Alþýðublaðið - 23.02.1956, Side 4
4
AI þ ýS u b»aö iS
Flmmtudagtir 23. febrúar I95€
Útgefandi: Alþýðuflo\\uri»u.
Ritstjóri: Helgi Scemundssm■
Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmaruep.
Blaðamenn: Björgvin GuÖmumdttm #§
Loftur Guðmundssou,
Auglýsingastjóri: Emilía Samdtlsiétífa
Ritstjómarsímar: 4901 og 4902.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiðslusími: 4900,
Alþýðuprentsmiðjan, HverfisgðUt i—?#.
TÁi\riftarverð 1500 é tnénuði. í Umsasklu 100.
Tilraunir brezku sijórn
i
)
\
s
N
\
S
*
\
\
\
\
\
S
\
\
\
\
\
\
\
\
\
\
!
\
s
\
*
{
\
\
s
\
S
b
\
\
,\*
|S
;\
\
s
s
\
\
\
\
L
i\
,\
\
l
S
\
,\
s
S
,\
s
t
Pólitískir hálfbrœður
MORGUNBLADIÐ vill lít
ið mark taka á því, þó að Al-
þýðublaðið gagnrýni stjórn-
arfarið í Rússlandi. Ástæðan
er sú, að jafnaðarmenn eigi
til að heyja verkföll í sam-
vinnu við kommúnista og líti
íhaldið svipuðum augum.
Og auðvitað þarf ekki að
spyrja að því, hvaða aðili sé
bezt fallinn til baráttunnar
við rússneska útibúið á ís-
landi samkvæmt kenningu
Morgunblaðsins. Sjálfstæðis-
flokkurinn er þeim vanda
vaxinn umfram alla aðra!
Því er ekki að neita, að
jafnaðarmenn hafa iðulega
háð kjarabaráttu íslenzkrar
albýðu við hliðina á komm-
únistum, og víst eru sum
dægurmál flokkanna ná-
skyld. Eigi að síður er þvætt
ingur Morgunblaðsins fjarri
öllu lagi. Alþýðuflokkurinn
hefur aldrei farið dult með
fordæmingu sína á heims-
kommúnismanum og stjórn-
arfarinu í Rússlandi. Hann
hefur jafnan sagt afdráttar-
lausan sannleikann um
þjónkun íslenzkra kommún-
ista við húsbændurna í
Moskvu. Afstaða hans er því
óvefengjanleg. En hvað um
aðstandendur Morgunblaðs-
ins? Eru þeir saklausir af
öllu samneyti við kommún-
ista?
ÖSru nær. Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur verið
kommúnistum harla þarf-
ur. Hann studdi þá forð-
iim daga í baráttunni við
Alþýðuflokkinn í verka-
lýðshreyfingunni og kom
þeim til valda í Alþýðu-
sambandi Islands. Ólafur
Thors hefur emn íslenzkra
stjórmmálaforingja mynd-
að ríkisstjórn með þátttöku
kommúnista og trúði með-
' al annars.BrynjóIfi Bjarna
syni fyrir menntamálun-
um með örlagaríkum og
miJMiisstæðum afleiðingum.
Og sú var tíðin, að Hitler
og Stalin gerðust vinir og
nazisjTsiniB ®g kommimism-
iim sameimMðust um að
ógraa heimsfriðimim og
siðmemmiiagMfflffli í veröld-
ifflni. Hvaða augum ieit
Mfflrgurablaðið þá óheilla-
þróun? Það brosti gleitt af
velþóknun, enda var Sjálf-
stæðisflokkurinn ærið þýzk
sinnaður þangað til hemám
Breta og síðar Bandaríkja-
manna kom til sögunnar
og unnt var að græða á
bandamönnum. Er Morg-
unblaðið kannski búið að
gleyma öllum þessum ó-
sköpum?
