Tíminn - 25.03.1965, Blaðsíða 2
TIMINN
FIMMTUDAGUR 25. mara 1965
RANGERMYNDIRNARIEYSA RÁÐ-
GÁTUNA UM YFIRBORÐ TUNGLSINS
Miðvikudagur, 24. marz.
NTB-Intrepid. — Geimfar-
arnir tveir, Virgil Grissom og
John Young, leið mjög vel í
dag um borð í USS Intrepid
á Atlantshafi. Þeir gengust und
ir læknisskoðun í dag og sögðu
vísindamönnum nákvæmlega
frá því, hvað fyrir þá bar með-
an á geimferðinni stóð.
NTB-Saigon. — Bandarískar
og suður-víetnamískar flugvél-
ar gerðu enn í dag sprengju-
árásir á Norður-Víetnam, og
er það fjórði dagurinn í röð,
sem slíkar árásir eru gerðar.
Voru árásirnar gerðar á radar-
stöð rétt hjá Dong Hoi, og eyði-
lagðist stöðin að mestu. Fjór-
um herskipum, sem voru í höfn-
inni í Dong Hoi, var sökkt.
NTB-Bukarest. — Chivu
Stoica, fyrrverandi forsætisráð
herra, var í dag kjörinn for-
seti Rúmeníu — aðeins nokkr
um klukkustundum eftir að
fyrrverandi forseti, Gherorghiu
-Dej, var borinn til grafar rétt
fyrir utan Búkarest. Forsetinn
er kjörinn af þinginu og var
kosningin í dag samhljóða.
Margir háttsettir menn voru
viðstaddir útförina í dag, þar
á meðal Anastas Mikojan, for-
seti Sovétríkjanna, qg Chou En
Lai, forsætisráðherra Kín-
verska Alþýðulýðveldisins.
NTB-Bonn. — Ludwig Er-
hard, kanslari Vestur-Þýzka-
lands, hefur þegið boð um að
heimsækja Noreg, að því er
Einar Gerhardsen, forsætisráð-
herra Noregs, tilkynnti í dag.
NTB-Rabat. — Blóðug átök
hafa átt sér stað í Casablanca,
stærstu borg Marokkó. Hefur
allt samband við borgina verið
rofið í rúman sólarhring. Það
munu vera stúdentar, sem
stóðu að mótmælaaðgerðum
gegn ríkisstjórn landsins, og
enduðu þær með blóðugum
átökum í dag.
NTB-London. — Brezki
fhaldsflokkurinn vann í dag í
aukakosningum í Saffron Wald-
en, og bentu úrslitin til þess,
að litlar breytingar hafi átt sér
stað frá fyrri aukakosningum
fyrir sjö vikum síðan. Auka-
kosningarnar í gær staðfestu
því ekki skoðanakönnunina,
sem gerð var fyrir skömmu og
sem sýntti, að Verkamanna-
flokkurinn hafði 9% fylgi yfir
íhaldsflokkinn. Er því talið
liklegt, að kosningar verði ekki
haldnar í bráð í Bretlandi.
NTB-Washington. — Sam-
band bandarískra vísinda-
manna segir í yfirlýsingu í
dag, að það fordæmi alla notk-
un gass í styrjöldinni í Suð-
austur-Asíu, og sé það siðferðis
lega óverjandi fyrir Bandarík-
in að nota slík vopn. Er hér
átt við gas það, sem notað hef-
ur verið í Suður-Víetnam nokkr
um sinnum.
NTBWashington. — Dean
Rusk, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, sagði 4 dag, að Banda
rfkin hyggðust ekki hefja
neina gasstyrjöld í Víetnam,
enda værí gasið, sem notað
hefði verið þar, af sömu teg-
und og lögregla margra land-a
notar til að bæla niður óeirðir.
NTB-Pasadena, miðvikudag.
