Alþýðublaðið - 23.02.1956, Page 3
F'immtudagur 23. febrúar 1958
AIþ ýg ubIa ð í 3
3t
asKaeyju raom
,Thor Heyerdal hefur komizt að hvernig tröllmyndirnar voru
fluttar og reistar, en hann dvelst þar nú við rannsóknir.
THOR HEYERDAHL, sá sem
frægur varð af Kontykileiðangr
inum, er nú staddur með flokk
vísindamanna á Páskaeyjum, og
er erindi þess leiöangurs meðal
annars að freista að reyna að
ráða gátu tröllamyndanna, sem
löngu liðnar kynslóðir hafa
reist þar, en eru nú fállnar.
Höggmyndir þessar vega um og
yfir 15 smálestir, og hefur það
meðal annars verið mönnum
ráðgáta hvernig eyjarskeggjar
hafi getað flutt þær langar leið-
ir úr gígnum, þar sem þær voru
gerðar og til strandar, og síðan
reist þær þar á undirstöðum,
flötum klöppum, er margar
voru á þriðja metra á hæð. Hef-
ur margs verið til getið í því
sambandi, en enginn orðið neins
vísari.
Nú hafa hins vegar borizt
fregnir frá Heyerdahl, þar sem
hann tilkynnir að hann hafi
ráðið gátuna hvað þetta tvennt
snertir. Og hann réði hana á
svo raunhæfan hátt, að hann lét
nokkra af eyjarskeggjum flytja
eina myndina nokkurn spöl og
reisa hana síðan upp á rústum
gamals musteris. Tók verk þetta
tólf eyjarskeggja átján daga.
Kveðst Heyerdahl hafa kvik-
myndað verkið og geti því sýnt
aðferðina, þegar heim kemur,
svo að ekki verði um villzt.
HÖFÐINGINN KUNNI
AÐFERÐINA. j
Það var einn af ættarhöfð-1
ingjum á eynni, kallaður borg-
arstjóri, sem lét það uppskátt'
við Heyerdahl, að amma sín
hefði trúað sér fyrir aðferðinni, *
sem notuð hefði verið við flutn
ing og uppsetningu höggmynd- j
anna. Var hún ein af afkomend
um ,,langeyranna“ svonefndu,
þeirra er reistu myndirnar.
Varð það að samningum með
höfðingjanum og Heyerdahl, að
hann tæki að sér ásamt nokkr-
um ættingjum sínum, að flytja
eina höggmyndina úr stað og
reisa hana. Valdi höfðinginn j
ellefu menn sér til hjálpar.
Náðu eyjarskeggjar sér í
nokkra viðarbjálka og báru1
brimsorfna hnullunga að einni
myndinni, sem var um hálfan
fjórða metra að lengd og fimmt-
án smálestir að þyngd. Brugðu
þeir bjálkaendunum undir aðra
hlið myndarinnar, vógu hana
nokkuð upp og smeygðu hnull-
ungum undir. Síðan fóru þeir
eins að við hina hlið myndar-
innar, og þannig koll af kolli
unz hnullungahaugurinn var
orðinn um hálfan fjórða metra
á hæð.
FLUTTU HANA SÍÐAN
NOKKURN SPÖL.
Að svo búnu tóku þeir að
lengja hnullungahrúguna, og
þannig fluttu þeir höggmynd-
ina líkt og bát á hlunnum alla
leið að musterisveggnum. Þeg-
ar að veggnum kom, settu eyj-
arskeggjar bjálkana undir koll
myndarinnar og hlóðu hnull-
ungum undir og hækkuðu hana
þannig smám saman, unz ekki
vantaði nema herzlumuninn að
hún stæði upprétt, og var verk-
inu þá lokið rneð því að bregða
köðlum um hana. Thor Heyer-
dahl telur þar með sannað,
hvernig myndirnar liafi verið
fluttar og settar á stalla, — en
þá er eftir að vita í hvaða til-
gangi þær voru reistar.
KROSSGATA NR. 982.
Jarðarför mannsins míns
GUÐLAUGS HANSSONAR frv. bæjarfulltrúa.
fer fram frá Elliheimili Vestmannaeyja föstudaginn 24. þ. m.
kl. 2 e. h.
Málfríður Arnadóttir.
/ 2 3- V
1 F t ?
í <?
1 € ii 12
1 i IV IS
lí n L
n
Hef til sýnis 24 hestafla HANOMAG-
diesel dráttarvél.
BERGUR LÁRUSSOM
Brautarholti 22.
imiiiaiaiiiiuiiinmiMiinnmiiiiiiiiiiiiiiiiiHT ANNES Á HORNIN
VETTVANGUR DAGSINS
Áætlanir ferðaskrifstofanna — Rússlandsferð
— Sparisjóður — Lánastarfsemi — íslendingar
austan hafs og vestan — Innanlandsferðir
FERÐASKRIFSTOFURNAR
hafa birt almenningi áætlanir
sínar fyrir næsta sumar. Þær
fela í sér ýmsar merkar nýjung-
ar. Mesta athyg;li munu vekja
Rússlandsáætlanir Ferðaskrif-
stofu ríkisins og lánastarfsemi
Orlofs. — Rússland er ekki að-
eins mjög' fjarlægt land og ó-
kunnugt heldur hefur það og
verið lokað land í næstum því
fjóra áratugi og engum leyft að
koma þangað nema sárafáum
mönnum, sem þangað hefur ver-
ið stefnt til þess að standa fyrir
máli sínu.
