Tíminn - 05.02.1965, Síða 12
ÍÞRÓTTIR
12
TÍMINN
ÍÞRÓTTIR
FÖSTUDAGUR 5. febrúar 1965
Nemendur íþróttakennaraskól-
ans sofa á borðunum meðan
mýsnar hernema rúm þeirra!
LISTON
Liston var
ekki dæmdur
Sonny Liston, fyrrum heims-
meistari i þungavigt, var
hreinsaður af þeim áburði að
hafa ekið bifreið sinni undir
áhrifum áfengis. Rétturinn í
Denver í Colorado komst að
þessari niðurstöðu í fyrri viku.
Liston var handtekinn af lög-
reglunni í Denver fyrir nokkr-
um vikum, en keyrslulag hans
þótti grunsamlegt. Liston mót-
mælti þessari ásökun og tók
Framhald á 11. síðu.
Björn Davidson skorar fyrir
Redbergslid í leiknum gegn
Dynamo.
Tapaöi illa
fyrir Dynamo
Sænsku meistararnir í hand |
knattleik Redbergslid, sama lið I
ið og sigraði Fram í fyrstu j
umferð Evrópubikarkeppninn |
ar, tapaði illilega fyrir rúm- lí
ensku meisturunum Dynamo í
2- umferð keppninnar í fyrri
leik liðanna Leikurinn fór i
fram í Gautaborg og lyktaði j|
24:11 fyrir Dynamo, en í hálf *
leik var staðan 9:5. Sáralitlar
líkur eru því fyrir, að Red
bergslid komizt áfram í keppn j£
innL
Ófremdarástand ríkjandi í húsnæðismálum
íþrótfakennaraskóla íslands
Alf—Reykjavík, fimmtudag.
Mjög alvarlegt ástand ríkir nú í húsnæðismálum iþróttakennaraskólans að
Laugarvatni, — og á það sérstaklega við um vistarverur nemenda. Segja má, að
alla tíð hafi skólinn verið á hrakhólum með vistarverur fyrir nemendur í þau
22 ár, sem hann hefur verið ríkisskóli, og hefur ekkert stórátak verið unnið í
þeim efnum, Þegar þetta er skrifað, býr stór hluti nemenda í óhrjálegum timb-
urskála. Þessi vistarvera er ekki glæsileg, — og þegar frost eru, smjúga mýs
inn um hverja rifu, sem á þessum kumbalda finnst, og gera mikinn usla. Hefur
kveðið svo rammt að þessu nú í vetur, að dæmi eru til um það, að nemendur
hafi orðið að hreiðra um sig uppi á borðum, því að mýs hafa hreinlega hernum-
ið rúm nemenda.
lýsingum má sjá, að mfkið
ófremdarástand ríkir í hús
næðismálum íþróttakennara-
skólans, þessarri miðstoð í-
þróttamennta á íslandi.
Er virkilega hægt að bjóða
nemendum skólans upp á sam
býli við mýs í niðurníddum
timburskála á hörðum vetri?
Stjórnarliðinu á Alþingi fínnst
Og á sama tíma stendur hálf-
köruð bygging steinsnar frá, upp-
steyptur kjallari — verðandi
heimavist og mötuneyti nemenda
í framtíðinni. En ekki er fyrir
sjáanlegt, að þeirri byggingu verði
lokið á næstunni. f fjárlögum fyr-
ir árið 1965 er gert ráð fyrir, að
veittar verði 700 þúsund krónur
til byggingarinnar, en samkvæmt
upplýsingum Áma Guðmundssonar
skólastjóra fþróttakennaraskólans,
vantar 3 millj. króna til þess, að j
hægt verði að Ijúka við að steypa
upp hæð.
Við áttum stutt viðtal við Áma
um þessi mál. Árni kvað aðstöðuna
ekki vera glæsilega. Stúlkumar í
skólanum búa f kjallara skóla-
stjórabústaðarins, en piltarnir í
fyrrgreindum timburskála. Árni
sagði, að þessi skáli hafi verið
reistur fyrir u.þ.b. 10 árum og
Innanhúss-
æfingar hjá
Golfkíúbbnum i
Golfklúbbur Reykjavíkur er aðj
byggja nýjan 18 holu golfvöll fyr-
ir ofan Grafarholt. Þar er einnig
að rísa nýr golfskáli, sem er kom-
inn undir þak. Með þessum fram
kvæmdum gjörbreytist aðstaða öll
til batnaðar fyrir þá, sem þessa
hollu og skemmtilegu iþrótt vilja
stunda. f golfklúbbnum eru rúm-
lega tvö hundruð félagar, en skll-
yrði eru nú fyrir hendi til mik-
illar fjölgunar félagsmanna. Er
þetta ólík aðstaða samanborið við
við ýmis nágrannalönd okkar, þar
sem raargir golfklúbbar eru iöngu
hættir að fcaka nýja félaga vegna
þrengsla á golfvöllum. Eru þar
víða hundruð manna á biðlista,
svo miklar eru vinsældir golfsins.