Ranger 9. lenti á nákvæmlega
fyrirhuguðum stað í gígnum
Alphonsus á tunglinu í dag, og
síðustu 16 mínúturnar áður en
Ranger skall á tunglinu, sjónvarp
aði hann myndum af tunglinu
Ferðafélagiö
ir sínar n.k.
GB-Reykjavík, miðvikudagur.
Ferðafélag íslands hefur gefið
út ferðaáætlun þessa árs, verður
fyrsta ferðin farin n. k. sunnudag.
en síðasta áætlunarferðin verður
18. september. Fleirí eins dags
ferðir verða farnar nú en áður,
og lengsta ferðin stendur í þrettán
daga.
f höfuðdráttum skíptast ferðirn
ar sem hér segir: Þrjár páska
ferðir, 5 og 3 daga. Þrjár hvíta-
sunnuferðir, 2V2 dags. Sumar-
leyfisferðir 21, 4—13 daga. Fast
ar helgarferðir 46, V6.—2% dags.
Sex ferðir um verzlunarmanna-
helgina, 2Ms dags, og 48 aðrar
helgarferðir, 1—2 daga. En að
auki verða fjórar miðvikudagsferð
ir í Þórsmörk í júlí.
Nú verða teknar upp nofcKrar
flugferðir til fjarlægra staða, en
frá þeim verður svo ferðast í
bílum um sveitir og gengið á
-----u--------------------------------------
S0B03.T3l00.000.ai:
Handritasýniugu
lokið
Aðils-Khöfn.
Sýningunni á íslenzku handrit-
iiiiiiin í Rfkislistasafninu í Kaup-
mannahöfn lauk fyrir nokkru, og
komu 2400 manns á sýninguna
síðasta daginn. Geysileg aðsókn
hefur verið að sýningunni og hafa
alls sótt hana um 30.000 gestir.
Áhugi manna á sýningunni hefur
verið mjög mikill um allt land,
og til þess að gefa almenningi utan
Kaupmannahafnar tækifæri til
þess að sjá hana, verður henni
komið upp, eins og áður hefur ver
ið sagt frá, í nokkrum stærstu
borgunum utan Kaupmannahafnar.
byrjar ferð-
sunnudag
fjöll. Þá er og áformuð ferð tíl
Grímseyjar um sólstöðurnar, far
ið í bíl til Siglufjarðar og þaðan
með skipi til Grimseyjar og eyjan
skoðuð. Síðan með skipi til Dal-
víkur, ferðast um Svarfaðardal,
Hörgárdal, Inn-Eyjaf jörð og Skaga
fjörð, þá haldið vestur sveitír og
suður um Kaldadal. Tekur sú ferð
fimm daga. Einnig verður gerð
önnur sólstöðuferð, um Hornstrand
ir, farið með bíl til fsafjarðar, á
bát um Jökulfirði og gengið norð
ur á Hornstrandír, tekur sú
ferð níu daga. Ferðirnar um verzl
unarmannahelgina verða til Þórs
merkur, til Landmannalauga, í
Breiðafjarðareyjar og kringum
Jökul, til Kerlingafjalla og Hvera
valla, í Hvanngil á Fjallbaksveg
syðri, og inn í Jökuldal við
Sprengisand. Eins og undanfarin
sumur verða haldin skíðanámskeði
í Kerlingafjöllum undir stjórn
íþróttakennaranna Eiríks Haralds
sonar og Valdimars Örnólfssonar,
lagt upp frá Reykjavík á þríðju
dagsmorgun í júlí, komið aftur á
.sunnudagskvöld, og hefjast þær
ferðir 6. júlí. En, sem áður segir,
efnir félagið til fyrstu ferðarinn-
ar á árinu, n. k. sunnudag, og
verður það göngu- og skíðaferð á
Kjöl.