Vissulega er hlægilegt,
þegar kommúnistar eru að
fimbulfamba um ást sína á
lýðræðinu jafnframt því,
sem þeir trúa á rússneska ein
ræðið eins og sáluhjálparat-
riði. En hitt er svipað fyrir-
brigði, þegar Morgunblaðið
gleymir fortíð Sjálfstæðis-
flokksins, telur hann fulltrúa
hins eina og sanna lýðræðis
og glæsilegan forustuaðila í
baráttunni gegn kommúnism
anum. Allt eru þetta augljós
ar blekkingar og sýndarlæti.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
reynzt kommúnistum þarf-
ari og vikaliðugri en nokkur
annar mannhópur á íslandi.
Óstjórn sú og ofstjórn, sem
íhaldið ber ábyrgð á, er enn
eitt vináttubragðið við rúss-
neska útibúið hér. Hún er
kommúnistum meira virði en
allt annað. Þannig er sama
hvernig á málið er litið:
Morgunblaðinu væri sæmst
að tala varlega, þegar sam-
vinnu og þjónkun við komm
únista ber á góma.
Lýðræðissinnaðir umbóta
menn eiga hvorki samleið
með íhaldinu né kommúnist
um. Öfgaflokkarnir eru póli
tískir hálfbræður, þó að þeir
reyni oft og tíðum að dylja
skyldleikann. En taug upp-
runans er römm, og þess
vegna er eins og leyniþráður
á milli íhaldsins og komm-
únista. Ólafur Thors er ein-
mitt þessa dagana að reyna
að fá Einar Olgeirsson til
þess að útvega Sjálfstæðis-
flokknum meirihluta í síldar
útvegsnefnd og enn ekki út-
séð um, að söfnuði Stalíns
heitins renni blóðið til skyld
unnar. Og svo er Morgun-
blaðið að saka aðra um þau
óhæfuverk. sem flokkur þess
hefur unnið flest og stærst.
'Qerist -á&krifendur blaðsine.
Alþýðubla
Á BRETLANDI verður nú ef
til vill skipaður dómstóll með
sama valdi og hæstiréttur, er
skera skal úr um það, hvort
verðlagssamtök í einstökum
framleiðslugreinum séu lögleg
eða ekki, en ólögleg skulu þau
teljast, ef sannað þykir, að þau
séu gagnstæð hagsmunum al-
mennings, og er þetta sam-
kvæmt tillögum ríkisstjórnar-
innar. Bannað er samkvæmt
tillögum til laga að framleið-
endur geri með sér samninga
um heildarverð og ólöglegt að
hætta afhendingu vara til kaup
manna, sem ekki virða slík sam-
tök um refsiaðgerðir á sviði
verzlunar og viðskipta, svo og
dómstólar og dómsúrskurðir
slíkra samtaka.
Einstökum fyrirtækjum er
heimilt að höfða mál gegn kaup
mönnum, sem ekki virða verð-
lagsákvæði, er fyrirtækið hefur
sett.
Þessum nýja dómstól verður
heimilt að ógilda öll verðlags-
samtök framleiðenda, nema
framleiðendur, er að slíkurn
samtökum standa, geti sannað
að þau séu í þágu almennings.
VALDAMIKILL
SKRÁSETJARI.
Hlutlaus skrásetjari, sem
konungur skipar, hefur ákæru-
vald fyrir þessum dómstóli. Ber
hann og ábyrgð á því að allir
verðlagssamningar af hálfu
framleiðenda séu opinberlega
skrásettir, en þó ber ekki skylda
til að skrásetja samninga, sem
eingöngu snerta útflutning eða
kaup- og kjarasamninga. Skrá-
setjara þessum er fengið mikið
vald. Getur hann og starfsmenn
hans krafizt að fá að rannsaka
öll skjöl og bókfærslukerfi fyr-
irtækja og heimilt er þeim að
taka afrit af öllum slíkum
plöggum. Dæma má fyrirtæki,
sem neita að veita upplýsingar
í háar fésektir.
STRÖNG REFSIÁKVÆÐI.
