Tíminn - 05.02.1965, Blaðsíða 6
FÖSTUDAGUR 5. febrnar 1965
6
TÍMINN
Lesendum óska ég farsældar
á hinu nýbyrjaða ári.
Það er með fádæmum hví-
líka athygli alþingiskosningarn
ar hér hafa vakið á íslandi.
Fjðlffl langhunda hafa dunið
yfir lesendur Tímans síðustu
mánuðina. Þær eru þar með
útræddar frá minni hálfu,
nema hvað ég vil geta þess,
að ég er ekki höfundur þeirrar
nafnlausu greinar, sem birtist
ekki alls fyrir löngu.
Nú eru þeir komnir á prent
frændur mínir í Eyjum vestur.
Þeir Jökull og Baltasar hafa
kveðið þeim drápu þekkilega.
Það er tæplega að bók þeirra
verði talin til heimilda, kann
svo að vera, að eitt ártal eða
tvö hafi misritazt. Hitt er vízt
að búningur sá, er þeir hafa
fært eyjalífið í, er hinn hugn-
anlegasti. Ég hef alltof sjald-
an átt þess kost að heimsækja
Eyjar, en ég þekki hverja mynd
og svipmynd í bók þeirra úr
mínum eigin hugarsjónum.
Andrúmsloftinu hafa þeir náð.
Það er bara að þakka þeim
félögum bókina, og foreldrum
ánægjulega jólagjöf.
Hitt er svo athyglisverð
spurning, að hve miklu leyti
þetta er grafskrift yfir Flat-
eyjarhrepp einan. Hve margar
eru þær sveitir á íslandi, sem
eru í sömu aðstöðu í dag? Þeg-
ar er of seint að skrifa anda-
slitrasögu sumra byggðarlaga.
Enn er annað mál, hvort
þessi sorgarsaga er óumflýjan-
leg. Efalaust er hún það á
mörgum stöðum. Þróun þjóð-
félagsins er slík, hvort sem
manni líkar betur eða verr.
Hvað um Breiðafjarðareyjar?
Mig dreymir um það, að ein-
hvemtíma snúa út til ís-
lands, og þá eiga þess kost að
eyða sumarleyfi í Eyjum. Ein-
hvem veginn sýnist mér að
Breiðafjarðareyjar hljóti að
eiga sér mikla framtíð sem
hvíldarsvæði fyrir borgarbúa,
ég á bágt með að ímynda mér
betri aðstöðu til þess að hvíla
sig en þar. Sýnt er þó, að
| breyting verður að verða á
þjóðháttum íslendinga áður en
hægt er að gera stóriðnað úr
sumarleyfum landsmanna, eink
um þó að þeir geti lifað af
einföldum dagvinnutekjum og
þó átt afgang fyrir sumarleyf-
ið.
Alltaf er dapurlegt þegar
verðmæti fara í súginn, eins
og þama á sér stað- En ef
þau geta ekki veitt nýtendum
sínum þau lífskjör, sem þeir
krefjast, ja, þá dugar ekki
langt, að enn era til fáeinir
einstaklingar, sem annað hvort
af nægjusemi eða ráðdeild og
dugnaði ennþá hjara á hrím-
anum.
Mér þykir trúlegt, að enn
sem fyrr megni Vestureyjar að
fæða stærri hóp en bann, sem
nú situr þær. Hitt hygg ég
þyngra á metum, að oinangr-
unin, þjónustuleysið (verzlun,
læknir, póstur, prestur) kæfir
fólk, einkum yngra fólk. Það
verður ekki í dag lifað á beim
fiski, sem forðum gekk í
Breiðafjörð. Það er sjálfsagt
að leggja allt kapp á að við-
halda byggð sem víðast, en
allt, sem til þess er gert, verð
ur að byggjast á atvinnutækj-
um, sem til lengdar era sam-
keppnisfær og lífvænleg að eig-
in rammleik, þótt stuðning
þurfi í upphafi. Allt annað er
óraunhæft og verður okkur
sams konar minnisvarði og
Gíslagrjótið í Flatey er upp-
hafsmanni sínum óbrotgjam
varði um skrum og óábyggileg
loforð.
