Alþýðublaðið - 19.01.1956, Page 7
Fimmtudagur 19. janúar 1956
AI þ ýSublaSiS
HAFMABFIRÐt
•jtaifnnTír1 T
Dæmdur saklaus
Ensk úrvals kvikmynd.
Aðalhlutverk:
Lilli Paimer — Rex Harrison.
Myndin hefur ekki verið sýnd áðúr hér á landi.
Canskur texti — Bönnuð bömum — Sýnd kl. 9.
KONUNGUR SJÓRÆNINGJANNA
Spennandi amerísk mynd í litum.
Sýnd kl. 7 — Sími 9184.
Sat orðlaus hjá...
(Frh. af 5. síðu.)
að aldrei hefði hann komizt í
krappari dans. Við Thorvald-
sen hefði ekkert — bókstaflega
ekkert — vérið hægt að ræða,
ekki einu sinni um gríska list.
Hann vissi ekkert, skildi ekk-
ert, og allra sízt gat hann nokk-
uð sagt. Þá setti Oehlenschlág-
er aftur hljóðan um stund. En
allt í einu lýsti upp ásjónu
hans, hann spratt á fætur, veif-
aði krepptum lúkum framan í
sálufélaga sína og sagði fagn-
andi: „Men han har det í nærv-
erne!“
HUGGUN LÆKNANNA
íslenzkir læknar geta þan.nig
huggað sig við það, að ekki sé
ifiðum að líkjast, þó að þeim
gangi báglega sumum hverjum
að gera Vilmundi Jónssyni til
hæfis í riti eða ræðu. Þeim er,
væntanlega ekki vandara um en
Albert Thorvaldsen. Snilli
þeirra er líka oft í lúkunum
eins og hans. Sérgáfa þarf ekki
að vera sprottin úr jarðvegi
frábærrar almennrar menntun-
ar eða þekkingar. Hitt er hverju
orði sannara, að ýmsir íslenzk-
ir menntamenn kunna ótrúlega
lítið til ritstarfa. En sú stað-
reynd haggar því auðvitað ekki,
að margir óskrifandi eða lítt
ritfærir menn séu snillingar á
öðru sviði. Og þess munu jafn-
vel dæmi, að viðurkenndir rit-
höfundar hafi aldrei getað
géngið frá bók hjálparlaust.
Slíkir hafa þá vist ekki snillina
í lúkunum heldur á tungunni.
Veglegt kveðjusam-
sæti fyrir læknis-
hjónin á Sauðár-
króki.
SAUÐÁRKRÓKI í gæf.
TORFA BJARNASYNI hér-
aðslækni og fjölskyldu lians
varhaldið veglegt kveðjusam-
sæti í gærkveldi. Hefur Torfi
verið héraðslæknir á Sauðár-
króki í 17 ár og notið virðingar
héraðsbúa, enda góður og sam-,
vizkusamúr læknir.
277 höfðu pantað aðgöngu-J
miða, en þeir, sem úr sveitinni
voru, komust ekki vegna ófærð
ar o'g veðurs.
15 ræðumenn þökkuðu lækn
ishjónunum störf þeirra, en
læknisfrúin, frú Sigríður Auð-
uns, sem er ágætur píanóleik-
ari, hefur unnið merkilegt og
fórnfúst starf í félags- og
, skemmtanalífi bæjarbúa. Bár-
ust frúnni margir blómvendir,
I en nokkrir vinir læknishjón-
I anna gáfu þeim fagurt málverk
'af Skagafirði.
Á undan samsætinu bélt
kirkjukór Sauðárkróks hljóm-
leika í kirkjunni. Söngstjóri
var Eyþór Stefánsson, urídirleik
ari var frú Sigríður Auðuns og
einsöngvari Sigurður B. Jóns-
í son. Þóttu þessir hljómleikar
! takast mjög vel. Síðar um kvöld
ið söng kórinn í sámsæti lækh-
ishjónanna. MB.
Þátttaka Breta
(Frh. af 5. síðu.)
ir þátttakendur verði sendir í
til Ólympíuleikjanna í Mel-
bourne.
Enda þótt Bretar séu því
bjartsýnir um árangur og úrslit
í þessari íþróttagrein og raunar
öðrum hlaupum, bagar þá mjög
skortur á spretthlaupurum,
einkúm með tilliti til þátttöku
í 4% 100 metra boðhlaupi. Eins
og sténdur eiga þeir engan, sem
líklegt er að komist í úrslit í
100 metra hlaupi á næstu Ól-
vmpíuleikj um. Hins vegar er
með öllu óvist að aðrar þjóðir
geti hver um sig skipað öllu
j betri fjögurra manna boðhlauþs
' sveit. Bretar unnu þetta boð-
hlaup á Ólympíuleikjunum 19l2
og hafa komizt alls sex sinnum
í úrslitakeppni í þeirri grein.