Við röngum upplýsingum eða
sé skjölum stungið undir stól
liggur fangelsisrefsing, allt að
þrem mánuðum, og háar sektir
að auki, og beita má dagsekt-
um, ef haldið er áfram ólögleg-
um verzlunaraðferðum, sam-
kvæmt ákvæðum og úrskurði
dómstólsins.
Þessi nýi dómstóll starfar í
þrem dómsdeildum, einni fyrir
England og Wales, annarri fyrir
Skotland, en sú þriðja er fyrir
‘ Norður-írland. Er hver deildar-
dómstóll skipaður einum hæsta
réttardómara og tveim leik-
mönnum. Skulu þeir síðar-
nefndu hafa starfsreynslu og
þekkingu varðandi verzlun, iðn-
að og aðra framkvæmdastarf-
semi, en meirihluti ráða dóms-
! úrskurði, — þó hefur hæstarétt-
ardómarinn úrslitavald varð-
andi lögfræðileg atriði slíkra
úrskurða. Dómi verður ekki á-
frýjað nema hvað túlkun laga-
ákvæða snertir.
RÍKISSTJÓRNIN FER
MEÐALVEGINN.
Lögin byggjast á niðurstöð-
um hinnar svonefndu „einka-
sölunefndar", og farinn meðal-
vegur hvað snertir ályktanir
meirihluta og minnihluta nefnd
arinnar. Vildi meirihlutinn
dæma öll verðlagssamtök óleyfi
leg, en það er ekki gert í laga-
frunivarpi ríkisstjórnarinriar.
Hins vegar gengur stjórnin
lengra en minnihlutinn taldi
rétt, er hún ákveður framleið-
endum sönnunarskyldu varð-
| andi verðlagssamtökin.
Auðséð er að ríkisstjórnin
kvíðir því að jafnaðarmönnum
þyki þetta verðlagseftirlit of
seinlegt, og hefur því sett það
ákvæði í frumvarpið að dóm-
úrskurður í einu máli skuli gild
andi fyrir öll hliðstæð fyrirbæri
án sérstakrar dómssóknar. Að
skrásetjaranum er veitt slíkt
vald er í því skyni að koma í
veg fyrir leynilega verðlags-
samninga.
GIRT FYRIR EINOKUN.
Með þessum ákvæðum er girt
fyrir alla einokun, segja for-
svarsmenn stjórnarinnar. Þann-
ig er til dæmis komið í veg fyr-
ir heildarverðlag í vissum fram
leiðslugreinum, segja þeir, fyr-
ir einkadómstóla, sem ýmsar
samsteypur fyrirtækja hafi kom
ið á fót, svo og refsiaðgerðir
þeirra gagnvart þeim, sem ekki
virða verðlagsákvæði þeirra og
selja viðkomandi vörur til dæm
is á lægra verði.
Margir eru hins vegar í vafa
um, hvort hinn nýi dómstóll
muni reynast hlutverki sínu
vaxinn. Mjög er á það bent að
grundvallarskilyrði hans brjóti
algerlega í bága við þá brezku
réttarfarsreglu að sönnunar-
’skyldan hvíli á ákærandanum.
; Þá geti og farið svo, að úrskurð
ir dómstólsins verði til þess að
„lögfesta“ verðlagsákvæði ým-
issa framleiðslusamtaka með
því að telja verðlagsákvæði
þeirra hæfileg, og komi þannig
í veg fyrir lækkun.
Utnn úr heimi:
1 an
í HELLÓTTUM fjöllum og
þröngum götum Kýpurs leita
brezkir hermenn hins leynda
óvinar. Skyttur í regnfrökkum
og þjóðernissinnaðir samsæris-
menn gera fyrirsát eða leggja
á ráðin um skyndiárásir, sem
hafa gert það að verkum, að
þessi aðlaðandi eyja hefur feng-
ið nafnið Ógnaeyjan.
