Alþýðublaðið - 07.10.1955, Page 3
Föstudagur 7. október 1955
A K þ ý Su b I a ð i S
ít
vantar unglinga eða fullorðið fól-k til að bera
blaðið til áskrifenda í þessum hverfum:
Kleppsholti
Grímsstaðaholti
Skerjafirði
Vogahverfi
Kársnesbraut
Talið við afgreiðslima - Sími 4900
áfium
■XXXXXXX
5k><XX><>í><
7.
Byggingarmannvirki Mjólkárvirkjunar fyrir botni
Arnarfjarðar, verða boðin út í byrjun næsta árs. Þeir
sem hug hafa á að kynna sér staðhætti, áður en vetur
gengur í garð, geta fengið nauðsynleg gögn á teikni-
stofu Almenna byggingafélagsins h.f., Borgartúni 7.
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS.
Til sölu
. Mjög stór hæð í einu stærsta og glæsilegasta húsi
bæjarins, er stendur við tvær aðalverzlunargötur bæjar-
íns, er til sölu.
Tilvalið sem skrifstofur fyrir stórfyrirtæki.
Nánari upplýsingar gefur
Sigurgeir Sigurjónsson hrl.
Aðalstræti 8 — Sími 1043
íH A N N E S A HOENINU i
VETTVANGUR DAGSÍNS
Hver er höfundur smásögunnar? — „Róa sjómenn '
j Heilbrigðisráðstöfun: — Brauð í umbúðum.
HVER ER Jóhannes Helgi
Jónsson? Þannig hafa nokkrir
lesentíur minna spurt mig und-
anfarna daga. Tilefnið er smá-
saga, sem Gils Guðmundsson
alþingismaður las í útvarpið í
vikunni: „Róa sjómenn“, þessi
smásaga var ein þeirra, sem send
var af hálfu „Eimreiðarinnar“ í
alþjóðasamkeppni um beztu
smásöguna, sem amerískt stór-
blað efndi til.
JÓIIANNES HELGI JÓNS-
SON er ungur maður, sonur
Jóns Matthíassonar loftskeyta-
manns, Ólafssonar alþingis-
manns frá Haukadal í Dýrafirði.
Jóhannes Helgi hefur aldrei,
svo að ég viti fyrr komið fram
sem smásagnahöfundur, en hann
mun eiga um tíu smásögur í
handriti og mun efni flestra
þeirra frá sjónum, enda er höf-
undurinn loftskeytamaður eins
og faðir hans.
„RÓA SJÓMENN“ er afburða
yel gerð saga, þó að sumum
kunni að finnast hún ,,ljót“, eins
og stundum er komizt að orði.
Saga Jóhannesar Helga mun
koma í úrvalssafni samkeppnis-
sagnaníia, sem ameríslct stórblað
gefur út, en hún mun nú þegar
hafa verið þýdd á ýms tungu-
mál og verið birt. — Það er
gaman að því, er ungir menn,
áður óþekktir, vinna sér frama
í listum eins og þessi ungi mað-
ur hefur nú gert.
HÚSMÓÐIR SKRIFAR mér:
;,Fljótt var brugðið við, er vitn-
aðist um lömunarveikifaraldur-
inn, enda er hér um einn váleg-
asta sjúkdóm nútímans að ræða.
En betur má, ef duga skal, og
því sendi ég þér þessar línur.
Borgarlæknir hefur gefið út var-
úðai’reglur fyrir almenning, og
sjálfsagt er að framfylgja þeim
í hvívetna.
MEÐAL þESS, sem þar er
sagt, er fóíki ráðlagt að þvo
matvæli, sem ekki verða soðin.
En hvað þá með brauðmatinn?
Hann er mjög viðkvæmur og
ekki er hann soðinn. Hann er
afgreiddur berum höndum a£
fólki, sem um leið meðhöndlar
eina verstu sýklaberana: pen-
ingana. Væri nú ekki tilvalið að
krefjast þess, að öllum brauð-
u:n verði pakkað inn í pappír?
