Alþýðublaðið - 25.11.1955, Page 2
2
Föstudagur 25. nóv. 1955
Samþykklir Basidal kvensia
Um skólamál, barna- og uoglioga-
verod og tryggiogamál
'AlþýgublaSiS
BANDALAG KVENNA í
lieykjavík gerði efirfarandi á-
lyktanir á fundi sínurn, sem
njdega er afstaðinn:
SAMVINNA SKÓLA
OG HEIMÉLA
1. Fundurinn skorar á kenn-
araféiög barna- og unglinga-
skólanna í Reykjavík að til-
inefna af sinni hálfu menn í
nefnd til þess að sporna á móti
sælgætisáti barna og unglinga
í bænum og vinna að öðrum
sameiginlegum áhugamálum
heimila og skóla, ásamt þar til
kjörinni nefnd frá bandalaginu.
2. Fundurinn skorar á alþingi
.að ákveða með lögum, að eigi
sé leyft að verzla með sælgæti
og gosdrykki nema í ákveðinni
f jarlægð frá barna- og unglinga
skólum, þar eð slík verzlun er
"börnum á alla lund óholl og
liefur í för með sér mikla slysa
hættu.
3. Fundurinn skorar á bæjar-
í'.tjórn Reykjavíkur að banna
sölu sælgætis og gosdrykkja í
jgrennd við barna- og unglinga-
.skóla bæjarins.
4. Fundurinn skorar á for-
eldra og aðra forráðamenn
barna og unglinga í Reykjavík
að gæta fyllstu varúðar í því
að láta börn og unglinga hafa
<iaglega fé í höndun ti’ þess að
Raksprift
Sápa í túpum og
krukkum
Talkúm
Spicecrem
Einkaumboð
Páín
Kafnarstræti 7
Laugavegi 38.
Æskulýðsvika I
K.F.U.M. og K, |
Samkoma í kvöld kl. 8,30. *
Ræðumenn:
Séra Sigurjón Þ. Árnason j
og Eggert LaxdaL prent-«
myndasmiður. •
■m
Allir velkomnir. •
kaupa sælgæti og annan óþarfa.
5. Þar sem nú liggur fyrir al-
þingi frumvarp til laga um rík-
isútgáfu námsbóka, en sam-
kvæmt því er ætlast til, að út-
gáfan sé aðeins miðuð við barna
skólastigið, þá skorar fundur-
inn á alþingi að breyta frum-
varpinu á þann veg, að ríkisút-
gáfan sjái unglingum á skyldu-
1 námsstigi fvrir bókum á sama
hátt og barnaskólunum.
BARNA- OG
UNGLINGAVERND
1. Fundurinn skorar á bæjar-
stjórn Reykjavíkur að hefja nú
> þegar starfrækslu tómstunda-
1 heimila sem víðast í bænum.
j Tómstunda’neimili þessi séu rek
‘ in undir eftirliti kennara eða
annarra leiðbeinenda.
2. Fundurinn beinir þeirri á-
skorun til lögreglustjóra, að
hann sjái um, að samkomuhús-
in verði gerð ábyrg fyrir því,
að hleypa ekki börnum og ung
lingum inn á þá skemmtistaði,
sem þeim er með lögum eða
reglugerðum bannað að sækja.
3. Fundurinn beinir eindreg-
inni áskorun til hins háa al-
þingis, að það veiti nú þegar
fjárfestingu og aðra þá fyrir-
greiðslu, sem þarf, til stofnun-
ar uppeldisskóla fyrir ungar
stúlkur. Kvennasamtökin vilja
leggja áherzlu á, að í þessum
skóla séu kenndar bæði bók-
legar og verklegar námsgrein-
ar, og að hann verði staðsettur
á jarðhitasvæði svo hægt sé að
kenna stúlkunum fjölbreytta
garðrækt o. fl. Fræðslumála-
stjórnin setji skóla þessum
reglugerð.
4. Fundurinn fagnar and-
mælum prestastefnu og biskupa
gegn innflutningi og útgáfu
sorprita, og vill styðja kirkjuna
af alhug í þeirri baráttu. Vísar
fundurinn í því sambandi til
fyrri samþykkta sinna.
5. Fundurinn skorar á bæj-
arstjórn Reykjavíkur að sjá
um, að í hverju nýju íbúða-
hverfi séu jafnan skipulagðir
og gerðir leikvellir fyrir börn
hverfisins. Séu leikvellir þessir
jafnan búnir til notkunar á
sama tíma og íbúðir hverfisins.
Telur fundurinn, að með slík-
um framkvæmdum væri stigið
stórt spor í áttina til þess að
stemma stigu við þeirri slysa-
hættu, sem börnum stafar af
umferðinni á götunum. Jafn-
framt telur fundurinn fulla
nauðsyn til bera að koma þegar
upp leikvöllum í ýmsum þeim
bæjarhverfum, sem nú þegar
eru að nokkru uppkomin eða
hafa smáíbúðir eða fjölbýlishús
í smíðum.