Golfklúbbur Reykjavíkur vill
eftir beztu getu greiða fyrir því,
að nýir félagar bætist í hópinn, og
í því skyni er m.a. sú golfkennsla
ínnanhúss, sem fram fer hér i í-
þróttasalnum í Laugardal Það er
ástæða til að vekja athygli þeirra,
sem hug hafa á að byrja golfleik
á því, að slík tilsögn innanhúss er
Framhald á 11. siðu.
þá verið ætlaður sem efnisgeymsla
en aldrei sem mannabústaður.
„Samt sem áður höfum við
neyðzt til að nota skálann, en
ástand hans befur aldrei verið
eins slæmt og nú, sérstaklega hef-
ur músagangurinn verið hvimleið
ur. Það er varla hægt að bjóða upp
á þetta”.
— Hvað um nýju bygginguna?
„Kjallarinn var steyptur upp á
s.l. sumri. Eg held, að það hafi
verið gert í þeirri góðu trú, að
haldið yrði áfram skipulega við
verkið. Nú eru hins vegar veittar
aðeins 700 þúsund krónur til
verksins á þessu ári, en vantar
u.þ.b. 3 millj. svo ljúka megi við
að reisa fokhelda hæð”, sagði
Árni.
Svo mörg voru þau orð.
Samkvæmt ofangreindum upp
ekkert athugavert við það og
felldi breytingartillögu Fram-
sóknarmanna um að hækka
fjárveitingu til nýbyggingar-
innar í 3 millj.
Hér er á ferðinni vandamál, sem
krefst skjótrar úrlausnar. Á ekki
íþróttakennaraskólinn betra skil-
ið en þennan miðaldabrag í húsa-
málum? —alf.
Þarna sækja KR-ingar að Ármanns-markinu í fyrrakvöld. Tímamynd KJ
HRAFNHILDUR OG GUDMUNDUR
UNNU I FLESTUM GREINUM
Ármann sigraði KR örugglega í Sundknattleiksmótinu 8:4
Alf—Reykjavik, fimmtudag. .
Næsta sviplítið og bragðdauft Sundmeistaramót Reykjavikur var
háð í Sundhöllinni á miðvikudagskvöld. Sæmilegur tími náðist í
sumum greinum ,en engin afrek voru unnin. — Eftir keppnisgrein
arnar var. svo háður úrslitaleikurinn í Sundknattleiksmeistaramóti
Reykjavíkur, milli Ármanns og KR.
BREZK
knattspyrna
Það var trú margra, að í þetta
skipti myndi KR-ingum loksins
takast að sigra, því mikl forföll
voru í liði Ármenninga. Þetta fór
þó á aðra leið.forföll voru einnig
hjá KR. Ármenningar sigruðu
örugglega 8:4 og höfðu þeir
náð 8:2 eftir þriðju lotu.
Pétur Kristjánsson var maðurinn
að baki sigurs Ármenninga
skoraði 6 mörk, sem er vel af
sér vikið.
Helztu úrslit í sundinu: 100 m.
skriðsund karla: Reykjavíkurmeist
ari Guðmundur Gíslason, ÍR,
59.2 sek. 200 m bringusund kvenna
Reykjavíkurmeistari Hrafnhildur
Guðmundsdóttir, ÍR 3:04,0. 50 m.
skriðsund drengja: Sigurvegari
Framhald á 11. síðu.
Úrslit í tveimur „umleikjum”
úr 4. umferð ensku bikarkeppn
innar:
Manchester Utd.—Stoke 1:0
Stockþort—Liverpool 0:2
Manchester Utd. leikur á
heimavelli gegn Burnley í 5.
umferð, og Liverpool gegn Bolt
on. í Bolton.