ÞAÐ ER áreiðánlegt, að mjög
mörgum Islendingum mun leika
mikil forvitni á að heimsækja
þetta land, sjá fólk þess og kynn
ast náttúru þess. Um leið og
menn fagna bví, að sú breyting
hefur nú orðið á stjórnarháttum i
þar, aö mönnum er leyft að heirn
sækja það, munu menn gleðjast
yfir því, að fá tækifæri til aö
kynnast því. Ferðaskrifstofunni !
mun og nú þegar hafa borizt
fyrirspurnir um ferðir þangað, '
skipulag þeirra og kostnað við
þær.
ÞÁ HEFUR lánastarfsemi Or-
lofs vakið allmikla athygli.
Ferðaskrifstofan gerist sparisjóð
Ur ferðafólks, þannig að það get-
ur lagt inn hjá henni spariíé sitt
til ferðalaga, en síðan, ef inni-
eign nægir ekki til þess að
standa straum af kostnaði við
feröalagið, vill hún lána fólki
það sem á vantar með sérstök-
um samningi og skilyrðum.
ÞAÐ ERU iíkur til, að ýmsir
muni leita eftir þessu hjá ferða-
skrifstofunni, þó að segja megi,
að hyggilegra sé, að fara ekki í
dýr ferðalög upp á skuld. Hins
végar talaði ég fyrir fáum dög-
um við öldruð hjón, sem fóru í
íángt og dýrt ferðalag fyrir
tveímur árum, tóku 15 þúsund
'króna lán í banka til þess að
geta það. Þau sögðu við mig;
„þeim. peningum var sannarlega
ekki á glæ kastað. Við borgum
skuldina af mikilli ánægju.“
FERÐALÖG fslendinga auk-
ast stöðugt. Það sér maður glögg
lega á tilboðum beggja ferða-
skrifstofanna. Þær miða áreið-
anlega áætlanir sínar við reynsl
una frá síðasta sumri. Reynt er
að kanna nýja stigu, létta undir
með fólki eins og unnt er og
finna nýjar leiðir. Tilraun var
gerð í fyrra með gestaskipti
milli okkar og bræðra okkar
vestan hafs. Þau skipti báru
ékki nógu góðan árangur. Nú
tekur Ferðaskrifstofa ríkisins
þau upp í nýrri m.ynd að nokkru
leyíí. Þetta er mjög gott og von-
anái tekst að koma þarna á föst-
um ferðamannaskiptum milli ís-
lendínga austan hafs og vestan.
ADALLEGA IIEFUR verið
skýrt frá fyrirætlunum í sam-
bandi við ferðir milli landa.
Minna hefur verið sagt frá áætl-
uoum ferðum innanlands, og þó
nokkuð. Þær ættu þó að vera
aöalatriðið, enda fjölsóttastar.
Hins vegar eru þær ekki eins
mikíum erfiðleikum bundnar
fyrir skrifstofurnar eða almenn-
ing og utanlandsferðirnar — og
þess vegna er ef til viil eðlilegl,
að eim hefur ekki verið rætt ná-
kværnlega um þær. En það verð-
ur að sjálfsögðu gert.
Lárétt; 1 öðru háð, 5 svöl, 8
kast, 9 tveir eins, 10 valdi, 13
tveir eins, 15 ísland, 16 gælu-
nafn, 18 verða laus.
Óðrétt: 1 hegðun, 2 menn 3
sjá, 4 selja upp, 6 vík, 7 blómg-
ast, 11 máttur, 12 hljóð, 14 gang
ur, 17 mynni.
Lausn á krossgátu nr. 981.
Lárétt: 1 forrík, 5 efna, 8
lafa, 9 au, 10 nóló, 13 gá, 15
slag, 16 amar, 18 aflir.
Lóðrétt: 1 félagar, 2 ofan, 3
ref, 4 ína, 6 fall, 7 auðga, 11
ósa, 12 áaði, 14 áma, 17 rl.
f/t*
f OLÍU OG TÓMAT
fás'Ú C öttuMs
f'H a tvð/HWe/'Z ÚC4H U/íP
„DÓSIRN.AR MEÐ
VÍKINGASKI.PIN U"
K. JO NSS OM
■ A K U R £
Verð frá kr. 10,00.
Toledo
•Fischersundi.
fæst í Hafliðabúð, N’iálsgötu I
Kaupið AíþýSubSaðið.
Alþýðublaðið.
DvaSarheimiíi aidrsðra
sjómanna.
Minningarspj öld fást hjá:
Happdrætti DAS, Austur-
stræti í, sími 7757.
Veiðarfæraverzlunin Verð-
andi, sími 3786.
Sjómannafélag Reykjavík-
ur, sími 1915.
Jónas Bergmann, Háteigs-
veg 52, sími 4784.
Tóbaksb. Boston, Lauga-
vegi 8, sími 3383.
Bókaverzl. Fróði, Leifs-
götu 4.
Verzlunin Laugateigur.
Laugateig 24, sími 81666.
Ólafur Jóhannsson, Soga-
bletti 15, sími 3096.
Nesbúðin, Nesveg 39.
Guðm. Andrésson gull-
smiður, Lvg. 50, s. 3769.
í Hafnarfirði:
Bókaverzl. Vald. Long.,
sími 9288.
Ingólfscafé.
Ingólfscafé.
Dans.lei.k3
i
í Ingólfscafé í kvöld kl. 9.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 8. — Sími 2826.
ft a cp
II E I M S M E R K I Ð
er gerir allt hár silkimjiikt
og fagurt.
Heildsölubirgðir:
Sími 1977.
Hannes á horninu.