Að undanskyldum hermdar-
verkunum eru örlög Kýpur nú
ráðin af tveim, mjög ólíkum
mönnum, Sir John Harding
marskálki, landsstjóra Breta, og
Makariosi 3., erkibiskup ka-
þólsku kirkjunnar, sem gerzt
hefur leiðtogi þjóðernishreyf-
ingarinnar á Kýpur. Undan-
farnar vikur hafa þeir hitzt
hvað eftir annað á hlutlausum
vettvangi, prestssetri biskupa-
kirkjunnar í Nicosia.
Ágreiningurinn hefur stöð-
ugt farið minnkandi. Makarios
hefur dregið úr kröfum hinna
400.000 Grikkja um enosis (sam
band við Grikkland) og virðast
nú hafa sætt sig við áfram-
haldandi yfirráð Breta yfir ut-
anríkismálum og varnarmálum.
Bretland hefur fallizt á sjálf-
stiórn sem meginreglu, en hik-
ar við að ákveða tímann.
En þegar samkomulag nálg-
aðist, efndu kommúnistar af
grísku kyni til óláta nálægt
stöðvum brezka hersins og flug-
hersins í Limassol til þess að
mótmæla „svikum“ erkibisk-
ups. Hermenn dreifðu mann-
fjölda, sem stsfndi til s’úkra-
hússins og verzlunarhverfisins í
Limassol, með kylfum og tára-
gasi.
Fréítaritari Newsweek í Ni-
cosia sendi eftirfarandi frétt af
ástandinu: And-brezkur áróður
sést alls staðar í landinu, þar
sem EOKA, Þjóðfylking bar-
áttu Kýpur, ræður lögum og
lofum. í mörgum þorpum sést
merki AKEL, hinnar bönnuðu,
kommúnistísku verkalýðshreyf-
ingar, málað á fjölda hreysa. Ég
fylgdist með þrem jeppum full-
um af hermönnum og ég sá
þorpsbúa hrækja, er hópurinn
fór fram hjá. Þegar jepparnir
hægðu á sér við horn í þorpun-
um, dró liðsforinginn upp
skammbyssu sína og vélbyssum
var beint í allar áttir.
í Nicosia hafa hermenn
sírengt vírnet á bíla sína til þess
að verja þá fyrir steinum, sem
skólabörn kasta að þeim. Hótel
og verzlanir hafa gert hið sama.
Á daginn setja hermenn upp at-
huganastöðvar og leita á öllum
vegfarendum. Á nóttunní er
höfuðborgin eins og drauga-
borg. Skyndirannsóknir eru
gerðar í áður ákveðnum. húsum
og veitingastöðum. .
VARÐFLOKKAR OG
HATUR.
Ég horfði á 30 manna varð-
flokk taka skyndilega fyrir
kaffihús nokkurt, þar sem lands
menn voru. að leika billjarð,
j drekka kaffi eða dreypa á kon-
jakki. Þeir störðu vonzkulega,
þegar hermennirnir komu æð-
andi inn. Hvenær sem hermað-
ur skipaði einhverjum þeirra að
standa upp, gerði hann það
hægt og hatrið virtist vætla út
úr hverri svitaholu.
| Dag nokkurn var fréttamönn
um boðið að vera viðstaddir
leit, sem gerð var í þorpinu
Kyrhtrea við rætur Kyrenia
fjallanna. Rúmlega 500 her-
rnenn, aðallega „Rauðir djöfl-
ar“ úr brezkri fallhlífasveit, um
kringdu svæðið. Menn voru
settir á allar hæðir umhverfis
þorpið og leit að grunuðum
j mönnum fór fram í hverju húsi.
Fallhlífamennirnir skipuðu öll-
um mönnum, 16 til 30 ára, í
gaddavírsgirðingu uppi á einni
hæðinni. Er þeir gengu inn í
j „búrið“, gekk öryggisvörður úr
skugga um hverjir þeir væru,
1 en síðan var þeim raðað upp við
vörubíl, sem tjaldað var yfir.
i Tjalddúkurinn var smám sam-
j an dreginn frá og í ljós koin
. grímuklætt höfuð með göt fyrir
I augum. Maðurinn átti að benda
! (Frh. á 7. síðu.)