6. Fundurinn óskar eindreg-
ið eftir því, að bæjarstjórn
Reykjavíkur sjái um útvegun á
fjárfestingarleyfi til þess að
bj'ggja vöggustofu þá, sem elzta
kvenfélag landsins, Thorvald-
sensfélagið, hefur undanfarin
ár beitt sér fyrir að byggja. Fé-
lagið á góða, velsetta lóð fyrir
húsið og hefur þegar fengið
teikningu af vöggustofu. Thor-
valdsensfélagið treystir sér
hvað efnahagshlið snertir að
koma húsinu upp strax og fjár
festingarlefi fæst.
TRYGGINGAMÁL
1. Fundurinn þakkar það,
sem áunnizt hefur í hinu nýja
t^yggingalagafrumvarpi til
handa mæðrum, börnum og
; gamalmennum, og efast ekki
1 um, að konur þær, sem í nefnd
inni sátu, lögfræðingarnir frú
Auður Auðuns og frú Rannveig
Þorsteinsdóttir, hafi átt þar að
mestan þátt. Að hinu leytinu
hefur fundinum ekki unnizt
tími til þess að taka hið nýja
frumvarp í heild til nógu ýtar-
legrar athugunar til þess að
koma með ákveðnar breyting-
artillögur við ýmsar greinar,
sem hann er þó að meiru eða
minna leyti mótfallinn. Vísast
til meðfylgjandi fyrri tillagna
kvennasamtakanna, að því
leyti, sem þær hafa ekki verið
teknar til greina í frumvarpinu,
og hefur Bandalag kvenna i
Reykjavík á engan hátt fallið
frá þeim. 1
2. Fundurinn leggur þó ein- ■
dregið til, að ákvæði 27. og 28.
gr. laganna, um heimild ógiftra I
mæðra og fráskilinna kvenna
til þess, að fá meðlag með börn-
um sínum greidd hjá Trygg-
ingastofnun ríkisins, verði ekki
felld niður, heldur tekin upp í
hin nýju lög um almannatrygg
ingar. Mótmælir fundurinn því j
ákveðið, að meðlagagreiðslur
séu lagðar undir sveitafélögin
að nýju, telur það stórt skref j
aftur á bak. 1
Fundurinn skorar á alþingi
og ríkisstjórn að gera ráðstaf-
anir til þess, að bæjar- og sveita j
félög komi innheimtu með-'
laga í það horf, að öruggt sé,
að mæður geti framvegis notið I
fyrirgreiðslu Tryggingastofnun'
ar ríkisins um meðlagagreiðsl- (
ur.
BARNASAGAN — 26.
*swr
Ályktanir þær, sem kvenna-
samtökin hafa áður sent til
tryggingamálanefndar:
1. Nauðsynlegt er, að gerð
verði hækkun á elli- og örorku
lífeyri til þeirra, sem eru al-
gjörir öryrkjar.
2. Óréttlátt er að hjón, sem
njóta bóta, hafi hvert um sig
lægri lífeyri en þegar einstak-
lingar eiga í hlut. Sérstaklega á
þetta við, þegar annað eða bæði
hjónanna dvelja á sjúkrahúsi
eða elliheimili.
3. Allir þeir, sem eiga rétt til
ellilífeyris samkvæmt trygg-
ingalögunum, njóti fullkom-
inna bóta, án tillits til tekna,
hverjar svo sem þær eru.
4. Lögfest verði fullkomin
mæðralaun.
5. Allar mæður, sem giftast,
njóti meðlaga frá Trygginga-
stofnun ríkisins til 16 ára ald-
urs þeirra barna, sem fædd eru
áður en til hjónabandsins er
stofnað.
6. Greiðsla barnalífeyris til
elli- og örorkulífeyrisþega sé
ekki bundin við það, að barnið
hafi verið á framfæri lífeyris-
þega í 5 ár.
7. Greiddur sé barnalífeyrir
Framhald á 5. síðu.
SAMTÍNSNGUR
KONA NOKKUR í Bogota í
Suður-Ameríkuríkinu Colom-
bíu kom í vandræðum sínum
til lögreglunnar, og lögreglan
átti erfitt með að hjálpa
henni. Þetta er ung kona, 25
ára, og nýlega gift, en gallinn
er bara sá, að hún getur ekki
þekkt mann sinn frá mági sín-
um. Þeir eru eineggjatvíburar
og svo líkir, að enginn þekkir
þá í sundur, segir aumingja
konan, sem vill ekki líða neinn
miskilning í þessu efni. Hún
hafði aldrei séð mág sinn fyrr
en hann fór að koma til henn
ar og bróður síns. En hún er
nefnilega hrædd um, að þeir
bræðurnir skipti um hlutverk,
eftir því sem þeim sýnist. Til
dæmis hefur hún beðið lög-
regluna að komast eftir, hver
bræðranna muni vera faðir
yngsta barnsins hennar. En
verst er þó, að tvíburarnir
hjálpast að við að gera málið
flóknara.
----
Iiildur og Gunna fóru að búa sig í isnatri frammi í
eldhúsi. Þær fóru í karlmannsföt og girtu pilsin niður
í buxurnar, létu karlmannshúfur á höfuð sér og brettu
þær niður og settu svo upp tvenna vettlinga.
