúð.
SÍLD & FISKUR onnaði í gær nýja kjötbúð að Hjarðarhaga
10. Er búðin í sérstöku verzlunarhúsi, sem Árni Benediksson
hefur reist þama og mun þarna verða helzta verzlunarmiðstöð
Haga-hverfisins.
Þessi búð er hin smekkleg-
asta, mjög rúmgóð og ekkert
virðist hafa verið til sparað að
gera hana sem bezt úr garði.
Frystiborð eru gerð í Raftækja
verksmiðju Hafnarfjarðar, en
kjötkrókar, sem gerðir eru úr
oxideruðu aluminium eru nýj
asta nýtt frá Þýzkalandi. Þetta
er þriðja. kjötbúðin, sem Síld
og Fiskur setur á stofn. Verzl-
unarstjóri í þessari nýju verzl-
un er Wagner Walbom.
AUÐVELT AÐ VERZLA
Auðvelt verður fyrir hús*
mæður í þessu hverfi að
verzla, er allar búðir í þessu
nýja verzlunarhúsi em tekn
ar til starfa. Auk kjötbúðar-
innar er þegar tekin til
starfa þar nýlenduvöruverzl
un, en auk þeirra verða í hús
iriu mjólkurbúð, fiskbúð,
vefnaðarvöruverzlun og fata
pressa.