Alþýðublaðið - 24.12.1955, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 24.12.1955, Blaðsíða 14
r veröurðu að láta mig vera í íriði. Ég elska Andrea, og við giftum okkur á morgun“. i Vittario æstist: „Ertu nú viss um, að þú elskir hann? — Varstu hrædd um, að þú snyndir koma aftur til mín, þegar þú hentir lyklunum?“ Ekki langt frá, þar sem þau stóðu, heyrðist viðarhögg, og Anna gekk í átt til neðan- jarðarbyrgis rétt þar hjá. Vittario fór á hæla henni og opnaði dyrnar. Þau gengu inn. Þarna var engin hætta á, nð neinn heyrði til þeirra, ihugsaði Anna. Og hún sagði: „Reyndu að skilja mig, Vittario. Ég gat ekki haldið áfram að þekkja þig. Þú hef- mr verið mér til ills. Eftir að 1 ég kynntist Andrea, hef ég Ihatað þig. Farðu!“ „Veit Andrea, hvað gerzt Siefur milli okkar?“ spurði Vittario æstur. „Kannske ekki allt“, anzaði stúlkan. Hann greip um axlir henn- ar: „Ætlarðu að segja mér, að þú elskir hann!“ „Já, og aftur já!“ stundi Anna. Vittario kastaði henni frá sér, en gekk að henni aft- ur og gaf henni hvern löðr- unginn á fætur öðrurn um leið og hann hrópaði: „Segðu svo enn, að þú elsk- ir hann! Segðu. það — ef þú |>orir!“ „Já! Ég geri það! Eins og ég hata þig!“ En í þessu kastaði hann sér á hana eins og tígrisdýr,1 lO.nti liemii niður í steingólfið og reyndi að neyða á hana koss- um og faðmlögum, sem svo oft áður hafði endað með því, að hún gafst upp fyrir hon- um. En í sama mund var dyr- unum hrundið upp, og Andrea, sem hafði heyrt hávaðann, gekk inn. Hann sá Vittario og Önnu í átökunum og heyrði hana hrópa: „Aldrei -—• aldrei fer ég með þér!“ Þá rauk Andrea á Vittario, og þeir tókust á. Báðir voru nokkurn veginn jafnir að Önnu, sem stóð með hend- urnar fyrir andlitinu. „Þú hefur gert mig að morðingja —• fjarðu, segi ég — farðu — ég vil ekki sjá þig framar!“ hrópaði hann ör- vita. Anna hljóp út úr byrg- inu og eitthvað inn í skóginn. Systir Amia og yrófessorinn, kröftum, en Vittario hafði ekki úthald á við Andrea. Brátt var hann afkróaður úti í horni, og þegar hann sá sér ekki undankomu auðið, þreif hann niður í vasa sinn. And- artak gljáði á skammbyssu í hendi hans, en áður en hann gæti miðað var Andrea hlaupinn á hann. Það kvað við skot, og Vittario féll sam- an. Kúlan hafði lent í honum sjálfum. Andartak stóð Andrea óttasleginn og starði á hinn dauða; leit síðan á Hróp Andrea fylgdu henni. Stjöií af ótta náði hún út á þjóðveginn og reikaði þar sem blindingi eftir akbraut- inni. Hugur hennar bjó að- eins yfir einni hugsun: að komast sem lengst burtu, burt frá þeim heimi, sem ekki var henni viðráðanlegur, burt frá því lífi, sem ekki var fært henni, jafn tvískiptri og hún var. Bifreið nam skyndilega staðar að baki henni og hafði næstum ekið yfir hana. Tveh' karlmenn stigu út. Þeim vai* ljóst, að aðeins eitt var hægt að gera ~ og í skyndingu settu þeir Öimu upp í bílinn og' óku með hana til sjúkra- hússins í borginni. Það var einmitt