Alþýðublaðið - 04.10.1955, Qupperneq 3
th‘i&jiKÍagur 4:. október 1955
AlþýStrbfaSiS
í*
T
vantar unglinga eða fullorðið fólk til að bera
blaðið til áskrifenda í þessum hverfum:
Kleppsholti
Grímsstaðaholti
Rauðarárholti
» Seltjarnarnesi
Skerjafirði
Smáíbúðahv erfi
Vogahverfi
Laugarnesshverfi
Kársnesbraut
Lönguhlíð
Ur öllum
állum
00<><><><Sk>4
X>JK>OOOC
Sendisveinn
óskast nu þegar.
HANNES A HORNIN U'lli
VETTVANGUR DAGSINS
Hvers vegna ekki til Hnífsdals? — Þakkir til út-
varpsins — Kaupin á Kolviðarhóli — Framtíð
hans — Hvers vegna ekki tekið gjald fyrir bílstæði-
FRÆ HNÍFSDAL hef ég feng-
ið eftirfarancli fyrirspurn til Rík
isútvarpsins: „Hvernig stendur á
Jjví, að listamenn þeir, sem eru
á ferðalagi um Vestfirði á veg-
um Ríkisútvarpsins, eru ekki
láfnir koma við hér hjá okkur í
Hnífsdal? Við höfum þó nú upp
á að bjóða glæsilegt skólahús til
Jjess að halda í svona hljómleika
og er það búið nýju og góðu org
eli. Um þetta hefði alþingis-
manni okkar átt að vera kunn-
ugt, en hann á, eins og kunnugt
er, sæti í útvarpsráði.“
AF TILEFNI þessa bréfs vil
ég segja þetta: Þessi nýja starf-
semi útvarpsins er mjög' góð.
útvarpið fer út til þjóðarinnar
með hina glæsilegu starfsemi
sína. Ao vísu gerir útvarpið það
einnig gegnum hljóðnemann, en
hún verður enn ánrifameiri með
þessari nýju tilhögun. Ég vil
ekki láta hjá líða, að þakka út-
varpinu fyrir þetta. Hins vegar
verður það vandasamt að upp-
fylla óskir alira.
REVKJAVÍKURBÆR hefur
ákveðið að kaupa Kolviðarhól.
Ég fagna þessari ákvörðun.
Kaupverðið er alls ekki hátt.
Eignin getur orðið milljón króna
virði í framtíðinni. Nú ríour á
því að þarna sé komið upp hag-
kvæmri starfsemi fyrir Reykvík
inga og Reykjavíkurbæ. Ég hef
áður skrifað um Kolviðarhól og
hugmyndir um það hvers konar
starfsemi ætti að fara þarna
fram. Ég vænti þess að forráða-
menn bæjarins hafi nú augun
opin fyrir öllum möguleikum.
EF BÚSKAP verður komið
upp á jörðinni mundi það verða
heppilegt að efna til víðtækrar
uhgMngavinnu þarna. Þangað
ættu piltar á skólaaldri að fara
á hverju vori og dvelja þar við
Jandbúnaðarstörf sumarlangt.
Þarna ætti að koma upp kúabúi,
alifuglarækt og svínabúskap í
stórum stíl og tengja starfið við
aðra starfsemi bæjarins og í
bænum: sjúkrahúsin og vinnu-
stofnanir. Ég er enginn sérfræð-
ingur í slíkum málum, en við
ættum að fá ráð hinna beztu
manna til að nytja Hólinn, hinn
gamia og góða áningarstað for-
feðra oltkar og formæðra.
„FÓTGANGANDI ÚTSVARS
GREIÐANDI“ Skrifar: „Ég var
á gangi niður í miðbænum í dag.
Við allar götur og á öllum lóð-
um stóðu bílar. Mér varð á að
hugleiða, hvað mikið það mundi
kosta bæinn að leggja til ,,stæði“
fyrir alla þessa bíla. Lóð hótel
íslands, sem bærinn keypti fyrir
stórfé nýlega, er lánuð endur-
gjaldslaust nokkrum bílaeigend
um. Og öll bílastæðin við Lækj-
argötu eru einhvers virði. Við,
hinir fáu fótgangandi útsvars-
greiðendur, borgum bílastæðin
fyrir hina.