„Ég ætla að biðja þig, Sigga mín, að 'líta eftir öllu
heima, meðan við erum í burtu. Þú getur eldað kjöt-
súpuna í dag og skammtað piltunum. En gleymdu ekki
að þurrka af þeim sokka og vettlinga við hlóðin. —
Reyndu nú að vera dugleg og hafa allt í lagi.“
„Ég vil ekki að þið farið. Það er ómögulegt að
þið komist út að Steinum í svona veðri.“
„Það er ekki til neins að fást um þetta, Sig'ga
mín, við förum okkar ferða með guðs hjálp, vertu nú
sæl og vertu dugleg heima.“
Sigga horfði á eftir Hilídi og Gunnu út í hríðina,
með tárin í augunum.
Sigríður var vinnukona hjá þeim hjónum, Gis’a
og Hildi. Hún var ekki nema seytján ára, en dugleg
var hún eftir aldri.
„Láfi, Láfi,“ kallaði Sigga í dyrunum, „hjálpaðu
mér að láta aftur bæinn.“
Ólafur hljóp ofan, il að láta aftur. Gísli stóð upp
frá matnum og gekk líka til dyra.
Ur öllum áffum
í DAG er íöstudagurinn 25.
nóvember 1955.
FLUGFERÐIR
Flugfélag Islands h.f.
Millilandafiugvélin Sólfaxi
fer til Glasgow og Kaupmanna-
hafnar kl. 08.15 í fyrramálið.
Innanlandsflug: í dag er ráð-
gert að fljúga til Akureyrar, Fag
urhólsmýrar, Hólmavíkur,
Hornafjarðar, ísafjarðar, Kirkju
bæjarklaustur og Vestm.eyja.
Á morgun er ráðgert að fljúga
til Akureyrar, Bíldudals, Blöndu
óss, Egilsstaða, ísafjarðar, Pat-
reksfjarðar, Sauðárkróks, Vest-
mannaeyja og Þórshafnar.
SKIPAfRETTIB
Skipadeild SÍS.
Hvassafell er á Sauðárkróki.
Arnarfell er í Reykjavik. Jökul-
fell fór í gær frá Amsterdam til
Ventspils. Dísarfell er í Ham-
borg. Litlafell er í Reykjavík.
Helgafell íór 23. þ.m. fró Genóva
áleiðis til Roquetas og Gandia.
Werner Vinnen átti að fara 23.
þ.m. frá Wistmar áleiðis til Rvík
ur.
Ríkisskip.
Hekla fer frá Reykjavík á
morgun austur um land í hring-
ferð. Esja er á Austfjörðum á
suðurleið. Herðubreið fór frá
Reykjavík í gærkvöldi austur
um land til Bakkafjarðar. Skjald
breið er á Breiðafirði. Þyrill fór
frá Reykjavík í gær áleiðis til
Noregs. Skaftfellingur fer frá
Reykjavík í dag til Vestmanna-
eyja. Baldur fer frá Reykjavík
í dg til Gilsfjarðahafna.
DAGSKRA ALÞINGIS
Neðri deild:
1. Tollskrá o.fl.
2. Verðlagsuppbót á laun
opinberra starfsmanna.
3. Kirkjuítök.
4. Verðlag, verðlagseftirlit
og verðlagsdómur.
5. Skipun prestakalla.
I.
Frá Guðspekifélaginu.
Stúkan Mörk heldur fund í
kvöld kl. 8,30 í húsi félagsins
Ingólfsstræti 22. Gretar Fells
flytur annað erindi sitt í erinda-
flokkinum Fulltrúar mannkyns-
ins. Þetta erindi fjallar um heim
spekinginn Spinoza.
Kirkjukór Langholtssóknar
heldur spilakvöld í ungmenna
félagshúsinu við Holtaveg annað
kvöld, laugardag, kl. 9 e.h.
—--------—■■ M1 -
Útvarpið
20.30 Daglegt mál.
20.35 Kvöldvaka:
a) Magnús Már Lárusson próf.
talar um Konungsskuggsjá og
les upp; b) Karlakórinn „Geys
ir“ á Akureyri syngur; c) þórð
ur Tómasson í Vallnatúni les
kvæðið „Geðíró“ og segir frá
höfundi þess; d) Þórarinn G.
Víkingur flytur síðari hluta
frásöguþáttar síns: „Á heljar-
slóðum“; e) Baldur Pálmason
flytur nokkur orð um lifnaðar
hætti rjúpunnar, eftir Theó-
dór Gunnlaugsson á Bjarma-
landi í Öxarfirði.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Upplestur: Helgi Hjörvar
les kafla úr skáldsögunni Krist
ínu Lafransdóttur eftir S. Undset
22.30 „Lögin okkar“: Hljóðnem-
inn í óskalagaleit,
23.20 Dagskrárlok.
I Sendibílastöð
Hafnarfjarðar
Vesturgötu 6.
Sími 9941.
Heimasímar:
9192 og 9921.