Tvær hefi ég haft framhalds-
sögumar: Helander og Wenn-
erström. Nú er búið að reikna
út að Helander eigi inni hjá
ríkinu hálfa milljón sænskra
króna. Það era biskupslaun og
önnur fríðindi. Ekki er nóg
með þetta, sagt er að gamli
maðurinn hafi grætt á öllu
saman, því að sektimar hefðu
orðið til muna hærri, ef hann
hefði haft biskupslaunin af að
taka. Hér fer sektarapphæðin
eftir tekjum.
Um þessar mundir er verið
að sleppa út yfirheyrslugerðum
frá máli réttvisinnar gegn
Wennerström, þeim er heimu-
lega hafa verið varðveittar. Ég
hef ekki kynnt mér þetta sér-
staklega, sé bara að blöð og
útvarp skýra svo frá að tæki-
færið skapi ekki bara þjófa,
heldur og njósnara. Saklaust
grín (og svo mótstöðuleysi
gagnvart peningum) var upp-
haf þess njósnaferils, er lengi
mun í minnum hafður hér á
landi. Jafnframt er nú ljóst að
hann hefur njósnað einnig fyr-
ir Bandaríkjamenn, á kostnað
Rússa. Rússar uppgötvuðu
þetta smám saman, og létu sér
hvergi bregða.
Dómur hefur nýskeð fallið
í máli, sem beinlínis á rætur
að rekja til Wennerströms.
Það var gefið í skyn á meðan
á réttarhöldunum stóð, að
hann hafi haft starfsbróður í
Evrópu. Einn góðan veðurdag
birtist svo greinaflokkur í einu
víðlesnasta vikublaði landsins
um þennan starfsbróður Wenn
erströms. Hann hafði verið í
heimsókn hjá ofurstanum á
heimili hans í Stokkhólmi og
því auðvelt að finna hann með
hjálp hreingemingakonu
Wennerströms, sem þegar er
fræg orðin fyrir framgöngu
sína í leitinni að sönnunum
gegn Wennerström, sem og
vegna allra frásagna hennar i
hinum ýmsu vikublöðum og
kvöldblöðum, sem öll hafa
reynt að gera sér kerlingar-
greyið og Wennerström að fé-
þúfu. Henni hafði sýnzt gest-
urinn heldur skuggalegur. Og
hvers vegna að þegia yfir því?
Þetta orð skuggalegur er í með
ferð vikublaða eins og dúsa
í munni kornbarns. Það má
lengi sjúga og smjatta á því.
Nefnt vikublað sendi blaða-
konu eina út af örkinni og eft-
ir ákafar og tímafrekar rann-
sóknir birtist svo greinarflokk-
urinn. Þar var lýst þeim fer-
legasta vágesti sem hugsast
má.
Sá glæpur mun vart upp-
fundinn enn í dag, sem mann-
tetrið var ekki kenndur við.
Þótt ekkert nafn væri birt
mátti engum, sem til bekkti,
dyljast hver maðurinn er.
Þetta ásamt því, að varla var
nokkurt orð satt í greina-
f lokknum varð örlagaríkt
ábyrgðarmanni vikublaðsins.
Sá sem lýst var gaf sig til
kynna og sótti ábyrgðarmann-
inn til saka fyrir meiðyrði.
Hann hefði trúlega getað feng-
ið ríflegar skaðabætur, en lét
sér nægja að krefjast þess, að
dómurinn yrði birtur í blað-
inu. Ábyrgðarmaðurinn tapaði
málinu og fékk mánaðarlangt
fangelsi. Það mun sárasjáld-,
að svo þungir dómar séu dæmd
ir í slíkum málum, en svo kvað
greinaflokkurinn hafa verið
einstakur í sinni röð. Af örlög-
um blaðakonunnar hefi ég ekki
haft neinar spurnir, en hún
var að sjálfsögðu ekki sótt til
saka.
Það era fleiri fallin stór-
menni hér en ritstjórinn og
Wennerström. Maður er nefnd-
ur Hilding Hagberg, mjög svo
jafnaldra félaga Krúséf af
Moskvu. Þeir eiga fleira sam-
eiginlegt en aldurinn. Hild-
ing var þar til í vor sem leið
formaður Kommúnistaflokks
Svíþjóðar. Honum var sparkað
og inn settur Hermansson
hinn háli, sem áður var rit-
stjóri málgagns flokksins „Ny
Dag.“ Hann Hermansson af-
neitaði Moskvu ákaflega í kosn
ingabaráttunni og vildi stjóma
þjóðlegum kommúnistaflokki,
sem sjálfur skapaði sínar línur,
enda væri þá minni hætta á
línubrenglum, en ef elta þyrfti
þær austur um Eystrasalt.