MÉR ER SAGT, að um þetta
hafi verið rætt, og þó ekki af
þessu nýja tilefni. En frestað
mun að taka ákvörðun vegna
þess, aö umbúðirnar myndu
hæklra brauðin í verði, en það
mundi aftur á móti ltoma fram
í vísitölunni.
ÉG ER EKKI í neinum vafa
um það, að fólk vill greiða eitt-
hvað meira fyrir brauðin inn-
pökkuð en nakin. Og nú álít ég
að framkvæma ætti þessa sjálf-
sögðu heilbrigðisráðstöfun. Víð-
ast erlendis er brauðmatur að-
eins seldur í umbúðum og einu
sinni fékk maður hveitibrauð
þannig. En á þessu sem öðrum
sviðum, í framleiðslu brauðmat-
ar, erum við íslendingar á eftir
tímanum.“
ÉG TEK eindregið undir þessi
ummæli húsmóðurinnar.
Hannes á horninu.
I DAG er föstudagurinn
október 1955.
FLUGFERÐÍB
Flugfélag íslands.
Millilandaflug: Millilandaflug
vélin Gullfaxi fer til Glasgow og
Kaupmannahafnar kl. 9.30 í
fyrramálið. Innanlandsflug: í
dag er ráðgert að fljúga til
Akureyrar, Fagurhólsmýrar,
Hólmavíkur, Hornafjarðar, ísa-
fjarðar, Kirkjubæjarklausturs
og Vestmannaeyja. Á morgun er
ráðgert að fljúga til Akureyrar
(2 ferðir), Bíldudals, Blönduóss,
Egilsstaða, ísafjarðar, Patreks-
fjarðar, Sauðárkróks, Vest-
mannaeyja og Þórshafnar.
SKIPAFRÉTTIR
Ríkisskip.
Hekla fer frá Reykjavík í
kvöld austur um land í hring-
ferð. Esja fór frá Reykjavík í
gær vestur um land til Akureyr
ar. Herðubreið er á Austf jörðum
á norðurleið. Skjaldbreið er á
Húnaflóa á leið til Akureyrar.
Þyrill er á leið til Frederikstad
í Noregi. Skaftfellingur fer frá
Reykjavík síðdegis í dag til Vest
mannaeyja. Baldur fer frá Rvík
í dag til Grundarfjarðar og
Stykkishólms.
Eimskip.
Brúarfoss fór frá Vestmanna-
eyjum í gærmorgun til Boulogne
og Hamborgar. Dettifoss fór frá
Reyltjavík í gærkveldi til Lyse-
kil, Gautaborgar, Ventspils, Kot
ka, Leningrad og Gdynia. Fjail-
foss fór frá Rotterdam 5/10 til
Hull og Reykjavíkur. Goðafoss
hefur væntanlega farið í gær frá
Helsingíors til Riga, Ventspils,
Gautaborgar og Reykjavíkur.
Gullfoss fer frá Kaupmannahöfn
á morgun til Leith og Reykja-
'víkúr. Lagarfoss kom til New
York 5/10 frá Rvík. Reykjafoss
er í Hamborg. Selfoss’ fór frá
Þingeyri í gærmrogun til Hafn-
arfjarðar, var væntanlegur þang
að í morgún. Tröllafoss fór írá
Reykjavík 29/9 til New York.
Tungufoss fór frá Reykjavík í
gærkveJdj vestur og norður um
land til Ítalíu. Baldur kom til
Reykjavíkur 5/10 frá Leith.
Drangajökull fór frá Rotterdam
í gær til Reykjavíkur.
BLÖÐ O G TlMARIT
Tímaritið Úrval. Blaðinu hef-
ur borizt nýtt hefti af Úrvali.
