Alþýðublaðið - 24.12.1955, Síða 15

Alþýðublaðið - 24.12.1955, Síða 15
starfs — og biSjið ungu stúlk- ,-,Ég er kominn hingaS til una um aS koma hingaS inn aS tala viS þig, Anna“, mælíi til mín“. — Anna gekk út, Andrea. lotnu höfSi. „FarSu aftur inn til þín, * ellegar ég verS að kalla á „Þér gleymiS því, aS eftirlitsmann". klæSnaSur hjúkrunarkvenn- „Ekki fyrr en ég hef fengið Við skurðarhörðið. „TakiS af yður þennan varalit!“ Stúlkan leit snúðugt á Önnu og spurði: „Er hann yður til óþæginda?“ „Reglurnar banna öll fegr- unarmeðul hér“. Stúlkan þurrkaði sér um munninn með vasaklút. „Er- uð þér nú ánægðar? Guð má vita, hversvegna þér eruð á móti mér. Eg hef þaS á til- finningumii, að þér eigið bágt með aS umgangast ungar lag- legar stúlkur —“. „FariS svo!“ skipaði Anna. „Já. Eg skal áreiðanlega fara. En athugið það, aS yður fer illa að vanda um við aSra. — Þér hafið óefað notað marga skipsfarma af varalit, þegar þér voruð ungar —“. Reiðin blossaði upp í Önnu, og hún rétti stúlkunni vænan löðrúng. „Þetta skuluð þér fá borg- að!“ hrópaði stúlkan. „Ég kæri yður fyrir forstöðukon- unni“. Anna stóð þögul inni í skrifstofu forstöðukonunnar. Virðulega mælti sú síðar- nefnda, þar sem hún sat við skrifborðið og horfði á Önnu: „Við forðumst hneyksli eins og sjálfa syndina. Það nægir ekki að trúa. Trúin verður að sjást af verkunum; og hér eru mörg augu, sem fylgjast með hverri hreyfingu yðar. — Reynið nú einu sinni að trúa mér fyrir því, hvað þjáir yður------“. Anna hikaði, en svaraði síðan: „Nei. Nei. Ég get það ekki“. „Ég hafði þá á réttu að standa, að ég efaðist um köll- un yðar. En tölum um það síðar. Gangið nú til yðar anna leggur yður þær skyld- ur á herSar að halda reglur spítalans“, mælti forstöðu- konan við aðstoðarstúlkuna. „Það særir mig, að Anna skuli hafa komið ósæmilega fram, því hún er einhver heil- brigðasta og bezta manneskja, sem ég þekki. — Ég skal sjá um, að þér verSið fluttar yfir á aðra deild. Og farið nú“. Stúlkan flýtti sér út úr skrif- stofunni. Anna var aleins í skurðar- stofunni, þegar Andrea gekk inn og studdist við tvo stafi. Hún leit upp, og með hjarí- slátt sagði hún: „Þú mátt ekki koma hingað inn. Farðu inn í þína stofu“. að tala við þig — ég elska þig — hlu^taðu á mig!“ „Ég vil ekki hlusta á þig“. — Anna sneri sér til hálfs frá honum. „Ég hef þjáðzt mikið“, hélt Andrea áfram. „Það hef ég líka — en angraðu mig nú ekki meira. Þú svaraðir ekki bréfunum mínum. Er þér ljóst, hvað það þýddi fyrir mig?“ sagði Anna. „Hvers vegna fórstu án þess að gefa nokkra skýr- ingu?“ spurði Andrea. „Þú sagðir einu sinni, að fyrst yrði ég að deyja til þess að læra að lifa. Nú hefi ég lært að lifa — ég lifi nýju lífi. Far þú þína leið!“ „Einu sinni þótti þér vænt um mig“, svaraði Andrea. „Við ætluðum að giftast. Þú hlýtur að elska mig enn. Það varst þú, sem hjúkraðir mér hér fyrst“. „Ég hefði hjúkrað hverjum sem var“, svaraði Anna. ,,Segðu ekki ósatt, Anna. Þú elskar mig!“ „Ég elska allt, sem lifir; alla, sem þjást'. Anna stóð stirðnuð sem líkneski, og af baksvip hennar var ekki hægt að sjá þau átök, sem áttu sér stað innra með henni. „Ég veit, að þú berð þenn- an klæðnað eins og brynju — gegn því lífi, sem þú þorir ekki að lifa. — En vertu ekki hrædd, Anna. Þú ert sú kona, sem ég vil gera að eiginkonu minni — það er sjálft iífið“. Hann ætlaði að snerta hana, en hún vék sér undan. „Farðu!“ hrópaði hún. „Nei“, svaraði Andrea. „Eg fer ekki, þegar ég hef fundið þig. Komdu með mér — bú ert frjáls og ekki bundin neinum eiði. Byrjum nýtt líf“% „Ég er hjúkrunarkona. Læknarnir, sjúklingarnir og systurnar þarfnast mín“. „Láttu ekki hugsjónir blekkja þig, Anna. Þú þarft að eignast heimili og börn — heyrirðu hvað ég segi? — heimili og börn?“ „Farðu nú! Angraðu mig ekki meira!“ svaraði Anna. „Líttu á mig, Anna. Eftir nokkra daga fer ég héðan. — Ég bíð eftir þér!“ Þrem dögum síðar. Anna stóð við gluggann, þegar Andrea ók burtu. Ennþá hljómuðu síðustu orð hans í eyrum hennar: „Mundu, að ég elska þig. Ég bíð þ,m klukkan níu fyrir utan spítal- ann“. Anna gekk upp í herbergið sitt og tók að hafa fataskipii. Síðan hljóp hún út í gangana, og faldi sig bak við súlu, á meðan tveir læknar gengn fram hjá. Þeir voru að tala um járnbrautai'slys — fjölda dauðra og særðra — þao myndi verða nóg að gera á spítalanum alla næstu nótt. — Anna heyrði kallað á sig, en hvm hélt áfram að læðast burtu. Hún komst út að girð- ingunni umhverfis spítalann, og sá hvar bifreið kom og staðnæmdist skammt frá. Hún vissi, að Andrea sat við stýrið. En þá snéri hún skj-ndiltega við -— hljóp . spítalanum aftur. í andliti hennar voru álcveðnir og harðir drættir, er hún gekk á ný til starfs síns. Og í sama mund heyrðist hvinur sjúkra- biíreíðanna, sem streymdu aci með hina særðu. G. J. FOSSBERG, vélaverzlun h.f. Vesturgötu 3, Reykjavík. Umboðsmenn hér á landi fyrir: TIIE BLACK & BECKER MFG. CO., Towson, USA Höfum jafnan þessi heimsþekktu rafkmtnu verkfæri fyrirliggjandi. •* *** s s s s s s s V s s s V V s s s s s s s K- s s s S s s s s V V s s s s s V s s i ■ s s s s s i- s V s s ■ s V V s i Flugfélag7 Isiands h.f. v: ; JÓLAHELGIN. #l

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.