Hann gagnrýndi Moskvu ein-
arðlega fyrir aðferðimar við
forystuskiptin. Hvað um þetta,
Hermansson heldur sig að
heldri manna sið og nú standa
yfir hreinsanir í flokknum.
' Hann hefur látið orð að því
liggja, að nafnskipti væri hugs-
anlegt og að vinstri sósialistar
sé meira réttnefni en kommún
istar. Þetta hefur r.ð sjálfsögðu ,
valdið úlfaþyt meðal eldri
kommúnista.
Mér er ekki kunnugt um
það, hvort Hagberg hefur ver-
ið sakaður um fjölskyldupóli-
tík, en Hermansson vill sýni-
lega byrgja brunninn áður en
bamið er dottið ofan í. Hann
lætur leggja niður málgagn
flokksins a.m.k. sem dagblað.
Þetta er fjárhagsatriði að sjálf
sögðu, flokkurinn ekki stór og
fjár vant í stað þess, sem áður
gerðist að senda fólk á flokks-
skóla til félaga Ulbrichts í
Austur-Þýzkalandi hefur flokk
urinn komið á fót skóla hér
innanlands. Ekki virðist þetta
vera vinsælt meðal allra flokks
manna, mun jafnvel Hagberg
hafa hrist höfuðið.
Hagberg hverfur nú af þingi
eftir langa setu og hefur gef-
ið í skyn, að hann muni skrifa
um utanríkisstefnu Svía á
stríðsárunum. Hefur látið að
því liggja, að ekki muni allir
kætgst af því, að upp sé rifjað
hvað þeir hafi sagt þá. Annars
komst hann í blöðin rétt fyrii
jólin með því að skýra frá því
að Krúséf hafi fengið aðsvii
á meðan á Svíþjóðardvölinni
stóð. Hann vill þó ekki segja
hvort það var fyrir eða eftir
- róðurinn á Harpsundssjó. Eng
inn annar sænskur hefur orðið
nokkurs var, er styðja má sög-
una. Hitt er þó í minnum haft,
að gesturinn var geðillur nokk
uð á stundum.
Allt síðan á dögum Hammar
skjölds, og raunar löngu fyrir
andlát hans hafa Svíar getið
sér mikinn orðstír í herferð-
um til vemdar friði í veröld
vorri. Það er Kórea, Gaza,
Kongó og nú seinast Kýpur,
að þeir hafa látið friðardúfur
sínar ganga á milli stríðandi
þjóðarbrota. Hér er um fjölds
þúsunda að ræða, og er það
bara að vonum að misjafn er
sauður í mörgu fé. Því skyldi
engan undra, að slíkt gat kom-
ið fyrir, sem frægt er orðið,
að tveir af hetjum úr liði hans
hátignar, liðsforingjar báðir,
freistuðu þess að smygla vopn-
um til Týrkja á Kýpur. En
sjá, þetta kom allavega ákaf-
lega á óvarL Svíar era (a.m.k.
að eigin áliti) heimsmeistarar
í hlutleysi og yfir slíkt hafnir.
Þetta er allt svo aldeilis fá-
heyrður endemis skandali,
sem engar afsakanir mátti
finna fyrir. Þeir lautinantam-
ir áttu ekki upp á pallborðið
hjá löndum sínum, þeir hofðu
flekkað mannorð allrar sænsku
þjóðarinnar á þann hátt að
seint mátti bæta. Þeir voru að
sjálfsögðu dregnir fyrir lög og
dóm með miklum bumbuslætti
blaða og sjónvarps. Það var
auðvitað, að þeir fengu
þyngstu refsingu, sem lög leyfa
fyrir þau afbrot, sem kæran
hljóðaði upp á, eða tveggja ára
fangelsi og reknir úr hemum.
Piltamir, sem höfðu haldið
því fram, að þeir hefðu kennt
í brjósti um Tyrkjagreyin, sem
hlutu svo slæma meðferð af
Makariosar hálfu, það var
hrein og tær manngæzka, sem
lá að baki afbrotinu, þeir áfrýj
uðu dóminum. Milliréttur lækk
aði hegninguna niður í þriðja
hluta, eða átta mánuði. Kann-
ski hefur honum fundizt minna
til um ærumissi sænsku þjóð-
arinnar en undirrétti, það veit
ég ekki, en piltar áfrýjuðu til
hæstaréttar.