Helztu greinar í heftinu eru:
Stórborgin er orðin úrelt, Ævin-
týrið um norska kaupskipaflot-
ann, Upphafsefnið, Um talna-
keríið, Draumar og draumaskýr
ingar í Austurlöndum, Austur-
ríki endurheimtir sjálfstæði
sitt, Til prófs í læknisfræði,
Framtíðin — opin bók? Vinátta
milli hjóna, Ferilskyggnir
blökkumenn, Merkilegar ellitil-
raunir, Hvað finnst ykkur um
aðrar þjóðir? Samanburður á
evrópskum og amerískum eigin-
konum, Þar sem faðirinn er leik
bróðir barnanna, Bréf hinna
dauðadæmdu eft.ir Thoms Mann,
Lýst skurðaðgerð á lunga, Fíd-
usinn er mín iylgikona! Arf-
gengt hátterni tvíbura, og loks
bókin: Konungur fjallanna,
sjálfsævisaga indverska fjalla-
mannsins Tenzings, þess sem
kleif fjallið Everest.
— * —
Happclrætti.
Kvennadeildar SVFÍ í Reykja
vík. Flugferð til Hafnar 32850.
1 tunna olía 33224. % tonn kol
32886: Sama 19849. 1 poki hveiti
27110. 1 málverk (Matthías)
3288. Sama 749. 1 málverk (Egg
ert) 7755. Drengjaúlpa 23505. 6
gafílar, 6 skeiðar, silfurplett
2091. Teborð 6163. 1 poki hveiti
14433. % tonn kol 20515. Skips-
ferð, Ríkisskip 24714. Hlustun-
STÚDENTAFÉLAG REYKJAVÍKUR.
Kvöldvaka
verður haldin í Sjálfstæðishúsinu, laugardaginn 8. októ-
ber næstk. og hefst klukkan 9 e. h.
1.
2.
3.
4.
Ávarp: Tómas Guðmundsson skáld.
Ljóðasöngur: Lárus Pálsson leikari. (Ætlast er
til að viðstaddir taki undir). Hljómsveit hússins
aðstoðar.
Einsöngur: Magnús Jónsson óperusöngvari. —
Undirleik annast Fritz Weisshappel.
Dans.
ATH. Þetta verður að öllum líkindum seinasta kvöld-
vaka félagsins fyrir áramót.
Aðgöngumiðar verða seldir í Sjálfstæðishúsinu klukkan
5—7 í dag, föstudag, og klukkan 5—7 á morgun, laugard.
Ágóði rennur í Sáttmálasjóð.
Stjórnín.
ódýrari en annars staðar.
Eru framleiddir hér á landi.
Stimplar frá oss eru framleiddir
með nýjustu þýzkum vé.lum og
framleiðsluaðferð, sem ekki hef-
ur þekkst hér áður. — Fyllilega
samkeppnisfær við erlenda
stimpla, hvað verð og gæði
sneríir.
Umboðsmenn
REYKJAVÍK:
Bókabúð Norðra
Bókabúð Kron
Bókabúð M.F.A.
HAFNARFIRÐI:
Verzl. Valdimars Long
AKRANESI:
Bókav. Andrés Nielsson
AKUREYRI:
Bókav. P. O. B.
VESTMANNAEYJUM:
Bókav. Þorst. Johnson
SELFOSSI:
S. Ó. Ólafsson
ÓLAFSFIRÐI:
Brynjólfur Sveinsson
SIGLUFIRÐI:
Lárus Blömlal
Pantið í dag « Tilbúið á morgun
Sendum
gegn póstkröfu urn Iarrd allt
Skólafóík:
Merkið bækur ykkar með
gúmmístimplum frá
STSMPLAGERÐmMi
naóífsstræti 4 - Sí
artæki 748. Kápa. 28178. Raf-
magnskanna 28381. Klukka
20190. Kjötskrokkur 30698.
Hansagluggatjöld 21322. Kjöt-
skroltkur 20334. Regnhlíf 19813.
Dívanteppi 19158. Eldhúsklukka
550. Útsaumað teppi 31378. ís-
lenzkir þjóðhættir 14792. Lampi
3 4898. Gervitennur 31079.
■ Dömuúlpa 15579. Myndataka
15273. Permanent 15871. 50 kíló
saltfiskur 8593. Silfursett á upp
hlut 11452. Kjötskrok.kur 8439-
Vinninganna sé vitjað í skrif-
stofu félagsins, Grófinni 1, seno.
fyrst.