HVAÐ Á ÞETTA að ganga
lengi? Því byrjar bærinn ekki
að taka leigu fyrir bílastæðin?
Mér er sagt, að víðast hvar er-
lendis verði menn að greiða
gjald fyrir bílastæði og það ekki
svo lítið. T.d. sé það algengt í
stórborgum Bandaríkjanna, að
bílaeigendur verði að greiða 25
centa gjald á klukkustund fyrir
bílastæöi. Því er þessi siður ekki.
tekinn upp hér?“
AF TILEFNI bréfsins vil ég
segja þetta: Hugmyndin er rétt,
en það þarf meira til en að segja
þetta. Mann þarf að hafa til þess
að selja réttinn til bifreiðastæð-
anna. Hann gæti að vísu selt
rétt til margra bifreiðastæða í
einu og farið svo eftirlitsferðir
til þeirra við og við. En það virð
ist að minnsta kosti ekki rétt að
bærinn leggi til ókeypis bifreiða
stæði í miðbænum.
Hannes á horninu.
I DAG er þriðjudagurinn 4.
október 1955.
FLUGFERÐIK
Loftleiðir.
Saga, millilandaflugvél Loft-
leiða, er væntanleg til Reykja-
víkur kl. 9 árd. í dag frá New
York. Flugvélin fer áleiðis til
Osló og Stavanger kl. 10.30.
Einnig er væntanleg til Reykja-
víkur Hekla kl. 18.45 frá Ham-
borg, Kaupmannahöfn og Stav-
anger. Flugvélin fer áleiðis til
New York kl. 20.30.
SKIPAFRÉTTIR
Ríkisskip.
Hekla er væntanleg til
Reykjavíkur síðdegis í dag að
vestan úr hringferð. Esja er
væntanleg til Reykjavíltur í dag
að austan úr hringferð. Herðu-
breið fór frá Reykjavík kl. 16 í
gær austur um-land til þórshafn
ar. Skjaldbreið fer frá Reykja-
vík á hádegi í dag vestur um
land til Akureyrar. Þyrill átti
að fara frá Siglufirði árdegis i
dag til Frederikstad í Noregi.
Skaftfellingur fer frá Reykjavik
í gærkveldi til Búðardals og
Hjallaness.
Eimskip.
Brúarfoss fer frá Keflavík í
Brúarfoss fór frá Keflavík í
gærkveldi til Reykjavíkur og
frá Reykjavík í kvöld til Bou-
logne og Hamborgar. Dettifoss
fór frá Hafnarfirði í gærkveldi
til Reykjavíkur. Fjallfoss fer frá
Rotterdam í dag til Hull og
Reykjavíkur. Goðafoss fer vænt
anlega frá Helsingfors 6/10 til
Ventspils, Riga, Gautaborgar og
Reykjavíkur. Gullfoss kom til
Kaupmannahafhar í gærmorgun
frá Leith. Lagarfoss fór frá Rvílt
26/9 til New York. Reykjafoss
er í Hamborg. Selfoss fór frá
Patreksfirði í gærkveldi til
Bíldudals, Flateyrar, ísafjarðar
og Hafnarfjarðar. Tröllafoss fór
frá Reykjavík 29/9 til New
York. Tungufoss kom til Reykja
víkur 29/9 frá Hamborg. Baldur
fór frá Leith.30/9 til Reykjavík
ur. Drangajökull lestaði i gær
í Rotterdam til Reykjavíkur.
F U N D I R
Kvenfélag Hóteigssóknar held
ur fund í kvöld kl. 8.30 í Sjó-
mannaskólanum.
— * —
Ólafur Einarsson
héraöslæknir í Hafnarfirði
sinnir öllum læknisstörfum mín
um um óákvfeðinn tíma. Ólafur
Ólafsson.