Allar nánari upplýsingar eru
gefnar í skrifstofu Ferðafélags ís-
lands, sem nú hefur fengið nýjan
samastað, að Öldugötu 3, fyrstu
hæð, símar 19533 og 11798, en
framkvæmdastjóri er Einar Þ.
| Guðjohnsen.
beint til jarðar og horfðu m'illj-
ónir Bandarikiamanna á myndirn
ar í sjónvörpum sínum. Myndirn
ar eru þær bezbu, sem hingað til
hafa verið teknar af tunglinu, og
segja vísindainenn, að þær mun'i
afhjúpa leyndardóminn um yfir
borð tunglsins.
Ranger-skotið heppnaðist full-
komlega, að því er vísindamenn
segja. Tunglfarinu, sem er 360
kg. að þyngd, var skotið upp frá
Cape Kennedy s. 1. sunnudag og
það féll niður í giginu, sem er
105 km. breíður, kl. 13.08 í dag
að íslenzkum tíma. Ranger 9. var
búinn sex myndavélum, sem sendi
myndir niður tíl jarðarinnar.
Þetta er þriðja Ranger-farið,
sem tekið hefur myndir af tungl-
inu, og sendi Ranger 9 um 4000
j myndir til jarðar.
í gær var stefna* Rangers þann-
l íg, að hann hefði lent um 640 km.
i fyrir norðan gíginn, en í morgun
! var stefnunni breytt með merkj
um frá jörðunni.
Gígurinn Alphonsus hefur aldrei
áður verið myndaður, og hafa
vísindamenn grun um, að einhver
eldsumbrot eigí sér stað í honum.
Hann er umlukinn fjöllum, sem
sums staðar eru allt að 3000 metr
ar á hæð.
Lyndon B. Johnson, forseti,
sendi í dag heillaóskir til allra
þeirra, sem stóðu að þessu vel-
heppnaða tunglskotí.
Thorvaldsensfélagið
verður níræff í haust
GB-Reykjavík, miðvikudagur.
Thorvaldsensfélagið í Reykja-
vík, sem verður nírætt á hausti
komanda, hélt aðalfund 17. þ. m.
að Hótel Borg og kaus nýja stjórn
til næsta árs.
Svanfríður Hjartardóttir lét
nú af formennsku að eígin ósk
eftiriangt og farsælt starf í
stjórn félagsins. Fyrst átti hún
sseti í stjórn Barnauppeldissjóðsins
óslitið 1923—1943, en þá tók hún
við formennsku félagsins og hef
ur gegnt því síðan að fráskildum
þrem árum, er hún dvaldist er-
lendis. Formaður í hennar stað
var nú kjörin Unnur Schram, en
með henni í stjórn: Svanlaug
Bjarnadóttir, Sigurlaug Eggerts-
dóttir, Júlíana Oddsdóttir og
Bjarnþóra Benediktsdóttir.
Thorvaldsensfélagíð hefur frá
stofnun unnið að mannúðar og
menningarmálum. Fyrir tveim ár-
um afhenti það Reykjavíkurborg
til eignar og umráða Vöggustof-
! una að Hlíðarenda, sem er ein
! hin fullkomnasta sinnar tegundar
á Norðurlöndum. Sem áður segir,
á félagið 90 ára afmæli í haust,
og er afmælisdagurinn 19. nóv-
emfoer.
Dr. Kristinn við
útför Rúmeníu-
forseta
Akveðið hefur verið að dr. Krist
inn Guðmundsson, ambassador ís-
lands í Rúmeníu, verði viðstaddur
! útför Rúmeníuforseta, sem full-
i trúi forseta íslands og ríkisstjórn
arinnar.
I Útförin fer fram í dag í Búkarest.
Utanríkisráðuneytíð,
i Reykjavík, 24. marz 1965.
Góður afli Patreks-
fjarðarbáta
SJ-Patreksfirðí, föstudag.