Þótt þeir kumpánar væru
lítt í hávegum hafðir í Sví-
þjóð, þá var því annan veg
farið í Tyrklandi og eitt dag-
blað þarlenzkt bauð þeim í
hvíldarför þangað suðureftir á
meðan þeir biðu úrslita í mál-
um sínum. Þeir voru komnir
til Kastrap í Kaupmannahöfn,
þegar einhver framgjam dóm-
ari í Stokkhólmi lét lögregluna
senda þá heim og stakk þeim
í gæzluvarðhald vegna hættu
á að þeir myndu aldrei snúa
til Svíþjóðar aftur. Þessu neit
uðu þeir að sjálfsögðu. Þetta
olli miklum úlfaþyt, þar eð
dómstóllinn hafði ekki tak-
markað ferðafrelsi þeirra. Hér
má ekki halda fólki í gæzlu-
varðhaldi nema takmarkaðan
tíma án dóms og laga.. Því var
enn kallaður saman dómstóll
og þeim sleppt, en settir í
ferðabann, þar til hæstaréttar-
dómurinn yrði kveðinn upp.
Átta mánaða fangelsisdómur
milliréttar var svo staðfestur
skömmu fyrir jól, en þeir
héldu sér utan fangelsismúr-
ana yfir helgina með því að
sækja um náðun, rem enn er
ekki afgreidd.
Auðvitað verður aldrei með
vissu sagt, hvort þeir fyrirhug-
uðu flótta eða ekki, enda skipt
ir það varla máli. Sjálfur kysi
ég heldur átta márn’ði í sænsku
fangelsi en ævilanga útlegð í
Tyrklandi, en smekkur nanna
er jú misjafn. Hitt er og Ijóst,
ið hefðu þeir flúið, hefði Er-
ander eignazt sína fyrstu
flóttamenn.
*
Heiðurs-
félagi Fl
Á síðasta skemmtifundi félags-
ins var tilkynnt, að félagsstjóm
in hafi kjörið Ósvald Knudsen
málarameistara, heiðursfélaga í
Ferðafélagi fslands; Svo sem
kunnugt er, hefur Ósvaldur gert
margar merkilegar kvikmyndir af
landi og þjóð og með þeim bæði
kynnt fjölda manna fegurð og
mikiUeik íslenzks landslags og
nátúru, og ekki síður bjargað
miklum fróðleik um lífskjör fólks
og foma atvinnuhætti, sem nú eru
sem óðast að hverfa. f því sam-
bandi má minna á kvikmyndir
hans frá Hornströndum, Ullar-
band og jurtalitun, Vorið er kom
ið, Tjöld í skógi, Sogið, um Heklu
gos og Öskjugos og nú síðast
Sveitin milli sanda,. auk fjölda
annarra kvikmynda. Þetta land-
kynningarstarf inn á við er mjög
í anda stefnuskrár Ferðafélagsins,
og auk þess hefir Ósvaldur alla
tíð verið mikill vinur félagsins og
leyft því að framsýna flestar mynd
ir sínar.
Ferðafélag íslands hefir áður
kjörið aðeins 7 heiðursfélaga, þá
Ögmund Sigurðsson, skólastjóra,
Daniel Braun höfuðsmann, Vil-
hjálm Stefánsson landkönnuð,
Björn Ólafsson fyrrv. ráðherra,
Skúla Skúlason ritstjóra, próf-
essor N.E. Nörlund og Þorstein
Þortsteinsson sýslumann.
Lántökur
á vegum
Rvíkur
Á borgarráðsfundi hinn 26. þ.
m. var samþykkt að taka lO.millj.
kr. lán hjá Tryggingastofnun ríkis
ins. Verður lánið til 15 ára með
fasteignalánavöxtum. Er áformað
að verja 7,5 millj. af láni þessu til
Borgarsjúkrahússins og 2,5 millj.
til bygginga barnaheimila. Þá var
og samþykkt á sama fundi að taka
5 millj. kr. lán hjá Sjúkrasamlagi
Reykjavíkur til 10 ára með fast-
eignalánavöxtum. Ekki er enn á-
_ kveðið, hvernig því láni verður
3 ráðstafað.