Bridgefélagið í Hafnarfirði.
Fyrsta spilaæfing Bridgefé-
lags Hafnarfjarðar er í kvöld
kl. 8.
NámskeiÖ í heildverzlun
óg vörugeymslu. Dagskrá: 1.
hluti: Matvöruheildverzlun. —
Mr. John R. Bromell. Þriðjud.
4. október kl. 16 Samstarf heild
sala og smásala. Miðvikud. 5,
október kl. 16: Sölustarf í mat-
vöruheildverzlun. Fimmtud. 6.
október kl. 16: Þjálfun og stjórn
un sölufólks. 2. hluti: Matvöru-
geymslur. — Mr. Richard Mc-
Comb. Þriðjud. 4. okt. kl. 20:
Skipulagning vörugeymsla. Mið-
vikud. 5. okt. kl. 20 Iinnanhúss-
flutningar og tæki (fyrirl. túlk-
aður). Fimmtud. 6. okt. kl. 20:
Rgkstur sskipul a g.
Áheit
áStrandarkirkju kr. 25 frá GJ.
Áuglýsið i
Jbvðubíaðir
Systir okkar,
KIRSTIN RLÖNDAL HJÚKRUNARKONA
lézt 28. september: — Útförin hefur farið fram.
Fyrir hönd okkar bræðranna.
Lárus H. Blöndal.
Innilegustu þakkir færum við öllum þeim, er auðsýndu
okkur vinsemd og samúð við andlát og jarðarför
JÓHANNS FRIÐLAUGSSONAR KENNARA.
ASstandendur.
Oerlst áskrifendur blaðsins.
Hk
T
Samband íslenzkra samvinnufélaga efnir hérmeð til
almennrar samkeppni um nýtt íslenzkt heiti fyrir svo-
kallaðar „sjálfsafgreiðsluverzlanir". Verða veitt 5000
krónu verðlaun fyrir beztu tillöguna um heiti, sem berst
fræðsludeild SÍS fyrir 1. nóvember næstkomandi. í dóm-
nefnd eiga sæti Þorkell Jóhannesson, háskólarektor,
Halldór Halldórsson, dósent og Benedikt Gröndal ritltjóri.
Nýyrðið, sem óskað er eftir, þarf að gefa til kynna,
að um verzlun sé að ræða, og helzt lýsa einhverju ein-
kenni hinna nýju verzlana. í tungumálum grannþjóða
eru slíkar verzlanir venjulega kenndar við „sjálfs-aí-
greiðslu" (self-service stores á ensku, selvbetjenings-
butikker á dönsku), nema hvað Svíar kalla þær „snabb-
kjöb“.
Sjálfsafgreiðsluverzlun einkennist af því, að viðskipta-
vinir geta gengið að öllum vörum verzlunarinnar, skoðað
þær og handleikið. Þeir leggja það, sem þeir ætla að
kaupa, í körfu eða kerru, en greiða vöruna og fá um
hana umbúðir á þar til gerðum smáborðum við útgöngu-
dyr.
Þátttakendur í samkeppnihni skulu einkenna tillögu
sína með dulnefni, en láta nafn sitt og heimilisfang í lokað
umslag, sem einnig skal einkennan sama dulnefni. Öllum
er heimil þátttaka, ungum og gömlum, og má sami ein-
staklingur senda eins margar tillögur og hann vill. Berist
margar tillögur um það orð, sem valið verður, mun dregið
um verðlaunin milli tillögumanna. Tillögur skal senda
til Fræðsludeildar SÍS, Sambandshúsinu, Reykjavík, og
skal merkja umslögin „nýyrði“. Tillögurnar skulu póst-
lagðar fyrir 1. nóvember næstkomandi.
- Frœðsíudeild SÍS
i
1
)
S
¥
H
V
V
s
%
S
A
V
V
1
s
\
\
\
V
s
1
1
j
s
1
V
s
V
V
Sl
S:
V
i
I
!
s
s
■' r