Afli Patreksfjarðarbáta fyrri
helming þessa mánaðar hefur ver
ið miög góður og alls hafa borizt
hingað frá 1. til 15. marz um
830 lestir. Afli þessi skiptist þann
ig, að fjórir netabátar hafa lagt
hér upp 776 lestir, einn bátur
sem róið hefur af og til með línu,
hefur lagt upp 12 lestir og að-
komubátar 43 lest'ir. Aflahæsti
báturinn á þessu tímabili er Sel-
ey með 287.4 lestir f 12 sjóferð-
um, Dofri hefur fengið 247.2 lest-
ir í 11 sjóferðum, Helga Guð-
mundsdóttir 241.4 lestir í 8 róðr
um og Sæborg 195.4 lestir í 10
róðrum.
Alls hafa borizt hingað frá ára
mótum til 15. marz 2212.7 lestir
og ér Seley aflahæst með 591.2
lestir en næstur er Dofri með
580.3 lestir.
í gær lönduðu þrir bátar hér
tæpuni 100 lestum.
3 Knudsen-myndir í Gamla bíói
GB-Reykjavík, miðvikudagur.
í dag voru fréttamönnum sýnd-
ar þrjár kvikmyndir, sem Ósvaldur
Knudsen hefur tekið og unnið að
í nokkur ár og hefur sýningar á
n. k. föstudag í Gamla bíói. Mynd-
irnar heita Svipmyndir, Sveitin
milli sanda og Surtur fer sunnan,
sú síðastnefnda nýjust af nálinni,!
síðustu atriðin tekin fyrir nokkr-!
um vikum og sýnir þvi myndin!
Surtsgosið eins og það er í dag, j
sagði dr. Sigurður Þórarinsson í|
nokkrum formálsorðum við frétta-
menn á undan sýningunni í .il«ag.
Hann kvað Ósvald Knudsen
hafa unnið mikið þjóðþrifastarf,
með gerð margra kvikmynda á
undanförnum árum, þar væri að
finna „lifandi" myndir af mörg-|
um þjóðlegum minjum, siðvenj-
um, atvinnuháttum og byggðum,
sem óðum væru að hverfa að fullu
eða breyta um svip. Mætti þar
til nefna hina einstæðu kvikmynd
frá Hornströndum og þá frá Ör-
æfum, sem nú verður sýnd, Sveit-
in milli sanda, en frá henni var
sagt nokkuð ítarlega í viðtali við
höfundinn hér í blaðinu í vetur.
Einnig kvað dr. Sigurður kvik-
myndina Svipmyndir merka heim-
ild um marga þjóðkunna menn, I
sem sumir væru ekki lengur í lif-
enda tölu. Þá væru eldgosakvik-
myndir Ósvalds hinar heillegustu
sem hér hefðu verið gerðar,
Heklugosið, Öskjugosið og nú síð-
ast Surtsgosið, sú mynd sýndi bet-
ur þróun gossins og myndun Surts
eyjar en nokkur önnur, enda hefði
hann varið öllum tómstundum
sínum og meira til að festa það
á filmu. Eldgosi væri ekki hægt
að gefa fullnægjandi lýsingu með
orðum, þar væri kvikmyndin sú
heimild, sem talaði skýrustu máli.
Höfundurinn semdi myndirnar
fyrst og fremst sem heimildarkvik
myndir, en leitaðist þó við að
sinna listrænum kröfum.
Tónlistina við kvikmyndirnar
hefur samið Magnús Bl. Jóhanns-
son, sem hann kvað elektróniska í
Surtseyjarmyndinni að því leyti,
að hljóðfærin væru óþekkjanleg
sem slík, en hljóðfæri væru samt
eingöngu notuð. í Öræfamyndinni
flytur söngkonan Ellý Vilhjálms
músíkina að miklu leyti og leysír
það erfiða verk undravel. Nú hef-
ur í fyrsta sinn "erið settur tónn
erlendis við kvikmyndir Ósvalds,
hjá fyrirtækinu Colour Film
Services í London, og hefur að-
stoðað við það sonur höfundar.
| Vilhjálmur Knudsen, sem leggur
I stund á kvikmyndatökunám í
London.
Ósvaldur Knudsen