sjúkrahúsið, sem síð- an hafði verið heimili hennar og vemdað hana fyrir þeim freistingum, sem hvarvetna biðu utan múra þess, en mjög' sjaldan náðu inn fyrir þá. Kaþólsku systurnar tóku hana til reynslu í sína tölu. Systir hennar hafði reynt að fá hana þaðan — en árang- urslaust. Anna stóð viS rúm Andreas. Hann komst smám saman til meiri meðvitundar, og augnaráð hans hvarflaöi að verunni við rúrostokkinn. „Það er ég, Andrea. Anna. Líttu á mig“. Anna laut nið- ur að andliti hans. „Þú ert ekki Anna“, svar- aði hann dræmt. „Það getur ekki verið“. Andartak stóð Anna ráða- laus. Síðan reif hún af sér höfuðklæðið. „Líttu á mig, Andrea. Þetta er Anna.-------Okkur hefur liðið illa, Andrea". „Já. Þú ei’t hún Anna., —• Já, okkur hefur liðið illa. Fn ekki lengur“. „Nei, ekki lengur“, svaraði Anna, en Andrea féll aftur í mók, sökum þreytu og sótt- hita. Anna féll á kné við rúm- stokk hans. „Leið oss eklci í freistni — heldur frelsa oss frá illu“, bað hún. Hún fann, að hún myndi hafa andlegt þrek til að taka hverju, sem að höndum bæri, gekk út úr sjúkrastofunni og lét aðra systur taka við. Læknamir sögðu, að Andrea væri úr allri hættu. Anna bað yfir- lækninn um að fá að starfa við aðra deild fyrst um sinn, en þeirir bón var illa tekið, Þeir sögðust ekki geta án hennar verið einmitt þar sera starfið væri erfiðast, því hún væri duglegust allra. ... 'i Tveim dögum síðar. Andrea lá í rúmi sínu á einkaher- berginu, og gömul nunna hjúkráði honum. Hann horfði þögull á hana um stund, era spurði síðan: „Er ekki systir hér á spítal- anum, sem heitir Anna?“ „Jú. En undanfarið hefm” hún unnið á skurðlækninga- deildinni11. „Skurðlækningadeildinni ? Því þá þar?“ spurði Andrea undrandi. „Ja, það er nú svo“, anzaði systirin. „En nú skuluð þér hvíla yður og reyna að sofna, annars eykst hitinn aftur“, Andrea lagðist út af, cn fékk ekki skilið, hvei's vegna Anna hafði flutzt til. Á sama tíma var Anna að ganga inn í skurðlæknastof- una. I því sem hún gekk inn, var ein af ungu aðstoðar- stédkunum að galskapast við ungan lækni. Hann var áð lj úka við að kyssa hana, og um leið og hún reyndi að losa sig sagði hún: „Slepptu mér — ég þai'f að fara með skýrslu til hans prófsa gamla“. „Gefðu mér þá einn koss enn. Svo máttu fara“, sagði læknirinn. Anna hafði séð þetta og heyrt, og gekk nú inn í stofuna. Læknirirm flýtti sér út, strax er hann sá Önnu, en Anna nam staðar fyrir framan stúlkuna: Sími 5206. — Reykjavík, Við höfum venjulega mikið úrval af verkfærum, járnvörum til bygginga og búsáhöldum, meðal annars: IIEFLAR HAMEAR ÞVINGUR IIALLAMÁL JÁRNSAGABOGAR JÁRNBORAR TRÉBORAR Þ.TALIR TOMMUSTOKKAR o. fl. o. fl. -SAUMUR TRÉSKRRÚFUE INNIHURÐALAMIR SKRÁR og IIANDFÖNG SMEKKLÁSAR SKOTHURÐA JÁRNN GLUGGATJALDASTENGUR GUGGATJALDAGORMAR o. fl. o. fl. VATNSFOTUE BALAR ÞVOTTAKLEMUR KJÖTKVARNIK BORÐBÚNAÐUR BÚRHNÍFAR SKÆRI BOLLAPÖR DISKAR o. fl. o. fl. 14 ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.