----------«,---------
Aðalfundur Hraun-
prýðí íHafnarfiri
AÐALFUNDUR slysavarna-
deildarinnar Hraunprýði í Hafn
arfirði er nýafstaðinn og í dag
afhenti formaður og gjaldkeri
deildarinnar Slysavarnafélagi
íslands rúmar 40 þúsund krón-1
ur sem lokaframlag deildarinn-1
ar til félagsins samkvæmt reikn
ingum, en tekjur deildarinnar |
á síðast liðnu ári námu kr. 67,- j
113.84. Auk þessara 40 þúsund
króna, sem deildin afhenti í
gær, þá hefur deildin áður af-
hent á árinu sem leið kr. 10
þúsund fyrir nylontækjum til
björgunarsveitarinnar á ísa-
firði og' kr. 25 þúsund til vænt-
anlegs Oddvita í Grindavík, eða
samtals rúmlega 75 þusund kr.
Slysavarhadeildin Hraun-
prýði minntist 25 ára afmælis
síns 17. desember s.l., og hafði
þá fjárframlög deildarinnar
þennan fyrsta aldarfj órðung
numið samtals hálfri milljón
króna. — Stjórn deildarinnar
er óbreytt, en hana skipa þær
frúrnar: Rannveig Vigfúsdóttir
formaður, Sigríður Magnúsdótt
ir gjaldkeri, Elín Jósepsdóttir
ritari, Sólveig Eyjólfsdóttir v,-
form., Hulda Helgadóttir vara-
gjaldkeri, Ingibjörg Þorsteins-
dóttir vararitari.
Lögregluþjónsstöður í ríkislögreglunni á Keflavík-
urflugvelli eru lausar til umsóknar.
Umsóknarfrestur til 1. febrúar n.k.
Umsóknir skulu stílaðar á sérstök eyðubiöð er fást
í skrifstofu minni, skrifstofu lögreglustjórans í Reýkja-
vík svo og hjá öllum bæjarfógetum og sýslumönnum.
Þeir er áður hafa sótt um starf, skulu endumýja um
sóknir sínar.
Lögreglustjórinn í KeflavíkurflugveUi.
18. janúar 1956.
Björn Ingvarssoa.
B. S. S. R.
B. S. S. R.
Ibúðir lil sölu
1. Tveggja herbergja íbúð á hitaveitusvæðinu, laús til
íbúðar í vor.
2. Nýtízku fjögurra herbergja íbúð í Teigunum. Laus
til íbúðar 14. maí n.k.
Upplýsingar gefnar í skrifstofú félagsins kl. 17,15-—
18,15 virka daga aðra en laugardaga. Lindarg. 9A, II. h.
Félagsstjórnia.
Baðker
Höfum fyrirliggjandi baðker 155x71 og 168x71, ásamt til
heyrandi fitings og bl.hönum. Einnig rör og fittings svart
og galv.
Byggingarvöruverzliin
ísleifs Jónssonar
Höfðatúni 2 — Sími 4280,
(Frh. af 4. síðu.)
fjárlögin rússnesku séu helber
blekking. Hins vegar er ljóst
að það þarf að lesa þau á sér-
stakan hátt til að komast að
sannleikanum. Og því vérður
að taka boðskapnúm um
lækkuð framlög til hernaðar
með nokkurri varúð.
i-og
fræðslustarisemi
um umferðamál
Á SÍÐASTA FUNDI umfejr.ða
nefndar var rætt um útbreiðslu
og' fræðslustarfsemi um umierð
' armál almennings. Var fram-
kvæmdastjóra nefndarinnar fal
[ ið málið til athugunar,
M.s. Dronning Alexandrine
milli Reykjavíkur, Færeyja og Kaupmannahafnar jan.—sept. ’56-
Frá Kaupmannahöfn:
17/1 11/2 28/2 23/3 10/4 25/4 19/5
12/6 6/7 20/7 3/8 17/8 31/8 14/9
Frá Reykjavik:
24/1 20/2 6/3 31/3 17/4 12/5 5/6
29/8 13/7 27/7 10/8 24/8 7/9 21/9
Ferðirnar frá Kauþmannahöfn 25/4, 19/5 og 12/6, verða um Grænland til Reykjavikur,
Ferðin frá Reykjavík 21/9 verður um Gvænland til Kauþmannahafnar. Skiplð kemur við
í Færeyjum í öllum ferðum. Breytingar á brottfarardögum, eða skipsferð falli niður getur
átt sér stað fyrirvaralaust, ef kringumstæður krefjast þess. f
ald: Rvík/Kaupmaímahöfn: Rvík/Þórshöfn:
1. farrými C Kr. 1111.20 Kr. 500,22
1. farrými D Kr. 1037.12 Kr. 469.17
2. farrými Kr. 740.80 Kr. 321.65
3. farrými Kr, 530.91 Kr. 246.93
Skipaafgreiðslci Jes Zimsen
Erlendur Pétursson.
iBii snQnrs* *’* **■*»■*